Fleiri fréttir Afgreiðsla Icelandair flutt til á Heathrow í lok október Afgreiðsla Icelandair á Heathrow-flugvelli í Lundúnum færist frá flugstöðvarbyggingu tvö til byggingar eitt í lok október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 28.9.2006 11:15 Kynna drög að samningu um útvarpsþjónustu í almannaþágu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri hafa boða til blaðamannafundar nú klukkan tólf þar sem kynnt verða drög að samningi ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Greint verður frekar frá fundinum á Vísi síðar í dag. 28.9.2006 10:51 Jafet selur fjórðungshlut sinn í VSB Jafet S. Ólafsson, framkvæmdatjóri VBS fjárfestingabanka, hefur selt tæplega fjórðungshlut sinn í bankanum og á tvö prósent eftir söluna. Kaupandi er fjárfestingafélagið FSP, sem er í eigu tuttugu sparisjóða og Sparisjóðabanka Íslands. 28.9.2006 10:47 Verða að störfum við Hellisheiðarvirkjun fram eftir degi Starfmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins verða að störfum í Hellisheiðarvirkjun fram eftir degi en þangað voru þeir kallaðir laust eftir klukkan þrjú nótt eftir að um það bil eitt tonn af baneitraðri saltpéturssýru lak úr gaslögn við suðuhreinsun í virkjuninni. 28.9.2006 10:37 Fráfarandi forsætisráðherra Japans boðið til Taívans Forseti Taívans hefur boðið Junichiro Koizumi, sem lét af embætti forsætisráðherra Japans í vikunni, í opinbera heimsókn til eylandsins. Þiggi hann boðið reiðast kínversk yfirvöld, sem þegar hafa varað Japani við því að hafa of mikil samskipti við taívönsk stjórnvöld. 28.9.2006 10:30 Vill óháða rannsóknarnefnd vegna leyniþjónustustarfsemi Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vill að skipuð verði óháð rannsóknarnefnd til að kanna umfang leyniþjónustustarfsemi hér á tímum kalda stríðsins. Kemur sú krafa í framhaldi af uppljóstrunum Þórs Whitehead sagnfræðings sem greindi frá í því í grein í ritinu Þjóðmál að slík starfsemi hefði verið á vegum stjórnvalda á tímabilinu. 28.9.2006 10:30 Viðskiptahalli 11,6 milljarðar í ágúst Viðskiptahallinn við útlönd í ágústmánuði nam 11,6 milljörðum króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fluttar voru út vörur fyrirr 16,6 milljarða króna og inn fyrir 28,2 milljarða króna. 28.9.2006 10:15 Reiðir út af heimboði 28.9.2006 10:08
Sjá næstu 50 fréttir
Afgreiðsla Icelandair flutt til á Heathrow í lok október Afgreiðsla Icelandair á Heathrow-flugvelli í Lundúnum færist frá flugstöðvarbyggingu tvö til byggingar eitt í lok október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 28.9.2006 11:15
Kynna drög að samningu um útvarpsþjónustu í almannaþágu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri hafa boða til blaðamannafundar nú klukkan tólf þar sem kynnt verða drög að samningi ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Greint verður frekar frá fundinum á Vísi síðar í dag. 28.9.2006 10:51
Jafet selur fjórðungshlut sinn í VSB Jafet S. Ólafsson, framkvæmdatjóri VBS fjárfestingabanka, hefur selt tæplega fjórðungshlut sinn í bankanum og á tvö prósent eftir söluna. Kaupandi er fjárfestingafélagið FSP, sem er í eigu tuttugu sparisjóða og Sparisjóðabanka Íslands. 28.9.2006 10:47
