Fleiri fréttir

Bannað að geraða í Flórída

Ráðamönnum í Flórída virðist hafa orðið á í messunni þegar þeir settu lög sem banna kynlíf með dýrum. Lykilorðið er dýr. Lögfróðir menn vestra segja að þótt talsverður munur sé á dýrinu homo sapiens og öðrum dýrum þá sé homo sapiens engu að síður dýr. Lögin feli því í sér að kynlíf sé með öllu bannað í sólskinsríkinu.

Vonast til að geta búið til bóluefni gegn HIV

Nýtt bóluefni verndar apa fyrir SIV veirusmiti og gæti leitt til þess að hægt verði að búa til bóluefni gegn HIV veirunni sem gagnast mönnum. SIV veiran í öpum er lík HIV veirunni sem herjar á menn.

Foreldrar Madeleine biðla til forsætisráðherra Breta

Foreldrar Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007 og hefur verið leitað síðan, hafa biðlað til Dave Cameron forsætisráðherra Breta að hann fyrirskipi óháða rannsókn á hvarfi hennar. Þá krefjast þau þess að öll gögn í málinu verði gerð opinber.

Sorpbrennsla: Sofandaháttur einkennir málið

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á fjölmörg atriði þar sem heilbrigðisyfirvöld brugðust í framkvæmd reglna um sorpbrennslustöðvar. Bæði umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun hafa ráðist í að stórbæta verklag sitt að undanförnu.

Kanadamenn gættu Íslendinga

Kanadamenn hafa lokið loftrýmiseftirliti hér við land. Þeir voru með fimm CF-18 Hornet vélar hér, sem komu í byrjun apríl og fóru í lok mánaðarins.

Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru vegna dagssekta

Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru á hendur Umhverfisstofnun vegna vinnubragða stofnunarinnar við mat á mengun frá sorpbrennslustöð bæjarfélagsins og ákvörðunar um að beita Vestmannaeyjabæ dagsektum. Ákvörðun Umhverfisstofnunar byggir á því að mengun frá sorpbrennslustöðinni mældist yfir mörkum, og því að bæjarfélagið hafi ekki gert nauðsynlegar úrbætur á hreinsibúnaði stöðvarinnar. Umhverfisstofnun kunngerði ákvörðun sína um dagsektir í gær. Vestmannaeyjabær gagnrýnir að í tilkynningu frá Umhverfisstofnun hafi láðst að geta þess að bæjarfélagið hafi gripið til margvíslegra úrræða til að draga úr mengun. Í tilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, segir að bæjarfélagið hafi óskað eftir nýrri mælingu á menguninni þar eð mengunarvarnarbúnaður hafi verið að hluta óvirkur þegar fyrri mæling Umhverfisstofnunar var gerð. Einnig fór bæjarfélagið formlega fram á að beðið yrði með íþyngjandi ákvæði, þar með taldar dagsektir, þar til ný mæling lægi fyrir. "Í stað þess að fresta úrskurði meðan beðið væri eftir niðurstöðu mælinga valdi Umhverfisstofnun að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem boðaðar voru dagsektir á Vestmannaeyjabæ sem og önnur íþyngjandi ákvæði – allt byggt á mælingu sem Vestmannaeyjabær dró í efa,“ segir í tilkynningunni. Þá er bent á að nýjar mælingar hafi sýnt að mengun var ekki jafn mikil og í fyrri mælingu, og því forsendur ákvörðunar Umhverfisstofnunar rangar. " Í ljósi nýrra mælinga sem sýna að ekki einungis hefur Umhverfisstofnun sniðgengið þessar athugasemdir heldur beitt verulega íþyngjandi úrræðum á grunni mælinga sem nú ekki gefa rétta mynd af ástandi mála - eins og bent hafði verið á - íhugar Vestmannaeyjabær nú að fela lögfræðingi sveitarfélagsins að leita réttar þess á grundvelli m.a. rannsóknarreglu stjórnsýslulaga (þar sem kveðið er á um að mál séu nægjanlega upplýst áður en tekin er ákvörðun í þeim) og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga (þar sem m.a. er kveðið á um að stjórnvald skuli gæta þess að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til),“ segir í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar.

