Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekið fyrir um miðjan nóvember hið fyrsta Jón Magnússon, lögmaður Fréttablaðsins, bíður enn eftir því að stefna Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu fyrir að birta upplýsingar úr tölvupósti, og lögbann við birtingu frekari upplýsinga, verði tekin fyrir í Héraðsdómi. 25.10.2005 15:06
Embættum fækkar í fimmtán Lögregluumdæmum landsins fækkar um ellefu, úr 26 í fimmtán samkvæmt tillögum framkvæmdanefndar á vegum dómsmálaráðherra sem hefur nú samþykkt tillögur nefndarinnar. 25.10.2005 14:00
Vilja kynbæta kúna Eyfirskir kúabændur vilja að hafinn verði undirbúningur að innflutningi erfðavísa til að kynbæta íslenska kúakynið. Félagar í Búgreinaráði Búnaðarsambands Eyjafjarðar í nautgriparækt samþykktu ályktun þessa efnis á fundi sínum í gærkvöldi. Þar með slást þeir í hóp með borgfirskum bændum sem höfðu áður ályktað í sömu veru. 25.10.2005 13:45
Áfrýjaði úrskurði samkeppniseftirlits Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, áfrýjaði úrkskurði Samkeppniseftirlits til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, í máli klínískt starfandi sálfræðinga. En sálfræðingar hafa leitað eftir því í sex ár að sjúklingar þeirra fái endurgreiðslu til jafns við þá sem leita til geðlækna, sé um sambæirlega meðferð að ræða. 25.10.2005 13:25
34 hjálparstarfsmenn í haldi Flótamenn í Darfur héraði í Súdan hafa tekið þrjatíu og fjóra hjálparstarfsmenn í gíslingu í stærstu flóttamannabúðunum í Darfúr. Flóttamennirnir krefjast þess að einn af leiðtogum þeirra sem var nýverið handtekinn, verði látinn laus. 25.10.2005 13:12
Dæmdur fyrir fíkniefnasölu Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi mann í gær til tíu mánaða fangelsisvistar fyrir að selja fíkniefni. Sjö mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. 25.10.2005 12:30
Stjórnarskráin samþykkt Stjórnarskrá Íraks hefur verið samþykkt. Endanlegar tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu bárust nú rétt fyrir hádegi og samþykktu tæplega áttatíu prósent Íraka stjórnarskrána. 25.10.2005 11:50
Ker reiðubúið að greiða borginni Ker, sem á Olíufélagið Essó, er reiðubúið að greiða Reykjavíkurborg þá upphæð, sem félagið þáði á laun af Skeljungi, fyrir að tryggja að Skeljungur fengi mikil olíuviðskipti við borgina, í útboði árið árið 1996. 25.10.2005 11:45
Svartsýnni á efnahaginn Annan mánuðinn dregur úr tiltrú almennings á efnahagslífið samkvæmt væntingavísitölu Gallup sem var birt í morgun. Flestir eru þó sáttir við efnahagsástandið eins og það er nú en þeim fjölgar sem eru svartsýnir á þróun efnahagsmála næsta hálfa árið. 25.10.2005 11:38
Ekki hærri í rúm þrjú ár Vextir óverðtryggðra lána eru hærri nú en þeir hafa verið síðan í maí árið 2002. Lægstu vextir eru nú tólf prósent og hafa hækkað um 50 prósent á sextán mánuðum. 25.10.2005 11:15
Actavis styrkir Blátt áfram Actavis veitti forvarnarverkefni Ungmennafélags Íslands, Blátt áfram, einnar milljónar króna styrk í dag. Verkefninu er ætlað að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. 25.10.2005 10:43
Tamiflu nánast uppselt í Danmörku Ótti Dana við fuglaflensu er slíkur að nú er inflúensulyfið Tamiflu nánast uppselt í apótekum og hjá heildsölum í landinu. Sala á lyfinu jókst mikið í síðasta mánuði og hefur einnig aukist í þessum í kjölfar frétta af því að hin banvæni H5N1-stofn veirunnar hafi greinst í fuglum í Austur-Evrópu. 25.10.2005 10:00
