Fleiri fréttir Spá hruni flestra fiskistofna innan 50 ára Hópur erlendra sérfræðinga spáir því að allir fiskistofnar heimsins hrynji innan fimmtíu ára verði ekkert að gert. Þeir segja að nú þegar hafi um 30 prósent nytjastofna hafsins hrunið. Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir enga vá blasa við íslenskum fiskistofnum en auka verði skipulagða fiskveiðistjórnun í heiminum. 3.11.2006 17:55 300 milljón króna niðurskurður til verknáms Þingmenn stjórnarandstöðunnar saka stjórnarmeirihlutann um að svelta iðnnám í landinu með 300 milljón króna niðurskurði í fjárlögum næsta árs. Stjórnarþingmenn segja unnið að leiðréttingu málsins í sátt og segja stjórnarandstöðuna með upphlaup að óþörfu. 3.11.2006 17:50 Lögreglan varar við gylliboðum um vel launuð sölustörf Ríkislögreglustjóri varar við gylliboðum um atvinnu sem auglýst eru víða á netsíðum um þessar mundir. Fólk sem telur sig vera að ráða sig til markaðsverkefna eða sölustarfa hefur setið eftir með sárt ennið þegar upp kemst að bankareikningar þeirra voru notaðir til peningaþvættis og auðgunarbrota. Grandalaust fólk situr uppi með reikninginn. 3.11.2006 17:28 Lögregla lýsir eftir karlmanni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Kristófer Erni Sigurðarsyni til heimilis að Logafold 141 í Reykjavík. Hann er um 185 sm á hæð með stutt, skolleitt hár. Kristófer var klæddur í bláar gallabuxur, ljósbláa rúllukragapeysu, svartan teinóttan jakka og svört kúrekastígvél. 3.11.2006 17:25 Skákmaraþon Hrafns gengur vel Hrafn Jökulsson, formaður skákfélagsins Hróksins, hefur nú teflt 70 skákir í skákmaraþoni sínu sem fram fer í Kringlunni. Hrafn hóf maraþonið klukkan níu í morgun og hyggst tefla í 40 klukkustundir eða eins langan tíma og það tekur að tefla 250 skákir. Með þessu er hann að safna fé fyrir starfi Hróksins á Grænlandi og hefur sparibauk verið komið fyrir í Kringlunni. 3.11.2006 17:14 Dómur kveðinn upp yfir Hussein á sunnudag Búist er við því að dómur verði kveðinn upp á sunnudag yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnum hans vegna morðs á nærri 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Fólkið lét hann drepa eftir að reynt var að ráða hann af dögum í bænum. Fari svo að hann verði sakfelldur má búast við því að hans bíði dauðadómur sem framfylgt verður með hengingu. 3.11.2006 17:05 Reiði vegna myndbands úr brúðkaupi Tíu mínútna myndband úr giftingarveislu sem Than Shwe, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Maynmar, eða Burma, hélt dóttur sinni í sumar veldur mikilli reiði og fordæmingu meðal íbúa Burma eftir að myndbandið fór í sýningu á Netinu. Mayanmar er eitt af fátækari ríkjum heims. 3.11.2006 16:48 Finnskir ritstjórar ákærðir vegna hatursbréfs um Gyðinga Finnski ríkissaksóknarinnhefur lagt fram kærur á hendur ritstjórum tveggja dagblaða fyrir að birta lesendabréf þar sem hvatt var til ofbeldisverka gegn Gyðingum og lýst velþóknun á helför nasista. 3.11.2006 16:33 Ferðastyrkur framvegis til tveggja fylgdarmanna barna Ferðastyrkur verður framvegis greiddur fyrir tvo fylgdarmenn en ekki einn þegar barn er sent utan í sjúkdómsmeðferð eftir breytingar á reglugerð sem Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra undirritaði í dag. Um leið kynnti ráðherrann breytingarnar fyrir fulltrúum Sjónarhóls og Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. 