Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flutningabíll með mysu valt í Víkurskarði Stefnt er að þvi að ná stórum flutningabíl með tengivagni, sem valt út af veginum um Víkurskarð í gær, upp á veginn í dag. Bíllinn var á leið til Egilsstaða frá Akureyri með mysu. Ástæða þess að hann fór út af veginum er ókunn en stíf norðvestan átt var í gærdag á svæðinu, éljagangur og hálka. Bíllinn var með tengivagn og leikur grunur á að hann hafi mögulega runnið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var ökumaður einn í bílnu og er ekki vitað til þess að hann hafi slasast. Hann var þó fluttur til Akureyrar í gær til skoðunar. Flutningabíllinn liggur nú um 50 metra frá veginum, efst austan megin í Víkurskarði. Ekki er vitað hvort hann er í ökufæru ástandi en reiknað er með því að fulltrúar Mjólkursamsölunnar sjái um björgunaraðgerðirnar í dag, með aðstoð lögreglu ef þörf krefur. 17.3.2011 08:39
Örvænting breytist í reiði meðal Japana Örvænting meðal eftirlifandi Japana á þeim svæðum sem harðast hafa orðið úti í náttúruhamförunum þar í landi er nú að breytast í reiði í garð stjórnvalda. 17.3.2011 07:40
Njósnaflugvélar gegn fíkniefnagengjum í Mexíkó Stjórnvöld í Mexíkó hafa staðfest að Bandaríkjamenn hafi notað ómannaðar njósnaflugvélar til að afla upplýsinga um stærstu fíkniefnagengin í Mexíkó. 17.3.2011 07:29
Hafa tvo sólarhringa til að yfirgefa Benghazi Saif al-Islam einn af sonum Muammar Gaddafi hefur gefið íbúum Benghazi tvo sólarhringa til að yfirgefa borgina. Borgin er síðasta stóra borgin sem er á valdi uppreisnarmanna. 17.3.2011 07:27
Berlusconi keypti Ruby hjartaþjóf 13 sinnum Samkvæmt málskjölum í komandi réttarhöldum yfir Silvio Berlusconi forsætisráðherra kemur fram að hann hafi greitt ólögráða stúlku alls 13 sinnum fyrir kynlífsþjónustu. 17.3.2011 07:19
Ölvaður, dópaður og próflaus ökumaður skemmdi fjóra bíla Ölvaður, dópaður og próflaus ökumaður ók á jeppa sínum utan í fjóra kyrrstæða og mannlausa bíla við Hverfisgötu í Hafnarfirði um miðnætti, síðan á ljósastaur og stöðvaðist loks á rammgerum garðbekk. 17.3.2011 07:16
Auknar aðgerðir til að kæla Fukushima kjarnorkuverið Japönsk stjórnvöld hafa aukið mjög aðgerðir sínar til að kæla niður kjarnakjúfana í Fukushima kjarnorkuverinu. Stórar Chinook herþyrlur eru nú notaðar til að hella vatni yfir kjarnorkuverið en hver þeirra getur borið 7.000 lítra af vatni. 17.3.2011 07:14
Tvær konur sluppu lítið meiddar úr bílveltu Tvær ungar konur sluppu lítið meiddar þegar bíll þeirra valt út af veginum á Svalbarðsströnd, skammt frá Akureyri í gærkvöldi. 17.3.2011 07:13
Björgunarsveitir aðstoða fólk í föstum bílum Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi og í nótt til að aðstoða fólk í föstum bílum á Austurlandi. Þar snjóaði mikið og blés. 17.3.2011 07:11
Ítalía fagnar 150 ára afmæli sínu Ítalir halda upp á 150 ára afmæli landsins í dag en það fer lítið fyrir hátíðahöldum eða þeirri gleði sem venjulega fylgir merkisdögum sem þessum, meðal þjóða heimsins. 17.3.2011 07:08
Milljarða skattsvik norskra útvegsmanna Norsk sjávarútvegsfyrirtæki hafa verið staðin að stórfelldum efnahagsbrotum sem nema um þremur milljörðum norskra króna á síðasta ári. Sú upphæð jafngildir rúmum sextíu milljörðum íslenskra króna. 17.3.2011 07:00
