Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Réttað yfir meintum mannræningja - móðursystir kom honum í fangelsi Aðalmeðferð í akureyska pyntingamálinu hófst klukkan hálf tíu í morgun en einn hinna ákærður var úrskurðaður í gæsluvarðhald um áramótin eftir að í ljós kom að hann hafði ítrekað hótað vitni sem gefur skýrslu í dómsalnum í dag. 7.1.2011 13:50
Karókímót um allt land til verndar auðlindunum Karókímaraþonið í Norræna húsinu stóð sleitulaust frá klukkan þrjú í gær og til miðnættis. Þegar hafa safnast rúmlega 28 þúsund undirskriftir á vefinn Orkuaudlindir.is og heldur maraþonið áfram klukkan þrjú í dag. 7.1.2011 13:39
Ólínu falið að finna veilur í löggjöf vegna Funa Umhverfisnefnd alþingis fundaði í morgun um málefni sorpeyðingarstöðvarinnar Funa við Skutulsfjörð að frumkvæði Ólínu Þorvarðardóttur, samkvæmt tilkynningu frá Umhverfisnefnd. 7.1.2011 12:54
Aldarafmæli Háskóla Íslands: Nóbelsverðlaunahafar með fyrirlestra Háskóli Íslands á aldarafmæli í ár, en skólinn var stofnaður á Alþingi 17. júní árið 1911. Af því tilefni kynnir Kristín Ingólfsdóttir rektor fjölbreytta dagskrá afmælisársins í dag og nýja stefnu Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnar nýjan aldarafmælisvef háskólans með aðstoð nemenda frá leikskólanum Mánagarði. Hljóðfæraleikur, söngur, lifandi myndir, ljósagangur og óvæntar uppákomur prýða dagskrána í dag. Á árinu munu svo heimsþekktir vísindamenn, þar á meðal Nóbelsverðlaunahafar, halda fyrirlestra, háskólalestin ferðast um landið með lifandi dagskrá og margt fleira. 7.1.2011 12:16
Ríkisstjórn samþykkti „Ísland 2020“ Ríkisstjórnin samþykkti í morgun áætlun í tuttugu liðum varðandi framtíð atvinnulífs og samfélags, sem meðal annars gerir ráð fyrir mælanlegum langtímarkmiðum á öllum sviðum stjórnsýslunnar. Forsætisráðherra segir áætlunina grunn að uppbyggingu þjóðfélagsins að loknum varnaraðgerðum eftir efnahagshrunið. 7.1.2011 12:13
Vilhjálmur Hans: Það verður stríðsástand ef Eiður sigrar „Ef að stefnandi hefur betur þá verður ekki búsáhaldabylting heldur stríðsástand,“ sagði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Inga F. Vilhjálmsonar, blaðamanns DV, sem knattspyrnukappinn Eiður Smári Guðjohnsen, vill meina að hafi brotið á friðhelgi einkalífs síns. 7.1.2011 12:02
„Allir vinna“ framlengt um ár Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að framlengja hvatningarátakið „Allir vinna" til eins árs. 7.1.2011 11:59
Ferðafólk frá Singapúr aldrei lent í öðru eins óveðri Sem stendur er afar mikið að gera hjá björgunarsveitum á Suðunesjum og veður þar kolvitlaust. Á Austurgötu er þak að fara af húsi í heilu lagi og mun Hafnargatan væntanlega lokast innan nokkurra mínútna. Ægisgatan hefur verið lokuð í morgun vegna vatns sem hefur safnast þar. Í Hveragerði losnuðu þakplötur af hesthúsi og tunnur fuku, á Blönduósi og Akureyri aðstoðuðu björgunarsveitir heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu og bæjarbúar á Akureyri aðstoðaðir í ófærð innanbæjar. Einnig hafa sveitir á Hofsósi, Akranesi, Árborg, Húsavík og Hvammstanga sinnt ýmsum verkefnum. Þessa stundina eru Húnar frá Hvammstanga að sækja ferðafólk frá Singapore sem situr fast í bílaleigubíl við Efra Vatnshorn. Hefur það aldrei lent í öðru eins veðri. 7.1.2011 11:55
Farþegar Herjólfs beðnir um að aka Austur-Landeyjaveg Fólk sem er á leið úr og í ferjuna Herjólf er beðið um að aka eftir Austur-Landeyjavegi að Bakkaflugvelli og þaðan í Landeyjahöfn. Að sögn lögreglu er gríðarhvasst er á Landeyjahafnarvegi og mikið sandfok og því hætta á skemmdum á bifreiðum. 7.1.2011 11:51
