Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lettar í farbanni afskiptir Yfirtrúnaðarmaður á Káranhjúkum er ósattur við framkomu GT verktaka í garð tveggja Letta sem fyrirtækið réði tli vinnu upp á Kárahnjúka. Hann segir að mennirnir hafi fengið sextíu þúsund krónur greiddar síðan þeir um miðjan febrúar. 19.4.2005 00:01
Íhaldssamur maður kenningarinnar Joseph Ratzinger, sem kjörinn var páfi í gær, fæddist í smábænum Markl am Inn syðst í Bæjaralandi þann 16. apríl 1927. Fjórtán ára gamall var hann skráður gegn vilja sínum í Hitlersæskuna, sem nasistar skylduðu alla þýska drengi til, en var fljótlega sleppt úr henni þar sem hann var þá þegar kominn á þá braut að læra til prests. 19.4.2005 00:01
7000 nýskráningar í Samfylkinguna Gríðarleg smölun stuðningsmanna formannsefnanna í Samfylkingunni hefur skilað sjö þúsund nýjum flokksmönnum sem er aukning um tæp 54 prósent frá áramótum. Þá voru skráðir flokksmenn u.þ.b. þrettán þúsund en eru nú rétt um tuttugu þúsund eftir að frestur til að skrá sig í flokkinn, til að geta tekið þátt í formannskjörinu, rann út á föstudag. 18.4.2005 00:01
Rannsókn á sölu Búnaðarbankans Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, vill að Alþingi láti fara fram opinbera rannsókn á sölu Búnaðarbankans á sínum tíma og skili þjóðinni skýrslu um málið. 18.4.2005 00:01
Afsögn Berlusconi? Ítalska stjórnin virðist vera að falla. Silvio Berlusconi forsætisráðherra fundar með Carlo Azeglio Ciampi forseta í dag og tilkynnir þar hvort hann telji stjórn sína enn hafa meirihluta á þingi eða hvort hann hyggist segja af sér. 18.4.2005 00:01
UVG vill slíta R-lista samstarfinu Stjórn Ungra Vinstri-grænna í Reykjavík vill að R-lista samstarfinu verði slitið að loknu yfirstandandi kjörtímabili og að flokkurinn bjóði fram sér næsta vor. 18.4.2005 00:01
30 þúsund á svörtum lista Meira en þrjátíu þúsund manns mega ekki stíga upp í flugvélar sem lenda á bandarískri grundu. Þetta eru einstaklingar sem eru á lista bandarískra stjórnvalda yfir hugsanlega hryðjuverkamenn. 18.4.2005 00:01
Slasaðist mikið á Mýrum Erlendur ferðamaður slasaðist mikið þegar bíll, sem hann var farþegi í, flaug út af þjóðveginum við Arnarstapa á Mýrum í gærkvöldi og skall harkalega niður langt utan vegar. Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn og flutti hann á slysadeild Landspítalans þar sem hann lá á gjörgæsludeild í nótt. 18.4.2005 00:01
115 milljónir skortir menntun Eitt hundrað og fimmtán miljónir barna á grunnskólaaldri um allan heim njóta ekki menntunar. Stærstur hluti þessara barna er stúlkur og því hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sett sér það markmið að árið 2015 verði hlutfall kynjanna orðið jafnt í menntun grunnskólabarna. 18.4.2005 00:01
Forskot Verkamannaflokksins eykst Verkamannaflokkurinn í Bretlandi eykur forskot sitt lítillega í nýrri skoðanakönnun. Hann mælist með 41% fylgi, Íhaldsflokkurinn 33% og Frjálslyndir demókratar 20%. Gengið verður til kosninga 5. maí. 18.4.2005 00:01
Atlantsolía opnar á Akranesi Atlantsolía opnar í dag sjálfsafgreiðslu fyrir díselolíu við höfnina á Akranesi. Þar verður svonefnd kraftdæla sem styttir áfyllingartíma verulega. Í tilkynningu frá félaginu segir að í undirbúningi sé að taka upp sama fyrirkomulag á fleiri stöðum úti á landi. 18.4.2005 00:01
