Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikilvægt að koma fram við sprautufíkla eins og sjúklinga Alþjóða Rauði krossinn telur að hægt sé að draga verulega úr útbreiðslu alnæmis ef sprautufíklar væru meðhöndlaðir sem sjúklingar frekar en afbrotamenn. Í skýrslu sem gefin er út af tilefni alþjóðlega alnæmisdagsins, sem er í dag, kemur fram að meðan dregið hefur úr nýmsitun alnæmis í Afríku hefur hún aukist mikið meðal sprautufíkla um allan heim. 1.12.2010 14:08
Sigurjón verst líka riftun og segist gjaldþrota gangi hún eftir Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir að gangi 300 milljóna króna riftunarmál sem slitastjórn Landsbankans hefur höfðað á hendur honum vegna launauppgjörs verði hann gjaldþrota. Lögmaður hans segist ekki skilja hvers vegna slitastjórn sé að krefja hann um 37 milljarða þar sem hann hafi að mestu verið atvinnulaus frá 8. október 2008. 1.12.2010 14:00
Afbrotum í Vesturbæ fækkar Afbrotum í Vesturbæ hefur fækkað á milli ára. Þetta kom fram á fundi lögreglunnar með lykilfólki í hverfinu sem haldinn var á mánudag. 1.12.2010 13:24
Ítarlegt viðtal við Þorvald Gylfason Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði sem náði afgerandi besta kjöri á stjórnlagaþing, segir að mikilvægt að stjórnlagaþing gangi þannig frá tillögum sínum að Alþingi finni sig knúið til að senda þær óbreyttar í dóm þjóðarinnar til afgreiðslu. Þorvaldur segir að ný stjórnarskrá og uppgjör hrunsins séu náskyld mál. 1.12.2010 13:21
Medvedev varar við nýju vopnakapphlaupi Rússland, AP Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti lagði í stefnuræðu sinni þetta árið sérstaka áherslu á nauðsyn þess að rússneskum stjórnvöldum tækist að semja við Vesturlönd um sameiginlegar eldflaugavarnir. 1.12.2010 13:00
Mótmæli snerust upp í átök í Róm Mótmæli námsmanna í Róm snerust í gær um stund upp í harkaleg átök við lögreglu, sem beitti táragasi á mótmælendur, sem köstuðu eggjum, tómötum og reyksprengjum í lögregluna. 1.12.2010 12:30
Gyrðir og Ísak tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Gyrðir Elíasson og Ísak Harðarsson eru tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011. Gyrður er tilefndur fyrir smásagnasafnið Milli trjánna en Ísak fyrir ljóðabokina Rennur upp nótt. Uppheimar gáfu báðar bækurnar út á síðasta ári. 1.12.2010 12:11
Efnahagsaðgerðir: Reynt til þrautar að ná samkomulagi Ríkisstjórnin reynir nú til þrautar að ná samkomulagi um efnahagsaðgerðir sem hægt verði að kynna í dag. Mikil fundahöld hafa verið í stjórnarráðinu í morgun. Nú fyrir hádegi komu fulltrúar opinberra starfsmanna, Alþýðusambandsins og Hagsmunasamtaka heimilanna til fundar við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisrðaherra, Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Guðbjart Hannesson, félags- og heilbrigðisráðherra og Árna Pál Árnason, viðskiptaráðherra. Steingrímur sagði í viðtali við fréttastofu seinni partinn í gær að niðurstaða yrði að nást á næstu klukkustundum, helst í dag eða á morgun. 1.12.2010 12:00
Time tilnefnir Assange mann ársins Þótt Julian Assange, stofnandi lekasíðunnar Wikileaks, reyni að halda sér fjarri sviðsljósinu meðan fjölmiðlar fjalla um efni lekanna hefur persóna hans engu að síður verið til umfjöllunar nú, rétt eins og fyrr þegar mikilvægar upplýsingar sem áttu að fara leynt hafa verið gerðar opinberar. 1.12.2010 12:00
Makríll: Kvótinn gæti orðið 147 þúsund tonn Makrílkvóti íslenskra skipa gæti orðið 147 þúsund tonn á næsta ári, eða 17 þúsund tonnum meiri en á þessu ári, og þar með meiri en nokkru sinni fyrr. Það helgast af því að Alþjóðahafrannsóknaráðið telur óhætt að auka heildarkvótann úr stofninum á næsta ári og Jón Bjarnason Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær að hlutdeild Íslands í heildarkvótanum yrði sú sama á næsta ári og hún var í ár, eða um 16 prósent. 1.12.2010 11:52
Sögufrægt skrifpúlt afhent á Bessastöðum Afkomendur og ættingjar Ragnars Ásgeirssonar afhentu skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar á Bessastöðum. Sveinbjörn var kennari í Bessastaðaskóla fyrir um 200 árum, á fyrstu áratugum 19. aldar og einn helsti áhrifamaður um endurreisn íslenskrar tungu. Skrifpúltið eignuðust síðar Benedikt Gröndal sonur Sveinbjarnar og svo Einar Benediktsson skáld. 1.12.2010 11:19