Fréttaskýring: Deila um Schengen

Innanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hittast í dag til að ræða tillögu framkvæmdastjórnar sambandsins um breytingar á Schengen-samkomulaginu. Þær verða svo afgreiddar á fundi leiðtogaráðs sambandsins í júlí.

Íslendingar á faraldsfæti - mikil aukning frá því í fyrra

Íslendingar hafa farið mun meira til útlanda það sem af er árinu samanborið við sama tímabil í fyrra. Frá áramótum til aprílloka nemur fjölgunin um 20 prósentum en í síðasta mánuði fóru 50 prósent fleiri Íslendingar til útlanda en í apríl í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálaskrifstofu.

Kýrin Lýsa áfram á toppnum

Afurðahæsta kýr landsins í aprílmánuði, reiknað út frámjólkurlítrum, er Lýsa frá Stakkhamri 2. Hún heldur fyrsta sætinu frá því í mars. Meðalafurðir Lýsu voru tæplega 12 tonn í apríl en ríflega 12 tonn í mars. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda. Þar segir að af 10 afurðahæstu kúm landsins eru fimm frá sama búinu, Gunnbjarnarholti.

Stjórnendur Hörpu féllu á prófinu

Sinfóníuhljómsveit Íslands hafði fundið kostunaraðila fyrir beina útsendingu frá opnunartónleikum sínum í Hörpunni. Stjórnendur Hörpu komu hins vegar í veg fyrir að af útsendingunni yrði. Þetta fullyrðir Þröstur Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar.

Lindsey Lohan aftur dæmd í fangelsi

Leikkonan unga Lindsay Lohan var í gær dæmd í 120 daga fangelsi fyrir að stela gullhálsfesti. Stjarnan, sem býr í Kalíforníu, þarf þó væntanlega ekki að afplána dóminn í einum af hinum alræmdu fangelsum ríkisins heldur gefst henni kostur á að vera í stofufangelsi heima hjá sér.

Sást til Gaddafís í fyrsta sinn í hálfan mánuð

Líbíska ríkissjónvarpið sýndi í gærkvöldi myndir af Gaddafí einræðisherra landsins en hann hefur ekki komið fram opinberlega í hálfan mánuð. Yfirvöld segja að upptakan hafi verið gerð í gær í höfuðborginni Líbíu en þetta hefur ekki verið staðfest af óháðum aðilum.

Haglabyssu stolið í bílskúr á Akureyri

Haglabyssu var stolið úr læstum byssuskáp í bílskúr á Akureyri í fyrrinótt, en þjófnaðurinn uppgötvaðist í gærkvöldi. Skápurinn var læstur en þjófurinn fann lykilinn, sem var geymdur í skúrnum, og opnaði skápinn. Þar voru tvær aðrar byssur, sem hann skildi eftir, og hann hreyfði ekki við örðum verðmætum.

Engin sanddæluskip í Landeyjahöfn

Sanddæluskipið Skandía, sem á að sjá um dýpkun Landeyjahafnar, hefur legið við bryggju í Vestmannaeyjum í nokkra daga vegna bilunar og Perlan, sem send var þangað nýverið til að aðstoða Skandíu, er komin til Ísafjarðar í verkefni þar.

Hefðu viljað ná Osama lifandi

Osama bin Laden hefði verið tekinn lifandi svo hægt hefði verið að rétta yfir honum, ef þess hefði verið nokkur kostur.

Úthafskarfavertíðin hafin af krafti

Úthafskarfavertíðin á Reykjaneshrygg er nú byrjuð af fullum krafti og eru sex íslenskir togarar komnir til veiða þar, auk að minnsatkosti tuttugu erlendra togara.

