Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Venjulegir Danir gera út á vændi Millistéttarfólk í Danmörku, sem aldrei hefur komist í kast við lögin, er í auknum mæli farið að flytja erlendar konur til Danmerkur og gera þær út sem vændiskonur. 16.5.2005 00:01
Í haldi grunaður um nauðgun Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um nauðgun á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nótt. 16.5.2005 00:01
Misréttis minnst á Norðurlöndum Efnahagslegt kynjamisrétti er minnst á Norðurlöndunum samkvæmt skýrslu samtakanna World Economic Forum (WEF) í Sviss. Minnst mældist kynjamisréttið í Svíþjóð, þá Noregi, Ísland var í þriðja sæti og því næst Danmörk og Finnland. Kynjamisréttið reyndist hins vegar mest í Egyptalandi, Tyrklandi og Pakistan. 16.5.2005 00:01
Khodorkovskí sakfelldur Rússneskir dómstólar fundu auðkýfinginn Mikhaíl Khodorkovskí sekan um fjóra af sjö ákæruliðum en frekari dómsuppkvaðningu var frestað þar til í dag. Verjendur Khodorkovskí og stuðningsmenn segja að þeir hafi heyrt nóg til að vera fullvissir um að hinir úrskurðirnir falli á sama veg. 16.5.2005 00:01
Írakar sagðir hafa mútað Rússum Menn úr ríkisstjórn Saddams Hussein segja að þeir hafi látið milljónir dollara renna til rússneskra stjórnmálamanna í skiptum fyrir stuðning þeirra á vettvangi Sameinuðu þjóðanna 16.5.2005 00:01
Ofdrykkja fer verr með konur Konur eru mun líklegri til að verða fyrir skaða af völdum áfengis en karlar samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var í Háskólanum í Heidelberg í Þýskalandi. BBC greinir frá þessu. 16.5.2005 00:01
Réttarhöld í Beslan hefjast Réttarhöldin yfir fyrstu sakborningunum sem er gefið að sök að hafa staðið að gíslatökunni í barnaskólanum í Beslan í Rússlandi í fyrra, hefjast í dag. 16.5.2005 00:01
Formúlubíll í Smáralind Mark Webber ökumaður BMW Williams liðsins dvaldi hér á landi yfir helgina. Keppnisbíll hans er til sýnis í Smáralind og hefur verið vinsæll meðal gesta í Smáralindinni. Hann verður sendur af landi brott í kvöld. 16.5.2005 00:01
Níkaragvamenn óvelkomnir til BNA Dagblað í Managua greindi frá því að Bandaríkin hefðu bannað 89 stjórnmálamönnum frá Níkaragva að koma til landsins á þeim forsendum að þeir væru spilltir og hefðu stutt við bakið á hryðjuverkamönnum. 16.5.2005 00:01
Móðir hengdi son sinn Móðir hefur verið ákærð fyrir að hengja 4 ára gamlan son sinn með laki. Konunni sem er 23 ára er gert að sök að hafa reiðst syni sínum á laugardag fyrir að hafa óhlýðnast henni og farið út að leika sér þrátt fyrir að hafa verið bannað það. 16.5.2005 00:01
Uppreisn í Úsbekistan Mótmælendur hafa farið mikinn í borginni Andijan í austurhluta Úsbekistans undanfarna daga í mótmælum gegn ríkisstjórn Islams Karimov. Meira en 700 manns hafa látist í landinu síðan á föstudag þegar uppreisnarmenn réðust í fangelsi í borginni og frelsuðu þaðan 23 pólitíska fanga. 16.5.2005 00:01
Alcan hefur ekki fengið leyfi Hafnarfjarðarbær hefur ekki enn veitt Alcan framkvæmdaleyfi vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Talsmaður iðnaðarráðuneytsins sagði í fréttum um helgina að búið væri að láta gera mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun álversins, stjórnendur þess ættu einungis ætti eftir að taka endanlega ákvörðun og bjóða verkið út. 16.5.2005 00:01
Þáðu mútur frá Saddam? Tveir fyrrverandi aðstoðarmenn Pútíns Rússlandsforseta og þjóðernisöfgamaðurinn Zhirinovsky eru sakaðir um að hafa þegið mútur frá Saddam Hussein. Í staðinn áttu þeir að tala máli Íraksstjórnar, bæði í Moskvu og á alþjóðavettvangi. 16.5.2005 00:01
