Fleiri fréttir

Grafalvarlegt að tilkynna ekki um aukaverkanir til Lyfjastofnunar

Lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun segir það grafalvarlegt að læknar tilkynni ekki aukaverkanir vegna getnaðarvarnarpillunnar Yasmín, til stofnunarinnar. Tvær ungar íslenskar stúlkur hafa nýlega fengið blóðtappa vegna pillunnar með skömmu millibili og hvorugt tilfellanna var tilkynnt Lyfjastofnun.

70% af Öryrkjablokkinni með hitastillingu

Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist vegna brunasára sem þeir hlutu hér á landi af of heitu vatni. Sextugur öryrki er í lífshættu eftir brennheita sturtu í blokk Öryrkjabandalagsins við Hátún. Búið er að setja hitastýrð blöndunartæki í sjötíu prósent af íbúðum blokkarinnar.

Ætla ekki að skrifa undir loftslagssamninga

Bandaríkjamenn ætla ekki að skrifa undir neina loftslagssamninga á leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims sem hófst í Þýskalandi í dag. Deilan um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu hangir einnig yfir fundinum eins og dökkt þrumuský.

Ríkislögreglustjóri braut ekki gegn jafnræðisreglu í Baugsmálinu

Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, braut ekki gegn jafnræðisreglu við meðferð ákæruvalds í sakamáli á hendur Jóhannesi Jónssyni, kaupmanni. Þetta er niðurstaða athugunar Boga Nilsson, ríkissaksóknara, á málinu. Jóhannes hélt því fram að hann hafi ekki setið við sama borð og Jón Gerald Sullenberg í þeim hluta Baugsmálsins er snerist um tollalagabrot.

Þorsteinn Ingi Sigfússon verður forstjóri Nýsköpunarmistöðvar Íslands

Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor, hefur verið ráðinn forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Þorsteinn mun hefja störf strax í næstu viku en stofnunin tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi þegar Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins sameinast.

Skammt í að leikur Íslendinga og Svía hefjist

Skammt er þangað til leikur Íslendinga og Svía í riðlakeppni Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu hefst í Stokkhólmi. Góð stemning er meðal stuðningsmanna íslenska landsliðsins þrátt fyrir að sparksérfræðingar telji möguleika Íslands frekar litla.

„Markmiðið er að viðhalda atvinnu á þessari fallegu eyri“

Kristján Erlingsson, forsvarsmaður Oddatáar sem keypt hefur allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri segir að aðalmarkmiðið með kaupunum sé að tryggja atvinnu á Flateyri. Hann segir mikla óvissu enn vera ríkjandi í málinu en er bjartsýnn á dæmið gangi upp. Kristján segir það ráðast á næstu vikum hvort allir fyrrum starfsmenn Kambs fái vinni í nýja fyrirtækinu.

Merkur forleifafundur í Marokkó

Gataðar skeljar sem fundust í helli í Marokkó á dögunum gætu verið elstu skartgripir sem vitað er um. Telja viðkomandi vísindamenn þær vera smíðaðar fyrir um það bil 82 þúsund árum.

Eldsneytisverð hækkar

Skeljungur og N1 hækkaðu verð á eldsneyti í dag. Hjá báðum aðilum námu hækkanirnar um 1,70 krónum fyrir bensínlítrann og 1,50 krónur fyrir lítra af díselolíu.

Menningarhátíð Seltjarnarness kynnt

Menningarhátíð Seltjarnarness stendur yfir dagana 8 - 10 júní. Hún ber yfirskriftina Seltjarnarnesið, sjórinn og útgerð. Dagskráin verður fjölbreytt og má þar nefna ljósmyndasýningu í bókasafni Seltjarnarness sem ber heitið Systir með sjóhatt.

Óttast að Sýrlendingar stefni á stríð

Forsætisráðherra Ísraels reyndi í dag að róa þjóðina vegna þráláts orðróms um að Sýrlendingar séu að búa sig undir stríð til þess að endurheimta Golan hæðirnar. Ehud Olmert sagði að Ísrael vildi frið við Sýrland og að forðast yrði allan misskilning sem gæti leitt til átaka. Ísraelskir fjölmiðlar hafa skýrt frá því að Sýrlendingar séu að fjölga eldflaugaskotpöllum og hermönnum við landamæri ríkjanna.

Bað þingmenn um setjast og hafa þögn við upphaf fundar

Sturla Böðvarsson, nýkjörinn forseti Alþingis, beindi þeim tilmælum til þingmanna að mæta á réttum tíma og sitja hljóðir í sætum sínum í þingsal. Þessi orð lét hann falla við upphaf þingfundar í dag.

Tveir ungir piltar syntu í land eftir að hafa kastast af sæþotu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði tvo 16 ára pilta sem köstuðust af sæþotu um hálf tólfleytið í gærkvöld. Þeir voru staddir á Arnarnesvogi um 50 metra frá landi. Nokkur straumur var á þessu svæði sem bar sæþotuna fljótt frá piltunum.

