Fleiri fréttir

Endurskoðun samþykkt - Fjármálaráðherra mjög ánægður

„Ég er mjög ánægur með að þetta sé í höfn og að þetta gekk snurðulaust fyrir sig,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) samþykkti nú síðdegis aðra endurskoðun íslands.

Forsætisráðherra fundaði með Joly

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti fund með Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara, í dag til að heyra hennar viðhorf um stöðu mála og nauðsynlegar aðgerðir við rannsókn efnahagsbrota í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Grunur um salmonellusmit i ferskum kjúkling

Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna samkvæmt tilkynningu frá þeim.

Um minniháttar hlaup að ræða

Nýtt hlaup hófst úr Eyjafjallajökli laust fyrir klukkan þrjú í dag. Hlaupið var minniháttar að sögn lögreglumanna á Hvolsvelli.

Flugfarþegar eiga að fá aukakostnað endurgreiddan

Flugfarþegar sem verða fyrir töfum og truflunum þegar flugferðum er aflýst eða seinkað vegna eldgoss eiga rétt á að fá greiddan aukakostnað sem af töfum hlýst, til dæmis vegna máltíða eða gistinga. Um réttindi flugfarþega er fjallað í reglugerð nr. 261/2004.

Andlit eldgossins

Þessi magnaða mynd sem tekin var með sérstakri myndavél um borð í vél Landhelgisgæslunnar TF-SIF í gær. Myndin sýnir þrjú megin gosop eldgossins á Eyjafjallajökli. Gosopin eru 200 til 500 metrar í þvermál.

Lögreglan leitar að Emilíönu

Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa eftir Emilíönu Andrésardóttur, sem strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum þann 15. apríl sl. Síðast sást til hennar í Hafnarfirði á leið til Reykjavíkur.

Ráðherra boðaði til fundar um fæðuöryggi

Jón Bjarnason Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði til fundar í ráðuneytinu í dag um möguleg áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á landbúnað og sjávarútveg og viðbrögð við því.

Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex

Flugvél frá Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex í dag, en flugheimild hefur fengist þangað. Flugið nýtist einkum þeim, sem áttu bókað til London Gatwick eða London Stansted, samkvæmt fréttatilkynningu frá Iceland Express.

Þjófarnir þóttust vera húsráðendur

Karl og kona á miðjum aldri voru handtekin í húsi í Árbæ í gærmorgun. Tilkynnt var um innbrot í íbúð í húsinu en þegar lögreglan kom á vettvang mætti hún fólkinu. Það reyndist hafa lyklavöld en fólkið sagði lögreglu að bæði hefði verið brotist inn í íbúðina og eins hvernig þjófurinn eða þjófarnir báru sig að.

Nýtt flóð að hefjast

Það er nýtt flóð á leiðinni úr Eyjafjallajökli, segir Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli. Flóðið er rétt að byrja og ekki ljóst á þessari stundu hversu stórt það er.

Rykið úr gosinu alveg ógeðslegt

„Þetta var alveg svakalegt hérna í gær. Það var bara myrkur eins og þegar maður er að fara að sofa á kvöldin, segir Bjarney Sigvaldadóttir, bóndi á Bakkakoti við Kirkjubæjarklaustur. Hún og Torfi Jónsson eiginmaður hennar voru með barnabörnin hjá sér þegar að gosið hófst í Eyjafjallajökli og

Norsk og finnsk lofthelgi lokuð fram á sunnudag

Gardermoen flugvöllurinn við Osló, sá stærsti í Noregi, verður lokaður fram á sunnudag vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Flugmálastjórn Finnlands hefur gefið út tilkynningu um að allir flugvellir þar í landi verði lokaðir fram til klukkan þrjú á sunnudag.

Rauði krossinn minnir á hjálparsímann

Rauði kross Íslands vill vekja athygli á að Hjálparsími Rauða krossins 1717 gegnir hlutverki upplýsingasíma fyrir almenning þegar náttúruhamfarir verða.

Viðbúnaður almannavarnakerfisins reynst traustur

Allur viðbúnaður almannavarnakerfisins hefur reynst afar traustur og samvinna verið góð og áreiðanleg á milli allra viðbragðsaðila, segir ríkisstjórn Íslands í sameiginlegri yfirlýsingu í dag.

