Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Niðurskurður ógnar flugöryggi á Íslandi "Helstu áhættuþættir flugs á Íslandi í dag eru að mínu mati tengdir hinu opinbera, þar á meðal innanríkisráðuneytinu, rekstrarfélagi flugumferðarþjónustu og flugvalla á Íslandi – ISAVIA og Landhelgisgæslu Íslands og því fjárhagsumhverfi sem þessum stofnunum er gert að vinna í,“ skrifar Kári Kárason, fráfarandi formaður Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), í fréttablað félagsins. 31.3.2011 21:36
Ég var alltaf að drífa mig svolítið Ólafur Jóhannesson er sennilega einn afkastamesti kvikmyndagerðarmaður landsins þótt honum sé eflaust lítið um þann titil gefið sjálfum. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við leikstjórann um nýja sýn á kvikmyndagerðina og leiðina heim til Búðardals. 31.3.2011 21:30
Eins og að deila við dómarann Að mótmæla viðbrögðum lánshæfismatsfyrirtækja við höfnun Icesave-samkomulags er eins og að deila við dómarann. 31.3.2011 21:00
Samþykkt að framkvæma óháða úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitunnar Á borgarstjórnarfundi í kvöld var samþykkt, með öllum greiddum atkvæðum, tillaga um að fela borgarstjóra að láta fara fram óháða úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. 31.3.2011 20:45
Bæjarstjóri gerir stuðsamning "Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar skulu stuðla að óæskilegri hegðun og almennum kjánaskap meðan á hátíðinni stendur, meðal annars með því að dansa kjánalega, trufla hljómsveitir og ganga á fjörur við sjálft tónlistarfólkið. 31.3.2011 20:30
Inspired by Iceland meðal ástæða fyrir umsókn tímenninganna "Ég varð mjög heillaður af Inspired by Iceland herferðinni sem og skjólstæðingar mínir,“ sagði lögfræðingurinn David Lesperance, um eina af þeim ástæðum að tíu auðugir einstaklingar hafi sótt um ríkisborgararétt hér á landi fyrir sig og börnin sín. 31.3.2011 19:52
Gullgæsir vilja verpa á Íslandi Erlendir fjárfestar sem sótt hafa um íslenskan ríkisborgararétt njóta liðsinnis bandaríska lögfræðingsins Davids Lesperance. Hann sérhæfir sig í ráðgjöf um hvernig menn geta fengið ríkisborgararétt í löndum þar sem skattkerfið er þeim hagstætt. 31.3.2011 19:30
Vorið er að koma - þá hefst Listahátíð í Reykjavík Dans og söngur verða áberandi á Listahátíð í Reykjavík í vor. Fimm hundruð erlendir og innlendir listamenn koma fram á um fjörutíu viðburðum víðs vegar um borgina. 31.3.2011 19:24
Símhlerunum beitt í meintu samráði Símhlerunum var beitt í tengslum við rannsókn á samkeppnisbrotum Byko og Húsasmiðjunnar en þannig tókst lögreglu að afla mikilvægra sönnunargagna um meint samkeppnisbrot. 31.3.2011 19:15
Yfir 20 vörutegundir innkallaðar vegna vanmerkinga Yfir tuttugu vörutegundir hafa verið innkallaðar vegna vanmerkinga á ofnæmis- og óþolsvöldum það sem af er árinu, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. 31.3.2011 19:14
Hanna Birna: Fóru rangt með staðreyndir til að breiða yfir klúður Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn segir meirihlutann hafa farið rangt með staðreyndir til að breiða yfir klúðurslegar yfirlýsingar borgarstjóra um Orkuveituna. Ársreikningar sýndu að fyrirtækið væri ekki gjaldþrota. 31.3.2011 18:46
