Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útilokar sakfellingu í helmingi ákæruliða Baugsmáls hins síðara Settur saksóknari í Baugsmálinu og Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eru á öndverðum meiði um túlkun á sýknudómi Hæstaréttar í gær. Gestur segir dóminn útiloka sakfellingu í átta af þeim átján liðum sem teknir verða fyrir í Héraðsdómi í febrúar. 26.1.2007 18:46
Hyggst herja á Írana George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður. 26.1.2007 18:45
Birta myndir af mönnum bera sig Á netsíðu eru birtar myndir af íslenskum mönnum að bera sig fyrir framan vefmyndavél en áhorfendurna telja þeir vera þrettán og fjórtán ára stúlkur að sögn aðstandenda síðunnar. 26.1.2007 18:45
Vilja að olíumálinu verði vísað frá Tekist var á um það, í Héraðsdómi Reykjavíkur í allan dag, hvort vísa beri ákæru á hendur núverandi og fyrrverandi forstjórum stóru olíufélaganna frá dómi. 26.1.2007 18:45
Stóraukin umsvif í Afganistan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ætlar að gera Afganistan að þungamiðju friðargæslu- og þróunarverkefna Íslendinga í Asíu og í því skyni á að fjölga friðargæsluliðum þar um helming. Þetta tilkynnti hún á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í dag. 26.1.2007 18:30
Kynþáttahatur glæpsamlegt á Ítalíu Ítalska ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp til laga sem gerir mismunun og kynþáttahatur glæpsamlegt. Þetta frumvarp ganga hins vegar ekki svo langt að banna afneitun helfarar nasista gegn gyðingum, eins og lagabókstafur þýskalands, austurríkis og fleiri landa. 26.1.2007 18:14
Nýja hús Actavis tekið í notkun Actavis hefur tekið formlega í notkun nýja rannsóknar- og þróunarbyggingu í Hafnarfirði. Í nýbyggingunni er öll þróunarvinna félagsins á Íslandi nú sameinuð undir einu þaki og jafnframt er þar hluti af starfsemi gæðasviðs félagsins. Nýja húsið er 3.200 fermetrar og starfsmenn verða um 100 talsins. 26.1.2007 17:52
Ekki í lífshættu eftir bílveltu á Mýrum Karlmaður var fluttur með þyrlu á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu skammt frá Hítará á Mýrum upp úr hádegi í dag. Maðurinn var einn í bílnum. Hann var lagður inn til frekari rannsókna en er ekki í lífshættu og ekki í öndunarvél að svo stöddu. 26.1.2007 17:33
Bandaríkjamenn og Norður-Kóreumenn funda Samninganefndir Bandaríkjamanna og Norður-Kóreumanna munu hittast á ný á þriðjudaginn í næstu viku, 30. janúar. Þar verður m.a. rætt um norðurkóreska bankareikninga á Maká-eyju, sem Bandaríkjamenn frystu. Norður-Kóreumenn krefjast þess að fá aftur aðgang að þessum peningum áður en þeir íhugi kjarnorkuafvopnun. 26.1.2007 17:15
Tíu manns teknir í sex fíkniefnamálum Tíu manns komu við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í sex fíkniefnamálum í gær og nótt eftir því sem segir á vef hennar. Síðdegis voru tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn rúmlega tvítugur, handteknir í miðborginni en í bíl þeirra fundust ætluð fíkniefni. Um svipað leyti var farið á heimili karlmanns á miðjum aldri í Hafnarfirði en þar fundust sömuleiðis ætluð fíkniefni. 26.1.2007 17:06
Hersveitir hafa heimild til að handtaka og drepa Írana í Írak George Bush Bandaríkjaforseti greindi frá því í dag að bandarískar hersveitir í Írak hefðu heimild til að handtaka og drepa íranska ríkisborgarar sem tækju þátt í árásum á hersveitir bandamanna. 26.1.2007 17:00
Hafís nánast kominn upp að landi Vestfjörðum Hafís er kominn nánast upp að landi við Kóp, Sléttanes og Barða við Arnarfjörð á Vestfjörðum og segir veðurstofan að siglingaleiðir undan Vestfjörðum geti verið varasamar af þeim sökum, sérstaklega í mykri. 26.1.2007 16:38
