Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kristín í stjórn Samtaka evrópskra háskóla Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur verið kjörin í stjórn Samtaka evrópskra háskóla til næstu fjögurra ára. Samtökin eru helsti samvinnu- og samráðsvettvangur evrópskra háskóla. Aðild að samtökunum eiga 850 háskólar í 46 þjóðlöndum en valnefnd á vegum samtakanna leitaði til Kristínar um að mega tilnefna hana til stjórnarkjörs. 18.4.2011 11:56
Teiknari bað Siv afsökunar Helgi Sigurðsson teiknari hefur beðið Siv Friðleifsdóttur alþingismann persónulega afsökunar á teikningu, sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birtist á mbl.is Teikningin vakti töluverð viðbrögð eftir að hún birtist. Meðal annars sá framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna ástæðu til að senda frá sér ályktun til að lýsa vanþóknun á teikningunni. 18.4.2011 11:45
Ísbú allt annað en Isbu "Ósáttir viðskiptavinir hafa haft samband við okkur í morgun og spurt af hverju við séum að selja þessar tangir. Við erum samt ekki að selja neitt svona lagað," segir Jens H. Valdimarsson, einn af eigendum fyrirtækisins Ísbú alþjóðaviðskipti. Vísir sagði í morgun frá því að búrekstrarvörufyrirtækið Ísbú væri að selja umdeildar geldingatangir. Jens bendir á að hans fyrirtæki hafi skráð vörumerkið Ísbú á sínum tíma og haldi úti vefsíðunni ísbú.is. Fyrirtæki Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns rekur hitt fyrirtækið sem stofnaði vefsíðuna isbu.is. Mikill misskilnigur og talsverð óþægindi hafa komið upp vegna þessara líkinda, en fyrirtæki Jens var stofnað á undan fyrirtæki Ásmundar Einars. Vegna athugasemda viðskiptavina í dag er Jens mikið í mun um að það sé á hreinu að hans fyrirtæki selur alls engar geldingatangir. Hann hefur í nokkurn tíma átt í samskiptum við Ásmund Einar um að finna einhverja leið til að minnka líkur á misskilningi þegar kemur að fyrirtækjunum tveimur, en enginn flötur hefur enn fundist á því. Eftir því sem Jens kemst næst hefur hann enga heimild til að fara fram á að búvörufyrirtækið hætti að nota nafnið. Samkvæmt upplýsingum á vef Ísbú, hins upprunalega, segir að Ísbú alþjóðaviðskipti ehf. hóf starfsemi árið 1974, þá sem útgerðarfélag. Árið 1991 tók það síðan breytingum og varð alþjóðafyrirtæki sem sinnir ráðgjöf og aflar verkefna á erlendri grundu. Meðal þess sem fyrirtækið hefur til sölu eru eldhúsinnréttingar, sturtuklefar, þakklæðningar og mótorhjól. 18.4.2011 11:19
Fyrirtæki þingmanns selur umdeildar geldingatangir "Fékkstu lambhrút af fjalli seint á síðasta ári? Sérhæfðu hrútatangirnar fást hjá okkur." Þannig hljómar auglýsing sem birtist í Bændablaðinu 7. apríl. Í drögum að nýjum dýraverndunarlögum er lagt til að aðeins verði heimilt að selja þessar tangir dýralæknum. Nú er heimilt að selja þær almenningi, sem skýtur skökku við þar sem dýralæknar einir hafa leyfi til að gefa lambhrútunum deyfilyf fyrir aðgerðina. Vegna þessa eru dæmi um að íslenskir bændur noti geldingatangirnar svokölluðu til að gelda lambhrúta og kálfa án deyfingar, og samkvæmt dýralæknum er um að ræða afar sársaukafulla aðgerð. Dýraverndunarráð Íslands hefur fordæmt að bændur geri þessar aðgerðir sjálfir, og fjallaði Vísir ítarlega um málið í nóvember. Þá kom fram að fram að Dýraverndarráð hafði fengið erindi frá Dýralæknafélagi Íslands um að fyrirtæki sem selur vörur til búrekstrar hafi verið að auglýsa slíkar tangir. Dýraverndarráð skoraði í framhaldinu á umrætt fyrirtæki að hætta sölu tanganna hið fyrsta. Þegar blaðamaður Vísis síðan hafði samband við sölumann