Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Almyrkvi í fyrramálið - tunglið verður rauðleitt Á vetrarsólstöðum, þriðjudagsmorguninn 21. desember, á stysta degi ársins, verður almyrkvi á tungli. Almyrkvinn hefst klukkan 07:40 og stendur yfir til klukkan 08:54. Ef veður leyfir sést myrkvinn vel frá Íslandi þótt tunglið sé tiltölulega lágt á lofti á vesturhimni, rétt fyrir ofan Óríon, milli fótleggja Tvíburanna og horna Nautsins. 20.12.2010 09:52
Hugnaðist ekki varnarsamstarf Norðurlanda Sendiherra Bandaríkjanna í Noregi varð illa við þegar Norðmenn tilkynntu um aukið samstarf við Svía og Finna í varnarmálum árið 2008. Wikileaks hefur birt pósta frá sendiherranum til utanríkisráðuneytisins í Washington. 20.12.2010 09:52
Sérsveitarmenn skreyttu jólatré fyrir skæruliða Kólombíski herinn hefur fundið upp á nýstárlegri aðferð við að draga úr baráttuþreki skæruliða FARC sem hafast við í frumskógum landsins. Sérsveit hersins fór með Blackhawk þyrlu djúpt inn á yfirráðasvæði skæruliðanna og skreytti 25 metra hátt jólatré með 2000 perum. 20.12.2010 09:10
Yngri en 10 ára þurfa fylgd í sund: Óánægja í Vesturbyggð Bæjarstjórn Vesturbyggðar mótmælir breytingum á reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sem miðar að hækkun á aldursákvæði barna á sundstöðum úr 8 í 10 ár. Mótmæli þess efnis voru bókuð á síðasta fundi bæjarstjórnarinnar. Áætlað er að reglugerðin taki gildi 1. janúar 2011 og fellur þar með eldri reglugerð úr gildi. 20.12.2010 09:06
Knappur stuðningur við ríkisstjórn - Þráinn má ekki forfallast Ríkisstjórnin virðist ekki geta treyst á atkvæði allra stjórnarliða í stórum málum. Þingstyrkurinn gæti enn dvínað því varaþingmaður Þráins Bertelssonar telur sig til þinghóps Hreyfingarinnar. Þráinn segist því ekki mega forfallast. 20.12.2010 08:40
Konunglegt brúðkaup: Fyrstu minjagripirnir í sölu Þrátt fyrir að enn séu fjórir mánuðir þangað til Vilhjálmur Bretaprins gengur upp að altarinu til að kvænast Kate Middleton eru fyrstu minjagripirnir tengdir brúðkaupinu komnir í sölu. 20.12.2010 08:28
Leki kom að skipi sem flytur kjarnaúrgang Danska skipið Puma var að koma frá Murmansk þegar leki kom að því en skipið hafði flutt kjarnorkuúrgang frá Serbíu til rússnesku hafnarborgarinnar. Áhöfninni tókst ásamt norsku strandgæslunni að stöðva lekann og sigla skipinu til Hammerfest þar sem það fer í slipp. 20.12.2010 08:26
Enn búist við töfum á samgöngum Búist er við enn frekari töfum á samgöngum í dag í Evrópu vegna vetrarharkanna sem hafa geisað í álfunni. Um þúsund Íslendingar voru strandaglópar á flugvöllum í Evrópu um helgina en nokkrar vélar lentu á flugvellinum í Keflavík í nótt. Þar var um að ræða vélar frá Kaupmannahöfn og Osló og í morgun lenti vél frá Iceland Express sem kom frá Gatwick í Bretlandi. 20.12.2010 08:20
Yndisleg tilfinning að vera á heimleið „Þetta er alveg yndisleg tilfinning eftir allt sem við erum búin að ganga í gegnum. Þetta er búið að ganga svo brösuglega að við erum alveg í skýjunum,“ segir Helga Sveinsdóttir í samtali við Fréttablaðið, en hún er nú farin að huga að heimferð frá Mumbai í Indlandi ásamt manni sínum, Einari Þór Færseth, og Jóel, fimm vikna gömlum syni þeirra. 20.12.2010 08:15
Hófu heræfingar í morgun í Kóreu Suður kóreski herinn hóf í morgun heræfingu á Jongpjong eyju, sem er nærri landamærunum að Norður Kóreu. Þetta staðfestir varnarmálaráðuneyti landsins en Norður-Kóreumenn hafa hótað aðgerðum, fari æfingin fram. Fjórir létust á dögunum þegar norðanmenn hófu stórskotaliðsárás á eyju sem lýtur yfirráðum sunnanmanna þegar önnur heræfing var haldin og er ástandið á svæðinu afar eldfimt. 20.12.2010 08:11
