Fleiri fréttir

Flugvél brotlenti

Flugvél sem í voru líffæri sem verið var að flytja til ígræðslu brotlenti á flugvellinum í Birmingham seinnipartinn í dag. Flugvélin var af gerðinni Cessna og á leið með líffæri á Queen Elizabeth sjúkrahúsið í Birmingham þegar slysið varð. Tveir voru um borð í flugvélinni og voru þeir fluttir með flýti á sjúkrahús. Mikil þoka var í grennd við flugvöllinn þegar vélin brotlenti.

Tekist á um tvær tillögur

Sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn Vinstri grænna leggja til á flokksráðsfundi sem hófst síðdegis, að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði slitið nú þegar. Í annarri ályktun sem fleiri atkvæðabærir flokksmenn flytja, er lýst yfir stuðningi við ríkisstjórnina og þar með að viðræðurnar haldi áfram.

Þrýstir á hækkun lægstu launa

Nærri 6000 heimili þiggja neyðaraðstoð hjá sveitarfélögum landsins. Einhleypir karlar er langstærsti hópurinn sem er á framfæri Reykjavíkurborgar. Meirihluti velferðarráðs samþykkti að hækka framfærsluna í vikunni eftir átakafund, formaður ráðsins telur að hækkunin skapi þrýsting á hækkun lægstu launa.

Systir Hannesar: Gunnar vissi nákvæmlega hvað hann var að gera

„Hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera og hann á að gjalda fyrir það," segir systir Hannesar Þórs Helgasonar um Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem í dag játaði fyrir dómara að hafa myrt Hannes á hrottafenginn hátt. Andrúmsloftið var vægast sagt rafmagnað við þingfestingu málsins í héraðsdómi.

Lárus hafi verið leppur Jóns Ásgeirs

Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, vildi ekki tjá sig við fjölmiðla þegar hann kom til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag. Slitastjórn Glitnis telur að Lárus hafi verið leppur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hafi tekið við beinum skipunum frá honum um hvernig ætti að reka bankann.

Merkingar á Miklubraut

Á morgun laugardaginn verður unnið við merkingar á svonefndri strætórein á Miklubraut til vesturs undir Skeiðarvogsbrúnni en framkvæmdirnar hafa staðið undanfarna daga. Hafist verður handa klukkan 11 og áætlað er að vinnan taki um 4 til 5 klukkustundir.

Steingrímur: Nýtur forystan stuðnings?

„Þetta snýst um það að koma Íslandi aftur á fæturnar. Við þurfum samstöðu til þess. Það verður erfitt að standa í þessu ef við erum eitthvað hölt því aðstæðurnar eru nú nógu krefjandi án þess. Við þurfum auðvitað að vita - forysta flokksins, þingflokkur og forystusveit - höfum við stuðning og umboð frá flokknum og þessari stofnun til að halda þessari baráttu áfram. Við skulum bara fá það á hreint,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann ávarpaði flokksráðs Vinstri grænna í dag.

Handrit.is hlýtur Hagnýtingarverðlaun HÍ

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhenti í dag Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands en verðlaunin voru nú afhent í tólfta sinn. Að þessu sinni bárust 13 hugmyndir af ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands.

Lögreglumenn fagna tillögu um rannsókn

Landssamband lögreglumanna fagnar framkominni þingsályktunartillögu sem miðar að því að rannsakaður verði meintur þáttur þingmanna í Búsáhaldabyltingunni.

Tveir handteknir eftir húsleitir á Siglufirði

Tveir menn voru handteknir eftir húsleitir á Siglufirði í gær. Leitað var í tveimur húsum í bæjarfélaginu þar sem hald var lagt á smáræði af kannabisefnum, hnúajárn, fimm kannabisplöntur auk tækja til ræktunar og kannabisfræ. Mennirnir voru látnir lausir að loknum skýrslutökum. Lögreglumenn frá Akureyri, Ólafsfirði og Siglufirði auk manna frá sérsveit Ríkislögreglustjóra komu að málinu sem telst upplýst.