Ræðir mannréttindi við Kínverja Mannréttindi eru alls ekki afstæð, segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem ætlar að ræða mannréttindi við kínverska ráðamenn á næstu dögum. Hann segir þó að gera megi ráð fyrir að lýðræðisþróun í Kína taki tíma. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2, er í för með forsetanum í opinberri heimsókn hans í Kína. 16.5.2005 00:01
Enn skothríð í Úsbekistan Enn má heyra skothríð í bænum Andijan í Úsbekistan þar sem íbúar risu upp gegn yfirvöldum fyrir helgi. Svo virðist sem uppreisnin sé að breiðast út um landið því að yfirvöld hafa nú einnig lokað nálægum landamærabæ vegna mótmæla og óeirða. 16.5.2005 00:01
Eldur í neðanjarðarlest í Svíþjóð Tólf voru lagðir inn á sjúkrahús í Stokkhólmi með reykeitrun eftir að eldur kom upp í neðanjarðarlest snemma í morgun. Lögregla telur líklegt að brennuvargur hafi verið á ferð. 16.5.2005 00:01
Féll sjö metra niður á stétt Kona á þrítugsaldri slasaðist mikið þegar hún féll sjö metra niður á steyptan kant og stétt fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlisshúss í Neskaupstað um tvöleytið aðfaranótt mánudags. Hún fór í aðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað og í sjúkraflug til Reykjavíkur, en er úr lífshættu. 16.5.2005 00:01
Vélsleðamaður með opið fótbrot Þyrla landhelgisgæslunnar sótti vélsleðamann með opið beinbrot á fæti inn að Hrauntindum í Rangárvallaafrétt um miðjan dag í gær og flutti á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Einnig voru kallaðar til björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli. 16.5.2005 00:01
Feðrum sagt upp vegna orlofs Jafnrétti á vinnumarkaði virðist vera að taka á sig heldur óskemmtilega mynd. Yfir 20 mál hafa nú borist Verslunarmannafélagi Reykjavíkur vegna feðra sem sagt hefur verið upp störfum vegna fæðingarorlofs sem þeir hafa tekið sér. Hingað til hafa slík mál nær eingöngu verið vegna kvenna á vinnumarkaði. 16.5.2005 00:01
Nauðgað á skemmtistað Kona á þrítugsaldri kærði í gærmorgun nauðgun sem hún sagði hafa átt sér stað inni á salerni á skemmtistað í Keflavík. Lögreglu barst kæran um klukkan hálf sex um morguninn og fór hún þegar á skemmtistaðinn þar sem maðurinn var handtekinn. 16.5.2005 00:01
Ekið á dreng á hlaupahjóli Um klukkan þrjú í gærdag var ekið á sex ára dreng við Greniteig í Keflavík, en þar er 30 kílómetra hámarkshraði. 16.5.2005 00:01
Veisluhald fór úr böndum Nokkur ólæti voru í ungu fólki í Garðabæ á föstudags- og laugardagskvöld, að sögn lögreglu í Hafnarfirði. Fjórir voru handteknir á föstudagskvöldið og á laugardagskvöldið þurfti lögregluhjálp við að fæla veisluglaða frá húsi í bænum. 16.5.2005 00:01
Bílslys á Svínadal Bíll fór útaf veginum á Svínadal um hálfníuleytið á föstudagskvöld. Lögreglan á Búðardal fékk tilkynningu um að í bílnum væru fjórir slasaðir og þar af eitt meðvitundarlaust barn. 16.5.2005 00:01
Strákur lokaður í ruslatunnu Tveir fjórtán piltar lokuðu sjö ára dreng ofan í ruslatunnu, skorðuðu undir svölum og skildu eftir á Seltjarnarnesi síðasta þriðjudagskvöld. Stúlka heyrði bank í tunnunni 30 til 40 mínútum síðar og bjargaði drengnum. 16.5.2005 00:01
Maður barinn með kylfu Lögreglan á Ísafirði lagði hald á hafnaboltakylfu á Flateyri á aðfaranótt mánudags, en talið er að henni hafi verið beitt í slagsmálum fyrir utan veitingastað í bænum. Þar hafði nokkur hópur tekið þátt í slagsmálum sem upp komu, en enn liggja ekki fyrir kærur vegna atburðarins. 16.5.2005 00:01