Íslenskir karlar eldast og fitna Íslenskir karlar eru að fitna og eldast á sama tíma og konur virðast ráða betur við þyngdina og meðalaldur þeirra hækkar ekki jafn mikið og karla. Aukin velmegun er því ekki eingöngu sýnileg í miklum launamun heldur einnig á heilsu- og holdarfari. 25.10.2005 10:00
Meira en helmingur fórnarlamba yfir sextugu Meira en helmingur þeirra sem létust af völdum fellibylsins Katrínar voru yfir sextugu. Nýjar tölur frá heilbrigðisyfirvöldum í Louisiana benda til að langflest fórnarlömb fellibylsins hafi verið eldri borgarar sem ýmist gátu ekki eða vildu ekki yfirgefa heimili sín. 25.10.2005 09:45
Kínverjar óttast útbreiðslu HIV Allt að tíu milljón Kínverjar gætu smitast af HIV-veirunni á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til aðgerða. Þetta sagði helsti alnæmissérfræðingur Kínverja í gær og tók þar með undir varnaðarorð Sameinuðu Þjóðanna. 25.10.2005 09:30
Útiloka ekki samstarf við stjórnarandstöðu Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins segist ekki útiloka að Frjálslyndir myndu ganga til liðs við stjórnarandstöðuflokkana í kosningabandalgi að norskri fyrirmynd fyrir næstu alþingiskosningar. Hann segir það hins vegar skyldu stjórnarandstöðuflokkanna að stefna að ríkisstjórnarsamstarfi, falli ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. 25.10.2005 09:15
Skotið á herskáa Palestínumenn Ísraelsk herþota skaut í morgun sprengjum að vígi herskárra Palestínumanna í borginni Beit Hanoun á Gaza. Hópur sem tengist Fatah-hreyfingunni heldur til í byggingunni en enginn virðist hafa slasast í árásunum. 25.10.2005 09:00
Hlýtur Norrænu textílverðlaunin Norrænu textílverðlaunin renna í ár til Íslensku listakonunnar Hrafnhildar Sigurðardóttur. Þau verða afhent við formmlega athöfn í Boräs í Svíþjóð næstkomandi fimmtudag. Í tilkynningu frá dómnefnd segir að verk Hrafnhildar séu fjölbreytt, frumleg og vönduð þar sem konan og hið kvenlega eru í brennidepli. 25.10.2005 08:45
Fjölmennt á kvennafrídegi á landsbyggðinni Konur á landsbyggðinni voru mun virkari þátttakendur í kvennafrídeginum en fyrir þrjátíu árum. Á Akureyri fjölmenntu konur í Sjallann. Starfsemi fyrirtækja var víða hálflömuð og öll þjónusta gekk hægar en venjulegt er. 25.10.2005 08:45
Nýr endurvarpi á Hornströndum Nýr endurvarpi fyrir talstöðvarbúnað björgunarsveita var settur upp í friðlandi Hornstranda á Vestfjörðum í fyrradag. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig en þyrlu þurfti til verksins. 25.10.2005 08:45
Ben Bernanke tilnefndur sem seðlabankastjóri BNA George Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær Ben Bernanke, ráðgjafa í Hvíta húsinu, sem næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Bernanke er ætlað að taka við af Alan Greenspan sem hættir snemma á næsta ári eftir ríflega 18 ár í starfi seðlabankastjóra. 25.10.2005 08:30
Baráttukonan Rosa Parks látin Rosa Parks, saumakonan frá Alabama, sem varð heimsfræg fyrir að fylgja ekki þeirri reglu aðskilnaðarlaga að standa upp fyrir hvítum í strætisvagni árið 1955, lést í gær í Detriot í Bandaríjkunum 92 ára gömul. 25.10.2005 08:15
Gluggagægir í Þingholtunum Grunur leikur á að gluggagægir hafi verið á ferðinni í Þingholtunum í nótt , en hann fanst ekki þrátt fyrir talsverða leit lögreglunnar. Íbúi í húsi á svæðinu sá manninn á glugga íbúðar sinnar en hann forðaði sér í skyndingu þegar hann sá að íbúinn hafði orðið hans var. 25.10.2005 08:15
Sex borgarar drepnir í Afganistan Afganskir uppreisnarmenn drápu sex óbreytta borgara seint í gærkvöldi í árás sem beindist að bandarískum herjeppa. Árásin mistókst og hermennirnir sluppu allir ómeiddir. Bíll sem átti leið hjá varð hins vegar fyrir skoti úr sprengjuvörpu með þeim afleiðingum að allir farþegarnir sex létust. 25.10.2005 08:15