3.11.2006 16:23 Óttast að hundruð þúsunda flýi heimili sín í Írak Um fimmtíu þúsund Írakar flýja heimili sín í hverjum mánuði og búast má við að hundruð þúsunda muni gera það á næstunni vegna viðvarandi óstöðuleika í landinu. Þetta er mat flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. 3.11.2006 16:15 Fyrir rétti vegna hvatningar til morða Breskur múslimi, kom fyrir dómara í dag, sakaður um að hafa hvatt til morða, í mótmælastöðu fyrir utan danska sendiráðið í Lundúnum, í Febrúar. 3.11.2006 16:02 Kynnir uppbyggingu hjúkrunarrýma eftir kjördæmisþing Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnir á morgun uppbyggingu hjúkrunarrýma á næstu fjórum árum á blaðamannafundi í Félagsheimili Seltjarnarness klukkan 14. Fyrr um daginn heldur Framsóknarflokkurinn aukakjördæmisþing á sama stað þar sem líklegt er að framsóknarmenn stilli Siv upp til forystu á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. 3.11.2006 15:52 Tundurdufl í trolli togara gert óvirkt Sprengjusérfræðingar Landhelgisgælsunnar hafa gert tundurdufl sem fyrstitogarinn Kleifarberg frá Ólafsfirði fékk í trollið í nótt óvirkt. Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að tundurduflið hafi komið í trollið hjá Kleifarberginu þegar togarinn var staddur um 40 sjómílur norður af Straumnesi um klukkan fjögur í nótt. 3.11.2006 15:30 Vægi Íslands eykst í Norðurlandaráði Norðurlandaráð og Vestnorræna ráðið ætla í sameiningu að gera Norðurskautssvæðið og Vestur-Norðurlönd að sýningarglugga, til að vekja athygli á loftslagsbreytingum. 3.11.2006 15:29 Fjölmiðlafrumvarpi vísað til annarrar umræðu Fyrstu umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra lauk á Alþingi um klukkan tvö í dag. Samþykkt var að vísa því til annarrar umræðu og menntamálanefndar með 32 samhljóða atkvæðum en 31 þingmaður var fjarstadddur. 3.11.2006 15:20 Sameiginleg kynning á norrænum mat Norræn matvæli verða í sviðsljósinu í verkefni sem Norræna ráðherranefndin er að hleypa af stokkunum. Markmiðið er að breiða út þekkingu á hráefnum og tilbúnum matvælum frá Norðurlöndum á matar- og ferðaþjónustumarkaði. 3.11.2006 15:20 Níu mánaða fangelsi fyrir þjófnað Kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir þjófnað í heimahúsi, en með brotinu rauf hún skilorð. Konan var ákærð bæði fyrir þjófnað í verslun Europris í Reykjavík i nóvember í fyrra og fyrir að hafa farið inn hús í miðbænum á Þorláksmessu í fyrra og reynt að hafa þaðan á brott fatnað, matvæli og jólagjafir: 3.11.2006 15:00 Nýr yfirmaður skipulagsmála Reykjavíkur Birgir Hlynur Sigurðsson skipulagsfræðingur, hefur verið ráðinn sviðsstjóri Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar. Birgir Hlynur hefur verið skipulagsstjóri Kópavogsbæjar allar götur frá haustinu 1988. Hann hóf störf þann 6. október sl. Hann er landfræðingur og skipulagsfræðingur að mennt með masterspróf í byggða- og borgarskipulagi frá The University of Liverpool. Áður var hann deildarstjóri á borgarskipulagi Reykjavíkurborgar, 1985 til 1988. 3.11.2006 14:43 Lögreglan handtók bjórsölumenn á Lækjartorgi 3.11.2006 14:43 Dómur yfir Saddam á sunnudag Búist er við að dómur verði kveðinn upp yfir Saddam Hussein og sjö meðreiðarsveinum hans á sunnudag, í einum af mörgum ákæruliðum sem þeir verða að svara fyrir. Krafist er dauðadóms yfir forsetanum fyrrverandi. 3.11.2006 14:37 Þróunarlönd aðstoðuð á sviði landgræðslu og jarðvegsverndar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að stofna til þróunarverkefnis á sviði jarðvegsbóta og aðstoða þannig þróunarlönd á sviði landgræðslu og jarðvegsverndar. 