Ríkið hætti fjölmiðlaafskiptum Samband ungra sjálfstæðismanna hvetur ríkið til að hætta afskiptum af fjölmiðlum. Í ályktun ungliðanna er því mótmælt að sett séu fram hugmyndir um að skerða möguleika á fjármögnun einkarekinna fjölmiðla, á sama tíma og frumvarp liggi fyrir sem tryggi Ríkisútvarpinu rétt til aukinna umsvifa á markaðnum. 18.4.2005 00:01
Ofbeldismanna leitað Lögreglan í Reykjavík leitar enn þriggja til fjögurra manna sem börðu tvo menn til óbóta í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Árásirnar virðast báðar hafa verið tilefnislausar og þekkja fórnarlömbin ekkert til árásarmannanna. 18.4.2005 00:01
Norskt skemmiferðaskip í brotsjó Norskt skemmtiferðaskip skemmdist töluvert þegar meira en tuttugu metra hár brotsjór skall á því á laugardaginn. Fjórir farþegar ferjunnar, sem var á leið til New York, slösuðust í óhappinu og sjór flæddi inn í meira en sextíu klefa. Þá mölbrotnuðu fjölmargir gluggar í ferjunni þegar aldan skall á henni. 18.4.2005 00:01
Árekstur strætisvagns og jeppa Strætisvagn og jeppabifreið lentu í árekstri í Vesturbænum fyrir stundu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var áreksturinn, sem átti sér stað á mótum Dunhaga og Tómasarhaga, minniháttar og urðu engin slys á fólki. 18.4.2005 00:01
Landamæri Kasmír-héraðs opnuð Stjórnvöld á Indlandi og í Pakistan hafa sammælst um að vinna að því að opna landamærin við Kasmír-hérað þar sem mikill órói hefur ríkt. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, sagði í morgun að stefnt væri að því að auka samgöngur og viðskiptatengsl yfir landamærin. 18.4.2005 00:01
Fyrsta umferð páfakjörs í kvöld? Kardínálarnir eitt hundrað og fimmtán, sem kjósa nýjan páfa, loka sig inni í Sixtínsku kapellunni laust fyrir klukkan þrjú í dag og hefja undirbúning að atkvæðagreiðslu. Hugsanlegt er að fyrsta umferð atkvæðagreiðslunnar fari svo fram strax í kvöld. 18.4.2005 00:01
Þrjú kynferðisbrotamál um helgina Þrjú kynferðisbrotamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík um helgina og átti ungt fólk alls staðar hlut að máli. Meint brot voru öll framin í heimahúsum og með þeim hætti að karlmenn notuðu sér ölvunarástand kvenna til þess að ná fram vilja sínum við þær, gegn vilja þeirra. 18.4.2005 00:01
Fundað vegna ólátabelgjanna Áhöfn Kaupmannahafnarvélar Iceland Express situr þessa stundina á fundi með stjórn félagsins um ólátabelgina sem voru um borð á laugardag. Sex farþegar vélarinnar hótuðu hverjum öðrum og áhöfn vélarinnar líkamsmeiðingum. 18.4.2005 00:01
Sænska prinsessan í lífsháska Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar, lenti í miklum lífsháska í heimsókn sinni til Srí Lanka um helgina. Prinsessan var að heimsækja þau svæði í landinu sem urðu illa úti í flóðbylgjunni annan í jólum. 18.4.2005 00:01
Sameining Samfylkingar og VG? Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, telur fátt standa í vegi fyrir að Vinstri grænir og Samfylkingin geti sameinast í einn flokk. Ungir Vinstri grænir vilja hins vegar slíta R-lista samstarfinu og bjóða fram sér næsta vor. 18.4.2005 00:01
Vill ekki dauðadóm yfir Saddam Hinn nýi forseti Íraks, Jalal Talabani, sagði í útvarpsviðtali í dag að hann myndi neita að undirrita dauðadóm yfir Saddam Hussein, ef hann yrði fundinn sekur um stríðsglæpi. 18.4.2005 00:01
Standa við Biblíubreytingarnar Einar Sigurbjörnsson prófessor, sem situr í þýðingarnefnd Hins íslenska biblíufélags, segir nefndina standa við sínar breytingatillögur og að hann hefði jafnvel viljað ganga lengra. 18.4.2005 00:01
