Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bíða eftir myndum úr kjúklingabúum Matfugls Starfsfólk Matfugls vinnur nú hörðum höndum að því að svara hópi áhugafólks um velferð dýra sem hefur á Facebook-síðu Matfugls óskað eftir myndum sem teknar eru inni í kjúklingabúum Matfugls til að neytendur geti betur áttað sig á aðstæðum á íslenskum kjúklingabúum. Sirrý Svöludóttir, markaðsstjóri Yggdrasils ehf., setti fyrst inn fyrirspurn til Matfugls þar sem hún sagðist vilja sjá aðstæður með eigin augum þar sem umræðan um verksmiðjubúskap hefur verið hávær að undanförnu. Fjöldi fólks hefur í kjölfarið tekið undir með Sirrý og óskað eftir bæði upplýsingum og myndum. Sigurveig Káradóttir, matgæðingur sem gert hefur úttekt á gæðum hráefnis í mötuneytum skóla, leggur einnig orð í belg. „Hef líka áhuga á að vita meira um hvernig málum er háttað hér á landi. Og að fá almennt frekari upplýsingum frá framleiðendum um aðbúnað dýra og eins þau aukaefni sem sett eru í matinn og af hverju þau eru sett. Hér er að vakna upp hópur sífellt kröfuharðari neytenda, og í raun kjörið tækifæri fyrir þá framleiðendur sem vilja fylgja þeirri jákvæðu þróun eftir að vakna strax til meðvitundar og koma til móts við þann hóp," segir hún. Sirrý heldur úti vefsíðu sem hún kallar „Lífrænt vottað blogg" þar sem hún greinir frá fyrirspurn sinni til Matfugls. http://svoludottir.wordpress.com/2011/04/09/kjuklingabu-a-facebook/ Facebook-síðu Matfugls má finna hér en þar kemur fram að búist er við að þeir séu að vinna að svörum og búist við að birta þau á síðunni á morgun. http://www.facebook.com/#!/pages/Matfugl-ehf/468525455393 11.4.2011 14:47
Gbagbo tekinn höndum Laurent Gbagbo fyrrverandi forseti Fílabeinsstrandarinnar hefur verið tekinn höndum í forsetahöllinni í Abidjan. Gbabgo hefur neitað að láta af völdum í landinu þrátt fyrir að hafa tapað í forsetakosningum og hafa hersveitir hliðhollir honum barist við hersveitir Alessane Outtara, sigurvegara kosninganna. Síðustu daga hafði Gbabgo komið sér fyrir ásamt mönnum sínum í kjallarara forsetahallarinnar en í dag réðust franskir sérsveitarmenn inn í höllina og tóku hann höndum. 11.4.2011 14:00
Icesave hefur engin áhrif á aðildarviðræður við ESB Synjun Icesave-samkomulagsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag hefur engin áhrif á aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stefan Fule stækkunarstjóra sambandsins og Michel Barnier framkvæmdastjóra innri markaðar bandalagsins. „Niðurstaða kosninganna hefur ekki áhrif á aðildarviðræðurnar sem nú standa yfir og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins styður heilshugar. 11.4.2011 13:48
Fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum Í vikunni sem var að líða voru fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum. Miðvikudaginn 6. apríl varð útafakstur á Holtavörðuheiðinni, um að ræða minniháttar óhapp og ekki slys á fólki. Fimmtudaginn 7. apríl varð óhapp í Vestfjarðargöngunum með þeim hætti að ekið var utan í vinnulyftu Vegagerðarinnar þar sem unnið var við viðgerð á ljósum. Ekki urðu miklar skemmdir og ekki slys á fólki. Föstudaginn 8. apríl varð bílvelta á Súðavíkurhlíð, þar hafnaði bifreið utan í vegriði með þeim afleiðingum að hún valt. Ökumaður og farþegi voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar, um minniháttar meiðsl að ræða. Sunndaginn 10. apríl hafnaði bifreið út fyrir veg á veginum um Þröskulda, um minniháttar óhapp var að ræða og ekki slys á fólki. Sjö ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í vikunni. Einn ökumaður var stöðvaður á Ísafirði fyrir of hraðan akstur, þrír í nágreni við Hólmavíkur og þrír á Holtavörðuheiðinni. Sá sem hraðast ók, var mældur á 120 km/klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. 11.4.2011 13:10
