Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ágúst neitar sök - meint fórnarlamb er 19 ára Ungi maðurinn sem Ágúst Magnússon er grunaður um að hafa misnotað er 19 ára. Ágúst neitar sök en lögregla rannsakar nú tölvugögn hans. 12.4.2011 12:00
Fiskifingur innkallaðir Aðföng hafa ákveðið að innkalla Euro Shopper fiskifingur (en: fish fingers) í 900 gramma pappaöskjum. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að staðfest hafi verið að varan innihaldi afurð úr eggjum sem ekki er tilgreind í innihaldslýsingu. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus og 10-11, en hefur verið tekin úr sölu á meðan merkingar eru endurbættar. Þar sem egg og afurðir úr þeim eru meðal þekktra ofnæmis- og óþolsvalda eru vörurnar varasamar fyrir ákveðna neytendahópa. Vörurnar eru öruggar og heilnæmar fyrir neytendur sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og eggjaafurðum eða fiski og hveiti (glúten) sem eru tilgreind í innihaldslýsingu vörunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðföngum. Aðföng hvetja neytendur sem kunna að eiga vöruna til og hafa ofnæmi fyrir eggjum eða eggjaafurðum að henda henni eða skila við fyrsta tækifæri til næstu verslunar Bónus eða 10-11 gegn fullri endurgreiðslu. Einnig má hafa samband beint við Aðföng í síma 530-5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is. 12.4.2011 11:41
Lagaprófessorar til varnar Manning Tvöhundruð og fimmtíu bandarískir lagaprófessorar hafa undirritað bréf þar sem er mótmælt meðferðinni á hermanninum Bradley Manning. Manning er grunaður um að hafa lekið milljónum leyniskjala til Wikileaks. 12.4.2011 11:18
Öll börn fædd 2009 fá leikskólapláss Foreldrar um 1.300 barna, sem fædd eru á árinu 2009 eða fyrr, hafa fengið boð um leikskólavistun eftir sumarleyfi í ágúst. Innritun barna í leikskóla Reykjavíkur stendur nú sem hæst, en eftir er að innrita á bilinu 200 og 300 börn. Stefnt er að því að öll börn fædd 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. Meðal annars er verið að skoða kosti þess að nýta betur húsnæði í eigu borgarinnar svo unnt verði að taka sem best á móti stærsta fæðingarárgangi sögunnar. Nýr leikskóli í Norðlingaholti mun taka til starfa í ársbyrjun 2012 og nokkrir sjálfstætt starfandi leikskólar hafa óskað eftir því að fjölga börnum. Áætlað er að innritun í borgarrekna leikskóla verði lokið í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Leikskólasvið hefur tekið í notkun nýtt innritunar- og innheimtukerfi, en með því skapast betri yfirsýn yfir barnfjölda, útskriftir úr leikskóla og inntökumöguleika í hverju hverfi og í hverjum skóla. Í þessu kerfi innrita leikskólastjórar sjálfir. Kerfið auðveldar þeim að hafa með sér samráð í hverju borgarhverfi, fara sameiginlega yfir umsóknir um leikskólapláss og uppfylla óskir foreldra, svo sem um að systkini dvelji í sama leikskóla. 6.865 börn dvöldu í leikskólum Reykjavíkur í byrjun ársins en gert er ráð fyrir að 7.118 leikskólarými verði í borginni í árslok. Inn í þeirri tölu eru einnig leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum 12.4.2011 10:53