Rausnargjöf til Krabbameinsfélagsins

Krabbameinsfélagi Íslands barst ómetanleg gjöf 19. maí síðastliðinn þegar fjölskylda Jóhönnu Jóreiðar Þorgeirsdóttur færði félaginu stórgjöf til minningar um hana. Jóhanna lést 21. apríl 2006. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.

Rannsókna- og fræðasetur í Bolungarvík

Samningur hefur verið undirritaður um nýtt Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum sem mun taka til starfa í Bolungarvík innan tíðar. Það eru Háskóli Íslands, Náttúrustofa Vestfjarða og Bolungarvíkurkaupstaður sem standa að setrinu.

Útvarpskona myrt í Afganistan

Ung kona, Zakia Zaki, sem rak útvarpsstöðvar í Afganistan, var skotin til bana fyrir skömmu. Konan var sofandi í rúmi sínu við hliðina á 20 mánaða gömlum syni sínum á heimili þeirra nærri Kabul. Hún var skotin sjö sinnum, þar á meðal í höfuð og brjóst. Börn hennar sakaði ekki. Vitað er að ódæðismennirnir voru þrír en ekki er vitað hverjir þeir voru. Ástæður verknaðarins eru ókunnir.

Flugfélög taka gjald fyrir golfsett

Flugfélögin SAS og Icelandair eru farin að taka sérstakt gjald fyrir golfsett í ferðum kylfinga á milli landa. Þetta kemur fram á vefnum kylfingur.is. SAS tekur 1.500 kr. fyrir settið i styttri ferðum innan Evrópu en 3.500 kr. í lengri ferðum. Hjá Icelandair er hægt að skrá sig í klúbbinn Icelandair golfers.

Sýknuð af morðinu á bankastjóra Guðs

Dómstóll í Róm sýknaði í dag fjóra karlmenn og eina konu sem voru sökuð um að hafa myrt ítalska bankamanninn Roberto Calvi fyrir 25 árum. Calvi sem var kallaður bankastjóri Guðs vegna tengsla sinna við páfagarð, fannst hengdur undir Blackfriars brúnni í hjarta Lundúna árið 1982. Vasar hans voru úttroðnir af múrsteinum og peningaseðlum.

Vill fara yfir lög um fjármál stjórnmálaflokka

Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að fara þyrfti yfir lög um fjármála stjórnmálaflokka sem sett voru í fyrra í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Það var Guðni Ágústsson sem kvaddi sér hljóðs um störf þingsins við upphaf þingfundar og gerði kosningablað DV og auglýsingu Jóhannesar Jónssonar í Bónus að umtalsefni.

Oddatá kaupir eignir Kambs og hyggst starfa á Flatey

Oddatá, sem er að mestum hluta í eigu og undir stjórn Kristjáns Erlingssonar, hefur keypt allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri með það fyrir augum að halda áfram vinnslu í byggðarlaginu. Eins og kunugt er ákváð eigandi Kambs fyrir skemmstu að selja eignir sínar og misstu 120 manns vinnu við það.

Mótmæli á G8 ráðstefnunni

Mótmælendum og lögreglu lenti saman í Þýskalandi í dag, þegar mótmælendurnir reyndu að loka götum í átt að G8 ráðstefnunni. Að minnsta kosti átta lögreglumenn slösuðust eftir grjótárásir. Lögreglan réðst á mótmælendur með vatnsafli til þess að róa þá. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters.

Nashyrningar í útrýmingarhættu

Mikil fækkun hefur orðið á nashyrningum í Afríku. Helsta ástæðan er sú að viðskipti á hornum þeirra hefur færst mikið í vöxt á undanförnum árum. Nú nálgast stofninn útrýmingarhættu.

Taktu rútu druslan þín

Hinn 26 ára gamli Tom Sogheim fékk kaldar kveðjur þegar hann flaug með SAS flugfélaginu frá Osló til heimabæjarins Bodö síðastliðinn sunnudag. Tom var í götóttum gallabuxum, skeggjaður og með rasta-hárgreiðslu. Flugþjónn í SAS vélinni lét hann heyra að þetta

Forstjóri Orkuveitunnar fagnar rammaáætlun

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar segir að ef orkusölu til álvers í Helguvík verður, séu tekjurnar af þeim samning um fjörutíu milljarðar á samningstímanum. Hann segir líklegt að þessar tekjur muni gera Orkuveitunni kleift að lækka raforkureikning höfuðborgarbúa. Hann fagnar fyrirhugaðri rammaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Breyttur landsliðshópur

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í kvöld. Nokkrar breytingar eru á liðinu frá því í leiknum gegn Lichtenstein á laugardaginn.

Ísafjarðarbær kærður vegna ráðningar

Pétur Björnsson hefur kært Ísafjarðarbæ til félagsmálaráðuneytisins. Pétur sótti um stöðu forstöðumanns skóla- og fjölskylduskrifstofu. Hann þótti ekki uppfylla skilyrði sem sett voru í auglýsingu um starfið. Pétur telur að á sér hafi verið brotið við ráðninguna.

