Fleiri
Klámkóngur í lífstíðar fangelsi 22.11.2006 16:35 Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst hér á landi á föstudag en þetta er í þriðja sinn sem staðið er fyrir slíku átaki. Alþjóðleg yfirskrift átaksins í ár er Eflum mannréttindi - stöðvum ofbeldi gegn konum!, en með því er lögð áhersla á að ofbeldi gegn konum er mannréttindabrot sem hvergi eig að viðgangast. 22.11.2006 16:31 Lítil von um björgun úr pólskri námu Vonir hafa dvínað um að hægt verði að bjarga fimmtán pólskum námumönnum, sem nú hafi verið lokaðir ofan í námu sinni í einn sólarhring. Björgunarsveitir urðu frá að hverfa, í dag, vegna mikillar hættu á annarri sprengingu. 22.11.2006 16:24 Úhlutun Kópavogsbæjar á lóðum ólögmæt Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu að úthlutun Kópavogsbæjar á byggingarrétti á tveimur lóðum á Kópavogstúni í lok árs í fyrra hafi verið ólögmæt. Hins vegar er kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu bæjarins vegna málsins vísað frá dómi. 22.11.2006 16:20 Tyrknesk yfirvöld óróleg vegna heimsóknar páfa Tyrkneska lögreglan notaði táragas til þess að dreifa hópi manna sem ruddust inn í Aya Sofya safnið í Istanbúl, til þess að mótmæla heimsókn Benediktusar páfa til landsins í næstu viku. 22.11.2006 16:14 Fjárlaganefnd vill setja Öryggismálanefnd í gang Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis vill að Öryggismálanefnd, samstarfsvettvangur allra stjórnmálaflokkanna verði sett á laggirnar á vegum forsætisráðuneytisins. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að framlagið til þessarar nýju Öryggismálanefndar verði 16 milljónir króna árið 2007. Í álitinu sínu vísar meirihlutinn til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 26. september um ný verkefni íslenskra stjórnvalda við brottför varnarliðsins. 22.11.2006 15:40 Búast við loftárásum á Íran næsta sumar Tvær hugveitur í Bandaríkjunum telja líklegt að George Bush, forseti, muni fyrirskipa sprengjuárásir á Íran næsta sumar, til þess að koma í veg fyrir að landið komi sér upp kjarnorkusprengjum. 22.11.2006 15:34 Dýr yrðu bæði brjóstin á Janet Jackson 22.11.2006 15:15 Framlög fyrirtækja og einstaklinga verði ekki hærri en 300 þúsund Styrkir einstaklinga og fyrirtækja til stjórnmálaflokka og frambjóðenda í prófkjörum mega aldrei verða hærri en þrjú hundruð þúsund krónur samkvæmt tillögum nefndar um lagalega umgjörð stjórnmálastarfsemi sem kynntar voru í Stjórnarráðinu í dag. 22.11.2006 14:59 Þriggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaða þjófnaði á vörum vöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Samanlögð upphæð þess sem hann stal nam um sjö þúsund krónum en vörunum rændi maðurinn á tímabilinu ágúst í fyrra til októbermánaðar á þessu ári 22.11.2006 14:41 Rússar hóta að taka rafmagnið af Azerbadjan Rússar hafa tilkynnt Azerbadjan að þeir kunni að minnka raforkusölu til landsins um áttatíu prósent á næsta ári, og einnig skera niður sölu á gasi. 22.11.2006 14:32 Hættulegasti fæðingarstaður í heimi 22.11.2006 14:22 Sigurerni sleppt á föstudag Stefnt er að því að sleppa erninum Sigurerni sem dvalið hefur í Fjölskyldu og húsdýragarðinum undanfarna mánuði nærri Grundarfirði á föstudag. Örninn komst í fréttirnar í júní síðastliðnum þegar honum var bjargað eftir að hann hafði steypst ofan í lón nærri Grundarfirði. 22.11.2006 14:13 Danski bankar klofnir í afstöðu sinni til íslensks efnahagslífs Stærstu bankar Danmerkur eru klofnir í afstöðu sinni til framtíðarþróunar íslensks efnahagslífs, en eins og greint hefur verið frá í fréttum hefur gengi krónunnar lækkað nokkuð að undanförnu. 22.11.2006 13:59 Sjá næstu 50 fréttir