Upprættu barnaklámhring í Austurríki Rúmlega hundrað Austurríkismenn eru í haldi grunaðir um aðild að barnaklámhring sem upprættur var um helgina í viðamikilli aðgerð. Húsleitir voru gerðar vítt og breytt um landið og eru hinir grunuðu á aldrinum 18 til 70 ára. 20.12.2010 08:09
Óttast að 48 hafi farist þegar bátur sökk Forsætisráðherra Ástralíu Julia Gillard, segir að allt að 48 hafi farist í síðustu viku þegar flóttamannabátur sökk í slæmu veðri undan ströndum Jólaeyju, sem lýtur yfirráðum Ástrala. 20.12.2010 08:04
Óeirðir í Hvíta Rússlandi Þúsundir mótmælenda í Hvíta Rússlandi ruddust í nótt inn stjórnarráð landsins en mikil mótmæli hafa verið í landinu í kjölfar forsetakosninga. Fólkið braut rúður og hurðir í byggingunni í höfuðborg landsins, Minsk, en óeirðalögreglumenn náðu að hemja mannfjöldann og koma honum út úr húsinu. 20.12.2010 08:01
Rannsakaðir af Alþingi og saksóknara Hvað líður rannsóknum á þætti endurskoðenda í bankahruninu? Tvö stærstu endurskoðunarfyrirtæki landsins sæta nú sakamálarannsókn vegna vinnu sinnar fyrir bankana í aðdraganda hrunsins. 20.12.2010 08:00
Óvenju fá skip á sjó Innan við hundrað skip eru sá sjó umhverfis landið, sem er óvenju lítið. Víða er óveður að ganga niður og þannig stendur á veiðiferðum hjá mörgum stórum skipum, að þau fara ekki aftur á sjó fyrir jól. Ekki er vitað til að neitt skip hafi orðið fyrir áfalli í óveðrinu, enda leituðu mörg þeirra í var inni á fjörðum, þegar verst lét. 20.12.2010 07:55
Ók út í skurð í Haukadal Karlmaður, sem var einn í bíl sínum, slapp ómeiddur þegar bíllinn fór út af veginum skammt frá Geysi í Haukadal og hafnaði ofan í skurði. 20.12.2010 07:54
Aðstoðuðu fólk í Víkurskarði Björgunarsveit var kölluð út á fjórða tímanum í nótt til að aðstoða karl og konu, sem sátu í föstum bíl sínum í Víkurskarði, skammt frá Akureyri. Upphaflega ætlaði lögregla að koma fólkinu til hjálpar, en hún komst ekki á vettvang vegna ófærðar. Ekkert amaði að fólkinu, sem var flutt til byggða. Snjóruðningsmenn hófu störf á Skarðinu fyrir klukkan sex í morgun. 20.12.2010 07:54
65 kíló af fíkniefnum tekin - þrefalt meira en í fyrra Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt um það bil þrefalt meira magn fíkniefna í ár en í fyrra. 20.12.2010 07:00
Nýtt fangelsi mun rísa á Hólmsheiði Útboð til framkvæmda á nýju fangelsi á Hólmsheiði verður tilbúið hjá dómsmálaráðuneytinu innan fárra vikna. Byggingin verður 3.600 fermetrar, með 56 klefum sem skiptast niður á þrjár deildir; kvennadeild, skammtímavistun og gæsluvarðhald. 20.12.2010 06:30
Burðardýr fíkniefna lengst vaktað í sautján sólarhringa Lögreglumenn á Suðurnesjum hafa lengst þurft að vakta smyglara með fíkniefni innvortis í sautján sólarhringa. 20.12.2010 06:00
Rök friðarsinna enn mikilvæg Samstarfshópur friðarhreyfinga efnir til blysfarar niður Laugaveginn í 31. sinn á Þorláksmessu. „Þetta er bæði falleg samverustund, rétt í miðri jólaösinni, og tengist þeim málefnum sem hæst bera hverju sinni í friðarmálum,“ segir Stefán Pálsson, einn af skipuleggjendum blysfararinnar. 20.12.2010 05:30
ÍE bætir skilvirkni við krabbameinsleit Íslensk erfðagreining hefur fundið aðferð til að gera leit að blöðruhálskrabbameini skilvirkari. Aðferðin eykur líkurnar á því að sjúkdómurinn greinist í tíma og fækkar sýnatökum. Fjöldi karlmanna gengst á hverju ári undir slíka aðgerð að óþörfu. 20.12.2010 05:00