Segja Láru Hönnu hafa birt sömu pistla á RÚV og á Smugunni

Umsjónarmenn Morgunútvarpsins og Síðdegisútvarpsins á Rás 2 hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna undirskriftasöfnunar og ásakanna á hendur umsjónarmanna vegna uppsagnar Láru Hönnu Einarsdóttur. Í yfirlýsingunni segir um uppsögnina:

Ræða Steingríms á flokksráðsfundi í beinni á Vísi

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður Í Hagaskóla í dag og á morgun. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur fundinn og að því loknu heldur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður flokksins ræðu á fundinum þar sem hann fer yfir stjórnmálaástandið í landinu.

Dæmdum lögregluþjóni verður ekki vikið úr starfi

Lögregluþjóninum Garðari Helga Magnússyni verður ekki vikið frá störfum eftir að hafa verið dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar í Hæstarétti Íslands fyrir að fara offari við skyldustörf.

Ráðherra fer að ráðum Hafró um loðnukvótann

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerðir um loðnuveiðar. Samkvæmt þeim er heimilt að veiða 200 þúsund tonn af loðnu í íslenskri fiskveiðilögsögu á tímabilinu frá 23. nóvember 2010 til og með 30. apríl 2011.

Þingkonur hvetja Marinó til að endurskoða afsögn

Þingkonurnar Eygló Harðardóttir, Lilja Mósesdóttir og Margrét Tryggvadóttir úr Framsóknarflokki, VG og Hreyfingunni, hvetja Marinó G. Njálsson stjórnarmann úr Hreyfingunni til þess að endurskoða þá ákvörðun sína að segja sig úr stjórn Hagsmunasamtaka Heimilanna. Marinó sagði sig úr stjórninni vegna fyrirhugaðrar umfjöllunar Fréttatímans um skuldamál hans. Í sameiginlegri yfirlýsingu þingkvennanna segir að Marinó hafi verið beittur málsvari félagsmanna í samtökunum sem og annarra skuldsettra heimila.

Forstjóri Magma hótaði tímariti vegna ummæla Bjarkar

Ross Beaty, forstjóri Magma Energy, hótaði kanadísku tímariti fyrir að birta ummæli Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu þar sem hún sagðist telja að fyrirtæki í eigu Beaty hefðu orð á sér fyrir að brjóta lög um mannréttindi og samninga verkalýðsfélaga í Suður-Afriku.

Hafnaði bótakröfu konunnar sem hann elskaði

Gunnar Rúnar Sigurþórsson hafnaði bótakröfu, sem unnusta Hannesar Þórs Helgasonar heitins lagði fram, en samþykkti athugasemdarlaust bótakröfur foreldra Hannesar. Kröfurnar voru jafn háar, eða tvær og hálf milljón króna hver.

Systur Hannesar andvígar lokuðu þinghaldi

Systur Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á heimili sínu í ágúst síðastliðinn eru andvígar því að þinghald yfir Gunnari Rúnari Sigþórssyni grunuðum morðingja Hannesar verði haldið fyrir luktum dyrum.

Gunnar Rúnar ákærður fyrir manndráp: „Ég játa“

Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði í dómssal að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Gunnari Rúnari var birt ákæran fyrir stundi í Héraðsdómi Reykjanesi. Spurður um afstöðu hans til ákæruatriða sagði hann: „Ég játa.“

Tryggingastofnun greiðir á ný fyrir túlkun heyrnarlausra

Tryggingastofnun Ríkisins hefur ákveðið að hefja aftur greiðslur fyrir túlkun heyrnarlausra einstaklinga sem eiga viðskipti við stofnunina. Félag heyrnarlausra fagnar þessum tímamótum en til stóð að félagið myndi kæra Tryggingastofnun fyrir brot á réttingum fatlaðra.

