Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu lík af 34 Írökum um helgina Yfirvöld í Írak greindu frá því í dag að þau hefðu um helgina fundið lík af 34 Írökum sem talið er að uppreisnarmenn hafi myrt. Lögregla fann 13 lík af fólki sem skotið hafði verið í höfuðið í ruslagámi í höfuðborginni Bagdad og þá fundust 10 hermenn látnir í borginni Ramadi, vestur af Bagdad. Enn fremur fann lögregla ellefu látna Íraka í svokölluðum dauðaþríhyrningi suður af Bagdad og höfðu fjóri þeirra verið afhöfðaðir. 15.5.2005 00:01
Sækir veikan sjómann við Hornbjarg Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF var kölluð kölluð út á hádegi til að sækja veikan sjómann um borð í bát norður af Hornbjargi. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað nákvæmlega amar að manninum en hann var hífður um borð í þyrluna rétt fyrir klukkan hálfþrjú. 15.5.2005 00:01
Fordæma meinta vanhelgun á Kórani Múslímaríki og -hópar stíga nú fram hver af öðrum og fordæma meinta vanhelgun á Kóraninum sem sagt er að hafi átt sér stað í fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu. Yfirvöld í Bangladess sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem verknaðurinn er fordæmdur og þess krafist að hinum seku verði refsað. Æðsti klerkur súnníta í Líbanon tekur í sama streng og fer fram á alþjóðlega rannsókn á málinu. 15.5.2005 00:01
Umbótasinnar fangelsaðir Dómstóll í Sádi-Arabíu hefur dæmt þrjá umbótasinna í fangelsi fyrir að reyna að skapa óróa í landinu og bjóða yfirvöldum birginn. Þeir voru handteknir í mars í fyrra ásamt níu öðrum fyrir að biðla til konungsfjölskyldunnar um að koma á stjórnarskárbundnu konungsdæmi og flýta fyrir pólitískum umbótum í landinu. 15.5.2005 00:01
Sjálfstæðisafmæli fagnað Austurríkismenn minntust þess í dag að hálf öld er liðin frá því að landið öðlaðist aftur sjálfstæði í kjölfar þess að bandamenn úr síðari heimsstyrjöldinni yfirgáfu það. Helstu leiðtogar þjóðarinnar voru að því tilefni viðstaddir hátíðlega athöfn í Vín ásamt fulltrúum landanna fjögurra sem hernámu það í kjölfar loka síðari heimsstyrjaldarinnar. 15.5.2005 00:01
Samar ganga til kosninga Samar í Norður-Svíþjóð ganga til kosninga í dag en þá verður valinn 31 fulltrúi á Samaþingið. Sex flokkar berjast um sæti á þinginu sem er ráðgjafarþing og sér fyrst og fremst um að úthluta ríkisstyrkjum til samískra byggðarlaga í Svíþjóð. Meðal helstu kosningamála er hvort breyta eigi reglum sem kveða á um að atkvæðavægi samískra samfélaga sé í réttu hlutfalli við fjölda hreindýra í samfélögunum. 15.5.2005 00:01
Selma syngur á Gay pride í Osló Á blaðamannafundi sem haldin var í gær sagði Selma Björnsdóttir frá því að henni hefði verið boðið að syngja á Gay pride í Osló í sumar og þar myndi hún koma fam ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni, sem eins og Selma hefur keppt í Euróvison. 15.5.2005 00:01
Fjórða sæti í veðbönkum Ísland er sem stendur í fjórða sæti í enskum veðbönkum sem taka við veðmálum um sigur í Eurovision keppninni. Grikkir tróna þar á toppnum, ungverjar í öðru og Norðmenn í því þriðja á undan Íslandi. 15.5.2005 00:01