Rannsókn hafin á sprengingu Rannsókn er hafin á sprengingunni sem varð í spennistöð álvers Alcoa á Reyðarfirði á laugardag. „Enn er ekkert vitað um orsakir sprengingarinnar,“ segir Guðmundur Helgi Sigfússon, slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar. 20.12.2010 04:00
Sjötugur karlmaður á batavegi Sjötugur karlmaður sem slapp naumlega úr eldsvoða á Hofsósi aðfaranótt sunnudags er á batavegi. Hann dvaldi á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks í gær vegna skurðar á höndum og reykeitrunar. 20.12.2010 03:00
Tryggari varðveisla dýrgripa Umfangsmikil og verðmæt gripasöfn Náttúrufræðistofnunar Íslands eru loks komin í viðunandi húsnæði eftir að stofnunin opnaði í nýju og sérútbúnu húsi í Urriðaholti í Garðabæ á föstudag. 20.12.2010 02:00
Styrktir vegna málskostnaðar Bandaríska leyniþjónustan CIA samþykkti að greiða að minnsta kosti fimm milljónir dala, eða hálfan milljarð króna, í lögfræðikostnað fyrir tvo sálfræðinga sem skipulögðu og tóku sjálfir þátt í vatnspyntingum á föngum. 20.12.2010 01:00
Fyrsta góðgerðasamkoma verðandi prinsessu Kate Middleton kom í fyrsta sinn fram opinberlega á laugardagskvöld eftir að tilkynnt var um trúlofun hennar og Vilhjálms Bretaprins. 20.12.2010 00:15
Um 1000 Íslendingar eru strandaglópar Um þúsund Íslendingar eru strandaglópar á flugvöllum í Evrópu vegna snjóa. Samgöngur í álfunni eru víða í lamasessi og segja flugfarþegar að upplýsingaflæði frá flugfélögum sé mjög ábótavant. Miklir snjóar og vetrahrökur hafa verið á Bretlandseyjum undanfarna daga og eru samgöngur þar víða í algjöru uppnámi. 19.12.2010 19:54
Björgunarsveitamenn leituðu manns í Reykjavík Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu leituðu í dag manns sem saknað hafði verið frá heimili sínu í Breiðholti frá því í gærkvöldi. Maðurinn sem er sextugur er sjúklingur eftir heilablóðfall. Björgunarsveitir fundu manninn rétt við heimili sitt eftir stutta leit og var hann bæði kaldur og illa áttaður. 19.12.2010 18:15
Segir skattaumhverfi góðgerðarfélaga vera erfitt hér Skattaumhverfi frjálsra félagasamtaka á borð við góðgerða- og menningarfélaga er mun óhagstæðara hér á landi en í nágrannalöndum okkar, beggja vegna Atlantshafsins. Þetta segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Máli sínu til stuðnings bendir hún á skýrslu sem hafi verið unnin um þetta hér á landi. 19.12.2010 16:50
Á slysadeild eftir árekstur Ökumaður bíls var fluttur á slysadeild eftir að bíllinn hafnaði á öðrum bíl á Höfðabakka á fjórða tímanum í dag. Sjúkralið, lögregla og tækjabíll frá slökkviliðinu voru kallaðir á staðinn en ekki kom til þess að beita þyrfti klippum vegna slyssins. Ökumaðurinn mun hafa hlotið minniháttar meiðsl. Aðrir slösuðust ekki. 19.12.2010 15:33
Streituvekjandi að eiga barn með ADHD Vísbendingar eru um að foreldrar sem eiga barn sem glímir við athyglisbrest með ofvirkni, eða ADHD, virðast frekar upplifa streitu og álag í tengslum við fjölskyldu sína en foreldrar barna sem ekki eru með ADHD og virðast almennt líða verr í foreldrahlutverkinu. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar sem þær Sigrún Arnardóttir og Z. Gabríela Sigurðardóttir gerðu og birtist í nýjasta hefti Sálfræðiritsins sem kom út fyrir helgi. 19.12.2010 14:51
Enn röskun á flugi frá Bretlandi Enn er töluverð röskun á flugi milli Keflavíkur og Bretlands vegna óveðursins í Bretlandi. 19.12.2010 13:50
Sakar Gunnar um lýðskrum Fjárhagsáætlun Gunnars Birgissonar einkennist af lýðskrumi og er að mörgu leyti óraunhæf, segir formaður bæjarráðs í Kópavogi. Ekki verði komist í gegnum 800 milljóna króna hagræðingu án þess að hækka gjaldskrár. 19.12.2010 13:15
