Fleiri fréttir

Fiskveiðikerfið ekki í aðgerðapakkanum

Ríkisstjórnin mun í dag kynna víðtæka aðgerðaáætlun til að örva atvinnu- og efnahagslíf landsins. Með því er leitast við að svara kröfum aðila vinnumarkaðarins og liðka um fyrir kjaraviðræðum milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins (SA). Forsætisráðherra segir að þar verði ekki kveðið á um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Nóg komið af áhættusækni

„Mín skoðun er að það verði svo sem engin ragnarök þótt Icesave verði hafnað eins og sumir vilja halda fram,“ segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu.

Barði mann í höfuð með röri

Ríkissaksóknari hefur ákært tvítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa slegið annan mann með járn- eða álröri í höfuðið.

Kýldi starfsmann barnaverndarnefndar

Ríkissaksóknari hefur ákært konu fyrir ofbeldisverk og hótanir gagnvart starfskonu barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar á árunum 2008 og 2009.

Höfuðkúpubrot-inn eftir árás

Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa kýlt annan mann í andlit og bringu og ýtt honum.

Við höfum val út úr reiðinni

„Þetta er ævaforn mantra sem er til þess fallin að glæða með okkur hugrekki, eldmóð og staðfestu. Hún virkar í dagsins önn,“ segir listamaðurinn Þorlákur Kristinsson Morthens, betur þekktur sem Tolli.

Geri tillögu um hafnarsvæðið

Borgarráð hefur samþykkt skipan fimm manna stýrihóps á vegum borgarinnar og Faxaflóahafna til að endurskoða skipulag við höfnina frá Grandagarði að tónlistar- og ráðstefnuhúsinu.

Útivistarleiðir en ekki stígar á Arnarnesi

„Þessi fundur er til að leggja fram kynningu og fá athugasemdir íbúanna,“ segir Stefán Konráðsson, formaður skipulagsnefndar Garðabæjar, um fund í Sjálandsskóla í kvöld um skipulagsmál á Arnarnesi.

Uppreisnarmenn á undanhaldi

Liðsmenn Múammars Gaddafí náðu olíuborginni Ras Lanúf aftur á sitt vald í gær úr höndum uppreisnarmanna. Einnig var hart sótt að uppreisnarmönnum í olíuborginni Brega.

Fjórir ofnar teknir úr notkun

Hvert bakslagið á fætur öðru hefur komið í baráttuna við að halda niðri geislamengun frá kjarnorkuverinu í Fukushima. Ákveðið hefur verið að leggja endanlega niður starfsemi í þeim fjórum ofnum versins sem til vandræða hafa verið.

Heimilar leynilegan hernaðarstuðning við líbíska uppreisnarmenn

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, undirritaði sérstakan samning fyrir tveimur eða þremur vikum, um leynilegan stuðning við uppreisnarmenn í Líbíu umfram samþykkt Öryggisráðsins sem gengur út á flugbann og að tryggja að saklausir borgarar verði ekki fyrir árásum af hálfu herliðs Muammar Gaddafis, leiðtoga Líbíu.

Vilja ríkisborgararétt til þess að fjárfesta í orkuauðlindum Íslands

Tíu fjársterkir aðilar frá Bandaríkjunum og Kanada, hafa óskað eftir íslenskum ríkisborgararétti fyrir sig og börn sín. Samkvæmt fréttastofu RÚV, þá er um fjársterka reynslubolta úr orkubransanum að ræða en þeir hafa hug á að fjárfesta í endurnýjanlegri orku hér á landi.

Stefnt að þriggja ára samningum

Ef Samtök atvinnulífsins láta af fyrirvara sínum um útfærslu á stjórn fiskveiða í tengslum við gerð kjarasamninga, segir forsætisráðherra mögulegt að ná samningum til þriggja ára. Ríkisstjórnin kynnir á morgun aðgerðir í atvinnumálum og skattaívilnanir til fyrirtækja sem ætlað er að liðka fyrir samningagerðinni.