Vill myrða stofnanda WikiLeaks Ráðgjafi forsætisráðherra Kanada hefur lýst því yfir í sjónvarpsviðtali að réttast væri að myrða stofnanda WikiLeaks vefsíðunnar. 1.12.2010 11:07
Fréttablaðið fjallar oftast um Jón Ásgeir Fréttablaðið hefur birt mun fleiri fréttir um Jón Ásgeir Jóhannesson en fjóra aðra viðskiptamenn sem voru í forystu fjármálafyrirtækja í aðdraganda bankahrunsins á sex mánaða tímabili. Þetta kemur fram í samantekt sem Creditinfo vann fyrir Björgólf Thor Björgólfsson. 1.12.2010 11:00
1250 lítrar af landa í bílskúr í Kópavogi Rannsóknarlögreglumenn fóru í húsleit í gærkvöldi í vesturbæ Kópavogs og uppgötvuðu þar umfangsmikla landabruggverksmiðju í bílskúr. Í skúrnum reyndust vera 400 lítrar af áfengi auk 850 lítra af gambra. 1.12.2010 10:58
Brotist inn í bílasölu Brotist var inn í bílasölu við Breiðhöfða í nótt. Grunur leikur á að bíllyklar hafi verið teknir þaðan en engum bíl hefur verið stolið enn sem komið er. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrotið um klukkan tvö í nótt. Ekki er vitað hverjir þarna voru að verki en lögreglan rannsakar málið. 1.12.2010 10:45
Metfjöldi barnabóka gefinn út Öll met hafa nú verið slegin hvað varðar útgáfu íslenskra barnabóka á árinu, samkvæmt upplýsingum frá bókaverslun Eymundssonar. Verslunin hefur tekið á móti 317 nýjum titlum í flokki barnabóka það sem af er árinu. Það er rétt tæplega 60% aukning frá því í fyrra og 16,5% fleiri titlar en árið 2007. Í sumum tilfellum er um að ræða endurútgáfur á eldri bókum. 1.12.2010 10:22
Þingmaður misskildi úrslit kosninganna „Frambjóðendurnir raðast nánast eftir stafrófsröð sem segir það kannski að þeir sem eru aftarlega í stafrófinu hafa lítinn sjens í persónukjöri," sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, skömmu eftir að frumúrslit kosninga til stjórnlagaþings voru kynnt í gær. Þorgeir Ástvaldsson og Kristófer Helgason ræddu við Vigdísi í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem þeir leituðu viðbragða ýmissa aðila við úrslitum kosninganna. 1.12.2010 10:01
Næstum 6000 börn þurftu aðstoð barnaverndarnefnda Barnaverndanefndum á Íslandi bárust tilkynningar vegna 5773 barna á fyrstu níu mánuðum ársins, samkvæmt tölum sem Barnaverndarstofa birtir á vefsíðu sinni. Fjölgunin frá sama tímabili í fyrra nemur 1%. Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 47,1%, en 31,3% tilkynninga voru vegna vanrækslu. 1.12.2010 09:19
Shahla Jahled hengd í nótt Írönsk kona var hengd í nótt í Teheran en hún var sökuð um að hafa myrt eiginkonu frægs fótboltamanns. Shahla Jahled hefur setið í fangelsi í níu ár fyrir morðið en mannréttindasamtök víða um heim höfðu barist fyrir málstað hennar. 1.12.2010 09:11
Fannfergi á Bretlandi Mikil snjókoma hefur enn á ný sett allar samgöngur úr skorðum á Bretlandseyjum í morgun. Langar bílaraðir hafa myndast á hraðbrautum, flugvöllum hefur verið lokað og lestum seinkað. Veðurfræðingar gera ráð fyrir áframhaldandi snjókomu um mestan hluta Englands, Skotlands og Wales. Mestri snjókomu í dag er spáð í London og í Skotlandi. Gatwcick flugvöllur er lokaður fram að hádegi hið minnsta og búist er við því að flugvöllurinn í Edinborg opni ekki fyrr en seinnipartinn. 1.12.2010 09:06
Voldugur á alla kanta Fyrst þegar tekið er af stað á Ford Expedition Limited jeppanum er tilfinningin svolítið eins og maður hafi stigið upp í vörubíl. Stærðin á bílnum venst þó ótrúlega fljótt og er hann raunar furðulipur miðað við umfang. 1.12.2010 09:00
Hillary hittir partídýrið, áhættufæluna og Robin Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta nokkra af helstu þjóðarleiðtogum heimsins í fyrsta sinn frá því wikileaks skjölin litu dagsljósið. 1.12.2010 08:17
Myrti ellefu gamalmenni á elliheimili Maður sem starfaði á elliheimili á Spáni hefur viðurkennt að hafa myrt ellefu vistmenn heimilisins. Maðurinn sem er 45 ára gamall sprautaði fólkið með of stórum insúlínskömmtum eða neyddi það til þess að drekka klór. 1.12.2010 08:11