Barnaníðingur í kjördeild í Icesave-kosningunum Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, sat í kjördeild í Laugardalshöll í Reykjavík í Icesave-kosningunum sem fram fóru um helgina. Kjósendur sem þekktu Ágúst frá fyrri tíð eða af myndum úr fjölmiðlum brá nokkuð þegar það sá hann gæta að því að reglum væri fylgt á kjörstað, merktum kjörstjórninni. Gunnar Eydal, formaður kjörstjórnar í Reykjavík, staðfestir að Ágúst Magnússon hafi þarna átt sæti. "Við vorum alveg grunlaus," segir Gunnar. Hann tekur fram að kjörstjórn krefjist þess ekki að fulltrúar skili inn sakavottorði, og bendir á að kjörstjórn ræður til sín fyrir hverjar kosningar allt að 600 manns, þar af um 400 sem starfa í kjördeildunum sjálfum. "Það er erfitt að ná þessum fjölda," segir hann. Ágúst sat í þessari kjördeild í nokkrum kosningum hér á árum áður og er hefð fyrir því að leitað sé til fólks sem áður hefur starfað í kjördeildum. Gunnar segist ekki hafa þekkt til fortíðar Ágústs, þegar blaðamaður innti hann eftir því. Hann segir að ef forsvarsmenn kjörstjórnar hefði vitað af því að hann hafi verið dæmdur fyrir barnaníð hefði þurft að skoða sérstaklega hvort honum væri sætt í kjördeildinni. "Við hefðum þá skoðað það en ég get ekki sagt til um hvað hefði komið út úr því," segir hann. Það verður því lagt mat á það nú hvort Ágúst tekur oftar sæti í kjördeild, með hliðsjón af dómum hans og þeim mögulegu óþægindum sem kjósendur verða fyrir að hitta hann á kjörstað. Margdæmdur og á yfir höfði sér nýja ákæru Ágúst er margdæmdur barnaníðingur. Árið 2004 var hann dæmdur fyrir að misnota sex pilta kynferðislega. Árið 2007 gekk hann svo í gildru Kompás þegar hann var enn í afplánun vegna brotanna árið 2004 en þá hélt hann að hann væri að fara hitta 13 ára gamla stúlku. Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi kom síðan fram að Ágúst á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn ungum misþroska manni fyrr á þessu ári. Ágúst var handtekinn á heimili sínu í síðasta mánuði og voru tölvur meðal annars gerðar upptækar á heimili hans. Í Kastljósi kom fram að hann hafi ekið með unga manninn á afskekktan stað og beitt hann kynferðislegri misnotkun. Í janúar í fyrra ákvað Fangelsismálastofnun að framlengja reynslulausn hans um eitt ár vegna þess að hann var talinn vera hættulegur. Ágúst var því á reynslulausn þegar hann braut gegn unga manninum. 12.4.2011 10:22
Fundu tíu milljónir dollara grafnar á landi hvítlauksbónda Suður-kóreska lögreglan fann tíu milljónir dollara grafna á landi hvítlauksbónda sem býr nokkuð fyrir utan höfuðborg landsins, Seúl. 12.4.2011 09:51
Danska lögreglan fann tonn af kannabisefnum Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í gærkvöldi í aðgerðum lögreglunnar í Kaupmannahöfn gegn fíkniefnasölum í Kristjanínu. 12.4.2011 09:47
Mitt Romney vill verða forseti Bandaríkjanna Þingmaðurinn Mitt Romney hefur gefið kost á sér sem forsetaefni Repúblikana fyrir næstu forsetakosningar Bandaríkjanna. 12.4.2011 09:45
Fyrsta Súperman blaðið endurheimt Fyrsta tölublaðið um ofurhetjuna Súperman fannst á dögunum í læstum öryggisskáp í San Fernando dalnum í Bandaríkjunum. Blaðinu var stolið fyrir áratug síðan af kvikmyndastjörnunni Nicolas Cage. 12.4.2011 09:43
Stal fullum poka af matvælum Poka fullum af matvælum var stolið af íbúa í Vestmannaeyjum síðasta þriðjudag. Eigandinn var að bera muni úr bifreið sinni upp tröppur sem liggja að íbúð hans á Bárustíg 66. 12.4.2011 09:40
Rændu ritstjórn dagblaðs Fjórir vopnaðir menn ruddust inn á ritstjórn dagblaðs í mexíkóska bænum Villahermosa í Suður-Mexíkó. 12.4.2011 09:33
