Fleiri fréttir Iðnaðarráðherra sagður segja ósatt Iðnaðarráðherra var sakaður um að hafa sagt ósatt á Alþingi í síðustu viku þegar hann sagði engar skipulagsbreytingar fram undan hjá Landsvirkjun, en nú hefur verið ákveðið að RARIK og Orkubú Vestfjarða verði dótturfélög Landsvirkjunar. Ráðherrann segir engar breytingar verða gerðar á samþykktum þessara félaga. 8.11.2006 18:30 Donald Rumsfeld sagði af sér Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt af sér. Við starfi hans tekur Robert Gates fyrrverandi yfirmaður CIA. Afsögnin er tilraun Bush forseta til að sætta ólík sjónarmið um utanríkisstefnu Bandaríkjanna eftir ósigur repúblikana í þingkosningunum í gær. Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta í sjónvarpsávarpi nú fyrir skömmu. 8.11.2006 18:09 Snjóflóðavarnir kynntar á Bolungarvík Snjóflóðavarnargarður upp á 750 milljónir verður reistur við Bolungarvík á næstu tveimur til þremur árum. Hönnun og skipulag var kynnt fyrir bæjarbúum á fundi í gærkvöldi. Garðurinn verður 700 metra langur og hæðin mun samsvara átta hæða íbúðablokk. Grímur Atlason bæjarstjóri segir að með þessu sé tólf ára undirbúningsferli loks lokið. 8.11.2006 18:00 Rafmagn allstaðar komið á á Egilsstöðum Rafmagn er komið á allstaðar á Egilsstöðum. Rafmagn fór af öllum bænum rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar grafinn var í sundur háspennustrengur. Rafmagn komst fljótlega á aftur víðast í bænum. 8.11.2006 17:51 Færri nýir fólksbílar Nýskráning fólksbíla dróst saman um 27% í október miðað við sama mánuð í fyrra en 965 fólksbílar voru skráðir í síðastliðnum mánuði. Þetta kemur fram í Hálf fimm fréttum KB banka. Bifreiðakaup landans höfðu vaxið nær stanslaust frá árinu 2003. Þau tóku hins vegar að dragast saman í apríl á þessu ári eftir gengislækkun krónunnar. 8.11.2006 17:30 Nota gæsluþyrlu við rjúpnaveiðieftirlit Landhelgisgæslan hefur tekið að sér að aðstoða embætti ríkislögreglustjóra og sýslumannsembætti víðs vegar um landið við eftirlit með rjúpnaveiðum í þeim tilgangi að stuðla að markvissri framkvæmd laga og reglna um rjúpnaveiðar. Þetta kemur fram á vef umhverfisráðuneytisins. 8.11.2006 17:11 Viðbrögð Bush við niðurstöðum kosninganna Demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær. Flokkurinn náði aftur meirihluta í fulltrúadeild eftir tólf ára eyðimerkurgöngu. Svo gæti farið að flokkurinn nái einnig meirihluta í öldungadeild en eftir er að telja á ný í tveimur fylkjum. Útlit er fyrir að tvö síðustu ár George Bush, Bandaríkjaforseta, í embætti verði honum erfið. Hann flytur sjónvarpsávarp kl. 18 að íslenskum tíma sem verður sent út beint á visir.is 8.11.2006 17:08 Rafmagnsleysi á Egilsstöðum Rafmagnslaust er enn á litlu svæði syðst á Egilsstöðum. Rafmagn fór af öllum bænum rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar grafinn var í sundur háspennustrengur. Rafmagn kom þó aftur á víðast hvar skömmu síðar. Verið er að vinna að viðgerð við spennustöðina við Kaupvang og er vonast til þess að rafmagn verði komið á innan klukkustundar. 8.11.2006 17:08 Landspítalinn rifti einhliða samningi við Mæðraverndina Landspítalinn rifti einhliða samningi við Miðstöð mæðraverndar um samvinnu við eftirlit kvenna sem eru í áhættu á meðgöngu. Þetta er skref aftur á bak um áratugi fyrir konur, segir yfirljósmóðir Mæðraverndar. 8.11.2006 17:01 Mjög lítið af óæskilegum efnum í íslenskum fiski Mjög lítið er af óæskilegum efnum í þeim fiski sem veiddur er á Íslandsmiðum samkvæmt niðurstöðum skýrslu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins um vöktun á óæskilegum efnum í sjávarafurðum árið 2005. 