Pítsustaðir í viðbragðsstöðu

Pítsustaðir og snakkframleiðendur eru í viðbragðsstöðu eftir frækinn árangur Vina Sjonna í undankeppni Eurovision á þriðjudaginn.

Þúsundir gistu utandyra í Lorca

Þúsundir íbúa á Suður Spáni gistu utandyra í nótt af ótta við frekari jarðskjálfta á svæðinu. Í gærkvöldi reið fremur lítill skjálfti yfir sem hafði þó þær afleiðingar að nokkrar byggingar hrundu í bænum Lorca og tíu manns létust.

Nær að fjölga hreindýrum en hækka veiðileyfin

„Það er algjör firra að hér verði seld þúsund hreindýraveiðileyfi á uppsprengdu verði,“ segir Elvar Árni Lund, formaður Skotvís, um fullyrðingar tveggja háskólamanna á Akureyri um að hægt verði að fá mun meiri tekjur af hreindýrum með því að selja leyfin hæstbjóðanda í stað þess að úthluta þeim á föstu verði.

Vilja að Vatnsberinn verði í Austurstræti

Borgaryfirvöld vinna nú að því að flytja höggmynd Ásmundar Sveinssonar af Vatnsberanum úr Öskjuhlíð niður í miðbæ þar sem henni var upphaflega ætlaður staður árið 1949.

Áfellisdómur yfir stjórnsýslunni

Ríkisendurskoðun fellir áfellisdóm yfir stjórnsýslu umhverfisyfirvalda vegna sorpbrennslna hér á landi og telur að Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið hafi brugðist eftirlitsskyldum sínum. Ríkisendurskoðun birti í gær stjórnsýsluúttekt sína vegna sorpbrennslna. Tilefnið var Funamálið svokallaða.

Minna umburðarlyndi gegn ofbeldi

Minna umburðarlyndi gagnvart kynferðisbrotum ríkir nú hér á landi en áður og jafnframt minni skömm fyrir þolendur að stíga fram.

Óttast að fá ekki að njóta uppbyggingar fiskistofna

Bæði útgerðarmenn og sjómenn gera alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, sem kynnt var í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær. Þeir óttast að fá ekki að njóta uppbyggingarstarfs á fiskistofnunum þrátt fyrir að hafa fært fórnir.

Móðir lét vita af ofnæmisvaldi í köku

Sérstakt átak Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits með merkingu ofnæmisvalda í matvöru hefur skilað sér í aukinni árvekni neytenda. Jónína Stefánsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun, segir tíðari fregnir af innköllunum matvæla hafa gert það að verkum að fólk fylgist betur með og ábendingum til stofnunarinnar hafi fjölgað.

Vilja auka útflutning lambakjöts um rúmlega helming

Líkur eru á að kvótinn, sem flytja má inn af íslensku lambakjöti til ríkja Evrópusambandsins (ESB) án þess að greiða toll, verði fullnýttur áður en langt er liðið á haustið. Samkvæmt heimildum blaðsins eru hafnar fyrstu þreifingar í þá átt að auka kvótann.

Lögreglan vill tvo þjófa senda úr landi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent Útlendingastofnun erindi þess efnis að tveir þjófar af erlendu bergi brotnir verði sendir úr landi. Þetta segir Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri.

Afstaða tekin til einstakra kafla

Á fundi samninganefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu í mars kom fram að tímabært væri að móta samningsafstöðu Íslands til einstakra kafla aðildarviðræðna Íslands og ESB.

Auka á aðgengi innflytjenda

Innflytjendur geta nú sótt ráðgjöf og upplýsingar um réttindi sín og skyldur í Þjónustumiðstöð Breiðholts í Mjódd.

Óttast loftmengun frá Gráuhnúkum

Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis mótmælir þeirri fullyrðingu Orkuveitunnar að jarðhitanýting við Gráuhnúka muni engin áhrif hafa á loftgæði. Skipulagsstofnun fól heilbrigðisnefndinni að veita umsögn um frummatsskýrslu Orkuveitunnar vegna fyrirhugaðrar vinnslu jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun.