3.11.2006 14:29 Auglýst eftir forstöðumanni Listasafns Íslands 3.11.2006 14:18 Saka arabíska vígamenn um morð á börnum í Darfur Friðargæsluliðar á vegum Afríkubandalagsins í Darfur-héraði í Súdan saka arabíska vígamenn úr svokölluðum Janjawwed-sveitum um að hafa drepið að minnsta kosti 63 borgara í árásum í liðinni viku. Þar af sé tæpur helmingur börn undir tólf ára aldri. 3.11.2006 14:09 Danski umboðsmaðurinn krefur forsætisráðherra um svör Umboðsmaður danska þingsins hefur fært Ekstra blaðinu danska nokkurn sigur í baráttu þess við forsætis og utanríkisráðherra landsins. 3.11.2006 13:54 Osta- og smjörsalan áfrýjar úrskurði Samkeppniseftirlitsins Osta- og smjörsalan hefur ákveðið að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins frá því um miðjan október þess efnis að fyrirtækið hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að láta Mjólku greiða hærra verð fyrir undanrennuduft en annan viðskiptavin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Osta- og smjörsölunni. 3.11.2006 13:51 Gjald í Framkvæmdasjóð aldraða hækki um tæp fjögur prósent Heibrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra úr 6.075 krónum í 6.314. Hækkunin nemur um fjórum prósentum og segir í athugasemdum með frumvarpinu að hún sé vegna verðlagsbreytinga á tímabilinu desember 2004 til desember í fyrra, en þá hafi byggingarvísitalan hækkað um tæp fjögur prósent. 3.11.2006 13:45 Rændi gínu til að bæta fyrir kvenmannsleysi Þau eru misjöfn verkefnin sem lögregla fæst við og þeir þjófar sem hún hefur afskipti af misörvæntingarfullir. Þannig var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn í gær eftir að hann hafði haft gínu úr verslun á brott með sér. 3.11.2006 13:26 Fékk tundurdufl í trollið Sprengjusérfræðingar hjá Landhelgisgæslunni kanna nú tundurdufl sem togarinn Kleifarberg frá Ólafsfirði fékk í trollið hjá sér í nótt. Þá var skipið að veiðum á Vestfjarðamiðum og var veiðum hætt í kjölfarið enda vildu skipverjar fara að öllu með gát. 3.11.2006 13:18 Water for Africa 3.11.2006 13:16 Yfir 120 óku of hratt á gatnamótum Ríflega 120 ökumenn sem fóru um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar eiga yfir höfði sér sektir vegna hraðakstursbrota sem náðust á löggæslumyndavél þar á síðasta sólarhring. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að meðalhraði hinna brotlegu hafi verið um 82 kílómetrar á klukkustund en sá sem hraðast ók mældist á 115. Það telst vera ofsaakstur þar sem hámarkshraði á þessum fjölförnustu gatnamótum borgarinnar er 60 kílómetrar á klukkustund. 3.11.2006 13:15 National Power Company sale criticized 3.11.2006 13:10 Skotið á mosku Minnst tvær palestínskar konur féllu og sex særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í morgun. 60 palestínskir byssumenn höfðu leitað þar skjóls og konurnar höfðu tekið sér stöðu milli moskunnar og hermannanna. 3.11.2006 13:00 Slagsmál í flugstöðinni í Eyjum 3.11.2006 12:47 Bechtel kallar starfsmenn heim frá Írak Bandaríska verktakafyrirtækið Bechtel hefur ákveðið að kalla alla starfsmenn sína heim frá Írak. Fyrirtækið, sem er að reisa álver í Reyðarfirði fyrir Fjarðaál, hefur einnig tekið þátt í endurbyggingu í Írak. Rúmlega fimmtíu starfsmenn fyrirtækisins hafa týnt lífi þar. 3.11.2006 12:45 Hrefnuveiðimenn halda sínu striki Hrefnuveiðimenn ætla að halda sínu striki þótt Hvalur 9 sé hættur veiðum og skilji tvö dýr eftir af kvótanum. 