Fleiri fréttir

Eldri konur frekar í óhöppum

Meiri hætta er á að eldri konur lendi í umferðaróhöppum er karlar á sama aldri. Þetta er ein af niðurstöðum nýrrar íslenskrar rannsóknar, sem bendir einnig til þess að almennt sé ekki munur á slysatíðni hjá kynjunum.

Ný Byggðastofnun?

Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir að ef staða Íbúðalánasjóðs versni verði til ný Byggðastofnun sem stjórnvöld þurfi að borga með. Hún þyrfti þá að niðurgreiða vexti í þeim landshlutum þar sem veðin væru lélegust. Guðmundur segir nauðsynlegt að hækka hámarkslánin eigi sjóðurinn að vera áfram til í núverandi mynd.

Framkvæmdir loks stöðvaðar

Magnús Sædal byggingarfulltrúi stöðvaði fyrst í gær framkvæmdir við nýtt hótel í gamla Eimskipafélagshúsinu. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi byggingarleyfið úr gildi fyrir rúmum hálfum mánuði og taldi það ekki eiga lagastoð. Magnús segist gera ráð fyrir að hægt verði að gefa út nýtt leyfi 8. desember og framkvæmdir geti þá hafist að nýju.

Ekki alveg ótamarkað niðurhal?

Tímamót í netsögu Íslands segja forsvarsmenn fyrirtækisins IPNets, sem bjóða nú fyrstir allra ótakmarkað niðurhal frá útlöndum. Hjá öðrum netþjónustufyrirtækjum eru menn þó fullir efasemda.

Stuðningur við stríð endurmetinn

Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur eðlilegt að íslensk stjórnvöld endurskoði stuðning sinn við Íraksstríðið í ljósi þess að upplýsingar um gereyðingarvopn í Írak hafi verið rangar.

Einkavæðing í Borginni

Undirbúningur að sölu Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. og Vélamiðstöðvarinnar ehf. í eigu borgarinnar er hafin.

Nágrannar stefna sendiráðinu

Nágrannar bandaríska sendiráðsins undirbúa stefnu á hendur bandarískum stjórnvöldum um þessar mundir, en málið hefur tafist í meðförum utanríkisráðuneytisins. Árið 1995 eignaðist sendiráðið baklóð við Laufásveg 19 og meinar íbúum þar aðgang að lóðinni. Það hefur valdið íbúunum nokkrum óþægindum, meðal annars geta þeir ekki geymt ruslatunnurnar sínar bak við húsið sitt.

Sigurður Geirdal er látinn

Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi og leiðtogi framsóknarmanna í bænum, lést í gær, 65 ára að aldri. Hann skilur eftir sig eiginkonu og fimm börn. Sigurður fékk hjartaáfall aðfaranótt mánudags og var haldið sofandi í öndunarvél á sjúkrahúsi eftir aðgerð á þriðjudag.

Niðurskurður umdeildur í Framsókn

Þingflokkur Framsóknarflokksins mun ræða á fundi í dag þá ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar að veita ekki fé til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Talið er að málið sé umdeilt innan flokksins.

Reki velli í Reykjavík og Keflavík

Það er ekkert samhengi milli framtíðar Reykjavíkurflugvallar og þess hvort Íslendingar muni hugsanlega taka að sér auknar byrðar í rekstri Keflavíkurflugvallar að mati Jóns Karls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands.

Hlíðarendi fram úr áætlun

Framkvæmdakostnaður við uppbyggingu íþróttamannvirkja og aðstöðu Vals við Hlíðarenda verður hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Vals frá 11. maí árið 2002 var gert ráð fyrir að uppbyggingin myndi kosta 715 milljónir króna. Nú er hins vegar áætlað að hún muni kosta rúman milljarð króna.

Umferðarþing vill mislæg gatnamót

Umferðarþing sem fram fór um helgina skoraði á borgaryfirvöld í Reykjavík að beita sér fyrir því að sem fyrst verði ráðist í byggingu mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.

Leita barnaræningjans enn

Lögreglan í Kópavogi leitar enn mannsins sem nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi síðdegis á miðvikudag.

Hámarkshraði 80 kílómetrar

Víða þyrfti að lækka hámarkshaða úr 90 kílómetrum á klukkustund upp í 80 yrðu reglur Norðmanna um leyfilegan aksturshraða á tveggja akgreina þjóðvegum teknar upp hér á landi.

Gæti farið á báða vegu

Kosning kennara um kjarasamning við sveitarfélögin gæti farið á báða vegu. Trúnaðarmaður kennara í grunnskóla í Mosfellsbæ segir erfitt að ráða í hug kennara en færri séu eins harðir gegn samningnum nú en fyrst.

Janukovitsj verði rekinn úr starfi

Stjórnarandstaðan í Úkraínu krefst þess að Viktor Janukovitsj, forsætisráðherra landsins, verði rekinn úr starfi. Mótmælendur hrópuðu "niður með Kútsjma". Hæstiréttur fjallar í dag um áfrýjun Viktors Júsjenko vegna kosningaúrslitanna.