Verða að störfum við Hellisheiðarvirkjun fram eftir degi Starfmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins verða að störfum í Hellisheiðarvirkjun fram eftir degi en þangað voru þeir kallaðir laust eftir klukkan þrjú nótt eftir að um það bil eitt tonn af baneitraðri saltpéturssýru lak úr gaslögn við suðuhreinsun í virkjuninni. 28.9.2006 10:37
Fráfarandi forsætisráðherra Japans boðið til Taívans Forseti Taívans hefur boðið Junichiro Koizumi, sem lét af embætti forsætisráðherra Japans í vikunni, í opinbera heimsókn til eylandsins. Þiggi hann boðið reiðast kínversk yfirvöld, sem þegar hafa varað Japani við því að hafa of mikil samskipti við taívönsk stjórnvöld. 28.9.2006 10:30
Vill óháða rannsóknarnefnd vegna leyniþjónustustarfsemi Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vill að skipuð verði óháð rannsóknarnefnd til að kanna umfang leyniþjónustustarfsemi hér á tímum kalda stríðsins. Kemur sú krafa í framhaldi af uppljóstrunum Þórs Whitehead sagnfræðings sem greindi frá í því í grein í ritinu Þjóðmál að slík starfsemi hefði verið á vegum stjórnvalda á tímabilinu. 28.9.2006 10:30
Viðskiptahalli 11,6 milljarðar í ágúst Viðskiptahallinn við útlönd í ágústmánuði nam 11,6 milljörðum króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fluttar voru út vörur fyrirr 16,6 milljarða króna og inn fyrir 28,2 milljarða króna. 28.9.2006 10:15
Fons seldi allan hlut sinn í FlyMe Eignarhaldsfélagið Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, hefur selt allan hlut sinn í sænska lággjaldaflugfélaginu Fly Me til norska hlutafélagsins Cognation. Morgunblaðið greinir frá þessu og að Fons hafi átt 20% í Fly Me og verið stærsti einstaki hluthafinn í félaginu. Söluverð er ekki gefið upp en Pálmi segist ekki hafa tapað á viðskiptunum. 28.9.2006 10:00
Ráðstefna um mikilvægi vetnistækni í Reykjavík Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra setti í dag ráðstefnu um mikilvægi vetnistækni fyrir sjálfbæra þróun. Ráðstefnan er haldin í Reykjavík. 28.9.2006 09:58
Rafrænar kosningar í frumskógum Amasón Brasilíumenn eru að læra á nýtt rafrænt kosningakerfi fyrir kosningar í landinu eftir fjóra daga. Kerfið er sagt einfalt í notkun og umfram allt er hvers kyns kosningasvindl sagt nær ómögulegt með þessu lagi. Gríðarstórt verkefni er hins vegar að koma kjörtækjum í allar afskekktar byggðir Brasilíu inni í Amasón-regnskóginum. 28.9.2006 09:45
Misvafasöm landkynning Blaðamaðurinn Poul Severn, sem nýverið var hér á landi, fer lofsamlegum orðum um íslenska golfvelli, í nýjast hefti tímaritsins Golf International. Önnur landkynning af allt öðrum toga birtist svo í vinsælum þætti í Fox sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum í fyrrakvöld þar sem fjallað var um 16 ára samræðisaldur í Bandaríkjunum. 28.9.2006 09:30
Segja Frelsisher Drottins brjóta friðarsamkomulag Heryfirvöld í Úganda segja skæruliðahreyfinguna Frelsisher Drottins hafa brotið vopnahléssamkomulag sem undirritað var í síðasta mánuði. Samkomulagið kvað á um að liðsmenn Frelsishersins skyldu safnast saman á fyrirfram ákveðnum stað í Suður-Súdan, gegn því að þeir yrðu ekki sóttir til saka. 28.9.2006 09:15