Stal öllu steini léttara Þegar danskir lögreglumenn stöðvuðu bíl í Hróarskeldu vegna þess að það vantaði á hann aðra númeraplötuna fannst þeim konan sem ók honum eitthvað taugastrekkt. Hún hafði ástæðu til. Hún hafði stolið bílnum. 7.1.2011 11:39
Hópnauðganir á Haiti Vopnuð gengi glæpamanna fara um flóttamannabúðir á Haiti og hópnauðga konum án þess að nokkuð sé að gert, að sögn Amnesty International. 7.1.2011 11:33
Björguðu togara sem var að slitna frá bryggju Björgunarsveitin á Dalvík hefur haft í nægu að snúast í gær og dag. Hún hefur komið heilbrigðistarfsmönnum til vinnu, aðstoðað togara sem var að slitna frá bryggju, dregið upp fjöldann allann af bílum og verið í alhliðabrasi í allann dag. 7.1.2011 11:11
Lögmaður Eiðs: Siðlaus blaðamennska Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður Eiðs Smára Guðjohnsen knattspyrnumanns í meiðyrðamáli hans gegn blaðamanni og ritstjórum DV, mótmælir þeim málflutningi DV-manna að umfjöllun um fjármál Eiðs Smára eigi fullt erindi við almenning á sama hátt og fjármál einstaklinga sem tengjast efnahagshruninu. Heiðrún Lind segir Eið Smára ekkert tengdan hruninu og að opinber umfjöllun um fjármál hans sé innrás í einkalífið. „Þetta er siðlaus blaðamennska,“ sagði Heiðrún Lind við aðalmeðferð málsins sem nú stendur yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur. 7.1.2011 11:10
Seinkun á ferðum Herjólfs frá Landeyjahöfn Seinkun hefur orðið á brottför frá Herjólfs frá Landeyjahöfn vegna vinds. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að allar líkur séu þó á því að áætlunin vinnist upp þegar líða tekur á daginn en til stóð að sigla fimm ferðir til Eyja frá Landeyjahöfn í dag. Fyrsta ferð átti að fara klukkan níu og önnur klukkan hálfeitt. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með fjölmiðlum þegar líða tekur á. 7.1.2011 10:48
Tólf ætluð brot á gjaldeyrishöftum til rannsóknar Ákærum hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur fjölgað verulega á milli ára eða úr 21 ákæru á árinu 2007 í 62 ákærur á árinu 2010. Á árinu 2008 voru gefnar út 42 ákærur og 47 á árinu 2009. Á þessum fjórum árum eru útgefnar ákærur 172 talsins. 7.1.2011 10:47
Eiður Smári bar ekki vitni Ekkert varð úr því að Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður bæri vitni símleiðis við aðalmeðferð meiðyrðamáls sem hann hefur höfðað á hendur blaðamanni og ritstjórum DV vegna umfjöllunar blaðsins um fjármál hans. Ingi F. Vilhjálmsson blaðamaður hafði skorað á Eið að bera vitni í málinu og til stóð að hann bæri bæri vitni símleiðis frá Englandi þar sem hann er búsettur. 7.1.2011 10:07
Hörður nýr ritstjóri Bændablaðsins Hörður Kristjánsson hefur verið ráðinn ritstjóri Bændablaðsins og kemur til starfa á næstu vikum. Hörður hefur síðustu ár starfað á Viðskiptablaðinu. Hann hefur margháttaða reynslu af blaðamennsku og m.a. starfað sem fréttaritari og kvikmyndatökumaður fyrir Ríkisútvarpið með aðsetur á Ísafirði, ljósmyndari, hönnuður og umbrotsmaður í prentsmiðju ásamt því að hafa starfað sem blaðamaður hjá Vestfirska fréttablaðinu,Vestra, DV og Fiskifréttum. Hörður var í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árum áður ásamt því að vera með meistararéttindi í ljósmyndun. Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins 7.1.2011 09:20
Forsetafrúin í sjónvarpið „Dorrit er virkilega klár og skemmtileg kona sem hefur alltaf haft mikinn áhuga á hollum mat og heilbrigðum lífsstíl,“ segir Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla eins og hún er gjarnan nefnd. 7.1.2011 09:00