Viðræður um kísilver á Bakka Þýskt fyrirtæki er í viðræðum við Landsvirkjun um að reisa kísilverksmiðju við Húsavík, sem myndi skapa um eitthundrað störf. Þjóðverjarnir voru fyrir norðan í gær að kynna sér aðstæður. 31.3.2011 18:45
Ætla að flýta vegaframkvæmdum og skapa ný störf Ríkisstjórnin ætlar að flýta vegaframkvæmdum til að skapa ný störf og er markmiðið að ná atvinnuleysinu niður í fimm prósent. Þá á að auka opinberar framkvæmdir um fimmtíu prósent, en það er meðal tillagna til að höggva á hnút kjaraviðræðna. Engar beinar lækkanir verða á tekjuskatti fyrirtækja eða einstaklinga. 31.3.2011 18:38
Aníta Líf komin til hafnar Eftirlitsbáturinn Baldur, sem er á vegum Landhelgisgæslunnar kom til hafnar með fiskibátinn Anitu Lif í togi laust eftir klukkan fimm í dag. Aníta Líf sökk norður af Akurey á laugardag. 31.3.2011 17:48
Dæmdir til þess að greiða samanlagt 208 milljónir í sekt Tveir karlmenn um sextugt voru dæmdir í 18 mánaða fangelsi hvor um sig fyrir stórfellt brot gegn skattalögum með því að standa ekki skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélags sem þeir ráku. 31.3.2011 17:32
Lögðu hald á amfetamín og kannabis á Akranesi Lögreglan á Akranesi framkvæmdi í dag húsleit að fengnum úrskurði héraðsdóms vesturlands. 31.3.2011 17:19
Íris Lind þiggur sæti í stjórnlagaráði Íris Lind Sæmundsdóttir hefur samþykkt boð stjórnlagaráðs um að taka sæti í ráðinu. Fyrr í vikunni höfðu 24 af þeim 25 sem landskjörstjórn úthlutaði sæti í kosningu til stjórnlagaþings 27. nóvember síðastliðinn þekkst boð Alþingis um að taka sæti í stjórnlagaráði. Stjórnlagaráð er því fullskipað og mun koma saman til fyrsta fundar miðvikudaginn 6. apríl klukkan tvö. Íris Lind tekur sæti í ráðinu fyrir Ingu Lind Karlsdóttur. 31.3.2011 17:16
Meintur ofbeldismaður sýknaður - fórnarlamb þorði ekki að bera vitni Hæstiréttur Íslands snéri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem karlmaður var sakfelldur fyrir harkalega líkamsárás í janúar 2009. Maðurinn var þá dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir árásina, sem þótti ófyrirleitin og afar ofbeldisfull. 31.3.2011 17:12
Sýknaður af kynferðisbroti gegn fimm ára stelpu Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um kynferðisbrot. Hann var sakaður um að hafa berað á sér kynfærin fyrir framan fimm ára stúlku og látið hana afklæðast að hluta og káfað á líkama hennar, þar með talið á kynfærum hennar og rassi utan klæða. 31.3.2011 17:02
Koma með bátinn sem sökk Eftirlitsbáturinn Baldur, sem er á vegum Landhelgisgæslunnar, siglir nú með pramma Köfunarþjónustunnar til Reykjavikur með fiskibátinn Anitu Lif sem sökk norður af Akurey á laugardag. Með i för eru fulltrúar Rannsóknarnefndar sjóslysa og tryggingafelags. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa aðgerðir staðið yfir frá því snemma i morgun. Kafarar Landhelgisgæslunnar köfuðu niður ad bátnum og könnuðu ástand hans og umhverfi áður en settar voru festingar i bátinn og hann hífður upp. Gengu aðgerðir ágætlega. Áætlað er ad koma ad bryggju um klukkan fimm. Búist er við að hann komi að Miðbakka. 31.3.2011 16:14