Hvetur Úsbeka til samvinnu Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, hvatti úsbesk stjónvöld í dag til þess að hleypa starfsmönnum Alþjóða Rauða krossins og erlendum eftirlitsmönnum inn í landið vegna frétta af því að hundruð mótmælenda hafi verið drepin í mótmælum í borginni Andijan á föstudag. 15.5.2005 00:01
Þyrlan komin til Reykjavíkur Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF, lenti nú klukkan hálffimm á Reykjavíkurflugvelli með veikan sjómann sem hún sótti í bát norður af Hornbjargi. Þyrlan var kölluð út á hádegi í dag og var maðurinn kominn um borð í hana rétt fyrir klukkann hálfþrjú. Þyrlan hélt í kjölfarið til Ísafjarðar til að taka eldsneyti og flaug svo beint til Reykjavíkur. 15.5.2005 00:01
Fjórar sprengingar á Spáni Litlar sprengjur sprungu í fjórum bæjum í Baskahéruðum Spánar í dag með þeim afleiðingum að þrír meiddust. Tvær sprengnanna sprungu við efnaverksmiðjur, sú þriðja við málningarverksmiðju og sú fjórða við málmvinnslu og þurftu tveir lögreglumenn og einn öryggisvörður að leita á sjúkrahús eftir að þeir höfðu andað að sér eiturefnum við aðra efnaverksmiðjuna. 15.5.2005 00:01
Segjast hafa rænt bílstjórum Írakskur uppreisnarhópur greindi frá því í dag að hann hefði rænt tveimur bílstjórum og hótar að drepa þá hætti fyrirtæki þeirra ekki starfsemi í landinu innan sólarhrings. Sjónvarpsstöðin Al Arabiya sýndi í dag myndband sem stöðinni barst, en á því voru mennirnir tveir ásamt hópi hettuklæddra manna sem beindu m.a. byssu að höfði annars mannanna. 15.5.2005 00:01
Hlutast til um mál hjúkrunarkvenna Forseti Búlgaríu, Georgi Parvanov, greindi frá því í dag að hann hygðist fara til Líbíu á næstunni til þess að ræða við þarlend stjórnvöld um mál fimm búlgarskra hjúkrunarkvenna sem hafa ásamt palestínskum lækni verið dæmdar til dauða fyrir að hafa viljandi sýkt á fimmta hundrað börn af HIV-veirunni. Fólkið, sem starfaði á sjúkrahúsí í landinu, hefur verið í haldi frá árinu 1999 en það segist hafa verið þvigað til að játa á sig glæpinn. 15.5.2005 00:01
Eru mjög óánægð með Gunnar Ung frjálslynd lýsa í ályktun sem þau hafa sent frá sér mikilli óánægju með framgöngu Gunnars Örlygssonar í síðustu viku þegar hann sagði sig úr Frjálslynda flokknum og gekk í raðir Sjálfstæðisflokksins. 15.5.2005 00:01
Létust í umferðarslysi í Öxnadal Konurnar sem létust í umferðarslysi í Öxnadal í gær hétu Halldóra Árnadóttir og Edda Sólrún Einarsdóttir. Halldóra var til heimilis að Kvistagerði 2 á Akureyri og lætur eftir sig eiginmann og fjóra uppkomna syni. Hún var farþegi í jeppabifreiðinni. Edda Sólrún var til heimilis að Baldursgötu 10 í Reykjanesbæ. Hún lætur eftir sig tvo uppkomna syni. Hún var ökumaður fólksbifreiðarinnar. 15.5.2005 00:01
Vilja að kolmunnaveiðum verði hætt Norska hafrannsóknarstofnunin og danska matvælaráðuneytið vilja að kolmunnaveiðum verði hætt þegar í stað. Það myndi kosta Ísland marga milljarða króna. 15.5.2005 00:01
Newsweek viðurkennir mistök Bandaríska tímaritið <em>Newsweek</em> hefur viðurkennt að frétt þess um að leyniþjónustumenn í fangabúðunum í Guantanamo-flóa hafi sturtað kóraninum niður um klósettið hafi líklega verið röng. Ritstjóri blaðsins biðst afsökunar á þessu í nýjasta hefti þess sem kemur út á morgun. Sextán manns létu lífið í Afganistan í óeirðum sem urðu vegna þessarar fréttar. 15.5.2005 00:01
