Fleiri
Yfir 100 manns farast í fellibyl 12.8.2006 06:30 Heiðarlega löggan sem vill breyta rétt Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, komst í hann krappann í vikunni þegar það kom í hans hlut að verja aðgerðir lögreglunnar, sem þótti ganga full vasklega fram í aðgerðum sínum gegn mótmælendum við Kárahnjúka. Mótmælendur vönduðu Óskari og hans mönnum ekki kveðjurnar í fjölmiðlum og sökuðu lögregluna um að hafa beitt friðsamlega mótmælendur ofbeldi og einn úr hópi Íslandsvina fullyrti að Óskar hefði ekið á sig við fjölskyldubúðir nálægt Kárahnjúkavirkjun. 12.8.2006 06:30 Farið yfir stöðu mála Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði á Húsavík á fimmtudag þar sem farið var yfir stöðu mála, að sögn Arnbjargar Sveinsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. 12.8.2006 06:30 Stálheppinn að enda ekki í gili Litlu mátti muna að alvarlegt slys yrði þegar erlendur ferðamaður sofnaði undir stýri og velti bíl sínum skammt frá Húsafelli síðdegis í gær. 12.8.2006 06:15 Sjá næstu 50 fréttir
Grunaður um að vera undir áhrifum lyfja Tveir fólksbílar lentu saman á Bústaðarveginum í gærkvöldi. Ökumaður annars fólksbílsins er grunaður um að hafa verið undir áhrifum lyfja. Bílstjórarnir voru einir í bílunum og þurfti annar þeirra að leita á slysadeild vegna eymsla. 13.8.2006 15:15
Eltu ökumann og farþega á hlaupum Lögrelgan í Reykjavík reyndist sneggri í gær en ökumenn og farþegar bíls sem reyndu að stinga hana af. Eltingaleikurinn hófst í miðbænum nótt þar sem lögreglan mældi bíl fólksins á nítíu og níu kílómetra hraða, þar er hámarkshraði 60 kílómetrar. 13.8.2006 15:00
Ísraelsstjórn segist geta haldið áfram að varpa sprengjum á hisbolla skæruliða í suðurhluta Líbanons, þrátt fyrir vopnahléð sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt og stjórnin sjálf féllst á í hádeginu í dag. 13.8.2006 13:42
Ísraelar samþykkja vopnahlé Ríkisstjórn Ísraels samþykkti á fundi sínum í morgun að fara að tilmælum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé. Það mun taka gildi klukkan 5 í nótt að íslenskum tíma. Ísraelar krefjast þess ennfremur að tveimur hermönnum sem rænt var fyrir rúmum mánuði síðan verði skilað. Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, tilkynnti þetta á blaðamannafundi. 13.8.2006 12:39
Hætti sjósundinu í myrkri og lélegu skyggni Sjósundkappinn og listamaðurinn Benedikt Lafleur lagði árar í bát í sjósundi sínu í gærkvöldi þegar myrkur og skyggni var farið að hamla för. Að sögn Benedikts sögðust björgunarsveitarmenn ekki lengur geta tryggt öryggi hans í myrkrinu. Hann segist þó sáttur við sundið og mjög dýrmæta reynslu að nú hafi hann náð tökum á að nærast á sundi án óþæginda. 13.8.2006 11:52
Kastró allur að koma til á áttræðisafmælinu Dagblað á Kúbu segir að Fídel Kastró sé allur að skríða saman en í dag er áttræðisafmæli einræðisherrans. Hátíðarhöldum vegna afmælis hans hefur hins vegar verið frestað þar til í desemberbyrjun þegar einnig verður haldið upp á 50 ára afmæli byltingar kommúnista á Kúbu. 13.8.2006 11:00
Búast við samþykki Ísraelsstjórnar Fastlega er gert ráð fyrir því að ísraelska stjórnin fallist formlega á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé í Líbanon á reglubundnum ráðherrafundi í dag. Búist er við að Ísraelar hætti hernaðaraðgerðum í Líbanon klukkan fimm í nótt, að íslenskum tíma. 13.8.2006 10:30
Telja sig hafa náð höfuðpaur Al Kaída í Bretlandi Breska blaðið The Times hefur eftir háttsettum mönnum í bresku leyniþjónustunni að meðal þeirra sem handteknir voru í Bretlandi í síðustu viku vegna gruns um að ætla að fremja hryðjuverk sé höfuðpaur Al Kaída í Bretlandi. 13.8.2006 10:01