8.11.2006 17:01 Baugur buys House of Fraser 8.11.2006 16:58 Sjáðu Napólí og deyðu Lögreglan í Napólí, á Ítalíu, handtók í dag þrjátíu og, tvo menn, í fyrstu stóraðgerð sinni til þess að binda enda á morðöldu sem gengið hefur yfir borgina undanfarna mánuði. 8.11.2006 16:50 Hart deilt á félagsmálaráðherra vegna launamunar Hart var deilt á félagsmálaráðherra fyrir að gera lítið til að vinna bug á launamisrétti kynjanna í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Það var Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem var málshefjandi og gerði að umtalsefni nýja könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið sem sýndi að launamunur kynjanna væri um 16 prósent og hefði lítið breyst síðustu tólf ár. 8.11.2006 16:47 Skothríð í Danmörku Danska lögreglan hefur beitt skotvopnum sínum mun oftar á þessu ári, en undanfarin ár. Það sem af er árinu hefur verið hleypt af níutíu skotum. 8.11.2006 16:32 UNICEF receives support 8.11.2006 16:11
Sjá næstu 50 fréttir
Iðnaðarráðherra sagður segja ósatt Iðnaðarráðherra var sakaður um að hafa sagt ósatt á Alþingi í síðustu viku þegar hann sagði engar skipulagsbreytingar fram undan hjá Landsvirkjun, en nú hefur verið ákveðið að RARIK og Orkubú Vestfjarða verði dótturfélög Landsvirkjunar. Ráðherrann segir engar breytingar verða gerðar á samþykktum þessara félaga. 8.11.2006 18:30
Donald Rumsfeld sagði af sér Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt af sér. Við starfi hans tekur Robert Gates fyrrverandi yfirmaður CIA. Afsögnin er tilraun Bush forseta til að sætta ólík sjónarmið um utanríkisstefnu Bandaríkjanna eftir ósigur repúblikana í þingkosningunum í gær. Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta í sjónvarpsávarpi nú fyrir skömmu. 8.11.2006 18:09
Snjóflóðavarnir kynntar á Bolungarvík Snjóflóðavarnargarður upp á 750 milljónir verður reistur við Bolungarvík á næstu tveimur til þremur árum. Hönnun og skipulag var kynnt fyrir bæjarbúum á fundi í gærkvöldi. Garðurinn verður 700 metra langur og hæðin mun samsvara átta hæða íbúðablokk. Grímur Atlason bæjarstjóri segir að með þessu sé tólf ára undirbúningsferli loks lokið. 8.11.2006 18:00
Rafmagn allstaðar komið á á Egilsstöðum Rafmagn er komið á allstaðar á Egilsstöðum. Rafmagn fór af öllum bænum rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar grafinn var í sundur háspennustrengur. Rafmagn komst fljótlega á aftur víðast í bænum. 8.11.2006 17:51
Færri nýir fólksbílar Nýskráning fólksbíla dróst saman um 27% í október miðað við sama mánuð í fyrra en 965 fólksbílar voru skráðir í síðastliðnum mánuði. Þetta kemur fram í Hálf fimm fréttum KB banka. Bifreiðakaup landans höfðu vaxið nær stanslaust frá árinu 2003. Þau tóku hins vegar að dragast saman í apríl á þessu ári eftir gengislækkun krónunnar. 8.11.2006 17:30
Nota gæsluþyrlu við rjúpnaveiðieftirlit Landhelgisgæslan hefur tekið að sér að aðstoða embætti ríkislögreglustjóra og sýslumannsembætti víðs vegar um landið við eftirlit með rjúpnaveiðum í þeim tilgangi að stuðla að markvissri framkvæmd laga og reglna um rjúpnaveiðar. Þetta kemur fram á vef umhverfisráðuneytisins. 8.11.2006 17:11
Viðbrögð Bush við niðurstöðum kosninganna Demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær. Flokkurinn náði aftur meirihluta í fulltrúadeild eftir tólf ára eyðimerkurgöngu. Svo gæti farið að flokkurinn nái einnig meirihluta í öldungadeild en eftir er að telja á ný í tveimur fylkjum. Útlit er fyrir að tvö síðustu ár George Bush, Bandaríkjaforseta, í embætti verði honum erfið. Hann flytur sjónvarpsávarp kl. 18 að íslenskum tíma sem verður sent út beint á visir.is 8.11.2006 17:08