Undirbjó Japansferð í tvö ár en kemst hvergi „Mig langar mjög mikið að fara núna. Ég hef verið að búa mig undir þessa ferð í tæplega tvö ár,“ segir Stefán Þór Þorgeirsson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík. 17.3.2011 07:00
Plast breitt yfir ótímabær hraðaskilti Skilti um hámarkshraða sem sett voru upp fyrr í vetur við nokkrar götur eru enn hulin með plasti. Að sögn Stefáns Finnssonar, yfirverkfræðings hjá umhverfis- og samgöngusviði, er ástæðan sú að formleg skilyrði fyrir breyttum hámarkshraða hafa ekki verið uppfyllt. 17.3.2011 06:45
Vilja svör um hagkvæmni Vaðlaheiðarganga Formaður samgöngunefndar Alþingis, Björn Valur Gíslason úr Vinstri grænum, hefur fallist á beiðni Marðar Árnasonar úr Samfylkingunni um sérstakan fund um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng. 17.3.2011 06:30
Hundrað bætast við á einum degi „Þetta er talsvert magn. Það er ekki víst hvort allir fá tölvurnar sem pöntuðu þær því við vitum ekki hvað margar koma til landsins,“ segir Bjarni Ákason, forstjóri Eplis, umboðsaðila Apple hér á landi. 17.3.2011 06:00
Stuðlað að nýliðun með leigukvótaþingi Notast verður við blandaða leið aflahlutdeildarkerfis og svokallaðs pottakerfis við stjórn fiskveiða, samkvæmt áformum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 17.3.2011 05:45
Vísar jafnréttiskvörtun til flokkanna Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vísar kvörtun Jafnréttisráðs um kynjahlutfall í landskjörstjórn til flokkanna. 17.3.2011 05:00
Rangt að ESB-reglugerð nýtist í aðildarviðræðum Sjávarútvegsráðuneytið segir að ákvæði í nýrri reglugerð ESB þar sem einstökum aðildarríkjum er heimilað að ákveða leyfilegt aflahámark fiskistofna feli í sér takmarkaða undanþágu frá meginreglum ESB. 17.3.2011 04:45
Ekki gengið að breyta launum handhafa Þó að laun forsetans hafi lækkað í ársbyrjun 2009 hafa laun handhafa forsetavalds haldist óbreytt fram að þessu. Sjaldgæft er að handhafarnir þurfi að sinna því starfi en þeir deila þó með sér forsetalaunum í fjarveru forseta. Þingmenn hafa tvívegis á nokkrum árum reynt að breyta þessu en ekki haft erindi sem erfiði. 17.3.2011 04:30
Yuriy Kuzubov fékk flest stig Sex skákmenn voru efstir og jafnir með sjö vinninga úr níu umferðum þegar MP Reykjavíkurskákmótinu lauk í gærkvöldi. Það voru þeir Yuriy Kuzubov, Ilya Nyzhnik og Vladmir Baklan frá Úkraínu, Pólverjinn Kamil Miton, Bosníumaðurinn Ivan Sokolov og Norðmaðurinn Jan Ludvig Hammer. 17.3.2011 04:00
140 hafa kosið utan kjörfundar Icesave Síðdegis í gær höfðu 140 manns greitt atkvæði utan kjörfundar um Icesave-málið á sýsluskrifstofum landsins. Af þeim voru 73 í Reykjavík. Utankjörfundur hófst í gærmorgun. 17.3.2011 04:00
Bónus áfram með lægsta verð Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í fjórum lágvöruverðsverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Hæsta verðið var oftast að finna í Samkaupum-Úrvali. Könnunin var gerð á mánudaginn síðastliðinn. 17.3.2011 03:30
Þáði engar utanlandsferðir „Þessari fyrirspurn er fljótsvarað," segir í svari Gunnars I. Birgissonar. bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í Kópavogi, við fyrirspurn Guðnýjar Dóru Gestsdóttur, bæjarfulltrúa VG. 17.3.2011 03:15
42 fyrirlestrar á fjórum tímum Háskólinn í Reykjavík (HR) heldur sitt árlega fyrirlestramaraþon í dag á milli klukkan 12.30 og 16.30. 17.3.2011 03:00