Skýrla kynnt í öryggisráði SÞ Höfundur skýrslu Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hairiri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, mun í dag kynna skýrsluna í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Í skýrslunni er því haldið fram að hátt settir menn innan stjórnkerfis Sýrlands hafi átt aðild að morðinu. 25.10.2005 08:00
Hvetja til samstöðu Norðurlandanna Nokkur norræn samtök munu í dag, strax að loknum blaðamannafundi fulltrúa Norðurlandaráðs, kynna sameiginlega yfirlýsingu sína í Þjóðleikhúskjallaranum. Í yfirlýsingunni koma fram hugmyndir og tilmæli um það hvernig Norðurlöndunum beri að halda á málum og sýna samstöðu, því að mati samtakanna stendur Evrópusambandið frammi fyrir alvarlegri kreppu. 25.10.2005 08:00
Lyf í rúgbrauði Nú eru allar líkur á því að Danir og aðrar þjóðir innan Evrópusambandsins geti sótt sér lyf í bakarí í stað apóteks. Það einskorðast þó eingöngu við lyf sem lækna eiga háa blóðfitu. Ástæðan er sú að í gær töpuðu Danir kosningu á Evrópusambandsþinginu þar sem önnur ríki kusu með því að leyfa slík lyf í tveimur gerðum af rúgbrauði. 25.10.2005 08:00
Akureyringar fá nýjan slökkvibíl Slökkvilið Akureyrar hefur tekið í notkun nýjan slökkviliðsbíl sem er sagður einn sá öflugasti á landinu. Bíllinn er með þrjú þúsund lítra vatntank og dælu sem getur dælt fimm þúsund lítrum á mínútu. Dælan er því svo öflug að hún getur tæmt vatntankinn á þrjátíu og sex sekúndum. 25.10.2005 07:45
Fuglaflensa greinist aftur í Kína Fuglaflensu hefur aftur orðið vart í Kína, í þetta sinn á meðal aligæsa í Anhui-héraði í austurhluta landsins. Talsmaður Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í dag að tvö þúsund og eitt hundrað fuglar hefðu sýkst af veirunni, 550 hefðu drepist og að 45 þúsund fuglum hefði verið slátrað. 25.10.2005 07:30
Íslendingar hafa stuðning norrænna ríkja í öryggisráð Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs sagði að loknum fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Þjóðmenningarhúsinu í gær að Íslendingar hafi fullan stuðning hinna norrænu ríkjanna til framboðs í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. 25.10.2005 07:15
Sex látnir eftir yfirreið Wilmu Að minnsta kosti sex manns létust þegar fellibylurinn Wilma fór yfir Flórída í gær. Wilma er nú farin aftur út á haf, en enginn fellibylur hefur valdið jafn miklu eignatjóni á Fort Lauderdale svæðinu í meira en fimmtíu ár. 25.10.2005 07:10
Ákærður fyrir að bana landa sínum: Phu Tién Nguyén er ákærður fyrir að hafa orðið Vu Van Phong að bana, en aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Með aðstoð túlks sagði Phu hvernig hann fór ásamt fjölskyldu sinni í fjölmennt matarboð í Kópavogi í lok maí. Við komuna í Kópavoginn sagðist Phu hafa verið með stóran eldhúshníf vafinn inn í dagblöð í jakkavasanum til að nota sem vernd fyrir þriggja mánaða gamlan son sinn, en samkvæmt víetnamskri hefð rekur hnífur undir dýnu í barnarúmi illa anda burt. 25.10.2005 07:00
Tvö í haldi vegna dópsmygls Karl og kona eru í haldi lögreglu vegna fíkniefnasmygls. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins í þrjú skipti að minnsta kosti. 25.10.2005 06:55
Ætla að stöðva brotleg fyrirtæki Fulltrúar Samiðnar fóru í gær um og ræddu við erlenda verkamenn á vegum íslensku starfsmannaleigunnar B2 ehf. Félögin segja tíma kominn á aðgerðir gegn fyrirtækjum sem upplýsa ekki um kjör erlendra starfsmanna sinna. 25.10.2005 06:45