Rafmagnsleysi á Egilsstöðum Rafmagnslaust er enn á litlu svæði syðst á Egilsstöðum. Rafmagn fór af öllum bænum rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar grafinn var í sundur háspennustrengur. Rafmagn kom þó aftur á víðast hvar skömmu síðar. Verið er að vinna að viðgerð við spennustöðina við Kaupvang og er vonast til þess að rafmagn verði komið á innan klukkustundar. 8.11.2006 17:08
Landspítalinn rifti einhliða samningi við Mæðraverndina Landspítalinn rifti einhliða samningi við Miðstöð mæðraverndar um samvinnu við eftirlit kvenna sem eru í áhættu á meðgöngu. Þetta er skref aftur á bak um áratugi fyrir konur, segir yfirljósmóðir Mæðraverndar. 8.11.2006 17:01
Mjög lítið af óæskilegum efnum í íslenskum fiski Mjög lítið er af óæskilegum efnum í þeim fiski sem veiddur er á Íslandsmiðum samkvæmt niðurstöðum skýrslu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins um vöktun á óæskilegum efnum í sjávarafurðum árið 2005. 8.11.2006 17:01
Sjáðu Napólí og deyðu Lögreglan í Napólí, á Ítalíu, handtók í dag þrjátíu og, tvo menn, í fyrstu stóraðgerð sinni til þess að binda enda á morðöldu sem gengið hefur yfir borgina undanfarna mánuði. 8.11.2006 16:50
Hart deilt á félagsmálaráðherra vegna launamunar Hart var deilt á félagsmálaráðherra fyrir að gera lítið til að vinna bug á launamisrétti kynjanna í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Það var Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem var málshefjandi og gerði að umtalsefni nýja könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið sem sýndi að launamunur kynjanna væri um 16 prósent og hefði lítið breyst síðustu tólf ár. 8.11.2006 16:47
Skothríð í Danmörku Danska lögreglan hefur beitt skotvopnum sínum mun oftar á þessu ári, en undanfarin ár. Það sem af er árinu hefur verið hleypt af níutíu skotum. 8.11.2006 16:32
Móðir Parísar stolt af klámmyndbandinu Móðir Parísar Hilton er stolt af öllu sem hún hefur gert, einnig klámmyndbandinu sem fór á netið, ef marka má nýja ævisögu hennar sem Jerry nokkur Oppenheimer skráði. 8.11.2006 15:47
Evrópusambandið setur Tyrkjum úrslitakosti Evrópusambandið hefur gefið Tyrkjum frest fram í miðjan desember til þess að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur, eða taka þeim afleiðingum sem áframhaldandi hafnbann hefði á aðildarumsókn landsins. 8.11.2006 15:43
Segir Bandaríkjastjórn áfram stefna að öryggi í Írak Zalmey Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, fullvissaði í dag írakska stjórnmálamenn um að George Bush Bandaríkjaforseti stefndi áfram að því að tryggja öryggi í Írak og að hann myndi vinna með demókrötum að því markmiði. Þessi orð lét hann falla í kjölfar sigurs demókrata í kosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær, en kosningarnar þóttu um margt mælikvarði á stuðning Bandaríkjamanna við aðgerðirnar í Írak. 8.11.2006 15:37
14 mánaða fangelsi fyrir þjófnað og þjófnaðartilraunir Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi, þar af tólf mánuði skilorðsbundna, fyrir þjófnað og tvær tilraunir til þjófnaðar úr apótekum í borginni í sumar. 8.11.2006 15:22
Fjórir sækja um embætti skattrannsóknarstjóra Fjórir sóttu um embætti skattrannsóknarstjóra sem auglýst var laus á dögunum. Það eru Bryndís Kristjánsdóttir, forstöðumaður lögfræðisviðs embættis skattrannsóknarstjóra, Gísli H. Sverrisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri flutningadeildar varnarliðsins, Guðrún Björg Bragadóttir skattstjóri og og Guðrún Jenný Jónsdóttir, deildarstjóri úrskurðardeildar réttarsviðs ríkisskattstjóra. 8.11.2006 15:05
Þrennt hálshöggvið í Saudi-Arabíu Þrír Pakistanar, voru teknir af lífi í Saudi-Arabíu, í dag, fyrir smygl á fíkniefnum. Þetta voru tvær konur og einn karlmaður. Þau voru hálshöggvin á almannafæri. 8.11.2006 14:55