Fjölmenni í Nauthólsvík í dag Ylströndin í Nauthólsvík var opnuð í morgun. Fjöldi fólks kom þangað í dag að njóta blíðunnar á þessum fallega hvítasunnudegi. 15.5.2005 00:01
Telur ekki að samstaða muni aukast Útspil Norðuráls á Suðurnesjum verður ekki til þess að samstaða aukist meðal Norðlendinga um staðsetningu stóriðju, að mati framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Norðlendingar virðast samt sem áður ákveðnir í að komast aftur fram úr Suðurnesjamönnum í samkeppninni um næsta álver. 15.5.2005 00:01
Fékk fyrstur gervihjarta á Íslandi Gervihjarta var sett í sjúkling í fyrsta sinn á Íslandi fyrir tíu dögum. Örn Elísson fékk gervihjarta til að komast í gegnum hjartaaðgerð sem hann hefði annars ekki lifað af. 15.5.2005 00:01
Lengst í fríi á Norðurlöndum Íslenskir þingmenn fá lengst sumarfrí allra þingmanna Norðurlandanna. Finnar fá styst frí, rúmar sex vikur, en Íslendingar rúmar tuttugu. 15.5.2005 00:01
Vinna að bóluefni gegn reykingum Tilraunir lyfjafyrirtækja til þess að finna upp bóluefni gegn reykingum, eru sagðar hafa skilað góðum árangri. Niðurstöður voru kynntar í dag. 15.5.2005 00:01
Óttast að hátíðin sé að hverfa Biskup Ísland óttast að hátíðin sé að hverfa úr lífi fólks og að allir dagar verði eins. Sjálfur var hann við hvítasunnumessu í Hallgrímskirkju í dag til að halda upp á anda hins góða og bjarta. 15.5.2005 00:01
Strandavegur mjög illa farinn Vegurinn frá Hólmavík á Ströndum að Brú í Hrútafirði er illa á sig kominn. Auknir stórflutningar um veginn hafa leikið hann illa og nú horfa Strandamenn til vegar um Arnkötludal sem myndi stytta leiðina á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um 40 kílómetra. 15.5.2005 00:01
Frekari mótmæli í Andijan Þúsundir manna hafa á ný safnast saman í borginni Andijan í Úsbekistan þar sem tugir manna féllu í blóðugum bardögum í gær. Erlendum fréttamönnum hefur verið vísað frá borginni. Fólkið var að mótmæla einræðisstjórn Islams Karimovs forseta sem hefur stjórnað landinu frá 1989. 14.5.2005 00:01
Erill hjá lögreglunni í Reykjavík Erilsamt var hjá Lögreglunni í Reykjavík í nótt en alls voru átta ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur og fengu þrír þeirra að gista í fangageymslum lögreglunnar í nótt. Skýrsla af þeim verður tekin nú í morgunsárið. Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík var ölvun talsverð í miðbæ Reykjavíkur í nótt en lögreglan segir þó að nóttin hafi gengið stórslysalaust fyrir sig. 14.5.2005 00:01
Nokkuð annasamt í Kópavogi Talsverður erill var einnig hjá lögreglunni í Kópavogi í nótt en einn ökumaður var stöðvaður grunaður um ölvun við akstur á Reykjanesbrautinni um klukkan eitt í nótt. Hann var þó látinn laus eftir að blóðsýni hafði verið tekið úr honum. Þá stöðvaði Selfosslögreglan ökumann vegna gruns um ölvun um klukkan átta í gærkvöld og segir lögreglan að viðkomandi hafi virst talsvert ölvaður en hafi þó fengið að fara heim eftir rannsókn. 14.5.2005 00:01
Níu Kúrdar drepnir í Tyrklandi Tyrkneskar hersveitir felldu í nótt níu kúrdíska uppreisnarmenn, þar af tvær konur, í austurhluta landsins. Tíu þúsund tyrkneskir hermenn taka þátt í sókn að herbúðum Kúrda á þessum slóðum. Aðeins eru nokkrir dagar síðan Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði að réttarhöldin yfir Kúrdaleiðtoganum Abdullah Öcalan hefðu verið ósanngjörn. 14.5.2005 00:01