Ólga meðal félagsmanna VR vegna nýs formanns

Félagsmenn í VR hafa í auknum mæli í dag haft samband við Bandalag háskólamanna, BHM, til að kanna hver staða þeirra er ef það skiptir um stéttarfélag. Nýr formaður VR, Stefán Einar Stefánsson, var kjörinn í dag og virðast félagsmenn ekki á eitt sáttir við hann taki við félaginu. Mikil umræða hefur skapast á Fésbókarsíðum um kjörið og fjöldi fólks segist ætla að segja sig úr VR. Stefán Einar þykir umdeildur vegna þátttöku sinnar í starfi ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins. "Það hefur verið svolítið hringt og spurt um rétt í félögunum. Ekkert ofboðslega mikið en samt meira en venjulega," segir Halldór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Huggarðs þjónustuskrifstofu sem sér um fimm af BHM-félögunum. "Það hefur komið þó nokkuð af fyrirspurnum frá félagsmönnum VR," segir hann aðspurður. Almennt er ekki mikið mál fyrir fólk að skipta um stéttarfélag á almennum markaði enda ræður fólk sjálft í hvaða stéttarfélagi það er, svo lengi sem það uppfyllir kröfur félagsins, til að mynda um menntun. Stefán Einar fékk um 20% atkvæða í formannskjörinu. Sú sem næst flest atkvæði fékk hlaut um 18% atkvæða. Kosningaþátttaka var mjög dræm, en tæplega fimm þúsund manns greiddu atkvæði, eða um 17 prósent félagsmanna í VR.

Harpa ræður yfirumsjónarmann húsvörslu

Ráðið hefur verið í fjögur ný stöðugildi hjá tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Um er að ræða stöður ritara, mótttökuritara, umsjónarmanns húsvörslu og yfirumsjónarmann húsvörslu.

Stefán Einar formaður VR

Stefán Einar Stefánsson var kjörinn formaður VR. Hann hlaut 20,6% atkvæða. Helga Guðrún Jónasdóttir fékk næstflest atkvæði. Sjö frambjóðendur gáfu kost á sér. Kosningu lauk á hádegi í dag og voru úrslit kynnt nú rétt eftir klukkan eitt. Við segjum nánari fréttir af úrslitum kosninganna síðar í dag.

Grenlækur eða Grænlækur?

Stangveiðimenn eru ekki fyrr farnir að fagna upphafi veiðitímabilsins á föstudag, en risinn er ágreiningur um nafnið á einu vinsælasta veiðisvæðinu.

Forstjóri OR með 1,3 milljónir á mánuði

Forstjóri Orkuveitunnar er með 1,3 milljónir á laun á mánuði. Hann boðar nýjan hugsunarhátt hjá fyrirtækinu og segir alla þurfa að herða sultarólina. Formaður borgarráðs segir samfélagið þurfa að sýna samstöðu með Orkuveitunni til að tryggja endurreisn fyrirtækisins. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, boðaði í gær nýja tíma og hugsun hjá fyrirtækinu en björgunarpakki borgarinnar felur í sér 12 milljarða króna víkjandi lán frá eigendum til Orkuveitunnar sem kemur á móti umfangsmiklum niðurskurðaraðgerðum hjá Orkuveitunni sjálfri. Bjarni Bjarnason sagði að nú þyrftu menn að herða sultarólina. "Það sem við erum að gerast snýst um lágmarksarðsemi. Greiðsluþol almennings er ekki mikið. Við vvildum sjá hærri arðsemi en við munum herða ólina allsstaðar og líka hjá okkur sjálfum,“ segir Bjarni. Meðal aðgerða Orkuveitunnar er fækkun starfsfólks og sala eigna. Spurður hvað hann væri sjálfur með í laun svaraði Bjarni: "Ég er með 1340 þúsund.“ Þegar fréttamaður spurði Bjarna hvort hann stefndi á að lækka laun sín, svaraði hann: "Þessi laun hafa lækkað um 40%, meiri launaskerðing en hjá flestum,“ segir hann. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði að stjórnin hefði ákveðið að laun forstjóra fylgdu kjararáðsúrskurði um sambærilegar stöður hjá sambærilegum fyrirtækjum. Dagur B. Eggertsson borgarfulltúi var þá spurður hvort hægt væri að bera Orkuveitu reykjavíkur við önnur orkufyrirtæki - fréttir dagsins væru jú þær að Orkuveitan væri tæknilega gjaldþrota. "Ég held við ættum frekar að miða laun Bjarna við lækninn sem kemur á slysstað en þann sem veldur slysinu,“ segir Dagur.