fyrirtækisins sögðust þeir strax hafa tekið tangirnar úr almennri sölu eftir áskorunina. Fyrirtækið Ísbú heldur þó áfram að auglýsa og selja tangirnar, og er ofangreind auglýsing frá því fyrirtæki. Ísbú er í eigu fyrirtækisins Daðason og Biering ehf. sem er að fjórðungshluta í eigu Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns. Í frétt sem Ísbú birtir á vef sínum í janúar kemur fram að Dýralæknafélag Íslands sá sig knúið til að senda út bréf þar sem varað er við notkun leikmanna á hrútatöngum. Ekki sársaukalaust eins og þeir hafa stundum heyrt "Ísbú búrekstrarvörur vilja vekja athygli á að gelding á dýrum er ekki sársaukalaus aðgerð eins og við höfum stundum heyrt. Gelding skal ávallt framkvæmd af dýralæknum," segir í frétt á vef Ísbú. Sú auglýsing sem fyrirtækið birti í Bændablaðinu fyrr í þessum mánuði virðist þó beint til bændanna sjálfra, enda talað til eigenda lambhrútanna í auglýsingunni, sem sjá má hér að ofan. Drep kemur í eistun og þau visna Til að gelda karldýr töngin notuð til að klemma æðarnar fyrir ofan eistum og stoppa blóðflæði til þeirra. Þannig kemur drep í eistun, þau minnka og visna. Eins og fram kom í umfjöllun Vísis í nóvember notar fjöldi bænda geldingatangir á gripi sína og eru þeir heldur óhressir með hugmyndir um sölubann til leikmanna. Að þeirra mati snýst umræðan um að banna sölu á töngunum til annarra en dýralækna aðeins um að dýralæknar óttist að missa spón úr aski sínum. Bændur segja tangirnar öruggar og að aðgerðin taki fljótt af þannig að sá sársauki sem dýrin finna fyrir sé hverfandi. Auk þess telja þeir að auknar líkur séu á sýkingarhættu þegar verið er að sprauta dýrin með deyfilyfjum fyrir aðgerð og mögulega fjarlægja eistu á annan hátt en með töngunum. 18.4.2011 10:27
Vel heppnuð hátíð Á milli átta og tíu þúsund gestir mættu í Perluna á laugardaginn í tilefni tíu ára afmælis Fréttablaðsins. Gestirnir gæddu sér á tíu metra langri súkkulaðitertu og kláruðust sneiðarnar, sem voru um 2.200 talsins, á 45 mínútum. Vöfflur voru einnig í boði og síðan var öllu skolað niður með um þrjú hundruð lítrum af kakói og eitt þúsund Svölum. Páskaeggjaleit var einnig haldin í Öskjuhlíðinni þar sem ýmsar ævintýrapersónur afhentu miða fyrir páskaeggjum. Leitin var afar fjölmenn en eggin sem voru í boði voru um 5.600 talsins. Súkkulaðismakk var einnig í boði Freyju. 18.4.2011 10:00
Össur til í þjóðaratkvæði um kvótakerfið Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að kjósa um sjávarútvegsmálin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta kom fram í spjalli við Össur í morgunþætti Bylgjunnar, Í bítið. 18.4.2011 09:28
BUGL fær allt að 500 mál á ári Um 400 - 500 ný mál hafa borist á ári hverju inn á barna- og unglingageðdeild Landspítalans allt frá árinu 1998. 18.4.2011 09:27
Nýtt fréttasett RÚV kostaði 10 milljónir - skjáirnir 15 milljónir Útlagður kostnaður við nýtt fréttasett hjá sjónvarpsfréttastofu RÚV, nýja fréttagrafík, breytta framsetningu veðurfregna, og annað þessu tengt, var 9,8 milljónir króna. Bakgrunnsskjáirnir þrír sem notaðir eru í fréttasettinu voru keyptir fyrir rúmu ári. Þeir eru því ekki viðbótarkostnaður við nýtt fréttasett nú en hver skjár kostaði á sínum tíma tæplega 5 milljónir króna. Skjáirnir þrír kostuðu því saman alls tæpar 15 milljónir króna þegar þeir voru keyptir á síðasta ári. Skjáirnir eru hafa verið og verða áfram notaðir í leikmyndir og annað, auk þess að vera notaðir í fréttunum. Þetta kemur fram í svari Bjarna Guðmundssonar, framkvæmdastjóra RÚV, við fyrirspurn blaðamanns Vísis um kostnað við nýja fréttasettið