Athafnamaður úthrópaður sonur Satans "Ég er bara aumur frumkvöðull sem er að reyna að sækja erlent fjármagn til fjárfestinga á Íslandi," segir Sturla Sighvatsson, framkvæmdastjóri Northern Lights Energy. Hann segist vera orðinn úthrópaður sem sonur Satans í bloggheimum eftir að hann kom fram í Kastljósi í gær og mælti fyrir hópi fjárfesta sem vilja fá íslenskan ríkisborgararétt gegn því að fjárfesta hér í miklum mæli, meðal annars í endurnýtanlegri orku. Sturla var gestur þeirra Þorkels Mána Péturssonar og Frosta Logasonar í þættinum Harmageddon á X-inu nú síðdegis. Þar sagði Sturla að íslenskir athafnamenn hafi að fyrra bragði leitað til lögmannsins David S. Lesperance sem síðan hafi komið saman tíu manna hópi fjarfesta sem eru áhugasamir um að fjárfesta á Íslandi. Umræða um þessa erlendu fjárfesta hefur verið á mjög neikvæðum nótum í dag og margir eru afar tortryggnir. Þá hefur Sturla einnig verið gagnrýndur fyrir að tala máli þessa fólks. Á Harmageddon sagðist hann ekki þekkja fjárfestana persónulega en hann hefði vissulega hitt marga þeirra þegar þeir hafa heimsótt landið. Hann segir ekki taka því að hafa áhyggjur af eigin orðspori í þessu sambandi því þegar sé búið að taka hann af lífi. "Það er nú þegar búið að hengja mig í bloggheimum. Ég er klárlega mjög vondur maður fyrir það að laða fólk og fjármagn til Íslands. Ég er úthrópaður sonur Satans á hinum ýmsu síðum," segir Sturla sem virðist ekki taka þessar upphrópanir mjög nærri sér, enda eigi þær ekki við nein rök að styðjast. "Ég vil ekki frekar en nokkur annar að það komi hingað til landsins einhverjir glæpasnúðar," segir hann og telur sig hafa aflað sér það mikilla upplýsinga um fjárfestana að hann geti staðhæft að þarna séu ekki glæpamenn á ferð. 31.3.2011 16:09
Borgarstjóri mælti fyrir björgunarpakka vegna OR Jón Gnarr borgarstjóri mælti fyrir tillögum um björgunaraðgerðir til handa Orkuveitu Reykjavíkur á aukaborgarstjórnarfundi sem nú fer fram. Í tillögunni er gert ráð fyrir því að borgarráð samþykki að Reykjavíkurborg veiti Orkuveitu Reykjavíkur lán að fjárhæð átta milljarðar króna hinn 1. apríl næstkomandi og að fjárhæð fjórir milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 2013. 31.3.2011 15:22
Fundu 20 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Grafarvogi. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 20 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Húsráðendur, tveir karlar á þrítugsaldri, voru yfirheyrðir á vettvangi og játuðu þeir aðild sína. Málið telst upplýst, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 31.3.2011 14:37
Almannagjá lokað - ný sprunga kom í ljós Starfsmenn þjóðgarðsins á Þingvöllum uppgötvuðu um daginn nýja sprungu í Almannagjá. Lítil hola hafði myndast á göngustígnum í gjánni en þegar betur var að gáð reyndist um sprungu að ræða, 10 til 14 metra djúpa sem teygir sig til suðurs undir göngustígnum. 31.3.2011 14:27
Reynt að höggva á hnútinn í Ráðherrabústaðnum Ríkisstjórnin situr nú á fundi með forystumönnum aðila vinnumarkaðarins þar sem kynntar eru tillögur til að höggva á þann hnút sem upp er kominn í kjaraviðræðum. 31.3.2011 14:01