Slökkvilið kallað að Alþingishúsinu Sjúkrabílar, slökkvilið og lögregla voru kölluð að Alþingishúsinu á níunda tímanum í morgun. Ástæðan var tilkynningu um reyk sem barst frá Alþingi og kom í ljós að rafmagnsspennar höfðu brunnið yfir. 13.8.2006 09:58
Tafir á breskum flugvöllum Flugfélög í Bretlandi segja að umferð um breska flugvelli sé í uppnámi vegna nýrra öryggisreglna. Flugfélögin segja að fyrirtækið sem rekur flugvellina - BAA - hafi ekki fjárfest nægilega í öryggisbúnaði og því einkenni hægagangur og tafir alla starfsemi flughafna. 13.8.2006 09:20
Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt vopnahlésályktun um átökin í Líbanon. Leiðtogi Hizbollah segist ætla að virða vopnahléið fari Ísraelar frá Líbanon. Ísraelar sækja fram af auknum krafti í S-Líbanon. 13.8.2006 06:00
Herþoturnar farnar fyrir fullt og allt Ísland varð frá og með gærdeginum án sýnilegra loftvarna, í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Síðustu þrjár herþotur varnarliðsins flugu af landi brott í gær. 12.8.2006 20:12
Lula ánægður með efnahaginn Efnahagur Brasilíu stendur nú styrkum fótum og er óháður erlendri aðstoð. Þetta segir forseti Brasilíu sem hóf í gær baráttu sína fyrir endurkjöri. 12.8.2006 19:19
Ísraelar hætta að sprengja í Líbanon á mánudag Ísraelar segjast ætla að hætta hernaðaraðgerðum í Líbanon á mánudag. Þeir sækja nú fram með mikinn liðsafla að Litani-ánni, sem skilur að norður- og suðurhluta landsins, þrátt fyrir ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi um vopnahlé. Að minnsta kosti tuttugu Líbanar létu lífið í árásum Ísraela í dag og sjö ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hizbolla-skæruliða. 12.8.2006 19:17
Mikil stemming í Gleðigöngunni Yfir þrjátíu þúsund manns flykktust niður í miðbæ Reykjavíkur í dag til að fylgjast með Gleðigöngu samkynhneigðra. Litadýrðin, tónlistin og dansarnir mynduðu sannkallaða karnivalstemningu. 12.8.2006 18:45
Ísraelar sækja fram í Líbanon Ísraelar hafa þrefaldað liðsstyrk sinn í Suður-Líbanon, þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi á fundi sínum í nótt samþykkt áætlun um vopnahlé. 12.8.2006 17:16
Sjósundgarpur býr sig undir Ermarsundið Sjósundkappinn og listamaðurinn Benedikt Lafleur lauk fyrsta hluta af þreksundi sínu í kringum Reykjavík í dag. Hann synti frá Bryggjuhverfinu í morgun og kom í land í Örfirisey um hádegisbil. 12.8.2006 15:57
Fanginn fundinn Lögreglan í Reykjavík fann fyrr í dag strokufangann af Litla Hrauni sem leitað hefur verið. Hann strauk með því að smeygja sér útum glugga á meðan hann var í læknisheimsókn í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði hann aflitað hár sitt og klippt það stutt. Maðurinn fannst í heimahúsi í Hlíðahverfi og veitti ekki mótþróa þegar lögrögla kom á staðinn. 12.8.2006 15:26
Hræfnykur í grasagarðinum í Brooklyn Mikinn fnyk leggur nú um grasagarðinn í Brooklyn í New York vegna hræblóms sem blómstraði þar í gærkvöldi. Nafnið á blóminu er verðskuldað því lyktin af því þykir helst minna á rotnandi hræ og er plantan almennt viðurkennd sem verst lyktandi blómplanta í heimi. En þó mannfólkið fúlsi við lyktinni sækja skordýr mjög í hana. 12.8.2006 15:09
Hátt í 200 fallnir í átökum á Sri Lanka í dag Stjórnarherinn á Sri Lanka ræðst nú gegn Tamíltígrum á Sri Lanka með auknu afli. Heryfirvöld áætla að yfir 150 tígrar hafi látið lífið í átökum hersins og skæruliða á Jaffna-skaganum í norðurhluta landsins í morgun. Átök halda einnig áfram á austurströndinni, meðal annars í Batticaloa og fyrir ströndum Trincomalee. 12.8.2006 14:43