Hjartveikur fluttur til Reykjavíkur frá Rifi Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hjartveikann mann til Rifs á Snæfellsnesi í gærkvöldi og liðu aðeins tvær klukkustundir frá því að útkall barst og þar til sjúklingurinn var kominn á sjúkrahús í Reykjavík. 1.12.2010 08:03
Interpol lýsir eftir Assange Julian Assange stofnandi Wikileaks er nú eftirlýstur af Interpol vegna ásakana um kynferðislega áreitni í Svíþjóð. Svokölluð „rauð tilkynning" hefur verið gefin út á hendur honum en þar er ekki um að ræða eiginlega handtökuskipun heldur er fólk beðið um að hafa samband við lögreglu í viðkomandi landi hafi það upplýsingar um dvalarstað Assange. 1.12.2010 08:00
Ríkið tekur hundraðkall af hverjum bensínlítra Hlutur ríkisins í bensínverði losar nú hundrað krónur á lítrann eftir bensínhækkunina í gær. Hlutur hins opinbera hefur líklega aldrei verið hærri. 1.12.2010 07:04
Enn skelfur jörð í Krýsuvík Jarðskjálftahrina varð aftur á Krýsuvíkursvæðinu í gærkvöldi og stóð fram á nótt, en engin skjálfti mæltist yfir tvo á Richter. 1.12.2010 07:01
Vangaveltur um túlkun eins ákvæðis Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, fékk ekki frumvarp til breytinga á lögum um landsdóm til umsagnar og átti engin samskipti við forseta dómsins vegar frumvarpsins. 1.12.2010 06:00
Fréttaskýring: Ráðuneytið taldi uppsögn við Árbót óhjákvæmilega Félagsmálaráðuneytið taldi óhjákvæmilegt að segja upp samningi við Árbót. 1.12.2010 06:00
Um 60 vistmenn í Breiðavík hafa sótt um sanngirnisbætur Búist er við að um níutíu vistmenn á Breiðavíkurheimilinu krefjist bóta á grundvelli laga um sanngirnisbætur. 1.12.2010 06:00
Ekkert ákveðið með framhald Óvíst er hvort Helga Sigríður Sigurðardóttir, tólf ára stúlka frá Akureyri, þarf á hjartaígræðslu að halda en í ljós hefur komið að hún þjáist af kransæðastíflu. 1.12.2010 06:00
Þurftu að fylla upp í fimm milljarða gat Borgaryfirvöld í Reykjavík gera ráð fyrir nær tveggja milljarða hækkun á þjónustugjöldum og sköttum í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár. Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar lagði áætlunina fram á borgarstjórnarfundi í gær. 1.12.2010 06:00
Enginn með byssu við höfuðið á Braga Björgvin Þorsteinsson, lögmaður eigenda Árbótar, sagði í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 á fimmtudaginn að Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefði undirritað starfslokasamninginn við Árbót þar sem samið var um 30 milljóna króna uppgjör við heimilið. 1.12.2010 06:00
Skortur á kjúklingi í verslunum enn á ný Salmonellusmit hjá kjúklingaframleiðendum á þessu ári hefur leitt til viðvarandi skorts á kjúklingi í verslunum, að mati framkvæmdastjóra Bónuss og Krónunnar. Upp kom smit í kjúklingum frá Matfugli og Reykjagarði í síðustu viku á ný og voru vörur innkallaðar úr verslunum í kjölfarið. 1.12.2010 05:30
Sendi 42 tonn af vatni til Haítí „Þarna er mikil neyð og við ákváðum því að gefa meira vatn,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átappað lindarvatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial á jörðinni Hlíðarendi við Þorlákshöfn. 1.12.2010 05:00
Færri kvörtuðu til landlæknis í fyrra Nokkuð færri kvartanir bárust landlæknisembættinu í fyrra en árin tvö þar á undan. 1.12.2010 04:00
Tillögur að umbótum kynntar Skýrsla og tillögur umbótanefndar Samfylkingarinnar verða kynntar og ræddar á flokksstjórnarfundi á laugardag. 1.12.2010 03:30
Húsgagnasmíði slær í gegn hjá nýnemum Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingartækniskólans, segir ásókn í húsgagnasmíði hafa sprungið út síðustu misseri. Alls sóttu 22 um að byrja í húsgagnasmíði á komandi vorönn. Undanfarið hafa nýnemar hverju sinni verið tíu talsins. 1.12.2010 02:00
Konur byggðar til að tala skýrt Bart de Boer, vísindamaður við Háskólann í Amsterdam, heldur því fram að talfæri kvenna séu sérlega vel hönnuð til þess að tala skýrt. Talfæri karla henti ekki jafnvel til þess að koma frá sér skýru máli. Talfæri apa séu þó sýnu óhentugust. 1.12.2010 01:00
Kínastjórn vill sameiningu Kóreuríkja Í leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar, sem birt hafa verið á vegum vefsíðunnar Wikileaks, er að finna upplýsingar um að kínversk stjórnvöld hafi þá stefnu að Norður-Kórea sameinist Suður-Kóreu með friðsamlegum hætti. 1.12.2010 00:30