Færð og veður á landinu: Yfirlit Vegagerðarinnar Óveður er á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á sunnanverðu Snæfellsnesi en stórhríð í ofanverðum Borgarfirði og í Dölum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem segir ennfremur að óveður sé undir Eyjafjöllum, við Ingólfsfjall, á Hellisheiði og í Þrengslum. 7.1.2011 08:44
Rannsaka dauða tveggja milljóna fiska í Maryland Yfirvöld í Maryland í Bandaríkjunum eru nú að rannsaka dauða um tveggja milljóna fiska í Chesapeake flóanum. 7.1.2011 07:49
Aukinn viðbúnaður í London vegna hryðjuverkaógnar Lögreglan í London hefur fjölgað lögreglumönnum á vakt við þá staði í borgarinni sem mest umferð er um sem og við Heathrow flugvöll. 7.1.2011 07:42
Danir bíða spenntir eftir fæðingu konunglegra tvíbura Danska þjóðin fylgist nú spennt með hverju fótmáli Mary krónprinsessu og Friðriks krónprins en Mary gengur með tvíbura undir belti og fæðing þeirra er á næsta leyti. 7.1.2011 07:40
Banna sölu á afurðum frá 4.700 svínabúum Þýska landbúnaðarráðuneytið hefur bannað sölu á afurðum frá yfir 4700 búum vítt og breitt um landið vegna díoxínmengunar í fóðri. Flest þessara búa eru svínabú sem staðsett eru í Neðra Saxlandi. 7.1.2011 07:28
Telur fugladauða stafa af óhappi við flutning á eiturgasi Leyniþjónusta rússneska hersins GRU telur að fugladauðinn í Bandarikjunum stafi af óhappi í flutningi á eiturgasi á vegum bandaríska hersins. 7.1.2011 07:25
Vegagerðin: Mikil ófærð víða um landið Það er mjög slæmt veður um mestallt land. Það er óveður undir Eyjafjöllum og bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Óveður er á Kjalarnesi og á sunnanverðu Snæfellsnesi en stórhríð í Dölum. 7.1.2011 07:15
Kolófært á Akureyri, strætisvagnar ganga ekki í dag Kolófært er á Akureyri þessa stundina og hefur lögreglan beðið björgunarsveitarmenn bæjarins um aðstoð við neyðarflutninga. 7.1.2011 07:11
Gamalt hesthús brann til grunna Eldur kviknaði í gömlu hesthúsi að bænum Jódísarstöðum upp úr miðnætti. Slökkviliðsmenn frá Akureyri, með aðstoð björgunarsveitarmanna, brutust í illviðri á vettvang, en þegar þangað kom var allt brunnið sem brunnið gat. 7.1.2011 06:48
Björgunarsveitir í aðgerðum víða um land vegna óveðurs Björgunarsveitir voru kallaðar út víða um land í gærkvöldi til að hefta fok og til að aðstoða vegfarendur í vandræðum, en engin hefur slasast í óveðrinu, svo fréttastofunni sé kunnugt um. 7.1.2011 06:40
Geta fryst sóknargjöld berist reikningar ekki Kirkjuráð Þjóðkirkjunnar getur ákveðið að svipta sóknir tekjum sínum ef þær skila ekki ársreikningum. Reglur þessa efnis tóku gildi um áramót. Sóknargjöldin eru þá lögð inn á biðreikning þar til reikningnum hefur verið skilað. 7.1.2011 06:30
Gert ráð fyrir rekstrarafgangi Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir um 120 milljóna rekstrarafgangi bæjarsjóðs á árinu. Afgangur samstæðu er talin verða tæpar 400 milljónir. Eignir bæjarins á hvern íbúa eru áætlaðar um 2,5 milljónir og skuldir á hvern íbúa eru rúmar 2 milljónir. 7.1.2011 06:00
Fá fleiri samninga en ætlast var til Allir gildandi þjónustusamningar sem ráðuneytin tólf hafa gert verða til skoðunar hjá Ríkisendurskoðun á næstunni. Ráðuneytin hafa þó enn ekki skilað öllum samningunum í hús, en þeir eru um 150 talsins. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir ástæðuna fyrir töfinni líklega liggja í því að ráðuneytin séu einnig að safna saman samningum við aðila sem Ríkisendurskoðun hafi ekki ætlað sér að skoða í upphafi. 7.1.2011 05:00
Var 32 prósentum yfir mörkum Magn díoxíns í mjólkursýni frá Efri-Engidal í Skutulsfirði var 3,98 píkógrömm í grammi af fitu (pg/g) en leyfilegt magn er þrjú píkógrömm díoxíns í hverju grammi. Mjólkursamsalan á Ísafirði lét gera mælinguna á bænum, sem stendur 1,5 kílómetra frá sorpbrennslustöðinni Funa í Skutulsfirði. 7.1.2011 05:00