Fimm fyrirtæki styrkja UNICEF um 60 milljónir króna Fimm fyrirtæki munu á morgun skrifa undir þriggja ára styrktarsamning við UNICEF á Íslandi sem samtals hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrirtækin eru Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip og með samningnum styrkja þau stoðir Barnahjálparinnar á Íslandi og gera samtökunum kleift að auka fjáröflunarstarf sitt til muna, eins og segir í tilkynningu. 8.11.2006 14:55
Spennið beltin og kveikið ykkur í sígarettu "Við viljum minna farþega á að það er leyfilegt að reykja í þessu flugi". Þannig hljóðar kynningin hjá nýju þýsku flugfélagi, sem hefur fengið nafnið Smokers International Airways. 8.11.2006 14:40
Dæmdur fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa reynt að flytja inn tæp sjö hundruð grömm af kókaín til landsins í mars á þessu ári sem ætluð voru til söludreifingar. 8.11.2006 14:35
Baugur og félagar ljúka 77 milljarða króna yfirtöku á HOF Baugur og meðfjárfestar greiða samtals um 77 milljarða króna fyrir bresku verslunarkeðjuna House of Fraiser en yfirtöku á öllu hlutfé félagsins lauk í dag. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að tilboði upp á 148 pens á hlut hafi verið tekið í byrjun síðasta mánaðar en inni í heildarkaupverði er heildarfjármögnun skulda félagsins. 8.11.2006 14:11
Plastpokar bannaðir Zanzibar hefur bannað plastpoka, til þess að vernda umhverfið. Háar sektir, og jafnvel fangelsi, liggur við því að framleiða, flytja inn eða selja plastpoka. 8.11.2006 14:01
Múlagöng lokuð að mestu í kvöld og nótt Múlagöng verða lokuð fyrir allri umferð frá klukkan 21 í kvöld til 23.30 og svo aftur frá miðnætti og til sex í fyrramálið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 8.11.2006 13:58
Ráðherra sakaður um lygar í tengslum við Landsvirkjun Þingmenn úr stjórnarandstöðunni sökuðu Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra á Alþingi í dag um að segja ósatt í tengslum við áform ríkisstjórnarinnar um að gera Rarik og Orkubú Vestfjarða að dótturfélögum Landsvirkjunar. Ráðherra sakaði þingmennina hins vegar um orðbólgu í umræðunni. 8.11.2006 13:49
Rússar tvöfalda verð á gasi til Georgíu Forsætisráðherra Georgíu sakaði Rússa í dag um pólitíska kúgun, vegna ákvörðunar um að meira en tvöfalda verð á gasi sem Rússar selja til landsins. Slík hækkun myndi leggja efnahag Georgíu í rúst. 8.11.2006 13:31
Skipulag mæðraverndar breytist í mánuðinum Breyting verður á skipulagi mæðraverndar á höfuðborgarsvæðinu á næstunni vegna flutnings Miðstöðvar mæðraverndar úr Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg eftir sölu hússins. 8.11.2006 13:23
Michael Jackson snýr aftur á sviðið Michael Jackson mun snúa aftur og flytja lög af albúminu "Thriller" á tónlistarhátíð í Lundúnum um miðjan þennan mánuð. Jackson mun þar taka við viðurkenningu fyrir að hafa selt meira en eitthundrað milljón plötur á ferli sínum. 8.11.2006 13:23
Á ríflega tvöföldum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngum Nærri 160 ökumenn voru myndaðir vegna hraðaksturs í Hvalfjarðargöngunum um síðustu helgi samkvæmt lögreglunni í Reykjavík. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 kílómetrar á klukkustund en sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða sem er ríflega tvöfaldur hámarkshraði. Viðurlög fyrir slíkan ofsaakstur eru 70 þúsund króna sekt og ökuleyfissvipting til þriggja mánaða. 8.11.2006 13:05
Innflytjendur eru fólk, ekki vinnuafl Innflytjendur eru fólk, ekki vinnuafl, og þeir eru sárir eftir neikvæða umræðu í þeirra garð síðustu daga. Þetta segir Amal Tamimi, fræðslufulltrúi Alþjóðahúss. Á sama tíma fagna frjálslyndir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að takmarka komu innflytjenda frá Búlgaríu og Rúmeníu til Íslands þegar löndin ganga í Evrópusambandið um næstu áramót. 8.11.2006 13:00