Musa Kusa fær ekki friðhelgi Stjórnvöld í Bretlandi segjast ekki hafa í hyggju að bjóða Musa Kusa, hinum brottflúna utanríkisráðherra Líbíu, friðhelgi en líkur eru taldar á því að hann verði kærður fyrir stríðsglæpi sem einn æðsti ráðamamaður Líbíu síðustu ár og stjórnandi líbísku leyniþjónustunnar um tíma. 31.3.2011 13:36
Frambjóðendur hafna vangaveltum um kosningasvindl Nokkrir frambjóðendur til formanns og stjórnar VR í nýafstöðnum kosningum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem vangaveltum um kosningasvindl er vísað á bug. Tveir aðrir frambjóðendur sögðust í viðtali við DV fyrr í dag vilja láta rannsaka kosningarnar til þess að skera úr um hvort brögð hafi verið í tafli. Frambjóðendurnir sem nú stíga fram segjast hinsvegar þeirrar skoðunar að vel hafi verið staðið að kosningunum og spyrja þau hvort ekki sé nóg komið „af svona vinnubrögðum.“ 31.3.2011 13:21
Barðstrendingar orðnir reiðir vegna vegamála Ólga er meðal Samfylkingarmanna á sunnanverðum Vestfjörðum í garð þriggja þingmanna flokksins, sem þeir segja vinna gegn óskum íbúa fjórðungsins um vegarbætur. 31.3.2011 11:52
Leita að olíu á Drekasvæðinu úr flugvél Norðmenn og Íslendingar hafa ákveðið að standa saman að flugsegulmælingum á Drekasvæðinu í haust. Niðurstöður mælinganna verða eitt af lykilatriðum við mat á olíulíkum á svæðinu. 31.3.2011 11:41
Gullgæsir sækja um ríkisborgararétt Lögfræðingurinn David S. Lesperance er í forsvari fyrir þann hóp fjárfesta sem hér hefur sótt um ríkisborgararétt gegn því að fjárfesta á Íslandi í stórum stíl. Þetta staðfestir Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar, í samtali við fréttastofu. Lesperance hefur sérhæft sig í ráðgjöf til auðmanna um hvernig þeir geta fengið ríkisborgararétt í löndum þar sem skattkerfið er þeim hagstætt, og aðstoðar þá við að koma sér upp svokölluðu Passport portfolio. Þannig geta auðmennirnir nýtt sér það besta úr kerfi hvers lands sem þeir hafa ríkisborgararétt í þegar kemur að skattalegri meðferð Hann heldur úti nokkrum vefsíðum, meðal annars síðu sem ber heitið The flight of the golden gees og útleggst á íslensku sem Flug gullgæsanna. Með því að smella tengilinn hér að ofan er hægt að horfa á litla teiknimynd, með ensku tali, þar sem sögð er saga af gullgæs sem ber af hinum dýrunum á bóndabænum og þarf að deila gulleggjunum sínum með hinum dýrunum. Hún kemst síðan í kynni við hóp annarra gullgæsa sem allar eru á leið á bóndabæ þar sem þær fá að halda stærri hluta af gulleggjum sínum, og slæst í hópinn. Eins og fréttastofa greindi frá fyrr í dag hefur allsherjarnefnd ekki fjallað um umsóknir þessara einstaklinga og vill Róbert ekki tjá sig um starfsemi Lesperance. Þeir tíu einstaklingar sem Lesperance vinnur nú fyrir, og hafa sótt hér um ríkisborgararétt, heita: Aaron Robert Thane Ritchie Rodney Chadwick Muse Patrick Charles Egan David Joseph Steinberg Christopher Bailey Madison Calvin Wilson Alexey Viktorovich Maslov Peter Kadas Patrick Hoiland Sandra Jean Houston 31.3.2011 11:34
Adolf var afrískur Gyðingur Adolf Hitler var Afríkumaður af gyðingaættum ef marka má umfangsmikla rannsókn sem belgiskur blaðamaður og belgiskur sagnfræðingur gerðu á fortíð hans. 31.3.2011 11:33