Abbas til Washington í lok maí Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, mun eiga fund með George Bush, forseta Bandaríkjanna, í Washington hinn 26. þessa mánaðar. Bush bauð Abbas til Washington strax eftir að hann var kjörinn forseti 10. janúar síðastliðinn. 14.5.2005 00:01
Listahátíð hefst í dag Listahátíð í Reykjavík hefst í dag og stendur hún í þrjár vikur. Þótt hátíðin sé kennd við höfuðborgina fer hún fram á tíu öðrum stöðum á landinu: Kópavogi, Hafnarfirði, Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði, Eiðum, Vestmannaeyjum, Skálholti, Hveragerði og undir Eyjafjöllum. Hátíðin í ár er helguð alþjóðlegri samtímamyndlist. 14.5.2005 00:01
Öflugur skjálfti á Súmötru Snarpur jarðskjálfti skók eyjuna Súmötru í Indónesíu snemma í morgun og olli hann töluverðri skelfingu meðal íbúa eyjarinnar. Skjálftinn mældist 6,9 á Richter á átti upptök sín 50 kílómetra norðvestur af borginni Padang á vesturhluta eyjarinnar. Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða skemmdum á mannvirkjum en hræddir íbúar víða á eyjunni flýðu upp á hálendi minnugir fljóðbylgjunnar annan dag jóla í fyrra sem kostaði á annað hundrað manns lífið í Indónesíu. 14.5.2005 00:01
Fréttamönnum vísað úr landi Þúsundir manna hafa á ný safnast saman í borginni Andijan í Úsbeskistan þar sem tugir manna féllu í blóðugum bardögum í gær. Erlendum fréttamönnum hefur verið vísað frá borginni. 14.5.2005 00:01
Bílsprengjuárás á írakska lögreglu Að minnsta kosti fjórir létust í árás á írakska lögreglu í miðborg Bagdad í dag. Sjálfsmorðsárásarmaður ók bíl sínum að lögreglumönnum á eftirlitsferð í miðborginni og sprengdi hann í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. Þá bárust fregnir af því að níu bandarískir hermenn hefðu fallið í stórskotaárás á uppreisnarmenn í Anbar-héraði, nærri landamærum Sýrlands, sem staðið hefur í viku. 14.5.2005 00:01
Gegn verslun Dana í Þýskalandi Skattaráðherra Danmerkur ætlar að skera upp herör gegn verslun danskra ríkisborgara í Þýskalandi. 14.5.2005 00:01
Hrossaskíturinn dugði við Lyngmóa Hrossaskítur dugði til að fæla unglinga frá því að hópast á túnblett við Lyngmóa í Garðabæ í gærkvöldi. Þess í stað kom hópur ungmenna saman við Löngufit og varð úr bæði ölvun og ólæti, raunar svo mikil að lögregla handtók þrjá pilta á svæðinu. Gistu þeir fangageymslu í nótt. 14.5.2005 00:01
Viðrar vel á fjallgöngugarpa Fjallgöngugarpar á leið á Öræfajökul fá hið besta veður á leið sinni upp á hæsta tind landsins. Um tvö hundruð manna hópur lagði af stað um fjögurleytið í nótt og er væntalega kominn á Hvannadalshnjúk. Hið besta veður er nú í Öræfasveit. Þar var 14 stiga hiti og bjartviðri og höfðu menn sýn á tindinn úr Freysnesi í morgun. 14.5.2005 00:01
Ekki sáttur við niðurstöðu nefndar Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, Björgólfur Jóhannsson, er ekki sáttur við þá niðurstöðu svokallaðrar hágengisnefndar um að ekki sé ástæða til að grípa til sértækra aðgerða vegna hás gengis krónunnar. Hágengisnefnd viðurkennir í skýrslu, sem kynnt var í gær, að afkoma og rekstrarskilyrði sjávarútvegsins séu óviðunandi en samkvæmt niðurstöðum megi sjá merki um jákvæða þróun mitt í öllum erfiðleikunum. 14.5.2005 00:01