Aukið fé til heilsugæslu

Virkjunar- og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi segja til sín í aukinni heilsugæsluþjónustu. Í aukafjárlögum fær Heilbrigðisstofnun Austurlands 25 milljóna króna fjárveitingu.

Hafa samráð við Palestínumenn

Ísraelsmenn munu rýma landnemabyggðir á Gaza-ströndinni í samráði við palestínsk stjórnvöld að sögn Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels.

Reykskynjara á hvert heimili

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) stendur nú sem hæst en það hófst laugardaginn 20. nóvember með útgáfu forvarnablaðsins Slökkviliðsmaðurinn. Blaðinu er dreift í 70 þúsund eintökum um land allt en í því eru meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um eldvarnir heimilanna. Þá heimsækja slökkviliðsmenn 3. bekki grunnskólanna og fræða börnin um eldvarnir.

Neyðarfundur innan stundar

Neyðarfundur úkraínska þingsins hefst í Kænugarði innan stundar, og verður fjallað um þá ólgu sem ríkt hefur í landinu eftir forsetakosningarnar um síðustu helgi. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka hafa tilkynnt þátttöku sína á fundinum, nema flokkur Viktors Janúkóvits, forsætisráðherra.

Barghouti hættir við

Palestínski uppreisnarmaðurinn, Marwan Barghouti, sem situr í fangelsi í Ísrael, ætlar ekki að gefa kost á sér í væntanlegum forsetakosningum í Palestínu og taka við hlutverkinu af Jassirs Arafats, sem lést 11. nóvember síðastliðinn. Barghouti áformaði að bjóða sig fram gegn Mahmoud Abbas, en hætti við það og lýsti yfir stuðningi við Abbas

Enn leitað

Lögreglan leitar enn manns sem nam níu ára stúlku á brott á mótum Bröttubrekku og Álfhólsvegarm í Kópavogi á miðvikudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu berst fjöldi upplýsinga til lögreglu. Eins og fram hefur komið, lýsir stúlkan manninum þannig að hann sé um tvítugt, sköllóttur, með svört plastgleraugu og skeggtopp undir efri vörinni.

Erill hjá lögreglunni

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur. Einn þeirra lenti í árekstri á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar laust fyrir klukkan tvö í nótt. Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir áreksturinn með minniháttar meiðsl.

Hægt að fækka slysum um 80-90%

Umferðarþing telur að hægt sé að fækka slysum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar um 80 til 90 prósent með vel hönnuðum mislægum gatnamótum. Þetta kemur fram í ályktun sem þingið samþykkti. Þar er skorað á borgaryfirvöld að beita sér fyrir því að sem fyrst verði ráðist í byggingu mislægra gatnamóta á þessum setað.

Reksturinn verði tryggður áfram

Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International skorar á Alþingi að tryggja áfram rekstur Mannréttindaskrifstofu Íslands. Skrifstofan fær engin bein framlög frá ríkinu á næsta ári, en getur sótt fé í sjóð ætluðum til mannréttindamála.

Úrslitin verði ógilt

Forseti úkraínska þingsins telur að ógilda eigi úrslit forsetakosninganna til að binda enda á þá ólgu sem ríkt hefur í landinu. Úkraínska þingið fjallar um þá ólgu sem ríkt hefur í landinu eftir forsetakosningarnar um síðustu helgi, en allir stjórnmálaflokkar, nema flokkur Viktors Janúkóvits, forsætisráðherra, sitja neyðarfundinn.

Óánægja meðal nágranna

Mikil óánægja er meðal nágranna bandaríska sendiráðsins í Reykjavík vegna stórra steyptra kerja sem búið er að koma upp framan við sendiráðið. Þeim er ætlað að koma í veg fyrir að hægt sé að keyra upp að húsinu. Eftir að kerin hafa verið sett upp, verður hægt að hleypa umferð á þennan hluta Laufásvegar að nýju.

Rúmenar fá 50 milljarða aukastyrk

Evrópusambandið hefur ákveðið að veita Rúmeníu ríflega 50 milljarða íslenskra króna í aukastyrki þegar landið gengur í Evrópusambandið árið 2007. Bróðurpartur upphæðarinnar fer í að auka öryggi við landamæri Rúmeníu.

Kastaði sér fram af Empire State

Miðaldra maður henti sér niður af 86. hæð Empire State byggingarinnar í New York í gær. Maðurinn klifraði yfir girðingu á útsýnispalli byggingarinnar og lét sig falla niður. Eins og nærri má geta er hann allur eftir verknaðinn. Þetta er í 31. skipti sem sjálfsmorð er framið með þessum hætti síðan Empire State byggingin var opnuð árið 1931.

Tölvuleikir vinsælli en kvikmyndir

Myndbönd og mynddiskar voru seld fyrir tæplega 950 milljarða íslenskra króna í Bandaríkjunum árið 2002 á meðan andvirði seldra tölvuleikja var um 1000 milljarðar króna. Þróunin er sú sama á Norðurlöndum. Á heimsvísu er velta leikjaiðnaðarins meiri en velta kvikmynda- og tónlistariðnaðarins samanlagt.