Kannanir MMR reyndust nærri úrslitunum Niðurstöður kannana MMR í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave þann 9. apríl síðastliðinn reyndust mjög nærri úrslitum kosninganna. Í tilkynningu frá MMR segir að þannig hafi niðurstöður beggja kannana MMR sem birtust í vikunni fyrir kosningarnar verið innan vikmarka frá niðurstöðum kosninganna. Kannanir MMR voru jafnframt þær fyrstu sem sýndu fram á meirihlutastuðning við "nei" atkvæði. 11.4.2011 13:01
Eldingu laust niður í Hellisheiðarvirkjun Eldingu laust niður í Hellisheiðarvirkjun í morgun og olli umtalsverðu tjóni. Raforkuframleiðsla datt niður í um klukkutíma en er nú aftur komin í gang. 11.4.2011 12:15
Ævintýrið heldur áfram hjá loðdýrabændum Verð fyrir íslensk minkaskinn hækkaði um fimm til sjö prósent á uppboði í Kaupmannahöfn í morgun og hefur aldrei í sögunni verið jafn hátt. Verðið hefur tífaldast frá því það var lægst fyrir tuttugu árum. 11.4.2011 12:14
Fautaárás á Selfossi - tólf yfirheyrðir Tilkynnt var um kröftug slagsmál við skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi um klukkan fjögur á sunnudagsmorgun. Lögreglumenn sem voru skammt frá fóru þegar á staðinn og er þangað kom var hópur fólks skammt frá skemmtistaðnum. 11.4.2011 12:11
Jafnréttisstofa telur mál Guðfríðar Lilju á gráu svæði Árni Þór Sigurðsson, nýkjörinn þingflokksformaður VG vísar því alfarið á bug að brotin hafi verið jafnréttislög þegar hann tók við stöðu þingflokksformanns Vinstri grænna í stað Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem gegndi embættinu, áður en hún fór í fæðingarorlof. Jafnréttisstofa telur málið á gráu svæði. 11.4.2011 12:10
Breytingar á stjórnarsamstarfi útilokaðar Nær útilokað er talið að breytingar verða á skipun stjórnarsamstarfsins. Þá hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skilning á þeirri stöðu sem upp er komin og unnið er að því að sannfæra lánshæfisfyrirtækin um að lækka ekki lánshæfið. 11.4.2011 12:09
Brotnar bílrúður í Borgarfirðinum Óveður raskaði ferðum fjölda fólks síðdegis og í gærkvöldi. Nokkur hópur fólks þurfti að bíða af sér óveðrið á Hótel Brú en ökumenn lentu í grjótfoki á Borgarfjarðarbrúnni svo nokkrar rúður fóru í mask eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Fleiri hundruð manns gistu til dæmis í Hrútafirðinum í nótt, eftir að norðurleiðin lokaðist vegna ofsaveðurs. 11.4.2011 12:07
Ísland fær tvo mánuði til þess að svara ESA Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur óskað eftir því að íslensk stjórnvöld svari áliti ESA frá því í maí, innan tveggja mánaða, vegna niðurstöðu þjóðatkvæðagreiðslunnar um Icesave. 11.4.2011 10:58
Forsetinn í freyðivíns-fjölmiðlabaði "Mér fannst hann vera í svolitlu freyðivíns-fjölmiðlabaði. Ég verð að segja eins og er," segir Atli Gíslason, þingmaður utan þingflokka og meðlimur Vinstri grænna, um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sem hélt blaðamannafund í gær um niðurstöðu Icesave-kosninganna. "Hann var eitthvað svo glaður, barnslega glaður, og hann var í mjög sterkum pólitískum málflutningi," segir Atli. Atli var gestur þáttarins Í bítið í morgun á Bylgjunni þar sem hann og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddu niðurstöðu kosninganna. Atla finnst Ólafur Ragnar hafa gengið mun lengra en fyrir forsetar þegar kemur að pólitískum afskiptum. "Hann var að tala mjög pólitísk og gekk lengra en fyrirrennarar hans hafa gert," segir Atli. "Hann var í díalóg við ríkisstjórn, hann var í deilu við forystumenn atvinnulífsins. Hann gekk mjög langt," segir hann. Ragnheiður segir það afar sérstakt að forsetinn hafi boðað til blaðamannafundar daginn eftir kosningarnar, sem voru haldnar í framhaldi af því að hann sjálfur neitaði að staðfesta Icesave-samninginn. Ragnheiður