3.11.2006 12:30 Bók um smábörn sögð lífshættuleg Margir sérfræðingar, á Norðurlöndunum, vara eindregið við sænskri bók um barnauppeldi, sem þeir segja að sé beinlínis lífshættuleg börnum. Höfundurinn er Anna Wahlgren, sem sjálf er ellefu barna móðir. 3.11.2006 12:25 Danskur lögfræðingur og rússneskur ráðherra í umfjöllun Ekstra Bladet Hjálparhella íslenskra kaupsýslumanna í Danmörku, danski lögmaðurinn Jeff Galmond, og rússneski fjarskiptaráðherrann eru í aðalhlutverki fréttaskýringar Ekstra-blaðsins danska í dag um íslensku útrásina. 3.11.2006 12:21 Ungir ökumenn fái aðeins kraftlitla bíla Nýir ökumenn fá einungis að aka kraftminni bifreiðum á ákveðnum tímum sólarhrings, flytja takmarkaðan fjölda farþega yngri en 20 ára og ökutæki þeirra gætu verið gerð upptæk. Þetta kemur fram í nýjum drögum að frumvarpi samgönguráðuherra um breytingar á umferðarlögum. Þá þarf ökumaður með fjóra refsipunkta að taka námskeið og bílpróf upp á nýtt. 3.11.2006 12:15 Ferjuhöfn á Bakkafjöru óhugsandi nema sandfok sé heft Landgræðslan segir, að ferjuhöfn fyrir Vestmannaeyjar í Bakkafjöru á Landeyjasandi sé óhugsandi nema það takist að hefta sandfok í nágrenninu. Stýrihópur vegna forhönnunar nýrrar ferjuhafnar hefur snúið sér til Landgræðslunnar til að fá áætlun um nauðsynlega uppgræðslu lands vegna umferðar að og frá höfninni. Sandbyljir eru afar tíðir þarna og Landgræðslan segir ljóst, að hefting sandfoks þar sé sé stórt og erfitt verkefni, en alls ekki óframkvæmanlegt. 3.11.2006 12:05 Hafa efasemdir um spár um hrun í dýraríki sjávar Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti að spilla umhverfi og lífríki sjávar, segja erlendir vísindamenn. Íslenskir útvegsmenn og fiskifræðingar eru ekki alveg eins vissir. 3.11.2006 12:03 Um 450 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri í Suðurkjördæmi 457 höfðu kosið utan kjörfundar í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi nú á hádegi en prófkjörið fer fram á morgun. Kosið hefur verið utan kjörfundar á skrifstofu flokksins í Reykjavík, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Hornafirði og í Vestamannaeyjum. 3.11.2006 11:59 Slökkviliðið á Akureyri fær viðurkenningu Tryggingafélagði Vörður veitti slökikviliðsmönnum á Akureyri viðurkenningu fyrir að hafa bjarða mannslífum í bruna að Fjólugötu 18 á Akureyri í apríl síðastliðnum. 3.11.2006 11:51 Fyrsta skautamótið um helgina Keppnistímabilið í listdansi á skautum hefst um helgina með haustmóti í Skautahöllinni í Laugardal. Á mótinu spreyta sig um 80 keppendur á aldrinum 7-19 ára. Að sögn Íslenska skautasambandsins er mikill uppgangur í íþróttinni og er fólk hvatt til að koma og fylgjast með, aðgangur er ókeypis. 2.11.2006 23:05 Öryggisráðið klofið vegna Hariri-málsins Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til sérstaks dómstóls sem skal rétta í máli sakborninga fyrir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Bandaríkin styðja tillöguna enda er ríkisstjórn Líbanons undir verndarvæng Bandaríkjanna. Rússar draga hins vegar taum Sýrlendinga, sem almannarómur sakar um að hafa skipulagt morðið. 2.11.2006 22:35 Tvær konur á slysadeild eftir árekstur fólksbíls og strætisvagns Tvær konur voru fluttar á slysadeild eftir töluvert harðan árekstur strætisvagns og fólksbíls á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnasala um 6-leytið í kvöld. Fólksbíllinn var mikið klesstur og þurftu slökkviliðsmenn að beita klippum til að ná ökumanni hans út. Hann var fluttur á slysadeild sem og farþegi í fólksbílnum. Sjö manns sem voru í strætisvagninum sluppu ómeiddir. 2.11.2006 22:05 Sjá næstu 50 fréttir