Atlantshafsbandalagið tekur við í Afganistan Atlantshafsbandalagið hefur samþykkt að taka við stjórn herliðs í austurhluta Afganistans. NATO tekur þar við stjórn um 10.000 hermanna liðs sem er að mestu leyti bandarískt. Breytingin gengur í gegn eins fljótt og auðið er, þrátt fyrir vaxandi ofbeldi. 28.9.2006 09:00
12 slökkviliðsmenn að störfum við Hellisheiðarvirkjun Slökkviliðsmenn eru enn að störfum við að hreinsa upp saltpéturssýru sem lak niður í stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar í morgun, enda er magnið mikið: um 1 tonn, að því er áætlað er. Búist er við að þeir verði þar í allan dag. Ekki er vitað hvað gerðist en það verður rannsakað þegar allt hefur verið hreinsað upp. Ekki er hætta á ferðum fyrir almenna vegfarendur. 28.9.2006 08:53
Lögregla með viðbúnað vegna myrkvunar Lögreglan í Reykjavík verður með aukinn viðbúnað í kvöld þegar Reykjavíkurborg verður myrkvuð frá klukkan 22 til 22:30. Þá verður slökkt á allri götulýsingu. Myrkvunin hefur þó ekki áhrif á öryggiskerfi og umferðarljós verða áfram virk. Myrkvunin er í tilefni af setningu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík. 28.9.2006 08:45
Georgíumenn saka Rússa um njósnir Georgískir hermenn handtóku í gær fjóra rússneska hershöfðingja og 12 til viðbótar, þar af 10 Georgíumenn, vegna gruns um njósnir og að hópurinn hafi lagt á ráðin um umfangsmiklar aðgerðir sem hafi getað ógnað öryggi ríkisins. Einnig sitja öryggissveitir um rússneska herstöð í Tblisi, höfuðborg Georgíu, og krefjast framsals eins hershöfðingja til viðbótar. 28.9.2006 08:30
Engin fangaskipti fyrr en ísraelski hermaðurinn kemur heim Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í morgun að ekki kæmi til greina að sleppa úr haldi neinum palestínskum föngum fyrr en ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit fær að snúa heim aftur. Shalit var rænt af Palestínumönnum í lok júní og hefur hann verið í haldi á Gaza. 28.9.2006 08:15
Ein stúlka og byssumaður létust í gíslatöku í Colorado Umsátur lögreglu um framhaldsskóla þar sem vopnaður maður hélt sex stúlkum föngnum í Koloradó í Bandaríkjunum í gærkvöldi endaði með því að ein af stúlknanna lést af skotsárum sínum, sem og byssumaðurinn. Lögregla segir að hann hafi framið sjálfsmorð eftir að hann særði gísl sinn til ólífis. 28.9.2006 07:45
Fyrirfór sér eftir að hafa skotið gísl Gíslatökumaðurinn í skóla í Colorado í Bandaríkjunum fyrirfór sér eftir að hafa skotið stúlku sem hann hélt í gíslingu. Stúlkan, sem er nemandi í skólanum, lifði árásina af en er þó alvarlega slösuð. 27.9.2006 23:44
Kornþresking víða komin langt Kornþresking er víða langt komin að því fram kemur á fréttavef Landssambands kúabænda og er uppskera í góðu meðallagi að sögn Ingvars Björnssonar, ráðunautar hjá Búgarði. Þroski kornsins er hins vegar undir meðallagi. 27.9.2006 23:37
Einbreiðum brúm fækkað um átta á næsta ári Fækka á einbreiðum brúm á Hringveginum um átta á næsta ári samkvæmt Vegaáætlun. Einbreiðum eða einnar akgreinar brúm á Hringveginum hefur fækkað jafnt og þétt síðustu árin. Mest hefur verið fækkað um tíu brýr en það var árið 2003. Fjórar af einnar akgreinar brúnum sem hverfa á næsta ári eru í Norðurárdal í Skagafirði. 27.9.2006 23:10