benti á að Icesave hefur klofið þjóðina í tvær fylkingar. "Mér fannst þetta persónulega ekki eiga við," segir Ragnheiður. Henni hefði fundist fara betur á því að ef forsetinn ætlaði að halda blaðamannafund um málið, að hann héldi hann síðar, en Ólafur Ragnar hélt sinn fund skömmu eftir að blaðamannafund ríkisstjórnarinnar. Þannig fannst Ragnheiði blasa við að ekkert samstarf hefði verið á milli skrifstofu forsetans og forsætisráðuneytisins. "Margt af því sem hann sagði var hins vegar mjög gott," segir hún. Umræður þeirra Atla og Ragnheiðar Í bítinu má hlusta á heild sinni með því að smella á tengilinn hér að ofan. 11.4.2011 10:24
Útgjöld til hernaðar ekki verið minni í áratug Útgjöld vegna hernaðar í heiminum jukust einungis um 1,3 prósent árið 2010 samkvæmt útreikningum sænsku stofnunarinnar SIPRI sem sérhæfir sig í að reikna útgjöld til hernaðar. 11.4.2011 09:33
Dó fimm sinnum í fimm sápuóperum á sama deginum Kínverski leikarinn Law Lok Lam gæti hafa sett nýtt heimsmet í síðustu viku þegar hann lést fimm sinnum sama daginn í fimm mismunandi sápuóperum. 11.4.2011 09:29
Öflugur jarðskjálfti í Fukushima Öflugur jarðskjálfti reið yfir Fukushima í Japan í morgun. Talið er að hann sé 7,1 á richter. 11.4.2011 08:51
Gróðurhús við Norræna húsið fauk út í veður og vind Flytja verður athöfn vegna undirritunar Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og Norræna hússins, um að gera Vatnsmýrina að opinni rannsóknastofu, á annan stað en fyrirhugað var, þar sem gróðurhúsið við Norræna húsið, þar sem til stóð að undirrita samkomulagið, fauk út í veður og vind í gærkvöldi. 11.4.2011 08:13
Bílrúður sprungu og fjárhús fauk - tjónið víða en hvergi alvarlegt Tvö hundruð björgunarsveitarmenn, hið minnsta, sinntu á fjórða hundrað beiðnum um aðstoð á Suðurnesjum, á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi frá því síðdegis í gær og langt fram á kvöld. 11.4.2011 08:08
Ofurölvi ökumaður festi bílinn í óveðri Ofurölvi ökumaður missti bíl sinn út af veginum í Villingaholtshreppi, austan við Selfoss á tólfta tímanum í gærkvöldi og festi bílinn. 11.4.2011 08:05
Einn féll útbyrðis og annar fótbrotnaði Einn skipverji á hvalaskoðunarbátnum Knerri féll útbyrðis í nótt og ofkældist á meðan annar skipverji brotnaði illa á öðrum fæti. Hvalaskoðunarbáturinn var að draga skútuna Áróru, sem er upprunalega frá Ísafirði, til Húsavíkur þegar atvikið átti sér stað. 11.4.2011 08:02
Sérfræðingur segir allt óvíst um skaðabótamál Það er alls óvíst að Bretar og Hollendingar geti höfðað skaðabótamál gegn Íslendingum, jafnvel þótt EFTA dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að Íslendingar hefðu brotið gegn EES samningnum í Icesave málinu. 11.4.2011 08:00
Ótrúlegt augnablik - náði myndum af eldingunni "Ég var fyrir utan pósthúsið í Garðabænum þegar ég ætlaði að taka grínmyndband til þess að setja á Facebook og óska öllum gleðilegt sumar,“ segir Sævar Már Kjartansson, sem fyrri hreina tilviljun náði myndbandi af eldingu sem sló niður sunnan við Hafnarfjörðinn. 11.4.2011 07:46
Elding lýsti upp Reykjavík Þremur eldingum sló niður austur af höfuðborgarsvæðinu laust fyrir klukkan hálf sjö í morgun með viðeigandi þrumum á eftir. Eldingarnar voru meðal annars vel sjáanlegar í Reykjavík. 11.4.2011 07:26
Ekki forsenda til að lækka lánshæfismat Ekki eru efnislegar forsendur til að lánshæfismat ríkissjóðs verði lækkað þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Þetta er mat Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir að koma verði í ljós hvað alþjóðlegir lánveitendur aðhafist í kjölfar niðurstöðunnar. Áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA verði svarað sem fyrst og málstað Íslands haldið kröftuglega á lofti. 11.4.2011 04:00