Lugu til um geimferð Gagarins Sovétríkin lugu til um nokkra þætti í geimferð Yuris Gagarins fyrir fimmtíu árum, að sögn rússnesks blaðamanns sem hefur skrifað bók um þetta afrek. 31.3.2011 11:29
Róbert Marshall: Ekki verið að selja Ísland „Við höfum enn ekkert fjallað um þessar umsóknir," segir Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar Alþingis. Lögmaður tíu manna hóps fjárfesta hefur skrifað formanni allsherjarnefndar bréf þar sem þrýst er á að nefndin taki umsóknirnar fyrir. Innanríkisráðuneytið hefur haft umsóknirnar til umfjöllunar og óskað eftir viðbótargögnum sem ekki hefur verið skilað. Lögmaður hópsins segir kröfur ráðuneytisins í samræmi við lög og reglur. Róbert segir að nefndin geri ráð fyrir að fjalla um umsóknirnar um miðjan apríl, eftir rúman hálfan mánuð. Bréfið sem lögmaðurinn sendi Róbert, og birt var á Eyjunni í morgun, var dagsett 7. febrúar. Þar kemur fram að hópurinn hafi reiknað með að Alþingi myndi taka umsóknirnar fyrir í desember, þegar aðrar umsóknir voru afgreiddar. Spurður hvort ekki megi skilja bréfið þannig að þrýst sé á allsherjarnefnd að taka umsóknirnar fyrir sem fyrst, segir Róbert: „Það getur verið að einhver hafi einhverjar meiningar um það, en það er ekkert sem við verðum við. Þetta tekur allt tíma," segir Róbert og bendir á að fjöldi annarra mála bíði afgreiðslu hjá allsherjarnefnd. Í Kastljósi í gær kom fram að umræddir fjárfestar hefðu sérstakan áhuga á endurnýjanlegri orku og fjárfestingum í þeim geira á Íslandi. Netheimar tóku hratt við sér í framhaldinu og virtust margir óttast að hér voru komnir aðilar sem ætluðu að sölsa undir sig íslenskar orkuauðlindir. Spurður hvort hann telji ástæðu fyrir fólk til að hafa áhyggjur af því að verið sé að selja Ísland með þessum hætti, segir Róbert: „Það er algjörlega út í hött. Það er enginn að tala um neitt slíkt. Við erum ekki með ríkisborgararétt til sölu. Allt tal um að það sé verið að fara að selja orkuauðlindir eða landið á bara ekki við neinn rök að styðjast." Sem fyrr vísar hann til þess að einstaklingar sem teljast vera akkur fyrir Ísland hafa í gegn um tíðina fengið undanþágur frá hefðbundinni afgreiðslu á umsóknum um ríkisborgararétt, til að mynda ef fólk telst bera af í listum eða íþróttum. Í framhaldinu þurfi nú að meta hvort við viljum fá inn fjárfesta á þessum sama grundvelli. 31.3.2011 11:07
Stúlkan sem var skotin er enn í lífshættu Ástand hinnar fimm ára gömlu stúlku sem varð fyrir skotárás í London í gær er ennþá metið alvarlegt. Stúlkan er talin vera yngsta fórnarlamb byssuskots í London í langan tíma en hún fannst lífshættulega særð í verslun einni í hverfinu Lambeth, ásamt 35 ára gömlum manni sem hafði verið skotinn í höfuðið. Lögreglan leitar nú þriggja ungmenna sem eru taldir hafa skotið mörgum skotum inni í versluninni en þangað höfðu þeir elt tvo aðra unglinga. Þeir sluppu hinsvegar báðir að því er virðist og biðlar lögreglan nú til þeirra að koma fram og veita upplýsingar. 31.3.2011 10:54
Það sækir uggur að Jóhönnu Það vekur upp áhyggjur og grunsemdir ef fjársterkir aðilar eru að koma hér og sækja um ríkisborgararétt til að geta fjárfest í íslenskum orkuauðlindum. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, spurði forsætisráðherra út í málið. 31.3.2011 10:53