Spá hruni flestra fiskistofna innan 50 ára Hópur erlendra sérfræðinga spáir því að allir fiskistofnar heimsins hrynji innan fimmtíu ára verði ekkert að gert. Þeir segja að nú þegar hafi um 30 prósent nytjastofna hafsins hrunið. Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir enga vá blasa við íslenskum fiskistofnum en auka verði skipulagða fiskveiðistjórnun í heiminum. 3.11.2006 17:55
300 milljón króna niðurskurður til verknáms Þingmenn stjórnarandstöðunnar saka stjórnarmeirihlutann um að svelta iðnnám í landinu með 300 milljón króna niðurskurði í fjárlögum næsta árs. Stjórnarþingmenn segja unnið að leiðréttingu málsins í sátt og segja stjórnarandstöðuna með upphlaup að óþörfu. 3.11.2006 17:50
Lögreglan varar við gylliboðum um vel launuð sölustörf Ríkislögreglustjóri varar við gylliboðum um atvinnu sem auglýst eru víða á netsíðum um þessar mundir. Fólk sem telur sig vera að ráða sig til markaðsverkefna eða sölustarfa hefur setið eftir með sárt ennið þegar upp kemst að bankareikningar þeirra voru notaðir til peningaþvættis og auðgunarbrota. Grandalaust fólk situr uppi með reikninginn. 3.11.2006 17:28
Lögregla lýsir eftir karlmanni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Kristófer Erni Sigurðarsyni til heimilis að Logafold 141 í Reykjavík. Hann er um 185 sm á hæð með stutt, skolleitt hár. Kristófer var klæddur í bláar gallabuxur, ljósbláa rúllukragapeysu, svartan teinóttan jakka og svört kúrekastígvél. 3.11.2006 17:25
Skákmaraþon Hrafns gengur vel Hrafn Jökulsson, formaður skákfélagsins Hróksins, hefur nú teflt 70 skákir í skákmaraþoni sínu sem fram fer í Kringlunni. Hrafn hóf maraþonið klukkan níu í morgun og hyggst tefla í 40 klukkustundir eða eins langan tíma og það tekur að tefla 250 skákir. Með þessu er hann að safna fé fyrir starfi Hróksins á Grænlandi og hefur sparibauk verið komið fyrir í Kringlunni. 3.11.2006 17:14
Dómur kveðinn upp yfir Hussein á sunnudag Búist er við því að dómur verði kveðinn upp á sunnudag yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnum hans vegna morðs á nærri 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Fólkið lét hann drepa eftir að reynt var að ráða hann af dögum í bænum. Fari svo að hann verði sakfelldur má búast við því að hans bíði dauðadómur sem framfylgt verður með hengingu. 3.11.2006 17:05
Reiði vegna myndbands úr brúðkaupi Tíu mínútna myndband úr giftingarveislu sem Than Shwe, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Maynmar, eða Burma, hélt dóttur sinni í sumar veldur mikilli reiði og fordæmingu meðal íbúa Burma eftir að myndbandið fór í sýningu á Netinu. Mayanmar er eitt af fátækari ríkjum heims. 3.11.2006 16:48
Finnskir ritstjórar ákærðir vegna hatursbréfs um Gyðinga Finnski ríkissaksóknarinnhefur lagt fram kærur á hendur ritstjórum tveggja dagblaða fyrir að birta lesendabréf þar sem hvatt var til ofbeldisverka gegn Gyðingum og lýst velþóknun á helför nasista. 3.11.2006 16:33
Ferðastyrkur framvegis til tveggja fylgdarmanna barna Ferðastyrkur verður framvegis greiddur fyrir tvo fylgdarmenn en ekki einn þegar barn er sent utan í sjúkdómsmeðferð eftir breytingar á reglugerð sem Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra undirritaði í dag. Um leið kynnti ráðherrann breytingarnar fyrir fulltrúum Sjónarhóls og Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. 3.11.2006 16:23