Kanada áfram eitt ríki Mikil umræða var á kanadíska þinginu í vikunni um hvað það væri að vera kanadískur. Allt síðan 1995 hafa verið öfl í hinu hálf-franska fylki Quebec sem krefjast sjálfstæðis en nýverið settu þau fram tillögu í þinginu þar sem þess var krafist að þingið viðurkenndi Quebec sem sérstaka þjóð. 22.11.2006 23:49
Sameinuðu þjóðirnar gegn ofbeldi gagnvart konum Sjóður Sameinuðu þjóðanna sem á að binda enda á ofbeldi gagnvart konum mun gefa alls 3,5 milljónir dollara, eða um 250 milljónir íslenskra króna, til verkefna sem eiga að miða að því að binda enda á ofbeldi gagnvart konum. Þetta er jafnframt stærsta upphæð sem sjóðurinn hefur deilt út. 22.11.2006 23:18
Hamas til viðræðna um fangaskipti Leiðtogi Hamas-samtakanna, Khaled Meshaal, er kominn til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, til þess að ræða um hugsanleg skipti á föngum við Ísraela. Talsmaður samtakanna skýrði frá þessu nú rétt í þessu. 22.11.2006 22:33
Kabila setur friðargæsluliðum úrslitakosti Forseti Austur-Kongó gaf í dag friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna 48 klukkustunda frest til þess að koma vopnuðum liðsmönnum mótframbjóðanda síns, Jean-Pierre Bemba, úr höfuðborginni, Kinshasa. Ef þeir myndu ekki gera það ætlar hann sér að láta herinn sinna verkefninu. 22.11.2006 22:07
Líbanir biðja Sameinuðu þjóðirnar um aðstoð Líbanski forsætisráðherrann Fouad Siniora hefur beðið Sameinuðu þjóðirnar um aðstoð við að rannsaka morðið á iðnaðarráðherra landsins, Pierre Gemayel, sem myrtur var síðastliðinn þriðjudag. 22.11.2006 22:01
Alþjóðadómstóllinn í Haag sýnir aðbúnað fanga sinna Nýtt myndband sem alþjóðadómstólinn í Haag sendi frá sér sýnir þær aðstæður sem að fangar þar þurfa að lifa í. Dómstóllinn varð fyrir mikilli gagnrýni eftir sjálfsmorð eins fanga þar og síðan lát Slobodans Milosevic fyrr á árinu. Myndbandið var gert til þess að auka á gegnsæi innan stofnunarinnar og auka tiltrú á henni í kjölfar þessara atburða. 22.11.2006 21:30
Kristilegir demókratar með forystu eftir fyrstu tölur Hollenska ríkissjónvarpsstöðin NOS skýrði frá því í kvöld að þegar að ellefu prósent atkvæða hefðu verið talin væri stjórnarflokkur Kristilegra demókrata með forystu á aðal stjórnarandstöðuflokkinn, Verkamannaflokkinn. Bjóst sjónvarpsstöðin við því að Kristilegir demókratar eigi eftir að hljóta 41 sæti en Verkamannaflokkurinn 33. 22.11.2006 21:16
Ísraelar að hreinsa landssvæði af klasasprengjum Ísraelski herinn sagði í dag að hann myndi taka þátt í því að þjálfa friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í því að hreinsa landsvæði af klasasprengjum og öðrum jarðsprengjum sem að hafa orðið eftir úr 34 daga stríði Ísraels og Hisbollah í sumar. Sprengjurnar hafa þegar valdið meira en 20 dauðsföllum og sært fleiri en 70 manns síðan að stríðinu lauk þann 14. ágúst síðastliðinn. 22.11.2006 21:08
Sprenging í efnaverksmiðju í Bandaríkjunum Sprenging varð í efnaverksmiðju í Bandaríkjunum í dag. Úr varð gríðarlegur eldur og slösuðust í hið minnsta tíu manns og talið er að nálægt hundrað heimili og byggingar hafi skemmst. Þurfti lögregla að flytja um 200 íbúa frá heimilum sínum. 22.11.2006 20:57
