Fleiri
Launagreiðslur jukust margfalt miðað við starfsmannafjölda 4.2.2009 16:53 Vikið verði frá stóriðjustefnu fyrri stjórna Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust. Að þeirra mati hefur sú stefna nú þegar valdið íslenskri náttúru miklum skaða sem og efnahag þjóðarinnar. 4.2.2009 16:39 Stjórn LÍN vikið frá störfum Katrín Jakobsdóttir, nýr menntamálaráðherra, lét það verða á meðal sinna fyrstu verka að víkja stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá störfum. Í frétt Ríkisútvarpsins um málið er haft eftir Katrínu að hún hyggist skipa í nýja stjórn í vikunni. Nýrri stjórn verður falið að fara yfir úthlutunarreglur sjóðsins og leggja til skammtímaaðgerðir. 4.2.2009 16:36 Fæðing á plani: Kom í heiminn á þremur mínútum „Þetta er eins og maður sér í bíómynd," lýsir endurskoðandinn Davíð Arnar Einarsson, sem eignaðist litla dóttur á plani bensínstöðvar Orkunnar snemma í morgun. Svo virðist sem bensínstöðin sé barnvæn í meira lagi því dóttir Davíðs er annað stúlkubarnið sem fæðist á plani stöðvarinnar á hálfu ári. 4.2.2009 15:47 Tjón vegna Suðurlandsskjálfta á fimmta milljarð Viðlagatrygging Íslands hefur greitt 4,7 milljarð króna vegna Suðurlandsskjálfta í maí í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarupphæðin gæti orðið 6,2 milljarðar króna. Að auki hafa tjónþolar borið sjálfsábyrgð vegna tjóna. Þetta kemur fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarsson, þingmanns Frjálslynda flokksins, um tjón af skjálftanum. 4.2.2009 15:00 Fjárframlög til stjórnmálaflokka lækki um 10 prósent Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem felur í sér að fjárframlög til stjórnmálaflokka lækki á yfirstandandi ári um 10% og taki þannig sambærilegum breytingum og framlög til Alþingis. 4.2.2009 14:50 Sjá næstu 50 fréttir
Fangar á Litla-Hrauni hótuðu hungurverkfalli Nokkrir fangar í fangelsinu á Litla-Hrauni hafa lýst yfir óánægju með þann mat sem þeim er boðið upp á í vistinni. Svo illa líkar sumum þeirra fæðið að rætt var um að fara í hungurverkfall samkvæmt heimildum fréttastofu. Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins segist kannast við málið en að hún viti ekki annað en að það hafi verið leyst. 5.2.2009 15:02
Tekist á um veru Guðlaugs á fundum borgarráðs Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vilja breyta samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar á þá vegu að kjörgengir varamenn í borgarráði séu þeir sem skipa sæti á framboðslista við seinustu borgarstjórnarkosningar. Í dag geta einungis borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar setið fundi borgarráðs. 5.2.2009 14:59
Geðfötluðum börnum úthýst á Suðurnesjum „Landsvæði sem var til fyrirmyndar með þessa þjónustu hefur verið sprengt aftur á steinöld," segir Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræðingur hjá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, en sú ákvörðun var tekinn á dögunum að skera niður þjónustu við börn með geðraskanir. Gylfi segir að þjónustan hafi náð til nær allra nágrannabyggða á suðurnesjum og þjónustaði börn með margvísislega geðraskanir svo sem þunglyndi, ofvirkni, áráttuhegðun og svo framvegis. 5.2.2009 14:45
Neyðarkall úr Breiðholti reyndist vera gabb Neyðarsendir sá sem Landhelgisgæslan hefur leitað að síðan í morgun fannst fyrir stundu. Þyrla Lanhelgisgæslunnar hefur verið á sveimi yfir borginni í dag og leitað að sendinum sem fannst í Breiðholti og var greinilegt að honum hafði verið komið fyrir og hann gangsettur. 5.2.2009 14:45
Frábært skíðafæri á Siglufirði Opið verður í dag á skíðasvæðinu á Siglufirði frá klukkan fjögur til átta í kvöld. Að sögn umsjónarmanns svæðisins er veðrið mjög gott, sunnan gola, hálfskýjað og níu gráðu frost.Færið er mjög gott nýr troðinn snjór og er veðurspáin næstu daga mjög hagstæð fyrir svæðið. 5.2.2009 14:41