Leynileg útvarpsstöð talíbana Skæruliðar talíbana í Afganistan hafa hafið útvarpssendingar um leynilega útvarpsstöð. Yfirmaður bandarískra hersveita í landinu segir að talíbanar séu ennþá hættulegir. 18.4.2005 00:01
Orkumálastjóri í leyfi Þorkell Helgason orkumálastjóri hefur af persónulegum ástæðum óskað eftir leyfi frá starfi um tveggja mánaða skeið. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur sett Ragnheiði Ingu Þórarinsdóttur í embætti orkumálastjóra umrætt tímabil. 18.4.2005 00:01
2500 hermenn farnir frá Líbanon 2500 sýrlenskir hermenn hafa verið fluttir frá austurhluta Líbanons undanfarna daga og eru þá aðeins um 1500 hermenn eftir í landinu. Þeir eiga að vera farnir fyrir næstu mánaðamót samkvæmt samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 18.4.2005 00:01
Boðin aðstoð gegn streitu Annað slagið koma upp aðstæður vegna mönnunar á Landspítala háskólasjúkrahúsi, þar sem fólki líður illa vegna álags. Þetta segir lögmaður á skrifstofu starfsmannamála. Hann segir ýmsa starfsemi í gangi sem standi starfsfólki til boða ef streita og álag hrjá það. </font /></b /> 18.4.2005 00:01
Mun meiri veikindi starfsmanna LSH Samanburður sem sviðsstjórar Landspítala háskólasjúkrahúss hafa gert á fjarvistum starfsmanna spítalans í janúar og febrúarmánuði í fyrra og á sama tíma í ár sýndu að umtalsvert meira var um veikindi starfsmannanna í ár heldur en í fyrra, að sögn Eydísar Sveinbjarnardóttur starfandi hjúkrunarforstjóra. Hún sagði því ekki að neita að mikið vinnuálag væri á spítalanum. 18.4.2005 00:01
Helmingur karlmanna ákærður Sjö menn, eða helmingur allra fullorðinna karlmanna á Pitcairn-eyju, hafa verið ákærðir fyrir kynferðisglæpi sem sumir áttu sér stað fyrir áratugum. Pitcairn-eyja var numin af uppreisnarmönnum á hinu sögufræga skipi MS-Bounty árið 1789. 18.4.2005 00:01
3,6% erlendir ríkisborgarar 10.636 erlendir ríkisborgarar voru með lögheimili hér á landi 1. desember í fyrra samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þetta eru um 3,6% landsmanna. Íbúum með erlent ríkisfang hefur fjölgað um helming síðasta áratug en þeir voru 1,8% þjóðarinnar árið 1995. 18.4.2005 00:01
Héðinsfjarðargöng ekki töfralausn Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði telur að einungis með afnámi hrepparígs, opnu hugarfari, bjartsýni og framsýni verði hægt að skapa raunhæfan valkost á Norðurlandi við höfuðborgarsvæðið og bendir á að bættar samgöngur með Héðinsfjarðargöngum séu ekki einar og sér allra meina bót. 18.4.2005 00:01
Ítalska stjórnin heldur velli Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur tekist að koma í veg fyrir fall ríkisstjórnar sinnar. Hann hafði sagt að ef Flokkur kristilegra demókrata, sem sagði sig úr ríkisstjórninni fyrir skemmstu, kæmi ekki aftur þá myndi hann rjúfa þing og boða til kosninga. 18.4.2005 00:01
Kardínálarnir loka sig af Kardínálarnir 115 sem fá að kjósa nýjan páfa hafa nú lokað sig inni í Sixtínsku kapellunni í Vatíkaninu. Þúsundir manna bíða á Péturstorginu til að sjá reykinn liðast upp eftir fyrstu atkvæðagreiðsluna sem gæti allt eins orðið í kvöld. 18.4.2005 00:01
Eyjaskeggjar flýja vegna eldgoss Öskugos er nú í gangi í Karthalafjalli á Comoros-eyjum í Indlandshafi. Flestir þeirra tíu þúsund íbúa sem búa á suðurhluta stærstu eyjunnar, þar sem eldfjallið er, hafa flúið. 17 manns létust fyrir um hundrað árum þegar fjallið spjó eiturgufum yfir byggð. 18.4.2005 00:01