og aðrar útlitsbreytingar. Þar segir að fréttasettið hjá RÚV var síðast endurnýjað árið 2005, og gamla settið því notað í rúmlega fimm ár. Hins vegar hefur kennimark Sjónvarpsins, sem Gísli B. Björnsson hannaði fyrir 45 árum, gengið í endurnýjun lífdaga. "Kennimörk RÚV, Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2 hafa nú í fyrsta skipti verið sameinuð undir einu sterku auðkenni, hinu góðkunna merki Sjónvarpsins í uppfærðri útgáfu. Eitt merki hefur þann kost að vera sameiningartákn allrar starfsemi fyrirtækisins og skerpa ásýnd þess en merkin voru fjögur áður. Um leið og nýtt auðkenni var tekið upp voru gerðar breytingar á ásýnd og útliti miðla RÚV og voru þær unnar samhliða merkisbreytingunni," segir í svari Bjarna. Útlagður kostnaður við almennar útlitsbreytingar hjá RÚV og miðlum þess, það er Rás 1, Rás 2, Sjónvarpsins og ruv.is nam 4 milljónum króna. Meðal þess sem er inni í þessum kostnaði er nýtt vefútlit sem er væntanlegt innan tíðar, og sviðsmynd fyrir fréttir. Þá hefur stillimynd sjónvarpsins horfið og í staðinn komnar skjámyndir með dagskrárkynningum, fréttum, myndum úr vefmyndavélum Mílu, frá útsendingum í hljóðstofu, og fleira. Heildarkostnaður við breytingarnar nú er því tæpar 14 milljónir króna, en ef skjáirnir sem keyptir voru á síðasta ári er tekinn með er kostnaðurinn orðinn tæpar 30 milljónir. 18.4.2011 08:53
Óvíst að lægra mat hafi mikil áhrif Vandalaust er að skýra stöðu Icesave-deilunnar erlendis og skilningur er ytra á þeirri afstöðu þjóðarinnar að ekki hafi verið rétt að semja um skuldbindingu á meðan hún væri óljós, að sögn Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. 18.4.2011 08:00
Nýbúar orðnir fleiri en 10% af íbúum Danmerkur Í fyrsta sinn í sögunni eru rétt rúmlega 10% af öllum íbúum Danmerkur eru nýbúar eða afkomendur þeirra. 18.4.2011 07:44
Hvirfilbylir valda neyðarástandi í Norður Karólínu Að minnsta kosti 45 fórust í suðurhluta Bandaríkjanna um helgina eftir að miklir stormar og hvirfilbylir herjuðu á íbúa þar. 18.4.2011 07:38
Framsóknarkonur lýsa vanþóknun á skopteikningu Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir algjörri vanþóknun á skopmyndateikningu, sem birt var í Morgunblaðinu á laugadag og sýnir Siv Friðleifsdóttur alþingismann, sem vændiskonu. 18.4.2011 07:28
Goodluck endurkjörinn forseti Nígeríu Flest bendir til að Goodluck Jonathan hafi verið endurkosinn forseti Nígeríu í kosningum þar um helgina. 18.4.2011 07:27
Undir áhrifum á ofsahraða Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði í nótt eftir að hafa mælt hann á 111 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar, reyndist undir áhrifum áfengis og var tekinn úr umferð. 18.4.2011 07:25
Neistaflug frá pitsustað við Laugaveg Allt slökkvilið á vakt á höfuðborgarsvæsðinu var kallað að pitsustað við Laugaveg upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi þar sem neistaflug stóð upp úr reykháfi hússins. 18.4.2011 07:23
Búið að landa 200 tonnum úr Baldvin frá Cuxhaven Búið er að landa 200 tonnum af ferskum fiski, aðallega þroski, úr togaranum Baldvin frá Cuxhaven, sem kom til Dalvíkur á laugardagskvöldið. 18.4.2011 07:21
Erlendum námsmönnum snarfækkar í Danmörku Verulega hefur dregið úr ásókn evrópskra námsmanna í danska skóla. Samkvæmt nýju yfirliti frá menntamálaráðuneyti Danmerkur sóttu um 1.000 færri námsmenn um háskólanám í Danmörku í ár en í fyrra. Þetta er samdráttur upp á um 33%. 18.4.2011 07:16
