Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. október 2026 12:43 Hörður Arnarson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár. Vísir/Vilhelm Hörður Arnarson, sem lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í byrjun mánaðar, segir að stjórnarfundir hafi verið haldnir án þess að honum hafi veri boðið líkt og lög kveði á um. „
Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir því áður en ég fer í einhver smáatriði,“ segir Hörður sem ræddi starfslokin í Sprengisandi. Þann 1. október tilkynnti Hörður starfsfólki Landsvirkjunar að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri. Hann fór síðar í viðtal í Kastljósi þar sem hann sagði að ágreiningur sem olli starfslokum sé meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð. Hann fór þó ekki nánar út í það fyrr en núna í Sprengisandi. „Það sem gerist kannski í þessu er það að þetta verklag á milli stjórnar og forstjóra verður öðruvísi en hefur verið,“ segir hann. „Það sem gerist er að forstjóra er oft meinuð aðkoma að því að tjá mál sín á fundum og í raun og veru með því að það eru haldnir stjórnarfundir án þess að hann fái boð. Hann er beðinn um að víkja af fundi til þess að ræða mál sem snúa að rekstri fyrirtækisins. Þetta hefur aldrei gerst áður.“ Einnig rifjar Hörður upp dæmi þegar hann óskaði eftir því að funda með fjármálaráðuneytinu um mikilvæg mál en þeim fundi hafi verið hafnað af bæði stjórn og ráðuneytinu. „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar.“ Þér hefur sem sagt ekki fundist þú hafa það bakland sem var nauðsynlegt og ekki það sem þú hefur haft lengst af á þínum forstjóraferli? „Allan minn forstjóraferil. Það hafa alltaf verið átök. Það hafa verið stórar persónur í stjórn Landsvirkjunar og átta fjármálaráðherrar, þeir eru nú ekki skoðanalaust fólk. Það hafa komið upp átakamál en bara á einum, tveimur fundum náðum við lendingu og fullur stuðningur við þá stefnu sem ég hafði fyrir fyrirtækið,“ svarar Hörður. Hann bætir við að hann telji sig hafa unnið gott starf og náð góðum árangri þegar kemur að trausti.
Sprengisandur Bylgjan Landsvirkjun Orkumál Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Sjá meira