Stjórnin segi af sér Stjórn Verkstjórasambands Íslands hefur skorað á stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins að segja af sér. Segir í ályktun að ávöxtun sjóðsins hafi verið óviðunandi í samanburði við aðra sjóði og sá slaki árangur sé óafsakanlegur. 18.4.2005 00:01
Náði bílprófinu í 272. tilraun Suður-Kóreubúinn Seo Sang-moon hafði ástæðu til að fagna á dögunum þegar hann náði skriflegum hluta bílprófs í 272. tilraun. Sang-moon er ólæs, sem útskýrir ef til vill hvers vegna þetta tók hann svona langan tíma, en hann er að verða sjötugur. 18.4.2005 00:01
Mjúkir andlitsdrættir eru málið Þorri kvenna kýs menn með mjúka andlitsdrætti enda segir náttúran að þeir séu betri uppalendur. Fáir kjósa sér rekkjunauta sem líkjast þeim sjálfum enda gæti slíkt leitt af sér úrkynjun. </font /></b /> 18.4.2005 00:01
Engin dagsetning ákveðin "Við gerðum ráð fyrir að hefja viðræður að nýju í þessum mánuði en engin dagsetning hefur verið ákveðin," segir Davíð Oddssson, utanríkisráðherra, en tafir hafa orðið á viðræðum íslenska og bandarískra embættismanna um framtíð varnarsamnings landanna tveggja. 18.4.2005 00:01
Bessastaðabóndinn í stjórn Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi að Bessastöðum í Vestur-Húnavatnssýslu var kjörin í stjórn Landssambands kúabænda á aðalfundi sambandsins á dögunum. 18.4.2005 00:01
Athugasemdir við Biblíuna óskast Hið íslenska biblíufélag hefur sent frá sér athugasemd þar sem minnt er á að sú kynningarútgáfa sem nú liggur fyrir af þýðingu Nýja testamentisins er tillaga en ekki endanlegur texti. Öllum er velkomið að senda inn athugasemdir og hefur frestur til þess verið framlengdur til 5. maí. 18.4.2005 00:01
Persson skóflar í sig osti Göran Persson, leiðtogi sænska Verkamannaflokksins, segist skófla í sig osti þegar hann er stressaður. Hann viðurkennir að borða mikinn ost þessa dagana því skoðanakannanir sýna að fylgi flokksins dalar stöðugt. 18.4.2005 00:01
Umsóknin verði dregin til baka Samband ungra Sjálfstæðismanna vill að ríkisstjórn Íslands dragi umsókn Íslands um aðild að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til baka. Í ályktun sem sambandið var að senda frá sér segir að kostnaðurinn við aðildarferlið, og þá kosningarbaráttu sem heyja þurfi vegna aðildar, sé gríðarlegur. 18.4.2005 00:01
Borgarstjórinn í hegningarvinnu John Chikakwiya, borgarstjórinn í Blantyre, höfuðborg Malaví, var í dag dæmdur til þriggja ára hegningarvinnu fyrir að hafa stolið 4.000 dollurum, jafnvirði um 250.000 króna, úr sjóði sem ætlaður var í vegabætur. Mikil herferð gegn spillingu er nú í gangi í Malaví. 18.4.2005 00:01
Sorpustöðin ekki opnuð að nýju Meirihluti umhverfisráðs Reykjavíkurborgar hafnaði í dag tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að umhverfisráð skyldi leita leiða til að opna að nýju móttöku- og endurvinnslustöð Sorpu við Bæjarflöt í Grafarvogi. Stöðinni var lokað í ársbyrjun við takmarkaða hrifningu Grafarvogsbúa en um 25.000 íbúar eru á svæðinu. 18.4.2005 00:01
Vill leiða flokkinn áfram Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst áfram bjóða sig fram til formanns á komandi landsþingi flokksins sem haldið verður í október næstkomandi þrátt fyrir erfið veikindi sín undanfarin misseri. 18.4.2005 00:01