Kompás afhendir lögreglu umbeðin gögn Fréttastofa Stöðvar tvö afhendir lögreglu í dag gögn, sem lögregla telur sig þurfa, til að bera kennsl á fimm einstaklinga sem myndaðir voru í tengslum við umfjöllun Kompáss um karlmenn sem leita eftir samneyti við börn í gegnum Netið. Fréttastofan afhendir almennt ekki vinnugögn sín en undantekning er gerð vegna alvarleika málsins og ríkra almannahagsmuna. 26.1.2007 16:34
Lögreglan fær bíla og mótorhjól Ríkislögreglustjóri afhenti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins fyrr í dag þrjá nýja og vel útbúna lögreglubíla og eitt mótorhjól. Þetta eru fyrstu bílarnir af þeim tíu sem höfuðborgarlögreglan hefur óskað eftir á þessu ári. 26.1.2007 16:13
Hátt í 300 myndaðir við hraðakstur á viku Nærri þrjú hundruð ökumenn voru myndaðir í myndavélabílum lögreglunnar við Stekkjarbakka í Reykjavík og í Hvalfjarðargöngum í þessari viku þar sem þeir óku of hratt. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar. 26.1.2007 15:50
Náhval relur á land í Lónafirði Sjaldgæfa sjón bar fyrir augu í botni Lónafjarðar í Þistilfirði á dögunum þegar náhval rak þar á land. Slíkan hval hefur ekki rekið á land hér frá árinu 1976, eða í rúm þrjátíu ár, eftir því sem segir á vef Hafrannsóknarstofnunarinnar, en þá rak eitt eða tvö dýr rak á land í Geldinganesi í Reykjavík. 26.1.2007 15:33
Fjórir látnir eftir átök á milli Fatah- og Hamas-liða Fjórir eru látnir eftir að það sló í brýnu milli hópa á vegum Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gasaströndinni í dag. Til átaka kom á milli hópanna þegar Hamas-liðar minntust þess að ár er síðan þeir fóru með sigur af hólmi í þingkosningum í landinu. 26.1.2007 15:21
Samþykkja aukinn stuðning við Afganistan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat í dag utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Brussel. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu var meginumræðuefni fundarins aðgerðir bandalagsins í Afganistan og staða mála í Kósóvó. 26.1.2007 14:57
Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma ekki að framboði Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma á engan hátt að undirbúningi framboða til Alþingis sem kynnt hafa verið sem framboð öryrkja og aldraðra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá formönnum Landssambands eldri borgara, Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra og Öryrkjabandalags Íslands. 26.1.2007 14:43
Abbe Pierre borinn til grafar Jacques Chiarc Frakklandsforseti og Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, voru hópi fjölmargra franskra leiðtoga sem voru viðstaddir útför Abbe Pierre í París í dag. Abbe Pierre, sem lést á mánudag 94 ára að aldri, var í hópi virtustu og vinsælustu manna í Frakklandi fyrir baráttu sína í þágu heimilislausra. 26.1.2007 14:35
Landsbankinn vex hraðar erlendis en innalands Landsbanki Íslands kynnti uppgjör á besta ári í sögu bankans í London í morgun. Hagnaður eftir skatta var 40,2 milljarðar króna sem er 61 prósent meiri hagnaður en í fyrra. Ríflega helmingur af tekjum bankans, eða fimmtíu og tvö prósent, kemur af erlendri starfsemi. Þetta hlutfall var bara 17 prósent fyrir ári. Halldór J Kristjánsson bankastjóri, segir að velgengni bankans í Bretlandi eigi stóran hlut að máli í velgengninni. 26.1.2007 14:15
Ekki farið ískönnunarflug í dag Landhelgisgæslan mun ekki fara ískönnunarflug til Vestfjarða í dag þar sem það er orðið of áliðið til að fara af stað. Rafall í Fokker-vél Gæslunnar bilaði í gær og var ekki lokið við að gera við hann fyrr en nú. Birta fer nú þverrandi og því telja Gæslumenn að þeir eigi ekkert erindi á Vestfjarðamið. 26.1.2007 14:07
Ítalskir hermenn áfram í Afganistan Mið- og vinstri stjórn Romanos Prodis á Ítalíu samþykkti á maraþonfundi í gærkvöld að halda tæplega tvö þúsund manna herliði sínu í Afganistan áfram í landinu. 26.1.2007 13:45