Fundu fjöldagröf í Kosovo Réttarmeinafræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna telja sig hafa fundið fjöldagröf í bænum Malisevo í Kosovo-héraði. Líkin í gröfinni eru talin vera af Serbum sem saknað hefur verið síðan 1998 þegar Kosovo-Albanar og Serbar bárust á banaspjót í héraðinu. Nú þegar hafa sex lík fundist en réttarmeinafræðingarnir reikna með að finna fleiri á næstunni. 14.5.2005 00:01
Skellir skuldinni á öfgamenn Islam Karimov, forseti Úsbekistans, segir íslamska öfgamenn bera ábyrgð á mótmælunum og blóðbaðinu í borginni Andijan í gær. Þá skutu hermenn á mótmælendur sem safnast höfðu saman á götum borgarinnar til þess að mótmæla því að 23 kaupsýslumenn, sem sakaðir eru um að styðja við bakið á íslömskum uppreisnarmönnum, hefðu verið fangelsaðir. 14.5.2005 00:01
Gunnar fær engan stuðning eigin varaþingmanns Sigurlín Margrét Sigurðardóttir 1. varaþingmaður á lista Frjálslynda flokksins í Suðvestur kjördæmis Gunnars Örlygssonar ætlar ekki að fylgja honum í Sjálfstæðisflokkinn. Gunnar náði kjöri í þessu kjördæmi sem uppbótarþingmaður Frjálslynda flokksins í Alþingiskosningunum þann 10. maí árið 2003. F-listinn fékk 6,75% prósent gildra atkvæða þar. 14.5.2005 00:01
Fjölmenni á Hvannadalshnjúki Um tvöhundruð manna hópur fjallgöngugarpa var væntanlegur á Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands, nú á þriðja tímanum. Langflestir eru vegum Ferðafélags Íslands, um eitt hundrað manns, undir fararstjórn Haraldar Arnar Ólafssonar en smærri hópar ganga á Öræfajökul á vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna, Útivistar og Öræfaferða. 14.5.2005 00:01
Fundað á Kóreuskaganum Norður- og Suður-Kóreumenn hafa ákveðið að funda í næstu viku, réttum tíu mánuðum eftir að þeir ræddu síðast saman. Til stendur að ræða samskipti landanna auk þess sem Suður-Kóreumenn munu freista þess að fá nágranna sína aftur að samningaborðinu vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. 14.5.2005 00:01
Stöðvaði slagsmál með táragasi Lögreglan í Hafnarfirði þurfti í gærkvöld að beita táragasi til þess að stöðva slagsmál við Löngumýri í Garðabæ. Tilkynnt var um ólæti við götuna um miðnætti og greint frá því að tíu til fimmtán piltar væru að slást þar auk þess sem bílum hefði verið ekið óvarlega í götunni. Þegar lögrega kom á staðinn var talsverður í æsingur í þeim sem þar voru og flugust menn á. 14.5.2005 00:01
Meiddist illa í hlaupahjólsslysi Þrettán ára strákur slasaðist alvarlega þegar hann féll á hlaupahjóli sínu í fyrradag á Hátúni í Keflavík. Drengurinn fékk stýrið í kviðinn með þeim afleiðingum að miltað sprakk. Samkvæmt fréttavef <em>Víkurfrétta</em> var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítalans og var þaðan á gjörgæsludeild. Eftir aðhlynningu lækna var hann síðan fluttur á Barnaspítala Hringsins. 14.5.2005 00:01
Segir 500 manns látna í Andijan Allt að fimm hundruð manns eru talin hafa látist í gær þegar hersveitir í Úsbekistan skutu á þúsundir mótmælenda og tókust á við uppreisnarmenn í Andijan. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir yfirmanni úsbesku mannréttindasamtakanna Appeal sem staddur er í borginni. Sá segist hafa rætt við vitni að atburðinum. 14.5.2005 00:01