Synjunin var byggð á röngu ákvæði laganna Ástæða synjunar Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga og stjórnarformanns Íslenska lífeyrissjóðsins, eru rannsóknarhagsmunir hjá sérstökum saksóknara, er fram kemur í tilkynningu frá FME. 18.4.2011 06:30
Branson flytur lemúra milli heimsálfa Áform viðskiptajöfursins Richards Branson um að bjarga lemúrum í útrýmingarhættu með því að flytja þá milli heimsálfa hafa vakið hörð viðbrögð annarra náttúruverndarsinna. 18.4.2011 05:00
Sex til níu mánuðir í viðbót Stjórnendur kjarnorkuversins Fukushima Dai-ichi í Japan telja að það taki sex til níu mánuði að stöðva geislavirknilekann þar og að kæla niður kjarnaofnana. 18.4.2011 04:00
Ný ríkisstjórn í kortunum í Finnlandi Þingkosningar fóru fram í Finnlandi í gær. Bráðabirgðaniðurstöður í gærkvöldi bentu til þess að hægristjórn Mari Kiviniemi forsætisráðherra væri fallin. Þjóðernisflokkurinn Sannir Finnar var sigurvegari kosninganna og fimmfaldaði fylgi sitt. 18.4.2011 04:00
Slökkvilið kallað á pizzastað Slökkviliðið var kallað að Laugavegi 81 nú um ellefuleytið. Þar sáust eldglæringar í skorsteini. Eldurinn reyndist einungis vera í skorsteininum og þykir slökkviliðsmanni sem Vísir talaði við líklegast að það hafi einfaldlega komið upp of mikill eldur í pizzaofni, en í pizzastaðurinn Eldsmiðjan er þarna til húsa. 17.4.2011 22:53
Jóhanna sendi Vesturporti heillaóskaskeyti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera sendi í dag leikhópnum Vesturporti heillaóskir í tilefni af því að hópurinn veitti viðtöku evrópsku leiklistaverðlaununum. 17.4.2011 23:31
Viðhorf Hollendinga og Breta hefur breyst Vðhorf Hollendinga og Breta í garð Íslendinga hefur breyst eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur eðlilegt að Icesave málið sé leitt til lykta fyrir dómstólum. 17.4.2011 18:30
Rúmlega 500 farþegar þurftu að fara frá borði Rýma þurfti Mexíkóskt farþegaskip í gær eftir að skipið varð rafmagnslaust úti fyrir ströndum landsins. 17.4.2011 19:10
Auðveldara að setja einstaklinga og fyrirtæki í gjaldþrot Lögmaður segir að Alþingi hafi gert innheimtuaðilum mun auðveldara en áður að setja einstaklinga og fyrirtæki í gjaldþrot með lagabreytingum á síðasta ári. 17.4.2011 18:37
Líklegt að ný ríkisstjórn verði mynduð í Finnlandi Samkvæmt fyrstu tölum í þingkosningunum í Finnlandi, sem birtar voru klukkan fimm þegar kjörstöðum var lokað, hefur Samstöðuflokkurinn fengið 20,2 prósent atkvæða sem hafa verið talin. 17.4.2011 17:28
Sinubruni á Akureyri Eldur kviknaði í sinu við gömlu brúnna, á milli Borgarbrautar og Lönguhlíðar, á Akureyri um klukkan hálf fjögur í dag. 17.4.2011 16:28
Finnar kjósa til þings í dag Þingkosningar fara fram í Finnlandi í dag. Kannanir benda til þess að Samstöðuflokkurinn, flokkur Jyrki Katainen, núverandi fjármálaráðherra, fái rúmlega 21 prósenta fylgi og verði stærsti flokkurinn. 17.4.2011 14:38
Giftu sig nakin Þau fóru heldur óhefðbundna leið austurrísku hjónin sem giftu sig á dögunum. Melanie og Rene Schachner giftu sig nefnilega nakin til að gera brúðkaup sitt sem eftirminnilegast. 17.4.2011 14:08
Ekkert nema ESB er í boði Þótt stór hluti Króata sé efins um ESB-aðild hefur lítið heyrst af öðrum kostum. Dr. Samardzija segir landið annað hvort ganga inn eðasamræmast ESB utan frá. Mikilvægt fyrir Ísland að leysa Icesave. 17.4.2011 14:00
Fórnarlömb nauðgana gefi öðrum ekki blóð „Á hverju ári þurfum við að vísa um það bil tvö þúsund manns frá um lengri eða skemmri tíma vegna heilsufars, sögu um veikindi, lyfjanotkunar, aðgerða, ferðalaga, bólusetninga og fleira,“ segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir í Blóðbankanum. 17.4.2011 13:30