Logaði í útikamri Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Eiðistorgi á Seltjarnarnesi á sjöttatímanum í dag þar sem kveikt hafði verið í útikamri. Þegar komið var á staðinn logaði í ruslafötu sem troðið hafði verið ofan í innkaupaköfu og innkaupakörfunni svo troðið inn í kamarinn. 27.9.2006 22:49
Umsátri við framhaldsskóla lokið Umsátri lögreglu við framhaldsskóla í Bailey í Colarado í Bandaríkjunum er lokið. Fréttavefurinn CNN greinir frá því að byssumaður, sem hélt tveimur stúlkum í gíslingu, sé látinn. Maðurinn réðst inn í skólann fyrr í dag, hóf skothríð og tók sex manns í gíslingu. 27.9.2006 22:39
Árekstur við Bústaðaveg Ökumaður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir árekstur við Bústaðaveg á fimmta tímanum í dag. Meiðsl hans eru þó ekki talin alvarleg. 27.9.2006 22:28
Aukinn viðbúnaður vegna myrkvunar Lögreglan í Reykjavík verður með aukinn viðbúnað annað kvöld þegar Reykjavíkurborg verður myrkvuð frá klukkan 22:00-22:30. Þá verður slökkt á allri götulýsingu en myrkvunin hefur þó ekki áhrif á öryggiskerfi og umferðarljós verða áfram virk. 27.9.2006 22:22
Vill grunnfjarskiptakerfi Símans aftur í eigu þjóðarinnar Taka á grunnfjarskiptakerfi Símans og setja það aftur í eigu þjóðarinnar aðeins þannig verður þjónustan ódýr og best. Þetta segir Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri-grænna, en GSM símakostnaður Íslendinga hefur hækkað undanfarin ár á meðan hann hefur lækkað á Norðurlöndunum. 27.9.2006 21:10
Tveir gíslar í haldi byssumanns Rýma þrufti bæði grunn- og framhaldsskóla í Bailey í Colarado í Bandaríkjunum þar sem karlmaður vopnaður byssu hóf skothríð fyrr í dag. Maðurinn segist hafa sprengju meðferðis og hefur í haldi tvo gísla. 27.9.2006 20:55
Sjúkraliðar vilja tafarlaust nýjan stofnanasamning Sjúkraliðar í Reykjavík og nágrenni krefjast þess að gengið verði frá nýjum stofnanasamningi við þá án tafar. Á almennum félagsfundi þeirra í kvöld var þess karfist að við gerð stofnanasamninga verði tekið tillit til þeirra breytinga sem hafa nýlega verið gerðar á kjarasamningum annarra stétta inna félags- og heilbrigðisgreina. 27.9.2006 20:39
Bergvin Oddsson sækist eftir 4.-5. sæti í Suðurkjördæmi Bergvin Oddsson gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldið verður 4. nóvermber næstkomandi. Bergvin sækist eftir 4.-5. sæti. 27.9.2006 20:30
Tappinn verður settur í Kárahnjúkastíflu í fyrramálið Tappinn verður settur í Kárahnjúkastíflu í fyrramálið og þá mun stærsta fljót Austurlands hætta að renna um farveg sinn, um leið og byrjað verður að safna vatni í Hálslón. Íbúar á Jökuldal segir það út í bláinn og dapurlegt að fólk skuli detta í hug að hætt verði við allt saman. 27.9.2006 20:17
Tilraun til bleikjueldis mistókst Tilraun til bleikjueldis í Klettsvík hefur mistekist og það þrátt þrátt fyrir að náttúrulegar aðstæður hafi verið eins og best verður á kosið. Fréttavefurinn Sudurland.is greinir frá þessu en þar segir að þetta sé mat þeirra sem að tilrauninni stóðu. Aðeins um fimmtungur var eftir í kvínni á síðastliðinn laugardag. 27.9.2006 19:55
Barnaskóli rýmdur í Colarado Rýma þurfti framhaldsskóla í Bailey í Colarado í Bandaríkjunum á sjöunda tímanum í kvöld eftir að tilkynning barst um skotárás inni í skólanum. Sérstök sprengisveit lögreglunnar er nú að störfum í skólanum. Ekki er vitað til þess að neinn hafi særst í árásunum. 27.9.2006 19:20