Óttast að hundruð þúsunda flýi heimili sín í Írak Um fimmtíu þúsund Írakar flýja heimili sín í hverjum mánuði og búast má við að hundruð þúsunda muni gera það á næstunni vegna viðvarandi óstöðuleika í landinu. Þetta er mat flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. 3.11.2006 16:15
Fyrir rétti vegna hvatningar til morða Breskur múslimi, kom fyrir dómara í dag, sakaður um að hafa hvatt til morða, í mótmælastöðu fyrir utan danska sendiráðið í Lundúnum, í Febrúar. 3.11.2006 16:02
Kynnir uppbyggingu hjúkrunarrýma eftir kjördæmisþing Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnir á morgun uppbyggingu hjúkrunarrýma á næstu fjórum árum á blaðamannafundi í Félagsheimili Seltjarnarness klukkan 14. Fyrr um daginn heldur Framsóknarflokkurinn aukakjördæmisþing á sama stað þar sem líklegt er að framsóknarmenn stilli Siv upp til forystu á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. 3.11.2006 15:52
Tundurdufl í trolli togara gert óvirkt Sprengjusérfræðingar Landhelgisgælsunnar hafa gert tundurdufl sem fyrstitogarinn Kleifarberg frá Ólafsfirði fékk í trollið í nótt óvirkt. Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að tundurduflið hafi komið í trollið hjá Kleifarberginu þegar togarinn var staddur um 40 sjómílur norður af Straumnesi um klukkan fjögur í nótt. 3.11.2006 15:30
Vægi Íslands eykst í Norðurlandaráði Norðurlandaráð og Vestnorræna ráðið ætla í sameiningu að gera Norðurskautssvæðið og Vestur-Norðurlönd að sýningarglugga, til að vekja athygli á loftslagsbreytingum. 3.11.2006 15:29
Fjölmiðlafrumvarpi vísað til annarrar umræðu Fyrstu umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra lauk á Alþingi um klukkan tvö í dag. Samþykkt var að vísa því til annarrar umræðu og menntamálanefndar með 32 samhljóða atkvæðum en 31 þingmaður var fjarstadddur. 3.11.2006 15:20
Sameiginleg kynning á norrænum mat Norræn matvæli verða í sviðsljósinu í verkefni sem Norræna ráðherranefndin er að hleypa af stokkunum. Markmiðið er að breiða út þekkingu á hráefnum og tilbúnum matvælum frá Norðurlöndum á matar- og ferðaþjónustumarkaði. 3.11.2006 15:20
Níu mánaða fangelsi fyrir þjófnað Kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir þjófnað í heimahúsi, en með brotinu rauf hún skilorð. Konan var ákærð bæði fyrir þjófnað í verslun Europris í Reykjavík i nóvember í fyrra og fyrir að hafa farið inn hús í miðbænum á Þorláksmessu í fyrra og reynt að hafa þaðan á brott fatnað, matvæli og jólagjafir: 3.11.2006 15:00
Nýr yfirmaður skipulagsmála Reykjavíkur Birgir Hlynur Sigurðsson skipulagsfræðingur, hefur verið ráðinn sviðsstjóri Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar. Birgir Hlynur hefur verið skipulagsstjóri Kópavogsbæjar allar götur frá haustinu 1988. Hann hóf störf þann 6. október sl. Hann er landfræðingur og skipulagsfræðingur að mennt með masterspróf í byggða- og borgarskipulagi frá The University of Liverpool. Áður var hann deildarstjóri á borgarskipulagi Reykjavíkurborgar, 1985 til 1988. 3.11.2006 14:43
Dómur yfir Saddam á sunnudag Búist er við að dómur verði kveðinn upp yfir Saddam Hussein og sjö meðreiðarsveinum hans á sunnudag, í einum af mörgum ákæruliðum sem þeir verða að svara fyrir. Krafist er dauðadóms yfir forsetanum fyrrverandi. 3.11.2006 14:37
Þróunarlönd aðstoðuð á sviði landgræðslu og jarðvegsverndar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að stofna til þróunarverkefnis á sviði jarðvegsbóta og aðstoða þannig þróunarlönd á sviði landgræðslu og jarðvegsverndar. 3.11.2006 14:29
Saka arabíska vígamenn um morð á börnum í Darfur Friðargæsluliðar á vegum Afríkubandalagsins í Darfur-héraði í Súdan saka arabíska vígamenn úr svokölluðum Janjawwed-sveitum um að hafa drepið að minnsta kosti 63 borgara í árásum í liðinni viku. Þar af sé tæpur helmingur börn undir tólf ára aldri. 3.11.2006 14:09
Danski umboðsmaðurinn krefur forsætisráðherra um svör Umboðsmaður danska þingsins hefur fært Ekstra blaðinu danska nokkurn sigur í baráttu þess við forsætis og utanríkisráðherra landsins. 3.11.2006 13:54
Osta- og smjörsalan áfrýjar úrskurði Samkeppniseftirlitsins Osta- og smjörsalan hefur ákveðið að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins frá því um miðjan október þess efnis að fyrirtækið hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að láta Mjólku greiða hærra verð fyrir undanrennuduft en annan viðskiptavin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Osta- og smjörsölunni. 3.11.2006 13:51
Gjald í Framkvæmdasjóð aldraða hækki um tæp fjögur prósent Heibrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra úr 6.075 krónum í 6.314. Hækkunin nemur um fjórum prósentum og segir í athugasemdum með frumvarpinu að hún sé vegna verðlagsbreytinga á tímabilinu desember 2004 til desember í fyrra, en þá hafi byggingarvísitalan hækkað um tæp fjögur prósent. 3.11.2006 13:45
Rændi gínu til að bæta fyrir kvenmannsleysi Þau eru misjöfn verkefnin sem lögregla fæst við og þeir þjófar sem hún hefur afskipti af misörvæntingarfullir. Þannig var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn í gær eftir að hann hafði haft gínu úr verslun á brott með sér. 3.11.2006 13:26
Fékk tundurdufl í trollið Sprengjusérfræðingar hjá Landhelgisgæslunni kanna nú tundurdufl sem togarinn Kleifarberg frá Ólafsfirði fékk í trollið hjá sér í nótt. Þá var skipið að veiðum á Vestfjarðamiðum og var veiðum hætt í kjölfarið enda vildu skipverjar fara að öllu með gát. 3.11.2006 13:18
Yfir 120 óku of hratt á gatnamótum Ríflega 120 ökumenn sem fóru um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar eiga yfir höfði sér sektir vegna hraðakstursbrota sem náðust á löggæslumyndavél þar á síðasta sólarhring. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að meðalhraði hinna brotlegu hafi verið um 82 kílómetrar á klukkustund en sá sem hraðast ók mældist á 115. Það telst vera ofsaakstur þar sem hámarkshraði á þessum fjölförnustu gatnamótum borgarinnar er 60 kílómetrar á klukkustund. 3.11.2006 13:15
Skotið á mosku Minnst tvær palestínskar konur féllu og sex særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í morgun. 60 palestínskir byssumenn höfðu leitað þar skjóls og konurnar höfðu tekið sér stöðu milli moskunnar og hermannanna. 3.11.2006 13:00
Bechtel kallar starfsmenn heim frá Írak Bandaríska verktakafyrirtækið Bechtel hefur ákveðið að kalla alla starfsmenn sína heim frá Írak. Fyrirtækið, sem er að reisa álver í Reyðarfirði fyrir Fjarðaál, hefur einnig tekið þátt í endurbyggingu í Írak. Rúmlega fimmtíu starfsmenn fyrirtækisins hafa týnt lífi þar. 3.11.2006 12:45
Hrefnuveiðimenn halda sínu striki Hrefnuveiðimenn ætla að halda sínu striki þótt Hvalur 9 sé hættur veiðum og skilji tvö dýr eftir af kvótanum. 3.11.2006 12:30
