Innlent

Illugi víkur sæti á Alþingi tímabundið

Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að taka sér leyfi frá störfum á Alþingi í ljósi þess að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara. Illugi sat í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni á sínum tíma.

Illugi segist hafa fengið hóp sérfræðinga til þess að fara yfir málið og að niðurstaða þeirra sé að stjórnin hafi ekki gerst brotleg við lög. „Ég treysti því að embætti sérstaks saksóknara ljúki sem fyrst skoðun sinni og að þessari óvissu linni. Ég er ekki í vafa um að niðurstaða þeirrar skoðunar verði jákvæð og gangi það eftir mun ég í kjölfarið taka aftur sæti á Alþingi," segir Illugi meðal annars en yfirlýsing hans fer hér á eftir í heild sinni:

„Ég hef ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum og mun ég senda forseta Alþingis bréf þess efnis fyrir upphaf þingfundar á mánudaginn kemur.

Sú er ástæða ákvörðunar minnar, að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara.

Ég hef fengið hóp sérfræðinga til þess að lesa yfir þann kafla skýrslunnar sem snýr að störfum þeirrar stjórnar sem ég átti sæti í. Niðurstaða þeirrar skoðunar er sú að í skýrslunni sé ekki að finna dæmi um brot sem eru á ábyrgð stjórnarinnar, en benda megi á atriði sem betur hefðu mátt fara við rekstur sjóðanna, eins og áður hefur komið fram í opinberri umræðu.

Mat mitt er að sú óvissa sem myndaðist við þá ákvörðun nefndarinnar að vísa með almennum hætti málum peningamarkaðssjóðanna allra til sérstaks saksóknara, sé til þess fallin að draga úr tiltrú almennings á störfum mínum á Alþingi. Jafnframt kann þessi óvissa að skaða Sjálfstæðisflokkinn í þeirri miklu vinnu sem framundan er við endurreisn íslensks efnahagslífs og samfélags. Við það get ég ekki unað.

Ég treysti því að embætti sérstaks saksóknara ljúki sem fyrst skoðun sinni og að þessari óvissu linni. Ég er ekki í vafa um að niðurstaða þeirrar skoðunar verði jákvæð og gangi það eftir mun ég í kjölfarið taka aftur sæti á Alþingi."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×