Tólf létust í tilræði í Hvíta-Rússlandi Heilbrigðisráðherra Hvíta-Rússlands segir að tólf hafi látist í sprengjuárásinni í neðanjarðarlestarstöð í Minsk í gær. 12.4.2011 09:31
Bloggari dæmdur í þriggja ára fangelsi Egypski herinn fékk 28 ára gamlan bloggara dæmdan í þriggja ára fangelsi í gær fyrir að gagnrýna störf hersins. Hann var að auki dæmdur án þess að hafa lögmann viðstaddan. 12.4.2011 09:07
Fimmtíu ár síðan Gagarín fór út í geiminn Fimmtíu ár eru liðin frá því geimfarinn Yuri Gagarín fór fyrstur manna út fyrir gufuhvolfið. 12.4.2011 09:01
Flestir segja sig úr Þjóðkirkjunni Þann 1. janúar voru fullorðin sóknarbörn í Þjóðkirkjunni (18 ára og eldri) 183.697 eða 77,2% mannfjöldans. Fyrir ári síðan voru fullorðnir félagsmenn Þjóðkirkjunnar 3.000 fleiri og hlutfallið 78,8% af mannfjöldanum. Kaþólska kirkjan er næstfjölmennasta trúfélag landsins með 6.366 félagsmenn 18 ára og eldri. Utan trúfélaga voru 11.868 fullorðnir einstaklingar skráðir 1. janúar 2011, eða 5% mannfjöldans. Á síðasta ári voru8.483 utan trúfélaga, eða 3,6%, og fjölgar því fólki utan trúfélaga á milli ára. Um áramótin voru 14.846 í óskráðu trúfélagi eða með ótilgreinda trúfélagsaðild. Alls voru 6.810 breytingar á trúfélagsaðild skráðar árið 2010. Flestir skráðu sig úr Þjóðkirkjunni, alls 5.092. Það eru rúmlega helmingi fleiri en skráðu sig úr Þjóðkirkjunni árið 2009 (1.982). Flestir þeirra létu skrá sig utan trúfélaga, 3.619, en allnokkrir í einhvern fríkirkjusafnaðanna þriggja (960). Flestar nýskráningar voru utan trúfélaga árið 2010, alls 3.855. Af trúfélögum voru flestar nýskráningar í Kaþólsku kirkjuna (653). Flestir þeirra voru áður í óskráðu trúfélagi eða ótilgreindu (617). 12.4.2011 09:01
Öll börn fædd á árinu bólusett Öll börn fædd á árinu 2011 og síðar verða bólusett gegn pneumókokkasýkingum, og munu bólusetningarnar hefjast síðar í apríl, samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. 12.4.2011 09:00
Rak vænginn í stélið á JFK flugvellinum Tvær fullar farþegaþotur lentu í árekstri á flugbraut John F. Kennedy flugvallarins í Bandaríkjunum í gær. Önnur þotan var frá Air France-flugfélaginu en hin var að koma frá Boston. 12.4.2011 08:54
Húsráðandi svaf af sér innbrotsþjóf Brotist var inn í íbúð og þaðan stolið tölvum og flatskjá. Virðist sem þjófarnir hafi komist inn um svalahurð. 12.4.2011 08:38
Bruggari handtekinn á Akranesi Lögreglan á Akranesi lagði hald á liðlega 200 lítra af gambra og 17 lítra af landa í vikunni. Vísbendingar höfðu borist um að bruggun stæði yfir í íbúð í bænum. 12.4.2011 08:35
Borgin greiðir ekki fyrir börn alkóhólista Reykjavíkurborg stöðvaði allar greiðslur til SÁÁ um síðustu áramót vegna þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Engar greiðslur hafa komið frá borginni til göngudeildar SÁÁ vegna þessarar þjónustu en stærsti hluti fjárveitingarinnar fór í sálfræðiþjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnasjúklinga sem sýna einkenni um álag og streitu. Þessi börn eru fæst byrjuð að nota vímuefni og eru á aldrinum 8-14 ára. Þau eru í mestri áhættu allra að eiga í erfiðleikum vegna vímuefna í framtíðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef SÁÁ en fyrirsögnin þar er: „Reykjavíkurborg hættir að greiða fyrir börn alkóhólista.“ Þar segir að á árunum 2008-2010 var í gildi samstarfssamningur milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ um þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ekkert bólar á nýjum samstarfssamningi eða þjónustusamningi. Forráðamenn SÁÁ bíða og halda úti óskertri þjónustu en nú alfarið á reikning SÁÁ. Fréttin á vef SÁÁ. 12.4.2011 08:35