Leitað að tengslum hryðjuverkamanna við Bandaríkin Bandarískir leyniþjónustumenn eru nú að fara yfir bresk njósnagögn til að athuga hvort Bretarnir sem hugðu á hryðjuverk höfðu einhver tengsl í Bandaríkjunum. Engar vísbendingar hafa þó enn fundist um að svo sé. 12.8.2006 13:00
Kveikt í tveimur strætóskýlum Kveikt var í tveimur strætóskýlum í nótt og eru þau mikið skemmd. Slökkviliðsmenn fá reglulega útköll þar sem kveikt hefur verið í strætóskýlum. 12.8.2006 09:43
Strokufanga leitað Lögregla leitar enn fanga sem strauk úr læknisheimsókn á þriðjudag. Fanginn, sem var vistaður á Litla Hrauni, heitir Hilmar Ragnarsson og er 43 ára. Hann komst undan lögreglu með því að smeygja sér út um glugga á salerni. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó. Þeir sem verða varir við hann eru beðnir að hringja í lögregluna í Reykjavík. 12.8.2006 09:31
Verðbólga mælist 8,1% Vísitala neysluverðs nú í ágúst er 264 stig og hækkaði um 0,34 prósent frá því í júlí. 12.8.2006 09:30
Með bitsár á hálsinum Tvítug stúlka varð fyrir óhugnanlegri líkamsárás á illa upplýstum göngustíg í Breiðholtinu. Árásarmaðurinn réðst aftan að stúlkunni, reyndi að nauðga henni og beit hana í hálsinn. 12.8.2006 09:15
Barist um sætin á þingi Framsóknar Fleiri en eitt framboð hefur borist til allra þriggja æðstu embætta Framsóknarflokksins, sem kosið verður í á flokksþinginu 19. ágúst. Barátta var um sæti á þinginu að sögn formanns framsóknarfélagsins í syðra Reykjavíkurkjördæmi. 12.8.2006 09:00
Það á enginn neitt í pólitík Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segist leggja áherslu á mikla varfærni í umgengni við náttúruna og vill ná víðtækri sátt um hvaða landsvæði verði friðlýst og hvaða auðlindir eigi að nýta. Hún útilokar ekki að tekið verði upp annað skattþrep til að sporna við vaxandi misskiptingu tekna í samfélaginu. Jónína býður sig fram til embættis varaformanns Framsóknarflokksins á flokksþinginu um aðra helgi. 12.8.2006 08:45
Ofurlaun Það er staðreynd, sem stundum er vanmetin, að sumir hafa meiri áhuga á peningum en aðrir. Margt fólk leitar annars í lífinu en að eiga ofsalega mikið fé, þótt flestir vilji jú eiga nóg að bíta og brenna. Sumir telja veraldlegan auð mikinn hégóma. Aðrir eru kapítalistar. Kapítalisti er samkvæmt minni skilgreiningu manneskja sem á nóga peninga, en vill samt alltaf meira. Þannig eru sumir kapítalistar, en aðrir ekki. Nákvæmlega eins og sumir eru alkóhólistar, en aðrir ekki. Alkóhólisti drekkur alltaf meira en hann þarf. 12.8.2006 08:45
Hýrir skrýðast Opnunarhátíð Hinsegin daga fór fram í gærkvöldi. Hátíðin er haldin hér á landi í áttunda sinn. Hátíðin, sem nefnist Gay Pride á ensku, er ein af stærstu útihátíðum borgarinnar á hverju ári. 12.8.2006 08:45
Eimskip hafði fengið viðvörun Meðal efnis í kæru Samskipa til samkeppnisyfirvalda í ágúst 2002 var að Eimskip stundaði undirboð og að verðskrár fyrirtækisins væru óskýrar. Nú hillir undir lok rannsóknar yfirvalda og greindi Fréttablaðið frá því í gær að fyrstu niðurstöður gerðu ráð fyrir að Eimskip greiddi einn milljarð króna í sekt. Félagið hefur niðurstöðurnar til skoðunar og á eftir að koma að athugasemdum. 12.8.2006 08:30
Útilokar ekki hátekjuskatt Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra útilokar ekki að taka verði upp hátekjuskatt að nýju til að sporna gegn vaxandi misskiptingu tekna í samfélaginu, auk þess sem endurskoða verði skattlagningu á fyrirtæki og fjármagnstekjur. 12.8.2006 08:30
Engan vökva í handfarangri Á Keflavíkurflugvelli er enn strangt eftirlit með farþegum á leið til Bandaríkjanna. Leitað er í handfarangri allra farþega, en blátt bann við handfarangri er ekki í gildi. Stranglega bannað er að ferðast með vökva í handfarangri á leið til Bandaríkjanna, en enn er heimilt að ferðast með rafeindabúnað til dægrastyttingar. 12.8.2006 08:15