Frumvarp um fiskveiðistjórnun verði afgreitt með afbrigðum

Búist er við að frumvarp til nýrra laga um fiskveiðistjórnun verði lagt fram á þessu vorþingi. Málið yrði þá afgreitt með afbriðgum. Frestur til að leggja fram frumvarp til afgreiðslu á Alþingi á þessu vorþingi rennur út á morgun.

Tobba Marínós kvartar undan einelti

Þorbjörg Marínósdóttir fjölmiðlakona, eða Tobba eins og hún er venjulega kölluð, segir ummæli sem birtust um hana og aðra nafngreinda einstaklinga í nýjasta tölublaði Reykjavík Grapevine vera særandi og niðrandi.

Stjórnlagaráð kemur saman 6. apríl - Írisi Lind boðið sæti

Gert er ráð fyrir að stjórnlagaráð komi saman til fyrsta fundar miðvikudaginn 6. apríl 2011. Írisi Lind Sæmundsdóttur hefur verið boðið þar sæti í stað Ingu Lindar Karlsdóttur. Í tilkynningu frá undirbúningsnefnd stjórnlagaráðs segir að Inga Lind hafi ekki svarað nefndinni þegar þeim 25 sem var úthlutað sæti eftir kosningar til stjórnlagaþings var sent boð Alþingis um sæti í stjórnlagaráði. Íris Lind var í 26. sæti í kosningunni til stjórnlagaþings sem fram fór í nóvember. Fulltrúar í stjórnlagaráði eru því, auk Írisar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Katrín Fjelsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Ragnarsson , Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir , Vilhjálmur Þorsteinsson , Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson Fyrsti fundurinn fer fram í húsakynnum ráðsins að Ofanleiti 2 í Reykjavík, klukkan tvö síðdegis þann 6. apríl, eftir rúma viku.

Landlækni bárust rúmlega 250 kvartanir

Einn heilbrigðisstarfsmaður var sviptur starfsleyfi á síðasta ári og einum var veitt lögformleg áminning, samkvæmt gögnum Landlæknis. Landlæknisembættinu bárust alls 252 kvartanir í fyrra en árið á undan voru þær 237. Landlæknisembættið segir að umkvörtunarefnin hafi verið af margvíslegum toga, allt frá hnökrum í samskiptum til alvarlegra mistaka.

Svartur svanur í Mýrdal: Bara einn af hópnum

Svartur svanur sást í álftahóp í Mýrdalnum í síðustu viku. "Ég var að fylgjast með álftinni sem var að koma til landsins, og settist á polla og tjarnir. Síðan sá ég þennan svarta svan sem skar sig vel úr," segir Þórir N. Kjartansson, áhugaljósmyndari í Vík í Mýrdal, sem náði meðfylgjandi myndum af fuglinum. Fullorðnir svartsvanir, eins og þeir kallast, eru eilítið smærri en álftin. Fiðurhamur fuglsins er svartur, eins og nafn hans gefur til kynna, en flugfjaðrirnar eru hvítar. Goggurinn er skærrauður með hvítri þverrönd. Þórir hefur sérstakt dálæti á því að mynda fugla og er áhugasamur um lífshætti þeirra. Hann segir það hafa komið sér á óvart hversu gott samkomulag var milli svarta svansins og hvítu álftanna. "Þær virtust ekkert amast við honum. Hann var bara einn af hópnum. Maður hefði kannski átt von á því að þær væru leiðinlegar við hann, en svo var ekki," segir Þórir. Þetta var í fyrsta sinn sem Þórir sér svartsvan. Svartsvanir flækjast nær árlega til Íslands og eru taldir koma úr dýragörðum í Evrópu. Algengastir eru svartsvanirnir í Ástralíu. Myndirnar sem Þórir tók af svartsvaninum má skoða í meðfylgjandi myndasafni.

Um 4500 hafa kosið í VR

Um 4500 manns höfðu kosið í kosningum til formanns og stjórnar VR um klukkan hálfellefu í morgun, en rétt rúmlega 28 þúsund manns eru á kjörskrá. Alls eru sjö manns í framboði til formanns og fimmtán frambjóðendur eru um sjö sæti í stjórninni. Kosningunni lýkur á hádegi í dag en hún hófst að morgni sextánda mars.

Lýsir tilgangslausum frægðarhórum á Íslandi

„Flest frægt fólk á Íslandi er tilgangslausar frægðarhórur sem þrífst á sviðsljósinu eins og það sé því nauðsynlegt fyrir ljóstillífun," segir pistlahöfundur The Reykjavík Grapevine. Í pistli sem birtist eftir Ragnar Egilsson á vef blaðsins fer hann hörðum orðum um umtalaðasta fólkið á Íslandi í dag, þau Jón Hilmar Hallgrímsson, Völu Grand, Gillzenegger, Tobbu Marínós og Ásdísi Rán. Segja má að hann geri stólpagrín að þeim öllum.

Tryggvi Þór leggur til lækkun bensíngjalda í dag

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun mæla fyrir lækkun opinberrar álagningar á bensín og olíu í dag, samkvæmt dagskrá Alþingis. Samkvæmt tillögu Tryggva er gert ráð fyrir að eldsneytisskattur lækki um tæpar 20 krónur. Tryggvi segir í greinargerð með frumvarpinu að hlutur eldsneytis sé um 7%-8% í neyslu heimilanna. Mikil verðhækkun eldsneytis skerði því möguleikana á neyslu annarra vörutegunda.

Matthías enn týndur: Mamma hans heldur í vonina

Enn hefur ekkert spurst til Matthíasar Þórarinssonar sem hvarf sporlaust skömmu fyrir síðustu jól. Lögreglan hefur engar nýjar vísbendingar fengið um ferðir Matthíasar. Björgunarsveitir koma ekki til með að leita Matthíasar nema eitthvað nýtt komi fram. "Þetta mál er mjög sérstakt því það er afar erfitt að rekja ferðir hans," segir Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri aðgerða- og skipulagsdeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann vísar til þess að Matthías var mikill einfari, notaði aldrei farsíma eða kreditkort, og átti fáa vini. Lögreglan heldur málinu opnu. Móðir Matthíasar, Þórgunnur Jónsdóttir, er sannfærð um að Matthías skilar sér heim á endanum. "Mig er búið að dreyma hann. Mig dreymdi að ég væri að taka á móti honum. Við vorum á flugstöð, það voru vængjadyr með þykku gleri og ég sá móta fyrir honum í gegn um glerið. Við heilsuðumst og allt var eðlilegt. Við gengum svo saman út úr flugstöðinni," segir hún. Móðir Matthíasar er búsett á Kjalarnesi. Matthías bjó lengi vel í gömlum rússajeppa sem fannst brunninn við Esjurætur í janúarmánuði. Þá voru gerðar út björgunarsveitir til að leita Matthíasar, en án árangurs. Þórgunnur heldur í vonina um að sonur hennar snúi aftur heim, og útilokar ekki að hann hafi hreinlega farið til útlanda. "Maður velur sér sinn raunveruleika. Ég vel að trúa því að þetta fari allt vel. Þetta er sú stefna sem ég hef tekið og það bjargar minni hugarró," segir hún. Í samtali við Vísi í janúar sagðist Þórgunnur ekki útiloka að Matthías hafi farið í svokallað "walkabout" að hætti ástralskra frumbyggja. Þar tiðkast það hjá ungum mönnum að búa í óbyggðum í allt að hálft ár þar sem þeir komast í nána snertingu við náttúruna og æðri anda. Eftir þetta teljast þeir fullnuma karlmenni. Þá sagði hún einnig frá áhuga hans á Stiklum Ómars Ragnarssonar. "Hann hefur gaman af svona sérvitringum eins og Gísla á Uppsölum. Matti er sérvitur og hefur hugrekki til að vera hann sjálfur," sagði Þórgunnur.

Russell Brand varð fyrir vonbrigðum með Björgólf

Breski grínleikarinn Russell Brand heldur mikið upp á knattspyrnuliðið West Ham United og í viðtali í breska blaðinu The Sun segist hann vonsvikinn með að Björgólfi Guðmundssyni skyldi ekki takast að rífa liðið upp úr þeirri lægð sem það hefur verið í síðustu ár eftir að hann keypti það. „Þegar við fengum milljarðamæring hrundi allt íslenska bankakerfið stuttu síðar, við erum ekki mjög heppnir með milljarðamæringana okkar,“ segir hann í viðtalinu en í dag er liðið í eigu manna sem efnuðust á sölu kláms.

Herjólfur ekki til Landeyja fyrir helgi

Nú er ljóst að Herjólfur muni ekki geta siglt til og frá Landeyjahöfn fyrir helgi eins og vonast hafði veið til. Þetta kemur fram á Facebook síðu ferjunnar. Þar segir að það skýrist vonandi síðar í dag hvenær hægt verður að sigla. Dýpkunarframkvæmdir standa enn yfir í höfninni, eins og veður leyfir.

Allir með nema Inga Lind

24 af þeim 25, sem kjörnir voru á stjórnlagaþing, hafa ákveðið að þiggja sæti í stjórnlagaráði, sem varð til eftir að Hæstiréttur ógilti stjórnlagaþings-kosningarnar.

Mótorhjólagengin fylla dönsk fangelsi

Meðlimir mótorhjólagengja í Danmörku fylla nú fangelsin svo horfir til vandræða. Danska lögreglan hefur síðustu misserin hert aðgerðir sínar gegn mótorhjólagengjum á borð við Vítisengla, Bandidos og Outlaws og nú er svo komið að 320 meðlimir gengjanna sitja á bak við lás og slá.

Fimm ára stúlka særð eftir skotárás í London

Fimm ára gömul stúlka slasaðist í gærkvöldi þegar skotið var á hana í Suðurhluta Lundúna. Lögreglan var kölluð að verslun í hverfinu Lambeth og þar fundu þeir stúlkuna ásamt 35 ára gömlum manni sem einnig var særður.

Sjóbirtingsveiðin hefst á föstudag

Stangveiðitímabilið, eða sjóbirtingsveiðin, hefst á föstudag, eða eftir tvo daga, og er töluverð ásókn í veiðileyfi strax í bryjun. Ásókn er ekki hvað síst í vötn og ár í Vestur Skaftafellssýslu, en þar er meðal annars hinn frægi Grenlækur.

Sendi gervisprengju frá Bretlandi til Tyrklands

Bresk stjórnvöld hafa hafið rannsókn á því hvernig stóð á því að mönnum tókst að senda gervisprengju með flugfrakt frá Bretlandi til Tyrklands án þess að tollverðir tækju eftir því. 26 ára gamall maður hefur verið handtekinn grunaður um verknaðinn en hann er talinn hafa gert það í gríni og enginn grunur leikur á tengslum við hryðjuverk.

Obama útilokar ekki að uppreisnarmenn fái vopn

Barack Obama segist ekki útiloka það að Bandaríkjamenn muni leggja uppreisnarmönnum í Líbíu til vopn en slær því þó ekki föstu. Hann segir að sífellt styttist í endalok Gaddafís.

Lögreglan aðstoðaði álft í sjálfheldu

Lögreglan var kölluð að íbúðarhúsi í Hafnarfirði um miðnæturbil, þar sem álft var í sjálfheldu á svölunum og náði sér ekki til flugs. Hún lét heldur ófriðlega þegar lögreglumennirnir birtust og hvæsti á þá, en þeir náðu tökum á henni og hjállpuðu henni niður í húsagarðinn. Síðast sást til hennar ganga fyrir húshornið í leit að nægilega langri flugbraut.

Sjúkratryggingar vilja fá reikninga sérfræðilækna

Sjúkratryggingar Íslands hafa farið þess á leit við sérfræðilækna að þeir sendi rafræna reikninga til stofnunarinnar, ef til uppsagnar þjónustusamnings þeirra kemur um mánaðamótin, þannig að sjúklingar þeirra þurfi ekki að greiða fullt verð fyrir þjónustu þeirra.

Stórt timburhús rýmt á Klapparstíg í nótt

Slökkvilið frá öllum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað að stóru fjórlyftu fjölbýlishúsi úr timbri, við Klapparstíg í Reykjavík, eftir að reyks varð vart á efstu hæð hússins um klukkan þrjú í nótt.

Jón mætti ekki á fund með SA og LÍÚ

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mætti ekki til fundar sem hann hafði verið boðaður á með forsætisráðherra, fjármálaráðherra og forystumönnum Samtaka atvinnulífsins og útvegsmanna síðdegis á mánudag.

Lögreglan tók heimilisbúnað og verkfæri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í vörslu sinni talsvert af munum sem haldlagðir voru við húsleit hjá Geirmundi Vilhjálmssyni, fyrrverandi fangelsisstjóra á Kvíabryggju, fyrr í þessum mánuði. Talið er að greitt hafi verið fyrir munina með fjármunum sem ætlaðir voru til reksturs fangelsisins á Kvíabryggju.

Sjá næstu 50 fréttir