Kostnaður við landsdóm 113 milljónir

Reiknað er með að kostnaður við fyrirhugaðan landsdóm nemi rúmum 113 milljónum króna. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í morgun. Hæstiréttur og dómsmálaráðuneytið lögðu í sameiningu mat á útgjöldin vegna málsins. Nokkur óvissa er þó um heildarkostnaðinn og segir í minisblaðinu að langmesta óvissa liggi í lengd málsmeðferðarinnar. Því er miðað við fjögurra mánaða málsmeðferð, en ef hún reynist sex mánuðir svo dæmi sé tekið aukast útgjöldin um 43 milljónir. Að sama skapi gætu útgjöldin lækkað ef málsmeðferðin tekur skemmri tíma.

Herjólfur til Þorlákshafnar á morgun

Herjólfur siglir frá til og frá Þorlákshöfn á morgun. Fyrsta ferð á morgun verður í Þorlákshöfn klukkan 07:30 og til Vestmannaeyja klukkan 11:15. Í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila ferjunnar segir að tekin verði ákvörðun í fyrramálið um framhaldið, en spáð er batnandi veðri síðdegis á morgun og næstu daga.

Tekist á um Evrópusambandið hjá vinstri grænum

Búast má við að hart verði tekist á um Evrópusambandsmálin á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem hefst í dag. Formaður flokksins reiknar með hreinskiptum skoðanaskiptum, en segir engan vafa á því hver stefna flokksins sé í evrópumálum.

Dæmdur lögreglumaður enn við störf

Garðar Helgi Magnússon, lögreglumaður, sem fundinn var sekur um að hafa farið offfari við handtöku er enn við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort honum verður vikið úr starfi. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir það í höndum ríkislögreglustjóra hvort Garðar Helgi starfar áfram sem lögreglumaður.

Líkamsárásir og kynferðisbrot oftast framin að nóttu til

Stærstur hluti líkamsárása á sér stað á nóttunni ef marka má afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir októbermánuð. 54,5 prósent líkamsárása eru framdar frá miðnætti og fram til klukkan sex á morgnana. 41,8 prósent kynferðisbrota eru framin á sama tímabili en innbrot og þjófnaðir eru hinsvegar algengari frá hádegi til klukkan sex síðdegis.

Marinó G. Njálsson: „Já, mér finnst óeðlilegt að spyrja“

„Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það,“ svarar Marinó G. Njálsson hvort hann ætli að endurskoða afstöðu sína eftir að frétt Fréttatímans um skuldastöðu hans birtist í dag. Marinó tilkynnti á bloggi sínu í gær að hann hefði sagt sig úr stjórn Hagsmunasamtak Heimilanna. Á bloggi sínu skrifar Marinó:

Hægt að skila Jónínu í Office 1

Ævisaga Jónínu Benediktsdóttur sem hingað til hefur aðeins fengist hjá N1 fæst nú einnig í verslunum Office 1. Nokkra athygli hefur vakið að ekki er hægt að skipta bókinni hjá N1. Það er hins vegar hægt hjá Office 1.

Gunnar Rúnar fyrir rétt í dag

Mál Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana um miðjan ágúst, verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Bensínlítrinn dýrastur hjá Skeljungi

Orkan er með ódýrasta bensínið þennan daginn, samkvæmt athugun Vísis. Þar kostar lítrinn nú 196,70 krónur. Dýrast er bensínið hjá Skeljungi í dag þar sem lítrinn af 95 oktana bensíni kostar 199,90 krónur.

Loðna gæti gefið 17 milljarða

Talið er að útflutningsverðmæti þeirra 200 þúsund tonna af loðnu, sem Hafrannsóknastofnun leggur til að leyft verði að veiða í vetur, geti numið allt að 17 milljörðum króna. Það veltur á því hvort hægt verði að stýra veiðunum þannig að sem mest náist af hrognum og loðnu til frystingar til manneldis.