Fjármálaráðherra Hollands er skrítinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að fjármálaráðherra Hollands væri skrítinn. 17.4.2011 13:14
Hafa ekki tök á að auka framlög til Sólheima Fulltrúaráð Sólheima skorar á velferðarráðherra og sveitarfélagið Árborg að vinna sameiginlega að lausn á vanda heimilisins í stað þess að vísa hvor á annan. Í tilkynningu sem ráðið sendi frá sér í gær segir að mikil óvissa ríki um með hvaða hætti rekstur heimilisins verði tryggður. 17.4.2011 13:00
Fegin að vera komin aftur heim Rithöfundurinn Marie Amelie hefur fengið atvinnuleyfi í Noregi. Marie var vísað frá Noregi eftir að hún skrifaði bók um reynslu sína sem ólöglegur innflytjandi í landinu. Hún lenti í Noregi í gærkvöldi. 17.4.2011 12:07
Versti stormur í tvo áratugi Tuttugu og fimm er látnir eftir að fárviðri gekk yfir sex fylki í Bandaríkjunum. Hvirfilbylir, haglél og flóð fylgdu veðrinu sem skyldi eftir sig slóð eyðileggingar. 17.4.2011 11:56
Vísaði ekki Icesave til þjóðarinnar til að auka vinsældir sínar Ef menn halda að ég sé að sækjast eftir því að vera í sviðljósinu, þá get ég sagt þér að ég er löngu búinn að fá nóg af því, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni, fyrir stundu. 17.4.2011 11:21
Fólskuleg árás á Idol-keppanda Sautján ára stúlka í New York varð fyrir hrottalegri árás þegar fimm ungmenni réðust að henni og börðu til óbóta. Ástæða árásarinnar var sú að stúlkan hafði tekið þátt í áheyrnarprufum fyrir American Idol þar sem rödd hennar fékk að blómstra. 17.4.2011 11:00
Földu kannabis í bílnum Lögreglan á Akranesi stöðvaði á föstudagskvöldið bifreið með þremur farþegum. Fljótt vaknaði grunur um fíkniefnamisferli og sá grunur reyndist á rökum reistur því að ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna, einn farþeginn faldi kannabisefni í bifreiðinni og farið var í húsleit heim til hins farþegans og þar fundust um 5 grömm af amfetamíni og kannabis. 17.4.2011 10:55
Gekk á milli manna á Kringlukránni og stal veskjum Nóttin var tiltölulega róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar í miðbænum og leitaði annar tjónaþolinn aðstoðar á slysadeild. 17.4.2011 10:05
Mikil óvissa um hvernig rekstur Sólheima verður tryggður Sólheimar skora á velferðarráðherra og sveitarfélagið Árborg að vinna sameiginlega að lausn á vanda heimilisins í stað þess að vísa hvor á annan. 17.4.2011 10:00
BRICS-löndin vilja meiri völd Leiðtogar upprennandi stórvelda í hinu alþjóðlega efnahagslífi, BRICS-landanna svokölluðu (Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka), kalla eftir umbótum í regluverki alþjóðaviðskiptakerfisins og segjast munu styðja aðgerðir til að auka stöðugleika í alþjóðlegu efnahagslífi. Auk þess horfa þau til þess að minnka vægi Bandaríkjadalsins sem aðalgjaldmiðils heimsins. 17.4.2011 10:00
Lögreglumenn hlupu fálka uppi Einn var sviptur ökuréttindum á Akureyri í nótt, en það var ökumaður um tvítugt sem var tekinn á hundrað og tólf kílómetra hraða á Drottingarbraut þar sem hámarkshraði er fimmtíu. 17.4.2011 09:58
Melóna sprakk á Ísafirði Helgin var róleg hjá lögreglunni á Ísafirði, ef frá er talin heldur óvenjuleg sprengja sem sprakk í miðbænum í fyrrakvöld. Þá hafði einhver óprúttinn stungið flugeld eða blysi í melónu og skilið hana eftir við hús í bænum. 17.4.2011 09:52
Sex til níu mánuði að ná völdum á ástandinu í Fukushima Forsvarsmenn Kjarnorkuversins í Fukushima segja að það taki sex til níu mánuði að ná völdum ástandinu þar en bilað kælikerfi kjarnorkuversins hefur verið til vandræða síðan jarðskjálftInn mikli reið yfir Japan þann 11. mars. 17.4.2011 09:47