Hagsmunatengsl borgarfulltrúa verði gerð opinber Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar lagði í borgarráði í dag fram tillögur að reglum um skráningu á hagsmunatengslum. Þær ná til tekna, gjafa, utanlandsferða, fjárhagslegs stuðnings, þar með talið framlög til framboðsmála, eignatengsl og samkomulag við fyrrverandi eða verðandi vinnuveitendur. Tillögur Samfylkingarinnar byggja á fyrirmynd frá danska þjóðþinginu. 5.2.2009 13:16
Samfylkingin boðar til framtíðarþings Samfylkingin býður til opinnar hugmyndasmiðju þar sem horft verður til framtíðar. Framtíðarþingið markar upphafið á lokahnykk stefnumótunar sem mun ná hámarki á landsfundi Samfylkingarinnar í næsta mánuði. 5.2.2009 12:49
Fyrrum varaþingmaður vill verða þingmaður Myndlistarmaðurinn og fyrrum varaþingmaðurinn Hlynur Hallsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns-framboðs í Norðaustur-kjördæmi sem fram fer fyrir Alþingiskosningarnar í vor og sækist hann eftir því að skipa 1.-3. sæti listans. 5.2.2009 12:23
Baldur lætur af störfum í fjármálaráðuneytinu Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, lætur af störfum á næstunni. Óljóst er hvernig staðið verður að starfslokum hans. Samkvæmt heimildum fréttastofu er verið verið að ganga frá þeim málum. Þær upplýsingar fengust hjá ritara Baldurs að hann væri enn við störf í ráðuneytinu en ekki náðist í Baldur. Ekki hefur heldur náðst í Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í dag. 5.2.2009 11:39
Starfsemi Varnarmálastofnunar til skoðunar Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að starfsemi Varnarmálastofnunar sé til skoðunar í ráðuneytinu. Ekki sé þó tímabært að að gefa yfirlýsingar um stefnubreytingu varðandi stofnunina. 5.2.2009 11:24
Sjómaður vill annað sæti VG í Norðausturkjördæmi Sjómaðurinn Björn Valur Gíslason hefurákveðið að taka þátt í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi og stefnir á að skipa 2.-3. sæti lista flokksins fyrir Alþingiskosningarirnar 25. apríl nk. Jafnframt lýsir hann stuðningi við formann flokksins, Steingrím J. Sigfússon, í fyrsta sæti framboðslistans. 5.2.2009 11:02
Tekur ákvörðun um framtíð St. Jósefsspítala á næstunni Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hyggst á allra næstu dögum taka ákvörðun um framtíð St. Jósefsspítala en Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, ákvað í janúar að leggja spítalann niður í núverandi mynd. 5.2.2009 10:58
„Ný“frjálshyggjan snýst til varnar „Menn hafa tala fjálglega um að það vanti reglur án þess að hafa bent á það konkret hvaða reglur vanti," segir varaþingmaðurinn og héraðsdómslögmaðurinn, Sigríður Andersen, en vefrit frjálshyggjumanna, Andriki.is, birti heilsíðu auglýsingu í dag í Fréttablaðinu til varnar frjálshyggjunni. Þar eru birtar flestar reglur sem finna má um fjármálalíf Íslendinga undir fyrir sögninni „Hér voru engar reglur". 5.2.2009 10:14
Bjarni vinsælastur meðal sjálfstæðismanna Meira en helmingur sjálfstæðismanna vilja að Bjarni Benediktsson verði næsti formaður flokksins. 22% þeirra vilja að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir veiti flokknum forystu. Þetta kemur fram í könnun Frjálsrar verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 2. til 4. febrúar. Enn sem komið er hefur Bjarni einn lýst formlega yfir framboði til formanns. 5.2.2009 10:08
Mælir fyrir sínu fyrsta máli Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, mælir á eftir fyrir sínu fyrsta frumvarpi á Alþingi sem ráðherra en það snýr að breytingum á lögum um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun. Strax á eftir verður fjallað um annað frumvarp um gjaldþrotaskipti þegar Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talar fyrir frumvarpi sínu. Í kjölfar hefst umræða á frumvarpi Sivjar Friðleifsdóttur, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, um greiðsluaðlögun. 5.2.2009 09:34