Pólverjar koma í veg fyrir viðræður Pólverjar héldu sig við hótanir sínar frá því í síðustu viku og beittu neitunarvaldi gegn þeirri tillögu Evrópusambandsins að viðræður yrðu hafnar við Rússa um nýjan samstarfssamning milli Evrópusambandsins og Rússlands. 22.11.2006 20:17
Ólga í listaheiminum á Ítalíu Viðræðum á milli ítalskra yfirvalda og J. Paul Getty safnsins í Los Angeles vegna 52 safngripa sem að Ítalir segja að hafi verið rænt hefur verið frestað um óákveðinn tíma þar sem safnið er aðeins tilbúið til þess að skila helmingi þeirra gripa sem rætt er um. 22.11.2006 20:14
Kristilegum demókrötum spáð sigri í Hollandi Búist er við því að flokkur Kristilegra demókrata eigi eftir að bera sigur úr býtum í þingkosningum í Hollandi sem fram fóru í dag en þó er ekki búist við því að þeir nái hreinum meirihluta á þinginu. Þetta sýna útgönguspár hollensku sjónvarpsstöðvarinnar RTL. 22.11.2006 20:01
Rottweiler hundar bíta unga konu til bana Fjórir rottweiler hundar bitu unga konu til bana í húsi nálægt París í Frakklandi í dag. Bitu þeir hana sérstaklega illa á andliti og á handleggjum samkvæmt fregnum frá lögreglu. Varð hún að skjóta hundana til bana til þess að komast að líki konunnar. 22.11.2006 19:37
Vill ekki láta farga fósturvísunum Bresk kona berst nú fyrir því að fá að halda eftir fósturvísum úr fyrra hjónabandi sínu en lögum samkvæmt á að eyða þeim. Flutningur á máli hennar hófst fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í dag. 22.11.2006 19:15
Ráðherra segir stórátak hafið í vegamálum Stórátak er hafið í vegamálum og það mun sjást rækilega á næstu árum, segir samgönguráðherra. Hann boðar tvöföldun hringvegarins út frá Reykjavík, bæði norður til Akureyrar og austur að Markarfljóti, og næstu jarðgöng verði milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar og í Oddsskarði. 22.11.2006 19:07
Þjóðhátíð í skugga morðs Líbanskir stjórnmálamenn óttast að fleiri víg muni fylgja í kjölfar morðsins á Pierre Gemayel iðnaðarráðherra í gær. Þriggja daga þjóðarsorg hófst í landinu í morgun með því að þúsundir manna fylgdu kistu Gemayel um götur heimaborgar hans. 22.11.2006 18:58
Buðu bætur en viðurkenna ekki skaða Lögmenn Olís, Essó og Skeljungs höfnuðu því fyrir héraðsdómi í dag að Reykjavíkurborg hefði sannað tjón sitt vegna ólögmæts samráðs. Þó var óvænt upplýst að félögin hefðu boðið borginni fimmtíu milljónir króna til að sætta málið og losna við skaðabótamál. Í þessu tilboði féllst samt engin viðurkenning á að borgin hafi orðið fyrir tjóni, segja olíufélögin. 22.11.2006 18:54
Spáir lækkun á notuðum bílum Forstjóri Heklu spáir því að verð á notuðum bílum muni lækka á næstu misserum því verðið sé of hátt. Hann segir öryggi og eyðslu vera meðal þeirra þátta sem muni hafa mikil áhrif í þá átt. 22.11.2006 18:45
Samkomulag milli stjórnmálaflokkanna um fjármál þeirra Sveitarfélögum verður í fyrsta skipti gert að styrkja framboð til sveitarstjórna, samkvæmt samkomulagi fulltrúa allra stjórnmálaflokka. Þau losna á móti við kostnað sem þau hafa af alþingiskosningum. 22.11.2006 18:45
Hver íslendingur fengi arð af virkjunum Allir lifandi íslendingar yrðu hluthafar í Íslenska auðlindasjóðnum ohf. sem héldi utan um sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar og virkjanir þeirra nái ný hugmynd Víglundar Þorsteinssonar stjórnarformanns BM Vallár fram að ganga. Sjóðurinn myndi auk þess greiða landsmönnum arð. Lagt er til að sjóðurinn nái yfir allar sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar auk Landsvirkjunar. 22.11.2006 18:30