Dró sér átta milljónir króna

Lögreglustjórinn á Akureyri hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir fjárdrátt að upphæð rúmlega átta milljónir.

Bandaríkin sýna áhuga

Bandaríkin sýna starfi Norðurskautsráðsins óvenju mikinn áhuga núna, þegar Hillary Clinton utanríkisráðherra og Ken Salazar innanríkisráðherra mæta til Grænlands á fund ráðsins í dag.

Velferðarráðherra biðlar til tannlækna um samvinnu

Velferðarráðherra biðlar til tannlækna að koma til samvinnu við ríkið um tannlæknaþjónustu fyrir börn og ungmenni undir 18 ára aldri. Markmiðið er að ríkið greiði 75 prósent af allri þjónustu barna.

Ákæra gegn Geir illa ígrunduð og óskýr að mati verjanda

Verjandi Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, útilokar ekki að reynt verði að fá málinu vísað frá Landsdómi. Hann segir ákæruna gegn Geir illa ígrundaða og óskýra og efast um hvort hægt sé að reka mál fyrir Landsdómi á grundvelli hennar.

Útgerðamenn ætla að berjast gegn kvótafrumvarpi

Útgerðarmenn ætla að berjast gegn hinum umdeildu kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar og finna þeim flest til foráttu. Verið sé að færa vinnu frá atvinnumönnum í hobbístarfsemi, draga úr hagræðingu, sérhæfingu, uppbyggingu og skerða afkomu og tekjur þjóðarinnar af auðlindinni.

Gæslan leitaði hvítabjarna

Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði ísbjarna á friðlandinu á Hornströndum eftir hádegi í dag. Segir Landhelgisgæslan að mikill almennur þrýstingur hafi verið um að farið yrði í slíkt flug, eftir að hvítabjörn var felldur í Rekavík 2. maí síðastliðinn.

Fjórir mánuðir óskilorðsbundið fyrir kannabisræktun

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur kannabisræktun. Maðurinn játaði að hafa ræktað og haft í vörslum sínum 143 kannabisplöntur og um fimmtán grömm af maríjúana.

Ríkisendurskoðun gagnrýnir umhverfisráðuneytið harðlega

Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið brást skyldum sínum í eftirliti með sorpbrennslustöðvum. Þetta er niðurstaða Ríkisendurskoðunar sem skilaði skýrslu um málið í dag. Evrópusambandið gaf árið 2000 út tilskipun sem meðal annars setti strangari reglur en áður höfðu gilt um hámarkslosun sorpbrennslustöðva á mengandi efnum út í andrúmsloftið. Íslendingum bar að innleiða tilskipunina vegna aðildar að EES samningnum en gerðu það ekki.

Assange fékk friðarverðlaun

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, fékk í gær gullmedalíu Friðarstofnunarinnar í Sidney. Assange er sá fjórði sem hlotnast þessi heiður í fjórtán ára sögu verðlaunanna en þau eru tengd háskólanum í borginni og studd af borgaryfirvöldum. Assange er enn að berjast gegn framsali frá Bretlandi til Svíþjóðar þar sem hann hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot.

Opnunarhátíð Hörpunnar á sama tíma og Eurovision

Eurovision partý eru órjúfanlegur hluti af Eurovision hefðinni og líklega verða göturnar í Reykjavík fáfarnar þegar íslenska lagið verður flutt í Dusseldorf. Nema kannski í nágrenni við Hörpuna, en opnunarhátíð tónlistarhússins er einmitt á laugardaginn og mun dagskráin halda áfram langt fram á kvöld.

Sætir furðu að forseti Landsdóms láti töfina viðgangast

Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra segir það sæta furðu að Saksóknari Alþingis hafi tekið sér sjö mánuði til að skrifa upp nánast orðrétta þingsályktunartillögu Alþingis á nýjan leik og telur með ólíkindum að forseti Landsdóms láti viðgangast svona langa töf á málsmeðferðinni.

Sjá næstu 50 fréttir