Bin Laden sótti um starf umsjónarmanns eyjaparadísar Yfir 11.000 manns sóttu um stöðu umsjónarmanns ástralskrar paradísareyjar, þar á meðal Osama bin Laden. 5.2.2009 07:53
Dr. Dauði lést í Kaíró 1992 Þýski stríðsglæpamaðurinn Aribert Heim lést í egypsku borginni Kaíró árið 1992, samkvæmt nýrri rannsókn. 5.2.2009 07:26
Segir lokun Guantanamo auka líkur á árás Sú ákvörðun Baracks Obama Bandaríkjaforseta að loka fangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu gæti aukið líkurnar á hryðjuverkaárás á Bandaríkin til muna. 5.2.2009 07:24
Brown hvetur til sátta í vinnudeilu Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hvatti starfsmenn Lindsey-olíuhreinsunarstöðvarinnar í Lindsey í Lincolnskíri til að ná sáttum í vinnudeilu sinni og láta af verkfalli sínu sem staðið hefur frá því í síðustu viku. Þetta gerðist í fyrirspurnartíma í breska þinginu í gær. 5.2.2009 07:23
Unglingar grunaðir um fjölda rána Tveir drengir, 15 og 17 ára, hafa verið handteknir í Kaupmannahöfn, grunaðir um að hafa staðið á bak við nokkur rán á götum úti auk rána á heimilum. Þá er talið að þeir tengist einnig fjölda líkamsárása. 5.2.2009 07:21
Bréf á Asíumörkuðum hækka Hlutabréf í Asíu hækkuðu í verði í morgun og hækkuðu bréf náma- og flutningafyrirtækja mest, til dæmis nam hækkunin hjá Billington-námafyrirtækinu tæpum sjö prósentum. 5.2.2009 07:20
Unglingur játar að hafa myrt ferðamann Fimmtán ára unglingur hefur játað að hafa myrt breskan bakpokaferðalang á þrítugsaldri í nýsjálenska bænum Taupo í janúar í fyrra. 5.2.2009 07:18
Vill minnka kjarnavopnabirgðir um 80 prósent Áttatíu prósenta niðurskurður kjarnavopnabirgða Bandaríkjanna og Rússlands er stefna Baracks Obama Bandaríkjaforseta og mun hann ganga til viðræðna við rússnesk stjórnvöld um þetta innan skamms. 5.2.2009 07:16
Úrskurðaður í síbrotagæslu Tæplega þrítugur karlmaður var í gær úrskurðaður í síbrotagæslu til fjórða mars, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölda afbrota á skömmum tíma. 5.2.2009 07:15
Íhuga að draga úr sjósókn Stóru útgerðarfélögin í landinu íhuga nú að draga úr sjósókn vegna mikillar birgðasöfnunar á sjávarafurðum, lækkandi verðs á heimsmarkaði og hríðlækkandi verðs á innlendum fiskmörkuðum. 5.2.2009 07:12
Slökkti eld í mannlausum bíl Snarráður borgari sá undir morgun hvar eldur hafði kviknað í mannlausum bíl í Breiðholti í Reykjavík, hringdi í slökkviliðið og náði svo að slökkva eldinn sjálfur, áður en það kom á vettvang skömmu síðar. Vegna þessa skemmdist bíllinn lítið. Eldsupptök eru ókunn. 5.2.2009 07:09
Lögregla elti ölvaðan ökumann Ölvaður ökumaður á þrítugsaldri sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, eftir að hann hafði mælst á 110 kílómetra hraða á Sæbraut í Reykjavík rétt upp úr miðnætti, heldur ók greitt vestur á bóginn. 5.2.2009 07:05
Leita að neyðarsendi í Reykjavík Stjórnstöð og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa frá í morgun reynt að staðsetja neyðarsendi sem hóf að senda merki upp úr klukkan ellefu í morgun en flugvélar í yfirflugi tilkynntu merkin til Flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík. 5.2.2009 13:02
Júlíus Vífill íhugar þingframboð Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi íhugar framboð til Alþingis. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Júlíus ætla að bjóða sig fram í Reykjavík, en Júlíus var kjörinn borgarfulltrúi árið 2006. Hann var jafnframt borgarfulltrúi á árunum 1998-2002. Júlíus er menntaður lögfræðingur og óperusöngvari. 4.2.2009 23:42
Grunnur að endurreisn liggur í samstarfi við AGS Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi, að mikilvægt væri að samhent ríkisstjórn starfi á þeim erfiðu tímum sem nú séu uppi. Hún óskaði því nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum sínum. Hún vonaði að ríkisstjórnin myndi halda vel á spöðunum þjóðinni til heilla. 4.2.2009 20:36