Eggert ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn UEFA Eggert Magnússon, formaður KSÍ, var ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn Knattspyrnusambands Evrópu en kosið var í dag. Eftir því sem fram kemur á vef KSÍ hafnaði Eggert áttunda sæti af þrettán frambjóðendum með 23 atkvæði en sex efstu náðu kjöri. 26.1.2007 13:34
Skildi sprengju eftir í dúfnakassa Að minnsta kosti fimmtán létu lífið og tugir særðust í sprengjuárás í miðborg Bagdad í morgun. Hryðjuverkið var framið á fjölförnum dýramarkaði í miðborginni en talið er að árásarmaðurinn hafi falið vítisvél sína í kassa sem var fullur af dúfum. 26.1.2007 13:30
Erfðagripir grísku konungsfjölskyldunnar seldir fyrir milljarð Umdeildu uppboði á erfðagripum úr eigu grísku konungsfjölskyldunnar lauk í uppboðshúsi Christie's í Lundúnum í gær en þá höfðu munir selst fyrir rúman milljarð íslenskra króna. 26.1.2007 13:15
Vilja fá að skjóta refi í friðlandi á Hornströndum Stjórn Skotveiðifélags Íslands vill að umhverfisráðherra beiti sér fyrir því að refaveiðar verði heimilaðar í friðlandinu á Hornströndum þar sem þeir telja að hann haldi niðri rjúpnastofninum á svæðinu. 26.1.2007 13:00
Rúnar í stað Haraldar í skattrannsókn tengdri Baugi Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag sett Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, til þess að vera ríkislögreglustjóri við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi. 26.1.2007 12:47
Skipafélög nær alveg samstíga í verðhækkunum Stjórnendur Samskipa og Eimskips eru nær alveg samstíga í verðhækkunum, tímasetningu þeirra og í álagningu aukagjalds, samkvæmt athugun Neytendasamtakanna 26.1.2007 12:45
Fá 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði Nýr búvörusamningur tryggir hverjum sauðfjárbónda að jafnaði um 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði. Bóndinn fær auk þess til viðbótar allar tekjur af afurðum búsins. 26.1.2007 12:30
Hótar hertum samkeppnislögum ef matarverð lækkar ekki Fjármálaráðherra hótar hertum samkeppnisreglum ef aðgerðir stjórnvalda til að lækka matarverð skila ekki árangri. 26.1.2007 12:24
Óeining um sjálfstæði Kosovo Rússar eru fullir efasemdar um áætlun Martti Ahtisaari erindreka Sameinuðu Þjóðanna sem myndi nánast gefa Kosovo hluta Serbíu sjálfstæði. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir embættismanni í dag. Eftir 90 mínútna fund í Vínarborg með tengiliðum sex valdaþjóða hvöttu Rússar til að ákvörðun um Kosovo yrði frestað þar til Serbía hafi myndað ríkisstjórn, en kosningar fóru fram í landinu 21. janúar. 26.1.2007 12:06
Tæpar 60 milljónir í málvarnarkostnað í Baugsmáli Ríkissjóður greiðir verjendum í hinu upphaflega Baugsmáli tæpar 58 milljónir króna í laun og útlagðan kostnað. Þá er ótalinn kostnaður vegna rannsóknar málsins. 26.1.2007 12:00
Vinstri - grænir stærri en Samfylkingin skv. könnun Frjálsrar verslunar Vinstri - grænir mælast stærri en Samfylkingin samkvæmt skoðanakönnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 17. til 22. janúar. Samkvæmt könnuninni nýtur Sjálfstæðisflokkurinn fylgis tæplega 39 prósenta landsmanna, Vinstri grænir koma næstir með 20,5 prósent og þar á eftir kemur Samfylkingin með tveimur prósentum minna fylgi en Vinstri grænir. 26.1.2007 11:51
Platini kjörinn forseti UEFA Michel Platini, fyrrverandi leikmaður og þjálfari franska landsliðsins, var fyrir stundu kjörinn forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, á ársþingi sambandsins í Düsseldorf í Þýskalandi. 26.1.2007 11:40
Spánverjar taka mál af 8 þúsund konum Fatastærðir fyrir konur eru nú teknar til endurskoðunar á Spáni eftir að ríkisstjórnin ákvað að sporna við ímyndarþrýstingi á ungar stúlkur. Ein af breytingunum verður sú að búðareigendur eiga að stylla út breiðari gínum. Nokkrir mánuðir eru síðan sett var bann við of grönnum fyrirsætum á tískuvikunni í Madrid. Á Spáni er ekki óalgengt að konur fari með margar stærðir af sömu flíkinni inn í búningsherbergi, þar sem ómögulegt er að vita fyrirfram hvaða stærð þær þurfi. 26.1.2007 11:33
Bændur í Eyjafjarðarsveit vilja fá bætur vegna flóða Um tuttugu og fimm aðilar vilja fá bætur vegna tjóns sem hlaust af flóðum í Eyjafjarðarsveit fyrir jólin. Óvíst er hversu mikið fæst bætt. Norðlenski fréttavefurinn Vikudagur hefur eftir Bjarna Kristjánssyni, sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit, að Bjargráðasjóður taki öll málin til skoðunar en sennilega fái ekki allir sem óska eftir bætur. 26.1.2007 11:30
Kristallar koma úr stórutá Samkvæmt fjölmiðlum í Malasíu síðastliðna daga er margt furðulegt að gerast þar. Kraftaverkalæknar eru á ferð og dularfullar risa-górillur láta glitta í sig. En það nýjasta er ung kona og tærnar á henni. Hvers vegna? Jú, það koma gimsteinar út úr þeim. Fjölmiðlar skýrðu fyrst frá þessu á þriðjudaginn var en fyrsti steininn leit dagsins ljós í október í fyrra. 25.1.2007 23:36
Hermönnum fjölgað í Afganistan Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, tilkynnir á fundi Norðuratlantshafsbandalagsins (NATO) á morgun að Bandaríkjamenn ætli sér að fjölga hermönnum í Afganistan og auka við fjárhagsaðstoð til þess að gera út af við Talibana. Hún ætlast einnig til þess að bandamenn Bandaríkjanna í NATO geri slíkt hið sama en Evrópulöndin virðast hafa takmarkaðan áhuga á slíkum aðgerðum. 25.1.2007 23:15
Ólöglegir innflytjendur sendir til síns heima Mikill ótti hefur gripið um sig í samfélögum spænskra innflytjenda í Kaliforníu í Bandaríkjunum að undanförnu eftir að lögregla þar hóf að flytja af landi brott ólöglega innflytjendur. Lögreglan hóf átakið á þriðjudaginn var og segist einbeita sér að þeim ólöglegu innflytjendum sem eru glæpamenn. 25.1.2007 22:45
Fox stefnir Google Kvikmyndasamsteypan 20th Century Fox stefndi í gær Google, eigendum YouTube heimasíðunnar eftir að heilu þættirnir úr seríunni frægu „24“ birtust á YouTube. Fox krefst þess að Google láti af hendi upplýsingar um notandann sem setti þættina á heimasíðuna. 25.1.2007 22:30
Yfirborð sjávar mun hækka næstu 1000 árin Yfirborð sjávar mun halda áfram að hækka næstu þúsund árin þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda í heiminum til þess að koma í veg fyrir það. Ástæðan fyrir hækkun yfirborðs sjávar er talin vera aukið magn gróðurhúsaloftteguna. 25.1.2007 22:16
Landssamtök Landeigenda á Íslandi stofnuð Stofnfundur Landssamtaka Landeigenda á Íslandi var haldin í Sunnusal Hótels Sögu í dag. Salurinn var fullur út úr dyrum og aðstandendur fundarins telja að skráðir stofnfélagar séu hátt í 300 talsins. Guðný Sverrisdóttir, sveitastjóri Grýtubakkahrepps, var kjörin formaður samtakanna. 25.1.2007 21:35
Myrtar til að vera giftar Þrír menn í Kínva voru handteknir fyrir að hafa myrt tvær konur og selt líkin sem „Líkbrúðir" Samkvæmt gömlum kínverskum hefðum boðar það ekki gott ef ungir menn deyja án þess að hafa gift sig og þess vegna hefur það verið stundað að grafa látnar konur við hliðina á þeim til þess að þeir fái notið þeirra í framhaldslífinu. 25.1.2007 21:11
Dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir morð í Írak Bandaríski hermaðurinn Corey Clagett var í dag dæmdur í fangelsi til 18 ára fyrir þátttöku sína í morði á þremur íröskum föngum. Hann er þriðji hermaðurinn sem er dæmdur í tenglsum fyrir morðin. Þau áttu sér stað nærri borginni Tíkrít í norðurhluta Írak 9. maí 2006. 25.1.2007 21:02