Bók um smábörn sögð lífshættuleg Margir sérfræðingar, á Norðurlöndunum, vara eindregið við sænskri bók um barnauppeldi, sem þeir segja að sé beinlínis lífshættuleg börnum. Höfundurinn er Anna Wahlgren, sem sjálf er ellefu barna móðir. 3.11.2006 12:25
Danskur lögfræðingur og rússneskur ráðherra í umfjöllun Ekstra Bladet Hjálparhella íslenskra kaupsýslumanna í Danmörku, danski lögmaðurinn Jeff Galmond, og rússneski fjarskiptaráðherrann eru í aðalhlutverki fréttaskýringar Ekstra-blaðsins danska í dag um íslensku útrásina. 3.11.2006 12:21
Ungir ökumenn fái aðeins kraftlitla bíla Nýir ökumenn fá einungis að aka kraftminni bifreiðum á ákveðnum tímum sólarhrings, flytja takmarkaðan fjölda farþega yngri en 20 ára og ökutæki þeirra gætu verið gerð upptæk. Þetta kemur fram í nýjum drögum að frumvarpi samgönguráðuherra um breytingar á umferðarlögum. Þá þarf ökumaður með fjóra refsipunkta að taka námskeið og bílpróf upp á nýtt. 3.11.2006 12:15
Ferjuhöfn á Bakkafjöru óhugsandi nema sandfok sé heft Landgræðslan segir, að ferjuhöfn fyrir Vestmannaeyjar í Bakkafjöru á Landeyjasandi sé óhugsandi nema það takist að hefta sandfok í nágrenninu. Stýrihópur vegna forhönnunar nýrrar ferjuhafnar hefur snúið sér til Landgræðslunnar til að fá áætlun um nauðsynlega uppgræðslu lands vegna umferðar að og frá höfninni. Sandbyljir eru afar tíðir þarna og Landgræðslan segir ljóst, að hefting sandfoks þar sé sé stórt og erfitt verkefni, en alls ekki óframkvæmanlegt. 3.11.2006 12:05
Hafa efasemdir um spár um hrun í dýraríki sjávar Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti að spilla umhverfi og lífríki sjávar, segja erlendir vísindamenn. Íslenskir útvegsmenn og fiskifræðingar eru ekki alveg eins vissir. 3.11.2006 12:03
Um 450 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri í Suðurkjördæmi 457 höfðu kosið utan kjörfundar í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi nú á hádegi en prófkjörið fer fram á morgun. Kosið hefur verið utan kjörfundar á skrifstofu flokksins í Reykjavík, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Hornafirði og í Vestamannaeyjum. 3.11.2006 11:59
Slökkviliðið á Akureyri fær viðurkenningu Tryggingafélagði Vörður veitti slökikviliðsmönnum á Akureyri viðurkenningu fyrir að hafa bjarða mannslífum í bruna að Fjólugötu 18 á Akureyri í apríl síðastliðnum. 3.11.2006 11:51
Fyrsta skautamótið um helgina Keppnistímabilið í listdansi á skautum hefst um helgina með haustmóti í Skautahöllinni í Laugardal. Á mótinu spreyta sig um 80 keppendur á aldrinum 7-19 ára. Að sögn Íslenska skautasambandsins er mikill uppgangur í íþróttinni og er fólk hvatt til að koma og fylgjast með, aðgangur er ókeypis. 2.11.2006 23:05
Öryggisráðið klofið vegna Hariri-málsins Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til sérstaks dómstóls sem skal rétta í máli sakborninga fyrir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Bandaríkin styðja tillöguna enda er ríkisstjórn Líbanons undir verndarvæng Bandaríkjanna. Rússar draga hins vegar taum Sýrlendinga, sem almannarómur sakar um að hafa skipulagt morðið. 2.11.2006 22:35
Tvær konur á slysadeild eftir árekstur fólksbíls og strætisvagns Tvær konur voru fluttar á slysadeild eftir töluvert harðan árekstur strætisvagns og fólksbíls á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnasala um 6-leytið í kvöld. Fólksbíllinn var mikið klesstur og þurftu slökkviliðsmenn að beita klippum til að ná ökumanni hans út. Hann var fluttur á slysadeild sem og farþegi í fólksbílnum. Sjö manns sem voru í strætisvagninum sluppu ómeiddir. 2.11.2006 22:05