Enn finnast fjöldagrafir í Mexíkó Fjöldagröf fannst í Mexíkó síðustu helgi. Gröfin var fyrir utan smábæ nærri landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Alls voru 16 lík í gröfinni. 12.4.2011 08:09
Garðyrkjumenn gegn ESB Aðalfundur Sambands garðyrkjumanna lýsir andstöðu sinni við aðild Íslands að Evrópusambandinu og stuðningi við stefnu Bændasamtakanna í því máli. 12.4.2011 08:06
Femínistar gagnrýna VG Það er ekki í anda fæðingarorlofslaga að víkja Guðfríði Lilju Grétarsdóttur úr embætti þingflokksformanns þegar hún koma til baka úr fæðingarorlofi og hlýtur að vera á skjön við stefnu Vinstri grænna í jafnréttismálum, segir í ályktun Femínistafélags Íslands. 12.4.2011 08:04
Enn finnast bein á ströndinni Lögregluyfirvöld í New York grunar að raðmorðinginn sem leitað er í borginni geti verið fyrrverandi lögregluþjónn. Bein fundust í gær en ekki er búið að staðfesta að um enn eitt fórnarlamb morðingjans sé að ræða. Eitt lík af átta, sem fundist hafa á strönd á Long Island, er talið vera að barn, ekki eldra en átján mánaða. 12.4.2011 08:00
Minnka á magndrykkju Í nýju frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er lagt til að stofnunin verði án stjórnar og heyri beint undir fjármálaráðherra. 12.4.2011 08:00
Vilja lög gegn dýrakynlífi Stjórnmálamenn og dýraverndunarsamtök í Danmörku hafa kallað eftir löggjöf gegn kynlífi með dýrum eftir umdeilda heimildarmynd sem sýnd var nýverið í sjónvarpi. 12.4.2011 08:00
Varar við langvarandi borgarastríði í Líbíu Fyrrverandi utanríkisráðherra Líbíu, Moussa Koussa, sem flýði landið stuttu eftir að ófriðurinn hófst þar í landi, varar við langvarandi borgarastríði í Líbíu. 12.4.2011 07:58
Fukushima-kjarnorkuverið á sama hættustigi og Tsjernobyl-verið Viðvörunarstig kjarnorkuversins í Fukushima í Japan hefur verið hækkað upp í sjöunda stig vegna leka úr verinu. Ekkert annað kjarnorkuver hefur hækkað viðvörunarstigið svo hátt nema verið í Tsjernobyl sem að lokum bræddi úr sér. 12.4.2011 07:53
Fréttaskýring: Eftirlitsstofnun bíður svars Íslands við áminningarbréfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fullyrðir að ESA hafi ekkert sagt um Icesave sem mark sé á takandi. Frumniðurstöður ESA eru þegar komnar fram og eru þvert á fullyrðingar íslenskra stjórnvalda. 12.4.2011 07:00
Jafnmargir hlynntir og andvígir hernaði Svipað hlutfall landsmanna styður hernaðaríhlutun aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Líbíu og er andvígt hernaðinum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. 12.4.2011 07:00
Óvæntur stormur og eldingum laust niður „Þetta er svolítið vetrarlegt,“ viðurkennir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður um harðar sviptingar í veðrinu síðustu daga. 12.4.2011 07:00
Engin áhrif á ESB-viðræður Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið skaðast ekki af því að Íslendingar hafi hafnað því að staðfesta Icesave-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. 12.4.2011 07:00
Nefnd þingmanna móti öryggisstefnu Nefnd tíu þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi verður falið að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland nái þingsályktunartillaga sem utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi fram að ganga. 12.4.2011 06:00
Hópur fjárfesta kaupir MP Banka „MP Banki er það lítill að hann þarf ekki að fara út í meiri háttar tiltektir. Hann hefur ekki þegið styrki eða fyrirgreiðslu frá hendi ríkisins. Það finnst mér skipta miklu máli,“ segir fjárfestirinn Skúli Mogensen, aðaleigandi MP Banka. 12.4.2011 06:00
Ellefu fórust í sprengjutilræði Ellefu létust og hundruð slösuðust í sprengingu í neðanjarðarlestakerfi Minsk, höfuðborgar Hvíta-Rússlands, um miðjan dag í gær. 12.4.2011 06:00
Lífeyrissjóðsstjóri átti rétt á að fá gögn Synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu umbeðinna gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, skorti lagastoð að mati umboðsmanns Alþingis. 12.4.2011 05:00
Húsaleigumál 200 talsins á árinu Neytendasamtökunum hafa borist í kringum 200 fyrirspurnir og erindi vegna húsaleigumála það sem af er ári. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum svarar þetta til um 800 erinda á ári, sem er helmingi meira heldur en var í fyrra. Árið 2009 voru rúmlega 200 fyrirspurnir af þessum toga. 12.4.2011 04:00
Harma fækkun kvenna í valda- og áhrifastöðum innan VG Femínistafélag Íslands harmar fækkun kvenna í valda- og áhrifastöðum innan Vinstri grænna. 11.4.2011 22:37
Minnstu aukning vegna hernaðar síðan árið 2001 Útgjöld vegna hernaðar í heiminu jukust einungis um 1,3 prósent árið 2010 samkvæmt útreikningum sænsku stofnunarinnar SIPRI sem sérhæfir sig í að reikna útgjöld til hernaðar. . 11.4.2011 23:15
Bjóðast til að borga afborganir af húsum fyrir auglýsingu Fyrirtæki í Bretlandi hefur gert húseigendum í vanda sérkennilegt tilboð. Fyrirtækið, sem sérhæfir sig í að auglýsa snjallsíma, hefur auglýst eftir húseigandum sem eru tilbúnir að láta mála hús sín með auglýsingu fyrirtækisins. 11.4.2011 22:30
Fimm milljónir í sekt fyrir að neyða konu að vera í búrku Búrkubannið í Frakklandi tók formlega gildi í dag. Bannið var mjög umdeilt á sínum tíma en það tekur til kvenna fá Mið-Austurlöndum sem vilja hylja sig fullkomlega af trúarlegum ástæðum. 11.4.2011 22:00
Óþægilegt að vera bendlaður við svona mál Lögreglan hefur á tæpum tveimur mánuðum fengið 23 tilkynningar um að óprúttnir aðilar hafi reynt að lokka börn upp í svartan bíl. Ekki eru allar þessar ábendingar á rökum reistar eins og leigubílstjóri hér í borg komst að fyrir helgi. 11.4.2011 21:22
Mubarak í yfirheyrslu Egypsk yfirvöld hafa boðað Hosni Mubarak í yfirheyrslur eftir gríðarlegan þrýsting almennings í landinu. Mubarak hrökklaðist frá völdum í byrjun febrúar eftir að hafa ríkst sem forsætisráðherra í landinu í um þrjátíu ár. 11.4.2011 21:00
Þorvarður Davíð sendi bróður sínum bréf og baðst afsökunar Þorvarður Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir helgi fyrir að veitast að föður sínum, Ólafi Þórðarsyni, tónlistarmanni, var haldinn miklum ranghugmyndum um föður sinn. 11.4.2011 20:52
Kínverjar gagnrýna Bandaríkjamenn Kínverjar hafa birt skýrslu þar sem þeir gagnrýna Bandaríkjamenn harðlega fyrir að virða ekki mannréttindi. Þá segir jafnframt í skýrslunni, að Bandaríkjamenn reyni að grafa undan öðrum ríkjum með því að tryggja frjálsan aðgang að internetinu. 11.4.2011 20:45