Vopnin kvödd með fánum Þjóðarhreyfingin hvetur til þess að landsmenn dragi fána að húni á sunnudag, daginn eftir að landið verður formlega herlaust, og boðar jafnframt fagnaðarhátíðina "Vopnin kvödd". Mikið hreinsunarstarf bíður Íslendinga á herstöðvarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 27.9.2006 19:16
35 ára loforð endurtekið hjá S.þ. Í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær hét Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, því að framlög til þróunaraðstoðar yrðu þrefölduð á næstu þremur árum. Ef það gengur eftir hafa Íslendingar aðeins náð að hálfu því markmiði sem lögfest var af Alþingi árið 1971 eða fyrir þrjátíu og fimm árum. 27.9.2006 19:08
Skurðaðgerð í þyngdarleysi Franskir skurðlæknar fjarlægðu í dag æxli úr manni við afar óvenjulegar aðstæður. Aðgerðin var gerð um borð í Airbus-þotu sem með reglulegu millibili lyfti sér upp í þyngdarleysi. 27.9.2006 19:00
Hvatt til að hætta fiskneyslu Dýraverndunarsamtökin World Wildlife Fund eru að hefja herferð þar sem Evrópubúar eru hvattir til að borða minni fisk, í einhvers konar mannúðarskyni. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir mjög alvarlegt að samtökin geri þetta. 27.9.2006 18:45
Ætla að funda á ný um afnám tolla Forystu Bændasamtakanna og Samfylkingunni greinir á um hvernig staðið skuli að lækkun matarverðs. Bændur hafa sagt tillögur Samfylkingarinnar ganga að landbúnaðinum dauðum en fylkingarnar funduðu í dag og stefna að fleiri fundum á næstunni. 27.9.2006 18:45
Krajisnik fékk 27 ár Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna dæmdi í dag Momcilo Krajisnik fyrrverandi þingforseta Bosníu-Serba, í 27 ára fangelsi fyrir ýmsa stríðsglæpi á tímum Balkanstríðanna. 27.9.2006 18:45
Hár gsm kostnaður á Íslandi GSM símakostnaður Íslendinga hefur hækkað undanfarin ár á meðan hann hefur lækkað á Norðurlöndunum. Póst- og fjarskiptastofnunin segir fákeppni einkenna íslenska markaðinn og bindur vonir við að fleiri fyrirtæki komi inn á markaðinn. 27.9.2006 18:30
Útgáfa krónubréfa heldur áfram Deutsche bank gaf í dag út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir um tvo milljarðar króna. Bréfin eru gefin út til eins árs. 27.9.2006 18:16
Sýnt frá fyllingu Hálslóns við Kárahnjúkastíflu NFS verður með beinar útsendingar frá Kárahnjúkum á Stöð 2 og visir.is á morgun. Stefnt er að því að tappinn verði settur í Hálslón og lokað fyrir rennsli Jöklu við Kárahnjúka á milli kl 9 og 10 í fyrramálið. 27.9.2006 17:37
Gunnar Axel sækist eftir 4.-5. sæti í Kraganum, Gunnar Axel Axelsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember næstkomandi. Þar sækist hann eftir eftir stuðningi í 4.-5. sæti. 27.9.2006 17:32
Máli dagföður vísað frá Mannréttindadómstól Mannréttindadómstóllinn í Strassborg hefur vísað frá máli íslensks dagföður sem dæmdur var fyrir hrista níu mánaða gamlan dreng með þeim afleiðingum að hann lést. 27.9.2006 17:28
Bjóða nýja sérhæfða þjónustu fyrir aldraða Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hleypti í dag af stokkunum nýrri sérhæfðri heimaþjónusta fyrir veika aldraða. Um er að ræða samstarfsverkefni milli Landspítala - háskólasjúkrahúss og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 27.9.2006 17:15