Íbúar Isabelu ekki í hættu Eldfjallið Sierra Negra á eynni Isabelu í Galapagos-eyjaklasanum í Kyrrahafi byrjaði að gjósa um helgina með miklum látum. Gosefni úr hinu fimmtán hundruð metra háa fjalli breiddust um stórt svæði en íbúar í nágrenninu eru þó ekki taldir í hættu. 25.10.2005 06:45
Tuttugu létust Þrjár bílsprengjur voru sprengdar nánast samtímis fyrir utan hótel erlendra blaðamanna í Bagdad í gær. Í það minnsta tuttugu manns dóu í sprengingunum. 25.10.2005 06:15
Sveinatunga jöfnuð við jörðu Gömlu bæjarskrifstofurnar í Garðabæ hafa nú verið jafnaðar við jörðu. Síðastliðinn áratug hafa listhneigðir grunnskælingar í Flataskóla haft aðstöðu í Sveinatungu, eins og húsið var nefnt. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um það hvað byggt verði á Sveinatungulóðinni. Þó eru uppi hugmyndir um nýjan miðbæ í Garðabæ og þar er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á svæðinu. 25.10.2005 06:00
Vinnumálastofnun kannar ávirðingar Yfirmönnum Vinnumálastofnunar hefur verið falið að grennslast fyrir um ávirðingar á hendur starfsmannaleigunni B2 og vísa til lögreglu reynist þær á rökum reistar. Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinnar, segir málið hafa verið rætt á fundi stjórnar í hádeginu í gær. 25.10.2005 06:00
Stefnir að lögum fyrir jól "Mér sýnist einsýnt að við förum í einhvers konar lagasetningu en hún þarf að taka mið af okkar alþjóðlegu skuldbindingum, ekki sýst varðandi EES samninginn," segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra um starfsemi starfsmannaleiga. 25.10.2005 05:45
Fær tennur bættar Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni, sem gengur nú undir nafninu Þór Óliver, voru í gær dæmdar skaða- og þjáningabætur í kjölfar líkamsárásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni í maí 2002. 25.10.2005 05:45
Landsbankinn lánar öllum sé trygging til "Ef tryggingar eru í lagi þá fá menn lán hjá Landsbankanum hvort sem þeir eru utan að landi eða úr Reykjavík," segir Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu var írsku stórfyrirtæki hafnað um lán vegna byggingar kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal og sögðu forsvarsmenn þess að ástæðan hafi verið sú að fyrirtækið ætti að rísa á landsbyggðinni. 25.10.2005 05:30
Líkt og risastór hönd væri að hrista húsið Fellibylurinn Wilma fór yfir Mexíkóflóa í gær og olli íbúum Kúbu og Flórídaskaga þungum búsifjum. Einn maður lét lífið í veðurofsanum. Þá eru átta manns taldir af á Haítí. 25.10.2005 05:30
Verðvernd og endurgreiðslur Húsasmiðjan blæs til sóknar á bygginga- og heimilsvörumarkaði með því að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt lægsta verð. Það byggist á því að þeir fá vöru keypta hjá Húsasmiðjunni endurgreidda sjáist hún auglýst á lægra verði annars staðar innan fimmtán daga frá kaupum. 25.10.2005 05:30
Umræðan á Íslandi hefur áhrif á skoðun Norðmanna Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafði orð fyrir forsætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á blaðamannafundi í Reykjavík í gærkvöldi. "Viðræður okkar snérust einkum um samband Norðurlanda og Eystrasaltslandanna við ESB og tengslin milli ESB og Evrópska efnahagssvæðisins. Við ræddum einnig sambandið við Rússland og Úkraínu." 25.10.2005 05:00
Keppast um hylli 300.000 flokkssystkina "Davíðarnir tveir" í leiðtogaslag brezka Íhaldsflokksins, David Cameron og David Davis, keppast á næstu vikum um hylli hinna 300.000 flokkssystkina sinna. Stuðningsmenn Camerons trúa honum til að geta endurnýjað flokkinn líkt og Tony Blair endurnýjaði Verkamannaflokkinn. 25.10.2005 05:00