Icesave-bækling á hvert heimili Þingmenn allra flokka vilja að útbúið verði hlutlaust og aðgengilegt kynningarefni um Icesave-samningana fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 9. apríl og það sent öllum heimilum. 17.3.2011 02:30
Vilja að ríkisstjórnin skuldbindi sig Forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins áttu fund með sjö ráðherrum, þar á meðal forsætis- og fjármálaráðherra, í gærmorgun. Þar var farið yfir atriði sem snúa að stjórnvöldum í kjaraviðræðum. 17.3.2011 02:00
Óvissa um hvað er á seyði í kjarnaofnum Akihito Japanskeisari ávarpaði þjóð sína í gær og hvatti fólk til að gefast ekki upp, þrátt fyrir erfiðleika í kjölfar náttúruhamfaranna. Þetta er í fyrsta sinn sem keisarinn kemur fram opinberlega með ávarp sem fyrir fram er hugsað til útsendingar í sjónvarpi. 17.3.2011 01:00
Of gamall fyrir allt þetta kynlíf Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segist vera of gamall fyrir alla þá ástarfundi sem hann er sakaður um að hafa átt. 17.3.2011 00:45
Gæti leitt til skorts á varahlutum í bíla Ró færðist yfir hlutabréfamarkaði í Asíu í fyrrinótt eftir hrun í kjölfar náttúruhamfara þar fyrir viku. Nikkei-vísitalan hækkaði um tæp 5,7 prósent í gær en hafði fallið um tæp tuttugu prósent á fjórum dögum. 17.3.2011 00:15
Engar dauðarefsingar í bili Yfirvöld í Georgíu í Bandaríkjunum hafa hætt við allar dauðarefsingar í ríkinu eftir að lyf sem notað er til að taka fanga af lífi var gert upptækt. 17.3.2011 00:00
Grænn Kostur innkallar hummus og döðluvefjur Grænn Kostur hefur innkallað í varúðarskyni og í samráði við Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Hummus og döðluvefju vegna þess að ekki er getið um ofnæmis- og óþolsvald í innihaldslýsingu, það er, sesamfræ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grænum Kosti. 16.3.2011 20:02
Samkeppnisbrotasektir 2,3 milljarðar á þremur árum - fréttaskýring Hvaða fyrirtæki og samtök hafa orðið uppvís að brotum á samkeppnislögum á síðustu árum og hvað hafa þau greitt í sektir? 16.3.2011 21:00
Skipuleggja risahöfn og alþjóðaflugvöll á Langanesi Alþjóðaflugvöllur, sem yrði sá næst stærsti á Íslandi, verður á Langanesi í tengslum við stórskipahöfn, samkvæmt aðalskipulagi, sem sveitarstjórn Langanesbyggðar hyggst afgreiða á morgun. Landeigandi kallar þetta loftkastala. 16.3.2011 19:45
Íslendingurinn leitaði sér hjálpar vegna ásóknar í barnaklám 230 börnum, sem sættu kynferðislegri misnotkun, var bjargaði í einni stærstu lögregluaðgerð gegn barnaníðingum í heiminum. Aðgerðinni var stjórnað af Europol og teygði anga sína til fjölda landa en meðal annars var Íslendingur handtekinn. 16.3.2011 19:15
Keisari Japans áhyggjufullur yfir ástandinu í Fukushima Japanskeisari lýsir yfir miklum áhyggjum með ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima en staðfest er að hátt í 4500 séu látnir og meira en átta þúsund saknað. Íslendingar búsettir í Japan hafa yfirgefið landið. 16.3.2011 18:45
Hæstaréttarlögmenn: Megum ekki leika okkur að framtíð barnanna Hæstaréttarlögmennirnir Garðar Garðarsson, Gestur Jónsson, Guðrún Björg Birgisdóttir, Gunnar Jónsson, Jakob R. Möller, Lára V. Júlíusdóttir, Ragnar H. Hall og Sigurmar K. Albertsson skrifuðu grein, sem þeir hafa sent fjölmiðlum, þar sem þeir lýsa því yfir að þeir muni segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave. Greinin ber heitið: Dýrkeyptur glannaskapur. 16.3.2011 17:53
