Innlent

Rændi gínu til að bæta fyrir kvenmannsleysi

Þau eru misjöfn verkefnin sem lögregla fæst við og þeir þjófar sem hún hefur afskipti af misörvæntingarfullir. Þannig var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn í gær eftir að hann hafði haft gínu úr verslun á brott með sér.

Auk hennar fannst nokkuð af öðrum varningi í fórum mannsins sem hann átti erfitt með að gera grein fyrir en þegar hann var inntur eftir því hvers vegna hann hefði numið gínuna á brott sagðist hann einfaldlega vera kvenmannslauns og átti gínan að vera lausn við þeim vanda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×