Tónlistarmenn ferðast með lest Nýjar reglur um handfarangur í flugvélum neyða tónlistarmenn eins frægasta balletts Rússlands, Bolshoi-ballettsins, til að ferðast með lest frá Rússlandi til Bretlands vegna fyrirhugaðrar sýningar á Svanavatninu í Konunglega óperuhúsinu í London næstkomandi laugardag. 12.8.2006 08:00
Seinustu F-15 þoturnar farnar Síðustu þrjár F-15 þotur varnarliðsins í Keflavík fóru af landi brott í gærmorgun. 12.8.2006 08:00
745 öryrkjar fá engan lífeyri Öryrkjabandalag Íslands fer fram á að fallið verði frá þeirri ákvörðun lífeyrissjóða að skerða eða fella niður lífeyrisgreiðslur til öryrkja 1. nóvember. 12.8.2006 08:00
Til skoðunar að heimila hvalveiðar Sjávarútvegsráðuneytið kannar möguleika á því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Íslendingar eru ekki lengur skuldbundnir til þess að banna hvalveiðar. Málið verður líklega rætt innan ríkisstjórnarinnar á næstunni. 12.8.2006 07:45
Fleiri eru grunaðir um aðild Par um tvítugt var handtekið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, rétt fyrir miðnætti á miðvikudagskvöldið, með um tvö kíló af kókaíni í fórum sínum. 12.8.2006 07:45
Trúa mýtu um meyjarhaftið Meirihluti sænskra unglinga trúir enn bábiljum um meyjarhaftið, samkvæmt nýrri sænskri rannsókn sem gerð var við háskólann í Umeå, þar sem tvö hundruð framhaldsskólanemar voru spurðir: „Hvað er meyjarhaftið?“. 12.8.2006 07:30
Selja helmingi minna af kjöti Útflutningur Norðlenska á dilkakjöti til Bandaríkjanna verður helmingi minni í ár en í fyrra vegna aukinnar neyslu innanlands og lágs gengis Bandaríkjadals. Norðlenska er eini aðilinn sem flytur út lambakjöt til Bandaríkjanna og því er fyrirséð að ekki verði hægt að fullnægja eftirspurn þar, en mikið hefur verið lagt í uppbyggingu markaðarins undanfarin ár. 12.8.2006 07:30
Ófremdarástand í dagvistun barna Dagforeldrum fer fækkandi og segja dagmæður að ófremdarástand ríki í dagvistarmálum í Vesturbæ Reykjavíkur. Foreldrar þurfa að leita í önnur hverfi. 12.8.2006 07:30
Rice bjartsýn á málamiðlun Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og aðrir háttsettir fulltrúar aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna kepptust í gær við að koma saman nýrri ályktun sem ætlað er að stuðla að því að átökum Ísraelshers og Hizbollah-liða í Líbanon linni. Vonir stóðu til að samkomulag tækist í gærkvöld að bandarískum tíma, í nótt að íslenskum tíma. 12.8.2006 07:00
Heiðarlega löggan sem vill breyta rétt Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, komst í hann krappann í vikunni þegar það kom í hans hlut að verja aðgerðir lögreglunnar, sem þótti ganga full vasklega fram í aðgerðum sínum gegn mótmælendum við Kárahnjúka. Mótmælendur vönduðu Óskari og hans mönnum ekki kveðjurnar í fjölmiðlum og sökuðu lögregluna um að hafa beitt friðsamlega mótmælendur ofbeldi og einn úr hópi Íslandsvina fullyrti að Óskar hefði ekið á sig við fjölskyldubúðir nálægt Kárahnjúkavirkjun. 12.8.2006 06:30
Farið yfir stöðu mála Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði á Húsavík á fimmtudag þar sem farið var yfir stöðu mála, að sögn Arnbjargar Sveinsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. 12.8.2006 06:30
Stálheppinn að enda ekki í gili Litlu mátti muna að alvarlegt slys yrði þegar erlendur ferðamaður sofnaði undir stýri og velti bíl sínum skammt frá Húsafelli síðdegis í gær. 12.8.2006 06:15
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent