Fleiri fréttir

Vongóðir um að finna svarta kassann

Stél frönsku flugvélarinnar, sem hrapaði í Atlantshafið árið 2009 þegar hún var á leið frá Brasilíu til Evrópu, er fundið að sögn ættingja þeirra sem fórust í slysinu.

Fundu kannabisræktun í fjölbýlishúsi

Kallað var á lögreglu í gærkvöldi til að fjarlægja óboðinn gest, sem hafði hreiðrað um sig í geymslu í kjallara fjölbýlishúss og neitaði að fara þaðan.

Mikið vatnstjón í Árbæjarhverfinu

Tjón varð í mörgum íbúðum í vestanverðu Árbæjarhverfinu í Reykjavík í gærkvöldi, þegar heitt vatn fór að leka úr lögnum.

Tæplega 14.000 atvinnulausir

Atvinnuleysi í mars mældist 8,6 prósent en að meðaltali voru 13.757 manns atvinnulausir í mánuðinum.

Kona sektuð um 25 þúsund

Franska lögreglan hefur í fyrsta skiptið sektað konu fyrir að hylja andlit sitt með búrku. Konan sem var stöðvuð inni í verslunarmiðstöð í París í fyrradag fékk tæplega 25 þúsund króna sekt.

Mun svara skýrslu Alþingis

Björgólfur Thor Björgólfsson segist ætla að svara rangfærslum um sig í Rannsóknarskýrslu Alþingis á næstunni. Frá þessu greinir hann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Hjólaði í veg fyrir bíl

Ung kona meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hún hjólaði í veg fyrir bíl á Nauthólsvegi í Vatnsmýrinni í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Eldur í fatahreinsun í nótt

Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í fatahreinsun við Vitastíg í Reykjavík upp úr miðnætti.

Bensínið kostar nú 240 krónur

Verð á eldsneyti hækkaði um þrjár krónur á lítrann í gær. Lítrinn kostar nú 239,80 krónur hjá Skeljungi, þar sem það er dýrast. Ódýrast er bensínið hjá Orkunni, þar sem lítrinn kostar 235,10 krónur.

Vilja frjálsar strandveiðar

Stjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýja reglugerð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um strandveiðar á komandi sumri.

Yngsta móðir Íslands - Varð ólétt 12 ára

Alda Jóhanna Hafnadóttir er yngsta kona sem átt hefur barn á Íslandi í seinni tíð, en hún var aðeins 12 ára þegar hún varð ófrísk. Alda er tvítug í dag og segist hafa farnast vel í móðurhlutverkinu. Nýlega kom svo í ljós að systir Öldu á von á barni í sumar, en hún er 15 ára.

Heitavatnslaust í Árbæ

Heitavatnslaust er í hluta Árbæjarhverfis eftir að aðalæð við Rofabæ bilaði í kvöld. Vatnsleysið nær til þess hluta hverfisins sem er vestan Fylkisvegar, sem liggur frá Rofabæ að Árbæjarlaug.

Jarðgöng hrundu á Gaza

Fjórir féllu og fjórir eru særðir eftir að jarðgöng hrundu nálægt bænum Rafah á Gaza-ströndinni í dag.

Framsókn styður vantrauststillöguna - Hreyfingin óákveðin

Atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins á ríkisstjórnina fer fram annað kvöld. Formenn þingflokkana funduðu í kvöld með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, þar sem fyrirkomulag umræðunnar var rædd.

Síðasti naglinn í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi

Ríkisstjórnin fer nærri því að reka síðasta naglann í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi, með áformum sínum um að takmarka leigutíma jarðhitaauðlinda við þrjátíu ár. Þetta sagði forstjóri HS Orku á fundi Jarðhitafélags Íslands í dag.

Bjarni Ben: Kosningar munu tryggja traust á milli þings og þjóðar

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði á Alþingi í dag fram tillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Í tillögunni er þess krafist að þing verði rofið 11.maí og boðað til kosninga. Forsætisráðherra fagnaði tillögunni og þakkaði Bjarna fyrir að leggja hana fram.

Meðferð barnaníðinga í íslenskum fangelsum er ábótavant

Meðferð barnaníðinga sem afplána í íslenskum fangelsum er ábótavant. Þetta segir sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun en barnaníðingur sem lauk nýverið afplánun er nú grunaður um að hafa brotið af sér á meðan hann var á reynslulausn.

Íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum

Hollensk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum til að knýja fram efndir í Icesave málinu. Þá ætla Hollendingar einnig beita sér fyrir því að sparifjáreigendur þar í landi fái allt sitt til baka - ekki einungis lágmarkstryggingu.

Úrslit MORFÍS í beinni á netinu í kvöld

Úrslit MORFÍS fara fram klukkan 20 í Háskólabíói í kvöld. Í ár eru það Menntaskólinn við Sund og Menntaskólinn í Reykjavík sem munu etja kappi en MS hefur titil að verja eftir að skólinn vann Verzlunarskóla Íslands í úrslitunum í fyrra.

Mubarak fluttur á sjúkrahús

Hosni Mubarak, fyrrum forseti Egyptalands, var fluttur á sjúkrahús í bænum Sharm el-Sheikh seinni partinn í dag. Ástand hans er sagt vera alvarlegt en aðstoðarmenn hans hafa borið þær fréttir til baka. Von er á yfirlýsingu síðar í dag.

Fyrrum einbýlishús Jóhannesar í Bónus til sölu

Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sett fyrrum einbýlishús Jóhannesar Jónssonar, kenndur við Bónus, á sölu. Húsið er 427 fermetrar á stærð og er á rúmlega sextán þúsund fermetra lóð á stað sem nefndur er Hrafnabjörg. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn og á Akureyri. Það er fasteignasalan Eignamiðlun sem sér um söluna á húsinu en ekki er verð á húsinu gefið upp heldur er óskað eftir tilboðum í húsið.

Óvíst hvort framsóknarmenn styðji vantrauststillögu Bjarna

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins fagnaði í dag á þingi framlagningu vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar en benti um leið á að hún væri á veikum grunni í ljósi þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu flestir sagt já í Icesave málinu. Hann telur alls óvíst hvort framsóknarmenn styðji tillöguna.

Ekki sjálfgefið hvort Atli styðji tillögu um vantraust

"Það er ekki sjálfgefið að ég muni styðja þessa tillögu, segir Atli Gíslason, fyrrverandi þingmaður VG sem nú er utan þingflokka. Hann segist ekki hafa kynnt sér vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar sem hann hyggst leggja fram í dag.

Vara við aukinni útfjólublárri geislun á Íslandi

Undanfarnar vikur hefur mælst óvenju mikil eyðing ósonlagsins yfir norðurhveli jarðar sem rekja má til óvenjulegra kaldra háloftavinda sem hafa komið í veg fyrir að lofthjúpurinn yfir norðurheimskautinu blandaðist við loft frá suðlægari breiddargráðum. Upplýsingar frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni benda til að um 40% þynningu á ósonlaginu sé að ræða og hefur hún aldrei áður verið svo mikil á norðurhveli jarðar. Búast má við að áhrifa þessara eyðingar ósonlagsins muni gæta hér á landi í vor og í sumar með aukinni útfjólublárri geislun á heiðskírum dögum. Umhverfisstofnun hefur sent frá sér tilkynnigu vegna þessa þar sem því esr sérstaklega beint til útivistarfólks að nota sólvörn og sólgleraugu. Ósonlagið er það svæði í lofthjúp jarðar þar sem þéttleiki ósons er mestur, í 15-35 km hæð yfir jörðu, og verndar lífríki jarðar gegn hættulegum útfjólubláum geislum sólar. Þessi hættulega geislun getur skaðað lífið í sjónum, valdið húðkrabbameini, augnsjúkdómum og bælt ónæmiskerfi líkamans. Losun ósoneyðandi efna var bönnuð með alþjóðlegum samningi, Montrealbókuninni frá 1987, sem verður 25 ára á næsta ári. Hér á landi hefur notkun ósoneyðandi efna minnkað um 98% frá því hún var mest árið 1987.

Jóhanna vill flýtimeðferð á vantrauststillögu

Jóhanna Sigurðardóttir ætlar að óska eftir því við forseta Alþingis að vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar fái flýtimeðferð í þinginu. Óvíst er hvenær tillagan verður tekin fyrir en heimildir fréttastofu herma að það gæti orðið á fimmtudaginn kemur.

Jóhanna segir að Icesave muni leysast á endanum

Jóhanna Sigurðardóttir segir að Svíar og Norðmenn hafi lofað áframhaldandi lánveitingum til handa Íslendingum þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Hún flutti munnlega skýrslu um málið í dag þar sem þetta kom fram meðal annars. Jóhanna sagði að ríkisstjórnin hafi verið í stöðugu sambandi við alla aðila málsins frá því niðurstaðan varð ljós og sagði hún róið öllum árum að því að skýra málstað Íslendinga. Sagði hún að viðbrögð við þeim skýringum hafi yfirleitt verið yfirveguð og fremur jákvæð.

Steingrímur: Glöggt er gests augað

„Ísland er ekki í neinum greiðsluvandræðum og verður ekki næstu árin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hann gaf lítið fyrir orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem stuttu áður boðaði úr pontu Alþingis að hann myndi leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Steingrímur benti á að sitjandi ríkisstjórn væri að vinna samkvæmt samningum sem síðasta ríkisstjórn átti hluta að, og þar með samningum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði sjálfur unnið að. Steingrímur benti á að Lars Christiansen, forstöðumaður greiningardeildar Danske Banke, segir nú að hagvöxtur sé hafinn á Íslandi á ný og horfur til framtíðar ágætar. Christiansen spáði árið 2006 fyrir um hrun íslenska efnahagsundursins. „Vonandi hefur hann rétt fyrir sér aftur að þessu sinni,“ segir Steingrímur og vitnaði í orðatiltækið: „Glöggt er gests augað.“

Bjarni leggur fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokki ætlar að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þetta kom fram í máli hans þegar hann svaraði munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um niðurstöður Icesave málsins.

Frakkar og Bretar vilja harðari aðgerðir í Líbíu

NATO þarf að herða aðgerðir sínar í Líbíu og eyðileggja þungavopn Gaddafís einræðisherra, að mati utanríkisráðherra Breta og Frakka. Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakka, segir að óbreyttir borgarar í Líbíu búi enn við ógn frá Gaddafí þrátt fyrir sprengjuárásir NATO undandfarna daga. William Hague, breski kollegi, Juppe, tók í svipaðan streng í dag og hvatti NATO til þess að herða róðurinn. Þá hvatti hann Múammar Gaddafí eindregið til þess að láta af völdum.

Bensínið hækkar enn - lítrinn kominn í 240 krónur

Olíufélögin hækkuðu verð á bensíni enn einu sinni í morgun og er lítrinn kominn í tæpar tvö hundruð og fjörutíu krónur. Hæst er verðið hjá Skeljungi eða 239,8 krónur lítrinn. Þá er dísel lítrinn kominn yfir 242 krónur hjá stóru olíufélögunum þremur. Vart þarf að taka fram að eldsneytisverð hefur aldrei verið eins hátt hér á landi. Þess má þó geta að lægsta verðið á bensíni er nú hjá Orkunni eða rétt rúmar 235 krónur lítrinn. Tíðar bensínhækkanir undanfarnar vikur má rekja til heimsmarkaðsverðs á olíu sem náði hæstu hæðum á tveggja ára tímabili á mörkuðum í New York í síðustu viku. Hins vegar lækkaði verð á tunnu lítillega í gær og endaði undir 110 dollurum tunnan. Þá er þó umtalsvert hærra en verðið hefur verið síðastliðið ár. Hátt olíuverð orsakast aðallega af óeirðunum í Líbíu sem staðið hafa nú í um 6 vikur og hafa neikvæð áhrif á framboð olíu. Alþjóða orkumálastofnunin segir í nýjustu mánaðarskýrslu sinni að hátt olíuverð sé farið að hafa áhrif á eftirspurn eftir olíu og haldist verðið yfir 100 dollurum tunnan gæti það hægt á efnahagsbata í heiminum.

Fiskifingur innkallaðir

Aðföng hafa ákveðið að innkalla Euro Shopper fiskifingur (en: fish fingers) í 900 gramma pappaöskjum. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að staðfest hafi verið að varan innihaldi afurð úr eggjum sem ekki er tilgreind í innihaldslýsingu. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus og 10-11, en hefur verið tekin úr sölu á meðan merkingar eru endurbættar. Þar sem egg og afurðir úr þeim eru meðal þekktra ofnæmis- og óþolsvalda eru vörurnar varasamar fyrir ákveðna neytendahópa. Vörurnar eru öruggar og heilnæmar fyrir neytendur sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og eggjaafurðum eða fiski og hveiti (glúten) sem eru tilgreind í innihaldslýsingu vörunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðföngum. Aðföng hvetja neytendur sem kunna að eiga vöruna til og hafa ofnæmi fyrir eggjum eða eggjaafurðum að henda henni eða skila við fyrsta tækifæri til næstu verslunar Bónus eða 10-11 gegn fullri endurgreiðslu. Einnig má hafa samband beint við Aðföng í síma 530-5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.

Lagaprófessorar til varnar Manning

Tvöhundruð og fimmtíu bandarískir lagaprófessorar hafa undirritað bréf þar sem er mótmælt meðferðinni á hermanninum Bradley Manning. Manning er grunaður um að hafa lekið milljónum leyniskjala til Wikileaks.

Öll börn fædd 2009 fá leikskólapláss

Foreldrar um 1.300 barna, sem fædd eru á árinu 2009 eða fyrr, hafa fengið boð um leikskólavistun eftir sumarleyfi í ágúst. Innritun barna í leikskóla Reykjavíkur stendur nú sem hæst, en eftir er að innrita á bilinu 200 og 300 börn. Stefnt er að því að öll börn fædd 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. Meðal annars er verið að skoða kosti þess að nýta betur húsnæði í eigu borgarinnar svo unnt verði að taka sem best á móti stærsta fæðingarárgangi sögunnar. Nýr leikskóli í Norðlingaholti mun taka til starfa í ársbyrjun 2012 og nokkrir sjálfstætt starfandi leikskólar hafa óskað eftir því að fjölga börnum. Áætlað er að innritun í borgarrekna leikskóla verði lokið í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Leikskólasvið hefur tekið í notkun nýtt innritunar- og innheimtukerfi, en með því skapast betri yfirsýn yfir barnfjölda, útskriftir úr leikskóla og inntökumöguleika í hverju hverfi og í hverjum skóla. Í þessu kerfi innrita leikskólastjórar sjálfir. Kerfið auðveldar þeim að hafa með sér samráð í hverju borgarhverfi, fara sameiginlega yfir umsóknir um leikskólapláss og uppfylla óskir foreldra, svo sem um að systkini dvelji í sama leikskóla. 6.865 börn dvöldu í leikskólum Reykjavíkur í byrjun ársins en gert er ráð fyrir að 7.118 leikskólarými verði í borginni í árslok. Inn í þeirri tölu eru einnig leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum

Sjá næstu 50 fréttir