Hópurinn vildi ríkisborgararétt strax í desember Hópur erlendra ríkisborgara sem sótt hefur um íslenskan ríkisborgararétt fyrir stefndi að því að fá Alþingi til að taka umsóknirnar til afgreiðslu í desember 2010, þegar aðrar umsóknir um ríkisborgararétt fengu umfjöllun. Það gekk ekki eftir því innanríkisráðuneytið lagði "alla mögulega steina í götu þess að Alþingi fengi að fjalla um framangreindar umsóknir." 31.3.2011 09:43
Fer ekki að vekja upp þennan dauða hest "Þetta er alveg úr lausu lofti gripið," segir Sölvi Blöndal tónlistarmaður. Vísir greindi frá því í gær að hljómsveitin Quarashi væri að íhuga endurkomu í sumar. Sagði í frétt á vefnum að sveitin myndi leika á tónleikum á útihátíð í júlí sem kallast Besta hátíðin. 31.3.2011 09:18
Björgunaraðgerðir OR koma illa niður á Borgarbyggð Björgunaraðgerðir eigenda Orkuveitu Reykjavíkur, koma harkalega niður á fjárhag Borgarbyggðar sem á tæplega eitt prósent í fyrirtækinu. Í Skessuhorni er greint frá því þetta muni kosta sveitarfélagið 75 milljónir króna í ár, og 35 milljónir á næsta ári, peninga, sem ekki eru til. 31.3.2011 09:09
Lítil grásleppuveiði Veiðin, það sem af er þessari grásleppuvertíð, er ekki nema 40 prósent af því sem hún var á sama tíma í fyrra. Það má að mestu leiti skýra með þrálátum brælum, sem hafa komið í veg fyrir að menn gætu róið, því þokkalega veiðist þegar verður leyfir. 31.3.2011 09:06
Hart barist á Fílabeinsströndinni Hermenn hliðhollir forsetaframbjóðandanum Alassane Outtara á Fílabeinsströndinni hafa lagt undir sig eina stærstu borg landsins. Miklir bardagar hafa geisað í landinu eftir að sitjandi forseti Laurent Gbagbo neitaði að láta af völdum þrátt fyrir að hafa tapað í kosningum og hefur enn töglin og hagldirnar í stærstu borginni Abidjan. 31.3.2011 09:04
Strípalingar á ferð í Hveragerði Nokkrum Hvergerðingum brá í brún um tíu leitið í gærkvöldi þegar þeir sáu sex unga karlmenn hlaupa þar kviknakta um stræti. 31.3.2011 08:57
Var að saga lás á hjóli þegar lögregluna bar að Lögreglumenn komu að manni í Kvosinni í Reykjavík um klukkan þrjú í nótt þar sem han var að saga lás á reiðhjóli. 31.3.2011 08:43
Rýmingarsvæðið verði stækkað um helming Kjarnorkueftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa lagt til við japönsk stjórnvöld að þau íhugi alvarlega að stækka öryggissvæðið í kringum kjarnorkuverið í Fukushima og flytja íbúa á brott. 31.3.2011 08:04
Musa Kusa snýr baki við Gaddafí Utanríkisráðherra Líbíu, Musa Kusa, hefur flúið land og er nú í Bretlandi. Hann segist ekki vilja starfa lengur fyrir einræðisherrann Muammar Gaddafí. Kusa flaug til Túnis þar sem hann var yfirheyrður af breskum hermönnum áður en hann fékk að fara áfram til Bretlands. 31.3.2011 07:03
Máli tannlæknisins var vísað frá dómi Máli tannlæknis á Suðurnesjum sem ákærður hafði verið fyrir fjársvik, með því að framvísa til Tryggingastofnunar reikningum vegna tannviðgerða sem hann hafði ekki unnið, var í gær vísað frá dómi í Héraðsdómi Reykjaness. Dómurinn sagði „bresta svo mjög á skýrleika verknaðarlýsingar í ákæru að ákærða verði með réttu ekki talið fært að taka afstöðu til sakargifta og halda uppi vörnum gegn þeim“. 31.3.2011 07:00