Yfir þrjátíu námumanna saknað á Nýja Sjálandi

Þrjátíu og þriggja manna er saknað eftir sprengingu í kolanámu á Nýja Sjálandi. Björgunarsveitir eru að þyrpast á vettvang, en ekki er vitað á þessari stundu hvað olli sprengingunni.

Nígeríumenn kvarta undan svindlara á Íslandi

Er þetta Nígeríubréf með öfugum forsendum? Íslandsstofa sem áður var Útflutningsráð Íslands, varar við viðskiptum við ónafngreindan Breta, sem á að vera staddur hér á landi í þeim tilgangi að stunda vafasöm skreiðarviðskipti. Hann er sagður ætla að svindla á kaupsýslumönnum í Nígeríu.

Össur og Störe ræða málefni tengd íslam

Íslensk og norsk stjórnvöld hafa verið í sambandi varðandi málefni sem tengjast fyrir­hugaðri mosku í Tromsö, en félags­skapur­inn sem keypti Ýmishúsið við Skógar­hlíð vann að því verkefni. Sami hópur vinnur einnig að fleiri svipuðum verkefnum annars staðar á Norðurlöndunum.

Getur hindrað garnaflækju

Hjálpartæki þeirra sem ánægju hafa af því að prjóna bar sigur úr býtum í Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, sem lauk í gær. Þátttakendur í keppninni áttu að auka notagildi pappakassa.

Segir yfirheyrslur slitastjórnar vera í lagi

Dómstjórinn í Reykjavík gerir engar athugasemdir við yfirheyrsluaðferðir slitastjórnar Glitnis. Þetta kemur fram í bréfi sem Helgi I. Jónsson dómstjóri hefur sent lögmanni Bjarna Jóhannessonar, fyrrverandi viðskiptastjóra Glitnis.

Rauðvínið reyndist vera amfetamínbasi

Þrjátíu og sjö ára karlmaður, Daniel Danielewicz, kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær hafa talið sig vera að færa samlanda sínum hér á landi rauðvín, skinku, bjúgu og lyf, þegar hann kom til landsins í ágúst síðastliðnum. Í „rauðvínsflöskunni“ reyndist vera rúmlega einn lítri af amfetamínvökva. Úr honum hefði mátt vinna rúmlega átta kíló af amfetamíni, sem hægt hefði verið að selja fyrir 25 milljónir króna, að því er fram kom hjá saksóknara í málinu, Júlíusi Kristni Magnússyni.

Pláneta utan vetrarbrautar

Stjörnufræðingar telja sig hafa fundið í í fyrsta sinn plánetu sem er upprunnin utan Vetrarbrautarinnar. Pláneta þessi er af svipaðri gerð og Júpíter, en nokkuð stærri.

Segja annað gilda um starfið á Íslandi

Sömu aðilar standa á bak við sjálfseignarstofnunina Islamic Endowment Center in Iceland, sem festi nýlega kaup á Ýmishúsinu við Skógarhlíð, og verkefni um að byggja mosku í Tromsö í Noregi.

Þarf 100 nýja bíla á næsta ári

Gert er ráð fyrir að stofnanir og fyrirtæki ríkisins þurfi að kaupa eða leigja allt að hundrað nýja bíla á næsta ári. Ríkiskaup hafa efnt til útboðs vegna þess. Verða viðskiptin gerð á rekstrarleigukjörum næsta árs. Í auglýsingu frá Ríkiskaupum segir að um kaup eða leigu á bifreiðum af ýmsum stærðum og gerðum sé að ræða. Veigamikill þáttur í mati á tilboðum verði koltvísýringslosun. - bþs

Gert án samþykkis borgaryfirvalda

„Það hefur ekki verið full sátt á milli aðila um hvernig skuli staðið að þessu,“ segir Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni. „Borgin vildi kanna betur hvort það væri hægt að finna aðrar aðgerðir til að draga úr raunhraða.“

Styttist í síðasta sendingardag

Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er mánudagurinn 6. desember og föstudagurinn 10. desember fyrir jólakort til landa utan Evrópu.

Sjá næstu 50 fréttir