Vilja 130 milljónir til viðbótar á fjárlögum til stjórnmálaflokka Meirihluti fjárlaganefndur leggur til að stjórnmálaflokkarnir fái 130 milljóna króna aukafjárveitingu vegna breytinga á lagaumgjörð um flokkana. Þetta kemur fram í breytingartillögum meirihlutans við fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra. 22.11.2006 18:16
Áhöfninni kennt um slysið Áhöfn rússnesku flugvélarinnar sem keyrði á vegg og brann síðan til kaldra kola eftir lendingu í sumar hefur verið kennt um atvikið. Þetta kom fram í skýrslu rannsóknarmanna sem var gefin út í dag. Alls dóu 125 manns í flugslysinu. 22.11.2006 18:08
Sjúkdómsvæðing meðgöngunnar Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði heilbrigðisyfirvöld um stefnuleysi í mæðravernd á Alþingi í dag. Hætta væri á að peningar og þjálfun starfsfólks færu í súginn við flutning áhættumeðgönguverndar á Landspítalann. Þingmaður vinstri grænna segir að verið sé að sjúkdómsvæða meðgönguna. 22.11.2006 18:06
Sautján umferðaróhöpp í Reykjavík í gær Sautján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík í gær og stungu þeir sem keyrðu á af í þremur tilfellum. Óhöppin voru flest minni háttar eftir því sem fram kemur á vef lögreglunnar en í einu tilviki var ökumaður fluttur á slysadeild. Sá ók vörubifreið en hún valt þegar sturta átti farminum af. 22.11.2006 17:52
Evrópskir bankar brutu lög um persónuvernd Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins samþykkti í dag ályktun þar sem kom fram að belgíska bankafyrirtækið SWIFT hefði brotið lög um persónuvernd þegar það lét bandaríska fjármálaráðuneytið fá upplýsingar um millifærslur viðskipta sinna. 22.11.2006 17:44
Heildarfjárfesting sveitarfélaga 41 milljarður á síðasta ári Heildarfjárfesting sveitarfélaga á síðasta ári nam liðlega 41 milljarði króna samkvæmt yfirliti sem hag- og upplýsingasvið Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman. 22.11.2006 17:42
Þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ásamt félaga sínum gengið í skrokk á manni á Eskifirði í sumar. Atvikið átt sér stað fyrir utan verslun í bænum aðfararnótt sunnudagsins 11. júní en þar kýldi ákærði manninn og stappaði ofan á andliti hans þannig að maðurinn hlaut mikla áverka í andliti. 22.11.2006 17:21
Kaupmáttur eykst Laun hækkuðu að meðaltali um 0,5% í október og hafa því hækkað um alls 11% á síðustu tólf mánuðum. Kaupmáttur hefur því aukist sem þessu hálfa prósenti nemur og því alls um rúm 3,5% á síðasta ári. Þetta gerist þrátt fyrir að verðbólga hafi skotist upp á síðustu misserum. 22.11.2006 17:20
Mikill áhugi á skuldabréfum ríkissjóðs Ríkissjóður Íslands lauk í dag skuldabréfaútboði á Evrópumarkaði upp á einn milljað evra eða sem samsvarar 90 milljörðum íslenskra króna. Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands að mikill áhugi hafi verið fyrir útboðinu og bárust kauptillboð að fjárhæð um 1,7 milljaðar evra frá um 60 aðilum 22.11.2006 16:55
Le Pen segist fórnarlamb samsæris Franski hægri maðurinn Jean-Marie Le Pen hefur beðið borgarstjóra Frakklands um að styðja forsetaframboð sitt, og sagði að helstu stjórnmálaflokkarnir hafi gert samsæri um að koma í veg fyrir að hann geti boðið sig fram. 22.11.2006 16:49
Metangasleiðsla frá Álfsnesi til Ártúnshöfða Til stendur að leggja gasleiðslu frá Álfsnesi upp á Ártúnshöfða sem flytja á metangas sem framleitt er hjá Sorpu í Álfsnesi og notað verður til áfyllingar á stöð ESSO við Bíldshöfða. 22.11.2006 16:44
Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst hér á landi á föstudag en þetta er í þriðja sinn sem staðið er fyrir slíku átaki. Alþjóðleg yfirskrift átaksins í ár er Eflum mannréttindi - stöðvum ofbeldi gegn konum!, en með því er lögð áhersla á að ofbeldi gegn konum er mannréttindabrot sem hvergi eig að viðgangast. 22.11.2006 16:31
Lítil von um björgun úr pólskri námu Vonir hafa dvínað um að hægt verði að bjarga fimmtán pólskum námumönnum, sem nú hafi verið lokaðir ofan í námu sinni í einn sólarhring. Björgunarsveitir urðu frá að hverfa, í dag, vegna mikillar hættu á annarri sprengingu. 22.11.2006 16:24
Úhlutun Kópavogsbæjar á lóðum ólögmæt Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu að úthlutun Kópavogsbæjar á byggingarrétti á tveimur lóðum á Kópavogstúni í lok árs í fyrra hafi verið ólögmæt. Hins vegar er kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu bæjarins vegna málsins vísað frá dómi. 22.11.2006 16:20
Tyrknesk yfirvöld óróleg vegna heimsóknar páfa Tyrkneska lögreglan notaði táragas til þess að dreifa hópi manna sem ruddust inn í Aya Sofya safnið í Istanbúl, til þess að mótmæla heimsókn Benediktusar páfa til landsins í næstu viku. 22.11.2006 16:14
Fjárlaganefnd vill setja Öryggismálanefnd í gang Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis vill að Öryggismálanefnd, samstarfsvettvangur allra stjórnmálaflokkanna verði sett á laggirnar á vegum forsætisráðuneytisins. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að framlagið til þessarar nýju Öryggismálanefndar verði 16 milljónir króna árið 2007. Í álitinu sínu vísar meirihlutinn til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 26. september um ný verkefni íslenskra stjórnvalda við brottför varnarliðsins. 22.11.2006 15:40
Búast við loftárásum á Íran næsta sumar Tvær hugveitur í Bandaríkjunum telja líklegt að George Bush, forseti, muni fyrirskipa sprengjuárásir á Íran næsta sumar, til þess að koma í veg fyrir að landið komi sér upp kjarnorkusprengjum. 22.11.2006 15:34
Framlög fyrirtækja og einstaklinga verði ekki hærri en 300 þúsund Styrkir einstaklinga og fyrirtækja til stjórnmálaflokka og frambjóðenda í prófkjörum mega aldrei verða hærri en þrjú hundruð þúsund krónur samkvæmt tillögum nefndar um lagalega umgjörð stjórnmálastarfsemi sem kynntar voru í Stjórnarráðinu í dag. 22.11.2006 14:59
Þriggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaða þjófnaði á vörum vöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Samanlögð upphæð þess sem hann stal nam um sjö þúsund krónum en vörunum rændi maðurinn á tímabilinu ágúst í fyrra til októbermánaðar á þessu ári 22.11.2006 14:41
Rússar hóta að taka rafmagnið af Azerbadjan Rússar hafa tilkynnt Azerbadjan að þeir kunni að minnka raforkusölu til landsins um áttatíu prósent á næsta ári, og einnig skera niður sölu á gasi. 22.11.2006 14:32
Sigurerni sleppt á föstudag Stefnt er að því að sleppa erninum Sigurerni sem dvalið hefur í Fjölskyldu og húsdýragarðinum undanfarna mánuði nærri Grundarfirði á föstudag. Örninn komst í fréttirnar í júní síðastliðnum þegar honum var bjargað eftir að hann hafði steypst ofan í lón nærri Grundarfirði. 22.11.2006 14:13
Danski bankar klofnir í afstöðu sinni til íslensks efnahagslífs Stærstu bankar Danmerkur eru klofnir í afstöðu sinni til framtíðarþróunar íslensks efnahagslífs, en eins og greint hefur verið frá í fréttum hefur gengi krónunnar lækkað nokkuð að undanförnu. 22.11.2006 13:59