Innilokaðir í brennandi húsi

Sex slökkviliðsmenn eru fastir inni í bílastæðahúsi í bænum Gretzenbach í Sviss en eldur varð laus í húsinu í morgun. Slökkviliðsmennirnir urðu inniloka þegar þak hússins hrundi og að sögn talsmanns lögreglunnar í bænum eru líkurnar á því að mennirnir finnist á lífi orðnar hverfandi.

Fórnarlömb ofbeldis á tískusýningu

Núna klukkan þrjú koma konur með áverka eftir árásir fram á tískusýningu í Lækjargötu. Sýningin er á vegum Amnesty International á Íslandi og er liður í átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Ýmsar þekktar konur koma fram á sýningunni, farðaðar eftir áverkalýsingum úr dómsmálum og verður lesið upp úr málunum á meðan.

Dó brennivínsdauða á flóttanum

Liðlega þrítugur finnskur karlmaður rændi í gær hótel í bænum Turku í vesturhluta landsins, drakk sig öfurölvi og dó síðan brennivínsdauða í leigubíl þar sem lögreglan handtók hann. Ræninginn hafði hótað starfsmanni í afgreiðslu hótelsins með vopni og heimtað fé og áfengi.

Vefur Íslandsbanka fyrstur til að fá vottun fyrir aðgengi fatlaðra

Vefur Íslandsbanka, <a href="http://www.isb.is/" target="_blank"><font color="#000080"><strong>www.isb.is</strong></font></a>, er fyrstur íslenskra vefja til að vera vottaður fyrir aðgengi fatlaðra af Sjá viðmótsprófunum og Öryrkjabandalagi Íslands. Við hönnun vefsins var m.a. leitast við að koma til móts við þarfir blindra og sjónskertra, sem nota sérstaka vefskoðara við tölvunotkun.

Sigur fyrir stjórnarandstöðuna

Stjórnarandstaðan í Úkraínu þykir hafa unnið táknrænan sigur í dag eftir að þjóðþingið ógilti forsetakosningarnar í landinu þar sem þær endurspegluðu ekki vilja kjósenda. Þingið lýsti yfir vantrausti á yfirkjörstjórn landsins.

Sendinefnd ber kennsl á lík

Írösk sendinefnd er komin til Bosníu til að læra, af biturri reynslu á því svæði, hvernig skuli bera kennsl á lík sem grafin hafa verið í fjöldagröfum. Tæplega þrjú hundruð fjöldagrafir hafa fundist í Írak.

Vandræði í stafrænum heimi

Yfir tuttugu þúsund heimili hafa nú fengið nýjan, stafrænan myndlykil frá Digital Íslandi. En svo virðist sem á býsna mörgum þessara heimila gangi brösuglega að stilla hátæknitólið og að það valdi á köflum tómum vandræðum.

Slasast verr í jeppum

Meiri líkur eru á að fólk slasist illa í bílslysum aki það jeppa fremur en fólksbíl. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem íslenskur sérfræðingur gerði. Hann segir breytta jeppa oft stöðugri ökutæki en óbreytta.

4-6 milljarðar í einkaneyslu

Bankarnir lánuðu almenningi fimmtíu og fimm milljarða króna frá því nýju húsnæðislánin komu til sögunnar í síðari hluta ágúst til loka október. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir ekki hægt að neita því að bankarnir séu full glannalegir í útlánum.

Nágrannar ekki sáttir

Steypuklumpar standa fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna og eiga að vera þar til varnar hryðjuverkum. Nágrannar sendiráðsins eru ósáttir og óttast að bílsprengjur leggi híbýli þeirra í rúst í staðinn.

Reynt að rangtúlka skattalækkanir

Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að reynt hafi verið að rangtúlka skattalækkanir ríkisstjórnarinnar, gera lítið úr þeim og þagga þær niður. Hann fullyrðir að skattalækkanirnar komi öllum til góða og að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist að meðaltali um 4,5 prósent á ári.

Banaslys við Vonarskarð

Maður lést þegar hann missti stjórn á bíl sem hann ók með þeim afleiðingum að hann valt á hvolf ofan í á við Vonarskarð.

100 dagar liðnir frá gíslatöku

Þess var minnst víða í Frakklandi í gær að 100 dagar eru síðan frönsku blaðamennirnir Christian Chesnot og Georges Malbrunot voru teknir í gíslingu í Írak.

Kosningar endurteknar fyrir áramót

Líkur eru á að boðað verði til nýrra kosninga í Úkraínu fyrir áramót. Þingið lýsti forsetakosningarnar ógildar í gær og samþykkti vantraust á yfirkjörstjórnina. Viktor Júsjenko vill að kosið verði aftur 12. desember.

Stökk af 86. hæð

Maður framdi sjálfsmorð í New York með þeim hætti að hann stökk fram af 86. hæð Empire State byggingarinnar sem er einn fjölfarnasti ferðamannastaður Manhattan, samkvæmt CNN.

Sjá næstu 50 fréttir