Setti met í sæðistöku Hrúturinn Grábotni 06-833 setti fyrir helgi nýtt met í sæðismagni sem gefið hefur verið á einum degi. Samtals gaf hann 280 sæðisskammta, en gott þykir ef hrútur skilar 100 skömmtum. Sæðistakan fór fram á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands. 19.12.2010 13:03
Snúið upp á hendurnar á Geir og Árna „Þetta var allt stopp," sagði Vilhjálmur Egilsson, aðspurður um gagnrýni á stuðning hans við Icesave samkomulagið sem var gert í fyrra. Samningurinn sem var kynntur fyrir fáeinum dögum er töluvert betri en sá samningur, í það minnsta þegar litið er til vaxtaprósentunnar. 19.12.2010 12:02
Karlmaður lést eftir bílslys Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að ekið var á hann á gatnamótum Bergþórugötu og Snorrabrautar í gær. Maðurinn hlaut höfuðáverka auk fleiri meiðsla og var fluttur á slysadeild Landspítala. Hann var úrskurðaður látinn skömmu eftir komu þangað. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. 19.12.2010 11:52
Áfram kuldakast í Evrópu Kuldakastið í Evrópu heldur áfram að hafa áhrif á ferðaáætlanir. Þúsundir manna eru strandaglóðar á flugvöllum, bara á flugvellinum í Frankfurt voru 2500 ferðalangar fastir í gær og í nótt. Heathrow og Gatwick voru lokaðir í gær en opnuðu aftur í morgun. Nokkrar seinkannir urðu á flugi frá Keflavík í nótt og í morgun en það virðast vera að komast í lag. 19.12.2010 10:04
Einungis 140 fengið sértæka skuldaaðlögun Í byrjun nóvember höfðu einungis 140 manns fengið sértæka skuldaaðlögun. Rúmlega 2400 einstaklingar voru með lán sín í frystingu á sama tíma. Þetta kemur fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns á Alþingi. 19.12.2010 09:54
Karlmaður komst lífs af úr eldsvoða Karlmaður komst lífs af þegar að íbúðarhúsnæði brann til grunna á Hofsós í nótt. Maðurinn vaknaði við reykskynjara og braut sér leið út úr húsinu í gegnum glugga. Hann særðist við það á höndum. 19.12.2010 09:49
Slökktu eld í iðnaðarhúsnæði Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í vesturhluta Kópavogs nú í morgunsárið. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var ekki um mikinn eld að ræða í húsinu en töluverðan reyk lagði frá húsinu. Slökkviliðið reykræsti. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður sem fréttastofa talaði við segir að nóttin hafi verið gríðarlega annasöm. Sjúkraflutningamenn fóru í 42 sjúkraflutninga sem þykir mikið á einni nóttu. 19.12.2010 09:36
Hófu formlegan undirbúning að olíuleit við Jan Mayen Norsk stjórnvöld hófu í vikunni formlegan undirbúning að olíuleit við Jan Mayen með þeim rökum að nauðsynlegt sé fyrir norskan olíuiðnað að finna nýjar auðlindir. Norðmenn gera þó ekki ráð fyrir að olíuvinnsla hefjist þar fyrr en eftir tíu til fimmtán ár. 18.12.2010 20:07
Lottópotturinn gekk ekki út Lottópotturinn gekk ekki út í kvöld og verður því þrefaldur næst. Lottótölurnar voru 12, 22, 31, 32, 33 og bónustalan 29. Tveir skiptu með bónusvinningi og fékk hvor um sig rúmar 115 þúsund krónur. 18.12.2010 20:22
Eldur í spennustöð hjá Fjarðaáli Eldur kom upp í spennistöð álversins á Reyðarfirði rétt eftir klukkan fimm í dag eftir að sprenging varð í spennustöðinni. Álverið er rafmagnslaust. Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa á Íslandi, segir að um töluverðan eld sé að ræða. „En það sem er mikilvægast er það að það slasaðist enginn í þessari sprengingu,“ segir Erna. 18.12.2010 17:55
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á Bergþórugötu um fimmleytið í dag. Vegfarandinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Ekki er vitað hvers eðlis meiðsl hans eru. 18.12.2010 17:30