Ráðhúsvörður leitaði horfins borgarfulltrúa „Mér hefur dálítið verið strítt fyrir þetta,“ segir Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi, sem missti næstum af atkvæðagreiðslu á borgarstjórnarfundi vegna salernisferðar. 7.1.2011 05:00
Íbúar í Suður-Súdan kjósa um sjálfstæði Allt bendir til þess að ríkjum heims fjölgi um eitt í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu í Suður-Súdan, sem hefst nú um helgina og stendur í viku. Valkostirnir hafa verið settir fram fyrir kjósendur með myndrænum hætti. Á kjörseðlunum eru tvær myndir og eiga kjósendur að merkja við aðra þeirra. 7.1.2011 05:00
Brýnt að ný raforkulög nái í gegn á þingi Forsvarsmenn orkumála og -dreifingar eiga fundi með iðnaðarráðherra eftir helgi þar sem fara á yfir þær brotalamir sem leitt hafa til þess að tafist hefur að endurreikna gjaldskrá Landsnets. Þá hefur ráðuneytið ákveðið að kalla eftir úttekt í samstarfi við erlenda sérfræðinga á regluverki og skilvirkni raforkumarkaðarins. 7.1.2011 04:00
Sneri aftur til Íraks úr útlegð Muqtada al-Sadr, einn helsti leiðtogi sjíamúslima í Írak, hefur snúið aftur til landsins eftir fjögurra ára sjálfskipaða útlegð í Íran. Hann var leiðtogi Mahdi-hersins, sem barðist ákaft gegn bandaríska hernum í Írak, og nýtur enn mikils fylgis í landinu, meðal annars á þinginu. 7.1.2011 04:00
Vilja ekki fýlupúka í trúnaðarstörfum Hvíta húsið í Washington hefur fyrirskipað að gerðar verði áætlanir til að meta hugsanlega hættu innanhúss í opinberri þjónustu. Að sögn BBC er markmiðið að finna þá óánægðu starfsmenn sem gætu lekið ríkisleyndarmálum. 7.1.2011 04:00
Ný stefna HÍ á afmælisári Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, opnar í dag dagskrá afmælishátíðar háskólans, en hann fagnar aldarafmæli hinn 17. júní. 7.1.2011 04:00
Óttast þyngri róður hjá fjölskyldum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði Hafnarfjarðar segjast hafa miklar áhyggjur af fyrirhuguðum breytingum og tekjutengingu leikskólagjalda í bænum. 7.1.2011 04:00
Tíu ár í endurreisn hjá millitekjufólki Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), segir að áratugur geti liðið áður en kaupmáttur meðaltekjufólks nái sama stigi og á góðæristímanum fyrir hrun. 7.1.2011 03:30
Afkoma ríkisins betri en ætlað var Greiðsluhalli ríkisins fyrstu ellefu mánuði nýliðins árs er heldur minni en ráð var fyrir gert í fjárlögum. Í þeim var gert ráð fyrir rúmlega 105 milljarða króna halla, en þess í stað reyndist handbært fé frá rekstri neikvætt um 72,7 milljarða króna. Árið áður var hallinn á sama tíma 122,8 milljarðar, að því er fram kemur í nýjum tölum fjármálaráðuneytisins. 7.1.2011 03:15
Hjartveiku börnin fá ekki borgað Máli Styrktarsjóðs hjartveikra barna gegn Landsbankanum og Landsvaka var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir jól. Styrktarsjóðurinn stefndi Landsbankanum og dótturfélagi hans Landsvaka, sem sér um rekstur 6.1.2011 21:33
Eldri mæður eignast frekar tvíbura Líkurnar á því að eignast tvíbura aukast eftir því sem móðirin er eldri. Þetta skýrist af því að eftir því sem konur eru nær breytingarskeiðinu þeim mun fleiri egg losna þegar að egglos verður. Afleiðingin er auknar líkur á tvíeggja tvíburum. 6.1.2011 22:05
Arfgreiðslur margfaldast á milli ára Margfalt fleiri erfðafjárskýrslur voru gerðar á nýliðnu árið heldur en árið 2009, samkvæmt tölum Sýslumannsins í Reykjavík. 6.1.2011 20:44
Skylda fólk til að hugsa um mömmu og pabba Kínverjar eru að hugsa um að skylda fólk með lögum til þess að hugsa um aldraða foreldra sína. Þetta hefur BBC fréttastofan eftir fjölmiðlum þar í landi. 6.1.2011 20:39