Segja árangur í úrslitakeppni vera öskubuskuævintýri "Okkur fannst alveg hrikalegt að okkar frábæra bæjarfélag hafi aldrei boðið upp á körfubolta þannig við ákváðum að taka málið í okkar hendur," segir Stefán Hirst Friðriksson, einn stofnenda körfuboltaliðsins Sláturfélag Seltjarnarness. 16.3.2011 16:54
Bakarí mátti ekki dreifa myndbandi af ungum drengjum Bæjarbakarí í Hafnarfirði braut gegn persónuverndalögum það birti á vefnum YouTube myndskeið sem talið var sýna ungan dreng taka farsíma ófrjálsri hendi. Þetta er niðurstaða Persónuverndar sem birti úrskurð sinn í dag. 16.3.2011 16:34
Lýst eftir Ingólfi Snæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ingólfi Snær Víðissyni, sem hvarf frá dvalarstað sínum í Reykjavík þann ellefta mars og hefur ekkert til hans spurts síðan. Ingólfur Snær er um 180 cm á hæð, um 90 kg á þyngd, nokkuð þéttvaxinn, með blá augu, með ljósar stuttar strýpur, var klæddur í svarta hettupeysu og svartar Adidas buxur og svartan Adidas bol. Skór sagðir hvítir. 16.3.2011 16:06
Átta sóttu um stöðu hæstaréttardómara Átta umsóknir bárust um þrjú embætti dómara við Hæstarétt Íslands, sem auglýst voru laus til umsóknar vegna tímabundinnar fjölgunar í réttinum, sbr. lög nr. 12/2011. Umsóknarfrestur rann út 14. mars síðastliðinn. Umsækjendur eru í stafrófsröð: 16.3.2011 15:59
230 börnum bjargað frá níðingum í aðgerð Europol Lögregluyfirvöld í þrettán löndum með fulltingi Europol, hafa handtekið 184 grunaða barnaníðinga og bjargað um 230 börnum, í einni stærstu lögregluaðgerð af þessu tagi í heiminum. 16.3.2011 15:28
Sex mánaða fangelsi fyrir að henda diski í konu Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að henda postulínsdiski í andlit á sambýliskonu sinnar. Diskurinn brotnaði og konan hlaut opið sár í andliti. Þetta gerðist síðastliðið sumar. 16.3.2011 15:11
Lögreglan kölluð í útibú Arion banka Lögreglan var kölluð til í útibú Arion banka í Kringlunni í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom upp ágreiningur á milli gjaldkera og viðskiptavinar í morgun. Maðurinn var ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fékk en fór heim til sín. Hann hringdi síðan í útibú bankans og hótaði því að hann myndi ná sér niður á starfsfólki bankans og mæta þangað með skotvopn. Lögreglu var gert viðvart og fór heim til mannsins og ræddi við hann. Þá var einnig rætt við starfsfólk útibúsins. 16.3.2011 15:01
Ung kona fannst alvarlega slösuð og meðvitundarlaus Ung kona fannst meðvitundarlaus með alvarlega höfuðáverka í bíl við Einholt þann 27. febrúar síðastliðinn. Þetta staðfestir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi. Konan man ekki atburðarrásina og er talið er að hún þjáist af minnisleysi vegna höfuðáverkanna. 16.3.2011 14:40
Þriggja ára fangelsi fyrir árás í Laugardal 23 ára gamall maður, Óðinn Freyr Valgeirsson, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir árás á 16 ára gamla stúlku í Laugardal þann ellefta október í fyrra. Maðurinn réðst að stúlkunni á göngustíg með ofbeldi og sló hana ítrekað með hörðu áhaldi í höfuð þannig að af hlaust skurður á hnakka. Hann tók hana hálstaki þrengdi að þar til hún missti meðvitund. 16.3.2011 14:33