Vonar að upplausnin í samfélaginu sé á enda „Það er von mín að sú upplausn sem verið hefur í samfélaginu sé nú að baki og við séum nú á sáttarleið," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni. 4.2.2009 20:07
Þjófur úrskurðaður í síbrotagæslu Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 4. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 4.2.2009 18:25
Engin ríkisstjórn tekið við jafn slæmu búi Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra átti í dag samtal við þann yfirmann Aljóðagjaldeyrrissjóðsins sem fer með málefni Íslendinga. 4.2.2009 21:38
Þarf að auka atvinnu með öllum tiltækum ráðum Frjálslyndi flokkurinn vill að ráðning hæstaréttardómara verði samþykkt á Alþingi með auknum meirihluta, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins við umræður um 4.2.2009 21:24
Það verður að skapa störf Það var öllum orðið ljóst að fyrri ríkisstjórn var orðin óstarfhæf, sagði Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld. 4.2.2009 20:52
Össur vill selja útlendingum virkjanir Iðnaðarráðherra freistar þess nú að fá erlend fyrirtæki og sjóði til að fjárfesta í íslenskum virkjunum. Hann hefur meðal annars rætt við Alcan um að koma að Búðarhálsvirkjun en framkvæmdir þar gætu orðið þær umfangsmestu í landinu ef þær kæmust í gang á árinu. 4.2.2009 19:26
Nýjar brýr yfir Hvítá og Þjórsá boðnar út Tvær nýjar brýr yfir stórfljót Suðurlands, Hvítá og Þjórsá, umbylta samgöngum um helsta landbúnaðarhérað landsins og um þéttbýlustu sumarhúsasvæðin. Báðar brýrnar eiga að vera tilbúnar á næsta ári. 4.2.2009 19:20
Lítil stemning fyrir því að Davíð fari aftur í pólitík Mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur því að Davíð Oddsson seðlabankastjóri snúi sér aftur að stjórnmálum. Fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins er því hins vegar fylgjandi. 4.2.2009 18:34
Hætta að senda börnum reikninga „Þessari framkvæmd verður breytt þannig að það verður farið í handvirka leit að forráðamönnum barna yngri en átján ára og þeim sendir reikningarnir," segir Magnús Skúlason, framkvæmdarstjóri Heilbrigðistofnunnar Suðurlands. 4.2.2009 16:53
Vikið verði frá stóriðjustefnu fyrri stjórna Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust. Að þeirra mati hefur sú stefna nú þegar valdið íslenskri náttúru miklum skaða sem og efnahag þjóðarinnar. 4.2.2009 16:39
Stjórn LÍN vikið frá störfum Katrín Jakobsdóttir, nýr menntamálaráðherra, lét það verða á meðal sinna fyrstu verka að víkja stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá störfum. Í frétt Ríkisútvarpsins um málið er haft eftir Katrínu að hún hyggist skipa í nýja stjórn í vikunni. Nýrri stjórn verður falið að fara yfir úthlutunarreglur sjóðsins og leggja til skammtímaaðgerðir. 4.2.2009 16:36
Fæðing á plani: Kom í heiminn á þremur mínútum „Þetta er eins og maður sér í bíómynd," lýsir endurskoðandinn Davíð Arnar Einarsson, sem eignaðist litla dóttur á plani bensínstöðvar Orkunnar snemma í morgun. Svo virðist sem bensínstöðin sé barnvæn í meira lagi því dóttir Davíðs er annað stúlkubarnið sem fæðist á plani stöðvarinnar á hálfu ári. 4.2.2009 15:47
Tjón vegna Suðurlandsskjálfta á fimmta milljarð Viðlagatrygging Íslands hefur greitt 4,7 milljarð króna vegna Suðurlandsskjálfta í maí í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarupphæðin gæti orðið 6,2 milljarðar króna. Að auki hafa tjónþolar borið sjálfsábyrgð vegna tjóna. Þetta kemur fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarsson, þingmanns Frjálslynda flokksins, um tjón af skjálftanum. 4.2.2009 15:00
Fjárframlög til stjórnmálaflokka lækki um 10 prósent Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem felur í sér að fjárframlög til stjórnmálaflokka lækki á yfirstandandi ári um 10% og taki þannig sambærilegum breytingum og framlög til Alþingis. 4.2.2009 14:50