Illugi víkur sæti á Alþingi tímabundið

Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að taka sér leyfi frá störfum á Alþingi í ljósi þess að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara. Illugi sat í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni á sínum tíma.

Veginum milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs lokað

Vegurinn á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs er lokaður, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Kirkjubæjarklaustri búast menn við miklu öskufalli á næstu mínútum. Verið er að útbýtta grímum niðri í sveitum.

Gosstrókar náðu 8 km hæð í morgun

Gosstrókar fóru upp fyrir 8 km hæð þrisvar í morgun en er að jafnaði í um 5 kílómetra hæð. Óróatoppar komu fram á svipuðum tíma á skjálftamælum. Þeir voru þó orkuminni en púlsar sem komu fram fyrir hlaupið í gær. Óróatopparnir sjálst á jarðskjálftamælum frá Kaldárseli í Hafnarfirði að Kálfafelli í Suðursveit.

Komu mjólk yfir gömlu brúna

Þrír stórir mjólkurbílar fóru yfir gömlu brúnna á Markarfljóti klukkan hálf tíu í morgun og eru byrjaðir að safna mjólk af bæjum fyrir austan fljótið. Hún verður svo selflutt á léttum bíl vestur yfir brúnna.

Öskulag sest á bíla í Danmörku

Öskulag hefur lagst á bíla á vesturhluta Jótlands í Danmörku, samkvæmt frétt Jyllands Posten. Á vefútgáfu blaðsins segir að burtséð frá þeirri röskun sem hafi orðið á flugi ætti það að vera ómögulegt að Danir upplifi öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli. Þetta hafi nú samt gerst.

Nærri 70% vilja biðja Íraka afsökunar

Um 70% eru fylgjandi því að íslensk stjórnvöld biðji Íraka opinberlega afsökunar á stuðningi við hernaðaraðgerðir, samkvæmt nýlegri skoðanakönnun MMR.

Flogið til Skotlands klukkan tvö

Icelandair efnir til aukaflugs til Glasgow í Skotlandi, og verður brottför frá Keflavíkurflugvelli kl. 14.00. Í tilkynningu frá félaginu segir að heimild hafi fengist til flugsins. Í ljósi þess hversu margir farþegar eru staðsettir hér á landi sem strandaglópar vegna eldgossins hefur verið ákveðið að bjóða upp á flug þangað.

Opnun tefst enn um sinn - gamla brúin opin með takmörkunum

Ljóst er að hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður á hádegi eins og stefnt var að. Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að vegna flóðanna í gærkvöldi og í nótt hafa skapast nýjar aðstæður. Gamla brúin yfir Markarfljót hefur þó verið opnuð, með takmörkunum þó.

Aftur boðað til mótmæla fyrir framan heimili Þorgerðar

Aftur hefur verið boðað til mótmæla fyrir framan heimili Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í kvöld. Nokkrir mótmæltu fyrir framan heimili hennar í gær. Benedikt Guðmundsson, sölustjóri hjá Steypustöðinni, fékk boð um að mæta á mótmælin með SMS-skilaboðum. Hann gagnrýnir þessa aðferðarfræði harðlega.

Aftökur á Gaza ströndinni

Aftökusveit Hamas samtakanna á Gaza ströndinni skaut í gær til bana tvo Palestínumenn sem höfðu verið sakaðir um samvinnu við Ísraela.

Árekstur í Ártúnsbrekku

Árekstur varð á milli strætó og fólksbíls í Ártúnsbrekku fyrir stundu. Dælubíll frá slökkviliðinu og sjúkrabíll hafa verið sendir á staðinn. Á þessari stundu er ekki vitað um tildrög áreksturins né heldur hvort alvarleg slys hafi orðið á fólki.

Náðu upp flaki af herskipi

Björgunarsveitir í Suður-Kóreu hafa náð upp á yfirborðið framhluta herskips sem sökk eftir dularfulla sprengingu í síðasta mánuði. Skipið brotnaði í tvennt við sprenginguna.

Niinistö: Vaxtakröfur Breta og Hollendinga allt of háar

Heimir Már Pétursson skrifar frá Finnlandi: Sauli Niinistö, forseti finnska þingsins segir að Bretar og Hollendirngar fari fram á allt of háa vexti af Íslendingum vegna Icesave. Það verði hinsvegar ekki gott fyrir Íslendinga að verða fyrsta þjóðin á vesturlöndum sem stendur ekki við skuldbindingar sínar.

Icelandair aflýsir flugi til Evrópuborga í dag

Icelandair hefur tilkynnt að flugi félagsins í dag til sex Evrópuborga hefur verið aflýst. Flugi FI318 til Osló, og flugi FI436 til Manchester/Glasgow hefur verið seinkað til kl. 16.00 í dag í þeirri von að heimildir til flugs til þessara staða verði veittar þegar líður á daginn.

Flugumferð enn í molum vegna gossins

Hundruð þúsunda farþega hafa orðið að fresta eða aflýsa ferðum sína víðsvegar um Norður Evrópu og í gær var fimm þúsund flugferðum aflýst í gær vegna gossins.

Tvö flóð í Markarfljóti í nótt

Flóð hljóp í Markarfljót upp úr klukkan tvö í nótt og aftur klukkustund síðar, en þau voru bæði minni en flóðið, sem varð um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Annað þeirra virðist þó hafa verið litlu minna en kvöldflóðið. Þegar þess flóðs varð vart, voru margir bæir rýmdir í skyndingu í Fljótshlíðinni og í Landeyjum, en þegar leið á kvöldið fékk fólk að snúa aftur heim, nema til þeirra bæja, sem voru mannlausir í fyrrinótt.

„All out of luck“ í Leifsstöð

Öskufall frá Eyjafjallajökli lokaði flugvöllum í Englandi og hafði inntökupróf í leiklistarskóla af Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm. Fimleikastúlkur á leið til Finnlands brugðu á leik þrátt fyrir óvissuna.

Lítið hægt að segja um gosið

„Um framtíð gossins er lítið hægt að segja,“ sagði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlis­fræði við HÍ, í gærdag. Fyrst og fremst byggi jarðvísindamenn á reynslu þegar þeir spái fyrir um gos og nánast engin reynsla sé af gosi í Eyjafjallajökli. Eina gosið sem talsvert er vitað um sé gosið 1821. „Og það er takmarkað sem hægt er að læra af einu gosi. Eldfjall er því marki brennt að það breytist í gosum og næsta gos verður í breyttu eldfjalli.“

Endurskoðun tekin fyrir ári of seint

Ekki kemur í ljós fyrr en að afloknum fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í dag hvort náðst hefur að tryggja fjármögnun á framgangi efnahagsáætlunar Íslands og AGS.

„Hlykkjaðist fram eins og ormur“

„Íbúar eru beðnir að rýma strax upp í hlíðar og á örugg svæði.“ Þannig hljóðaði tilkynning Almannavarna klukkan 18.54 í gær. Þá hafði frést af miklu hlaupi á leið niður Markarfljót og gripið var til skyndirýmingar.

Hélt að konan væri frá Suður-Ameríku

„Nú skilur maður loksins hvað orðið móðuharðindi þýðir,“ segir Haukur Snorrason, ferðabóndi í Hrífu­nesi í Skaftártungu. Haukur og kona hans, Hadda Björk Gísladóttir, sem hafa síðan í fyrra rekið ferðaþjónustu á bænum í hjáverkum, voru komin að Hrífunesi á miðvikudag og ætluðu að verja einum degi í viðhald á húsinu og snúa svo heim. Ferðin varð hins vegar lengri en til stóð.

Eins og á allt annarri plánetu

„Það var eins og maður væri kominn á aðra plánetu,“ segir Reynir Ragnarsson í Vík, sem var á ferð um Mýrdal í gærmorgun með jarðvísindamönnum að taka sýni úr gosöskunni.

Vel heppnuð aðgerð

„Þessi aðgerð, að rjúfa hringveginn til að bjarga Markarfljótsbrúnni, heppnaðist fullkomlega. Hér hefur verið unnið mikið og gott verk,“ sagði Kristján Möller samgönguráðherra þegar hann virti fyrir sér aðstæður á veginum við Markarfljótsbrúna um hádegisbil í gær.

Askan ógnar ekki dýrum

Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við, segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir.

Sjá næstu 50 fréttir