Verð á notuðum bílum hríðlækkar Verð á notuðum bílum hefur hríðlækkað í kjölfar mikils innflutnings á bílum frá Bandaríkjunum og söluaukningar á nýjum bílum. Salan er engu að síður góð og telur einn bílasali skýringuna liggja í því að fólk fjölgi einfaldlega bílum á heimilinu í góðæri eins og nú er, en fækki þegar harðnar í ári. 16.5.2005 00:01
Tvær konur létust í árekstri Tvær konur létust í árekstri jeppa og fólksbíls í Öxnadal í Hörgárbyggð um klukkan hálf sex á föstudag. Önnur konan ók fólksbílnum og var ein í honum, en hin var farþegi í jeppanum. Þær hétu Halldóra Árnadóttir og Edda Sólrún Einarsdóttir. 16.5.2005 00:01
Bjargað þrekuðum og sjóblautum Skipstjóri mótorbátsins Hrundar BA-87 frá Patreksfirði mátti hafa sig allan við að koma sér frá borði eftir að eldur kom upp í bátnum. Hann komst í björgunarbát og var bjargað þaðan í annan bát, en reykurinn frá brennandi bátnum sást víða að. 16.5.2005 00:01
Varð einum að bana og særði annan 33 ára maður kom óboðinn til veislu í Kópavogi. Hann vildi ekki fara og greip til hnífs. Stakk einn til ólífis og særði annan. Ódæðismaðurinn var handtekinn og er nú í gæsluvarðhaldi. 16.5.2005 00:01
Horfði á föður sinn stunginn Dóttir manns sem lést af völdum stungusára stóð blóðug og grátandi í stigaganginum og sagði pabba sinn dáinn. Til átaka kom milli veislugesta og manns sem kom óboðinn til veislunnar. Einn lést og annar særðist. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Unnið er að rannsókn. 16.5.2005 00:01
Eden í Hveragerði til sölu Verslunar- og veitingahúsið Eden í Hveragerði er til sölu. Eden hóf starfsemi sumardaginn fyrsta árið 1957 og hefur því starfað samfellt í 48 ár. 16.5.2005 00:01
Jarðlög rannsökuð Íslenskar orkurannsóknir eru að hefja rannsóknir á jarðlögum milli Landeyjarsands og Vestmannaeyja. Þessar rannsóknir eru gerðar að frumkvæði Vegagerðar ríkisins í því að skyni að kanna aðstæður til jarðgangagerðar milli Vestmannaeyja og fasts lands. 16.5.2005 00:01
Lausir við grimmd götulífsins Stuðningsbýli Samhjálpar veitir mönnum sem hafa verið háðir fíkniefnum og með geðræna kvilla aðstoð. Forstöðumaður Samhjálpar segir árangurinn hafa farið fram úr björtustu vonum. Lögreglan og félagsmálayfirvöld eru ánægð með framtakið. 16.5.2005 00:01
Tvær konur létust í umferðarslysi Tvær konur létust og einn karlmaður slasaðist mikið í árekstri sem varð á þjóðveginum í Öxnadal undir kvöld í gær. Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan hálfsex. Slysið varð skammt frá bænum Syðri-Bægisá í Hörgárbyggð og með þeim hætti að jeppi á leið til Akureyrar, sem í voru eldri hjón, og fólksbíll á suðurleið, sem ein kona var í, skullu saman. 15.5.2005 00:01
Hóta heilögu stríði 300 múslímaklkerkar í Afganistan hafa hótað heilögu stríði gegn Bandaríkjunum ef þau framselji ekki þrjá hermenn sem eru sagðir hafa vanvirt hina helgu bók þeirra Kóraninn við yfirheyrslur í Guantanamo-flóa á Kúbu. Bandaríkjamönnum er gefinn þriggja daga frestur til að verða við þessari kröfu. 15.5.2005 00:01
Brutu rúðu til að komast í teiti Unglingspiltar brutu rúðu í heimahúsi í Garðabæ í nótt þegar þeir reyndu að komast óboðnir inn í samkvæmi. Stúlka á sextánda ári hafði fengið leyfi til að bjóða nokkrum vinkonum sínum heim og höfðu piltarnir frétt af því. Lögreglan í Hafnarfirði var kvödd á staðinn og var fengin aðstoð lögreglunnar í Kópavogi til að skakka leikinn. Enginn var handtekinn vegna þessa. 15.5.2005 00:01