Skammtímasamningar líklegir Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir í samtali við Fréttablaðið að í ljósi úrslita þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé líklegra að nú verði gerðir kjarasamningar til skemmri tíma í stað þriggja ára eins og viðræður aðila vinnumarkaðarins hafi gert ráð fyrir fram að þessu. 11.4.2011 04:00
Ákveðinn í að endurheimta traustið „Ég hef ekki skipað mér í hóp þeirra sem hafa spáð hér dramatískum afleiðingum af því að samningarnir féllu í þjóðaratkvæðagreiðslunni þó að ríkisstjórnin hafi gert það,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 11.4.2011 03:15
Rafmagni tvisvar slegið út á Vestfjörðum Rafmagni hefur slegið út tvisvar á Vestfjörðum í kvöld. Vísir hefur ekki nákvæmar upplýsingar um á hversu stóru svæði rafmagnsleysið er en þess hefur að minnsta kosti orðið vart á Ísafirði og í Bolungarvík. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði segir að rafmagnsleysið hafi varað í að minnsta kosti korter. "Það er komið rafmagn á höfnina og inni í firði en annars sýnist mér bara vera rafmagnslaust hér. Ég er bara kominn með kerti og kósý," segir Daníel Jakobsson bæjarstjóri. 10.4.2011 22:22
Búið að losa flesta farþegana Búið er að koma flestum farþegum sem sátu fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli í dag úr vélunum. 10.4.2011 20:51
Björgunarsveitir hafa sinnt meira en 200 aðstoðarbeiðnum Björgunarsveitir Slysavarnafélagins Landsbjargar eru enn að störfum á suðvesturhorni landsins. Samkvæmt upplýsingum frá SL er enn mjög hvasst þó að mesta óveðrið virðist vera gengið niður. 10.4.2011 20:06
Biluð umferðarljós Umferðarljósin í Engidal í Hafnarfirði, Hafnarfjarðarvegur, Reykjavíkur, Fjarðarhraun og Álftanesvegur eru biluð. Þau blikka á gulu. Lögreglan segir að ekki sé búist við að hægt verði að laga þau fyrr en á morgun. 10.4.2011 19:24
Árni Þór tekur við af Guðfríði Lilju Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var felld úr embætti þingflokksformanns Vinstri grænna í óvæntri kosningu um embættið á þingflokksfundi í dag. Árni Þór Sigurðsson, sem gengt hefur embættinu í fæðingarorlofi hennar, var kosinn í hennar stað. 10.4.2011 18:47
Gætu þurft að sitja í nokkra tíma í vélunum Hugsanlegt er að ekki verði hægt að reyna að hleypa farþegum, sem sitja fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli, út úr vélunum fyrr en klukkan níu í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Isavia. Þó verður reynt fyrr ef mögulegt er. 10.4.2011 18:01
Talningu atkvæða lokið Talningu atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi Icesave laganna lauk klukkan hálffjögur í dag. Samkvæmt skýrslum yfirkjörstjórna voru 232.422 kjósendur á kjörskrá og greiddu 175.114 manns atkvæði. 10.4.2011 17:17
Farþegar sitja fastir í vélunum Farþegar í nokkrum farþegaþotum sitja fastir í vélunum á Keflavíkurflugvelli. Ástæðan er sú að vegna vonskuveðurs komast farþegarnir ekki inn landganginn. Þeir þurfa því að bíða af sér veðrið. Ekki liggur fyrir um hve margar flugvélar er að ræða. 10.4.2011 16:43
Niðurstaðan má ekki sundra Íslendingum "Niðurstaðan þjóðaratkvæðagreiðslunnar má ekki sundra okkur né leiða til langvarandi deilna því brýnna er nú en nokkru sinni að við stöndum saman," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á Bessastöðum í dag. Hann segir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar sýni að þjóðin geti leitt mál til lykta. Kenningin um að þjóðin geti ekki farið með vald í flóknum málum hafi reynst tilhæfulaus. 10.4.2011 15:21
Bretar og Hollendingar fá greitt úr Landsbankanum Bretar og Hollendingar munu frá greitt úr þrotabúi Landsbankans þrátt fyrir að "Nei“ hafi orðið ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Þetta hefur Jyllands Posten eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra á blaðamannafundi sem hann hélt í Þjóðmenningarhúsinu í morgun. 10.4.2011 14:09
Miðlun biðst afsökunar Miðlun ehf hefur gripið til ráðstafana til að efla öryggiskerfi fyrirtækisins eftir að viðkvæmum persónuupplýsingum var stolið frá fyrirtækinu í haust. 10.4.2011 13:37
Niðurstaðan hefur ekki áhrif á samstarf við AGS Franek Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, segir óvíst hvaða áhrif niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar muni hafa á íslenskt efnahagslíf. 10.4.2011 12:43
Fyrsta skrefið að svara áminningarbréfi EFTA Stjórnvöld munu svara áminningarbréfi frá Eftirlitstofnun EFTA frá 26. maí síðastliðinn að höfðu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis. Af hálfu íslenskra stjórnvalda verður lögð áhersla á að meðferð málsins verði hraðað eins og kostur er þar sem óvissa um lyktir málsins er engum í hag. Þetta segir í tilkynningu frá ríkisstjórn Íslands vegna niðurstöðu kosninganna í gær þar sem Icesave samningunum var hafnað. 10.4.2011 11:28
Hollenski fjármálaráðherrann vonsvikinn yfir niðurstöðunni Hollenski fjármálaráðherrann, Jan Kees de Jager, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með það að Íslendingar hafi hafnað Icesave samningunum. Nú kæmi það í hlut dómstóla að skera úr um málið. Íslendingar höfnuðu Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. "Ég er vonsvikinn yffir því að Icesave samningarnir hafi ekki náð í gegn. Þetta er ekki gott fyrir Ísland og ekki fyrir Hollendinga. Tími samningaumleitana er liðinn. Íslandi ber skylda til að greiða. Nú er það dómstólanna að skera úr um þetta,“ segir Jager í yfirlýsingu. Hann segir að Hollendingar muni ráðfæra sig við Breta um næstu skref í stöðunni. 10.4.2011 10:40
Forsetinn boðar til blaðamannafundar - Vísir og Stöð 2 Extra í beinni Forseti Íslands hefur boðað til blaðamannafundar á Bessastöðum klukkan þrjú í dag. Þar mun hann fara yfir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar í gær. Icesave lögunum var sem kunnugt er hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en það var einmitt á Bessastöðum þann 20 febrúar síðastliðinn sem forsetinn tilkynnti að hann myndi skjóta málinu til þjóðarinnar. 10.4.2011 10:36
Advice fundar með blaðamönnum Advice, hópurinn sem barðist gegn samþykkt Icesave samningana, heldur núna blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Icesave lögunum var hafnað í atkvæðagreiðslunni í gær. 10.4.2011 10:19
LOL komið í Oxford English Skammstöfunin LOL, sem þýðir á ensku „laughing out loud“, eða „að hlæja upphátt,“ er nýjasta viðbótin í ensku orðabók Oxford háskólans. 10.4.2011 10:00
Bretar ætla að ná Icesave peningunum aftur Danny Alexander, aðstoðarfjármálaráðherra Breta, lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með lyktir þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave í gær. Nú hafi verið reynt til þrautar að ná lausn í málinu með samningum. "Okkur ber skylda til þess að ná peningunum til baka og við munum halda áfram að reyna þangað til við náum þeim. Við erum í erfiðri fjárhagsstöðu sem þjóð og þessir peningar myndu hjálpa okkur,“ segir Alexander við BBC. 10.4.2011 09:35
Fjórir gistu fangageymslur vegna líkamsárásar Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar á Selfossi í nótt vegna líkasmárásar fyrir utan veitingastaðinn Hvíta húsið. Þar varð ágreiningur milli manna sem endaði með því að einn maður var laminn nokkuð illa að sögn lögreglunnar. Talið er að hann hafi úlnliðsbrotnað. Hann var fluttur á heilsugæsluna á Selfossi og svo á slysadeild í Reykjavík til nánari skoðunar. Lögreglan segist ekki vita hver þáttur hvers og eins af þessum fjórum í árásinni hafi verið. Málið verður rannsakað og rætt við mennina í dag. 10.4.2011 09:20