Árni Páll kallaður aftur til skýrslutöku vegna hlerana Árni Páll Árnason lögmaður verður kallaður aftur í skýrslutöku hjá lögreglustjóranum á Akranesi eftir svarbréf utanríkisráðherra. Enginn er ennþá grunaður um símhleranirnar í utanríkisráðuneytinu en fyrsta áfanga rannsóknarinnar er lokið. 8.11.2006 12:30
Erfiður róður framundan hjá Bush Landslagið í bandarískum stjórnmálum er breytt eftir niðurstöður þingkosninga þar í gær. Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja ljóst að Bandaríkjaforseta muni reynast erfitt að koma stefnumálum sínum í gegnum þingið og staða hans verði allt önnur en síðustu sex árin. 8.11.2006 12:15
Þrír hafa slasast alvarlega í eldsvoðum að undanförnu Þrír hafa slasast alvarlega og liggja enn á gjörgæsludeildum og fjórir hafa sloppið naumlega úr fjórum eldsvoðum í heimahúsum á þremur sólarhringum. 8.11.2006 11:59
Kostnaður Hafró vegna hrefnuveiða um 220 milljónir fram til þessa Kostnaður Hafrannsóknastofnunar vegna hrefnuveiða á síðustu þremur árum er um 140 milljónir og stefnir í að verða um 79 milljónir á þessu ári. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar. 8.11.2006 11:55
Afkoma Pliva batnar milli ára Króatíska lyfjafyrirtækið Pliva skilaði 67,4 milljónum bandaríkjadölum í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta svarar til 4,6 milljarða íslenskra króna sem er talsverður viðsnúningur frá afkomu síðasta árs þegar fyrirtækið tapaði 34,1 milljón dal eða rúmlega 2,3 milljörðum króna. 8.11.2006 11:30
Staða ríkissjóðs styrkist Heildarskuldir ríkissjóðs hafa lækkað úr 46% af landsframleiðslu árið 1997 niður í um 17% á þessu ári. Þetta skýrist af því að ríkisreksturinn og einkavæðing hafa skilað drjúgum lánsfjárafgangi sem varið hefur verið að stórum hluta til að greiða niður skuldir ríkisins frá fyrri tíð, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins. 8.11.2006 11:30
Ekki ástæða til íhlutunar vegna kvörtunar Tax Free Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til íhlutunar vegna kvörturnar Tax Free á Íslandi vegna Global Refund á Íslandi. Bæði fyrirtæki endurgreiða virðisaukaskatt til erlendra ferðamanna hér á landi og kvartaði Tax Free árið 2003 yfir því að Global Refund misnotaði stöðu sína á markaði. Þetta kemur fram á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins. 8.11.2006 11:27
Hætti við lendingu í Kaupmannahöfn Flugvél frá Iceland Express varð að hætta við lendingu í Kaupmannahöfn, í morgun, vegna þess að önnur flugvél var á brautinni sem hún var að lenda á. 8.11.2006 11:25
Eldur kviknaði í fjölbýli í Breiðholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi við Ferjubakkann nú á ellefta tímanum. Búið er að slökkva eldinn og er verið að reykræsta. Tveir einstaklingar voru inni í íbúðinni þegar eldsins varð vart en ekki er vitað um líðan þeirra á þessari stundu. 7.11.2006 22:34
Rannsaka sjö kynferðisbrotamál Lögreglan á Akureyri rannsakar nú sjö mál sem snúa að meintum kynferðisafbrotum. Óvíst er í sumum tilfellum hvort rannsóknin leiðir til sakamála en málin eru ólík og tengjast ekki innbyrðis. 7.11.2006 21:55
Fleiri miðaldra karlmenn drekka sig til dauða Fjöldi þeirra miðaldra karlmanna sem drekka sig til dauða hefur meira en tvöfaldast frá árinu 1991. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Bretlands birti í dag. Aukning á dauðsföllum tengdum áfengisdrykkju hefur orðið hvað mest í hópi karlmanna á aldrinum 35 ára til 54 ára. 7.11.2006 21:28
Á þriðja tug hafa látist í sprengingum í Írak í dag Sautján týndu lífi og að tuttugu slösuðust þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á kaffihúsi í Bagdad fyrr í kvöld. Að minnsta kosti tuttugu og tveir hafa látist í sprengingum í Írak í dag. 7.11.2006 21:19