Forsetinn tekur þátt í hringflugi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lagði af stað í hringflug Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands með fríðu föruneyti klukkan hálfníu í morgun. Um eitt hundrað manns taka þátt í hringfluginu á tveimur Fokker 50 vélum. Fyrsti áfangastaður var Ísafjörður þar sem tvær sýningar voru opnaðar á tíunda tímanum, önnur í Slunkaríki og hin í Edinborgarhúsinu. 15.5.2005 00:01
Tvö minni umferðarslys í gær Maður slasaðist á höfði eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum við Laugafell á leiðinni inn að Kárahnjúkum um kvöldmatarleytið í gær. Hann var fluttur á heilsugæslustöðina að Kárahnjúkum þar sem hlúð var að honum. Bíllinn er ónýtur. Þá urðu ekki teljandi meiðsl á fólki þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og velti á Snæfellsnesvegi skammt sunnan við Hítará í gærdag. Ökumanninum fataðist aksturinn í beygju. 15.5.2005 00:01
Rice óvænt í heimsók til Íraks Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Íraks í dag. Hún mun funda með pólitískum leiðtogum þar í landi um leiðir til þess að binda enda á óöldina sem þar ríkir. Rice sagði við fréttamenn, sem fylgdu henni eftir, að uppreisnir verði ekki brotnar á bak með hervaldi heldur með því að hafa sterka pólitíska stefnu sem þjóðin sætti sig við. 15.5.2005 00:01
Skæruliðar ræna börnum í Nepal Skæruliðar maóista í Vestur-Nepal hafa rænt að minnsta kosti 450 skólabörnum á síðustu þremur dögum. Skæruliðarnir hafa einnig ráðist á og barið starfsmenn hjálparstofnana sem hefur leitt til þess að þeir hafa lagt niður störf. Skæruliðarnir ræna iðulega skólabörnum og halda yfir þeim áróðursfyrirlestra. Þeim er þó yfirleitt skilað ómeiddum eftir nokkra daga. 15.5.2005 00:01
Gripinn tvisvar án ökuréttinda Tvítugur maður var tvívegis tekinn af lögreglunni í Keflavík í gær fyrir að aka bíl sviptur ökuréttindum. Fyrst var hann tekinn rétt eftir hádegi og svo aftur seint í gærkvöld. Lögreglan segir mjög hart tekið á brotum sem þessum. 15.5.2005 00:01
Á 185 km hraða á Miklubraut Ökumaður var tekinn á 185 kílómetra hraða á Miklubraut neðan Ártúnsbrekku í Reykjavík í nótt. Má hann búast við því að verða sviptur ökuréttinundum og fá háa sekt. Þá voru sex teknir fyrir ölvunarasktur í Reykjavík og einn í Hafnararfirði og annar í Kópavogi. 15.5.2005 00:01
Annir hjá lögreglunni á Blönduósi Um fimmtíu hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi frá því á fimmtudag. Þá voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur í nótt. Lögreglan býst við því að enn eigi þeim eftir að fjölga sem verða tekir fyrir hraðakstur þessa hvítasunnuhelgi. 15.5.2005 00:01
Segja uppreisn hafa breiðst út Uppreisnin í Úsbekistan hefur nú breiðst út til fleiri borga og fólk er ofsareitt forseta landsins eftir að hundruð manna voru skotnir til bana á föstudag. 15.5.2005 00:01
Leituðu torfærukappa á Suðurlandi Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út á þriðja tímanum í nótt til að leita að fimm mönnum á torfærumótorhjólum. Þeir höfðu lagt af stað frá Gjábakkavegi um fjögurleytið í gær og ætluðu norður að Hlöðufelli og niður hjá Miðdal en skiluðu sér ekki á ætluðum tíma. Um 25 björgunarsveitarmenn komu að leitinni og fundu þeir mennina laust fyrir klukkan sex í morgun heila á húfi í Dalbúðarskála við Kerlingu. 15.5.2005 00:01