Komu hjálpargögnum í búðirnar

Hjálparsamtökum tókst í gær að koma hjálpargögnum inn Nahr el-Bared flóttamannabúðirnar í Líbanon. Það er í fyrsta sinn frá því að sókn líbanska hersins gegn herskáum múslimum, sem halda þar til, hófst í síðasta mánuði. Um hundrað manns hafa fallið í átökunum aðallega almennir borgarar.

Gætu orðið mistök að hafa keypt gamalt skip

Kristján Möller samgönguráðherra segir að skoðun á Grímseyjarferjumálinu gæti leitt í ljós að mistök hafi verið að kaupa gamalt skip. Hann skoðaði ástand skipsins nú í morgun í Hafnarfjarðarhöfn.

Búist við deilum á G8 fundi

Búast má við að deilur Rússa og Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu setji svip sinn á fund leiðtoga átta helstu iðnríkja heims sem hefst í Þýskalandi í dag. Gríðarleg öryggisgæsla er viðhöfð vegna heimsóknar helstu þjóðarleiðtoga.

Aðgerðir ríkisstjórnar í velferðarmálum verði vel tímasettar

Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir brýnt að ný aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í þágu barna og ungmenna sé vel tímasett. Hann segir skynsamlegt að hægja á, því mikil innspýting fjármuna sé ekki heppileg miðað við efnahagsástandið í landinu.

Nýliðar í Norðurlandaráði

Sex af þeim sjö fulltrúum sem Íslendingar tilnefna í sendinefnd Íslands í Norðurlandaráði hafa ekki setið í nefndinni áður og tæpur helmingur þeirra eru nýjir þingmenn. Kjartan Ólafsson, varaformaður sendinefndarinnar, er eini þingmaðurinn sem sæti átti í nefndinni fyrir kosningar. Árni Páll Árnason, Samfylkingu, verður nýr formaður sendinefndarinnar.

Heitavatnsbruni leitt til þriggja dauðsfalla

Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist hér á landi vegna brunasára sem þeir hlutu af of heitu vatni. Byggingarreglugerð á að koma í veg fyrir að fólk geti brennt sig á þennan hátt.

Tvær ungar íslenskar konur fengu blóðtappa vegna Yasmín pillunnar

Tvær ungar íslenskar konur segjast hafa fengið blóðtappa í lungun eftir að hafa verið á Yasmin getnaðarvarnarpillunni. Lyfjastofnun og Icepharma segjast ekki hafa fengið tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir vegna hennar. Danska Lyfjastofnunin segir Yasmin pilluna ekki valda meiri aukaverkunum en aðrar getnaðarvarnarpillur.

Kristján Leósson hlaut hvatningarverlaun

Kristján Leósson eðlisverkfræðingur hlaut í morgun hvatningarverðlaun vísinda og tækniráðs fyrir rannsóknir á sviði örtækni. Geir H. Haarde, formaður vísinda og tækniráðs veitti verðlaunin á Rannsóknarþingi sem sett var í morgun. Kristján fékk 2.5 milljónir króna í sinn hlut.

Hafna því að hafa nýtt sér fjölmiðla um of

Foreldrar bresku stúlkunnar Madeleine McCann, sem rænt var í Portúgal fyrir um mánuði, hafna því að þeir hafi nýtt sér fjölmiðla um of í leit sinni að dóttur sinni. Gerry og Kate McCann hafa undanförnu ferðast um Evrópu til að vekja athygli á leitinni að fjögurra ára dóttur þeirra sem numin var á brott í Praia da Luz þann 3. maí.

Hengd fyrir framhjáhald

Um sexhundruð manns fylgdust með þegar þrjár konur og einn karlmaður var tekinn af lífi fyrir framhjáhald í bænum Bara í Pakistan. Það var öldungaráð þorpsins sem kvað upp dauðadóminn. Talsmaður þess Jan Gul sagði í samtali við AP fréttastofuna að refsingar í bænum færu eftir hefðum og venjum. Auk þess að halda framhjá hefði fólkið neytt áfengis.

Stúdentar vilja frítt í strætó á öllu höfuðborgarsvæðinu

Stúdentaráð Háskóla Íslands og Bandalag íslenskra námsmanna hafa sent stjórn Strætó bs. erindi þess efnis að frítt verði í strætó fyrir alla námsmenn á höfuðborgarsvæðinu á komandi skólaári. Aðeins níu prósent nemenda við Háskóla Íslands taka strætó í skólann eins og staðan er í dag.

Reyndi að stökkva upp í bílinn til páfa

Maður nokkur reyndi að stökkva upp í bílinn hjá Benedikt páfa fyrir stundu. Hann var kominn alveg að bílnum þegar öryggisverðir réðust á hann og sneru hann niður. Ekki er enn vitað hver maðurinn er eða hvað honum gekk til.

Útskrifaður af gjörgæslu eftir slys á Suðurlandsvegi

Unga konan sem slasaðist í bílslysi á Suðurlandsvegi fyrir viku er enn í öndunarvél á gjörgæslu Landsspítalans í Fossvogi. Maðurinn sem var með henni í bílnum hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og hefur verið fluttur á skurðdeild. Að sögn vakthafandi læknis er hann á batavegi.

Sjá næstu 50 fréttir