Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Lovísa Arnardóttir skrifar 29. október 2026 06:29 Staða Benjamins Netjanahjús er talin veikari en áður eftir kosningarnar. Vísir/EPA Kjörstjórn Ísraels hóf talningu utankjörfundaratkvæða í nótt. Gert er ráð fyrir að talningin standi fram á fimmtudagskvöld, en telja þarf um 500.000 atkvæði frá hermönnum og stjórnarerindrekum. Í frétt Guardian segir að ekki sé búist við því að niðurstöður talningar breyti niðurstöðunum.
Þar kemur einnig fram að samkvæmt ísraelskum kosningalögum er hverjum kjósanda úthlutaður ákveðinn kjörstaður og getur hann einungis kosið þar. Við sérstakar aðstæður fá þó sumir kjósendur að greiða atkvæði á sérstökum kjörstöðum þar sem þeir eru ekki á kjörskrá. Meðal þeirra sem njóta þessarar undanþágu eru hermenn í herstöðvum Ísraelshers, stjórnarerindrekar sem starfa erlendis, fangar og fangaverðir og fólk sem liggur á sjúkrahúsi. Búið að telja 91 prósent atkvæða Þessi utankjörfundaratkvæði eru flutt beint til þinghússins, Knesset, þar sem þau eru skoðuð áður en þau eru talin og eru þess vegna talin síðust. Samkvæmt frétt Guardian er nú búið að telja 91 prósent atkvæða. Samkvæmt því er fylking Benjamins Netanhjús forsætisráðherra með 53 þingsæti, fylking andstæðings hans, Gadis Eisenkots, með 48 og að palestínsku flokkarnir með metfjölda eða 19 þingsæti. Gadi Eisenkot ánægður eftir fyrstu tölur en hann er ekki með meirihluta á þingi frekar en Netanahjú eftir kosningarnar. Vísir/EPA Bæði Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael og Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hafa sagst ætla að mynda ríkisstjórn. Það er þrátt fyrir að hvorug fylking hafi náð að tryggja sér meirihluta þingmanna í Knessetinu í kosningunum sem haldnar voru í Ísrael í fyrradag en 120 sæti eru á þinginu og því þarf 61 sæti í þingmeirihluta. Margra vikna óvissa gæti verið fram undan þar sem báðar fylkingar reyna að afla nægilegs stuðnings til að mynda ríkisstjórn. Í frétt Guardian segir að Yair Golan, leiðtogi Demókrata, miðvinstriflokks og minni samstarfsflokks í blokk Eisenkots, hafi sagt ísraelskum fjölmiðlum að hann muni hitta leiðtoga á fimmtudag til stjórnarmyndunarviðræðna. Samkvæmt Times of Israel mun hann eiga viðræður við Eisenkot, helsta frambjóðanda stjórnarandstöðunnar og formann Yashar-flokksins, og Yair Lapid, sem er annar maður á lista stjórnarandstöðuflokksins B’Yachad. Í fréttinni segir einnig að Isaac Herzog forseti Ísraels hafi lýst því að hann óski þess helst að ekki þurfi að halda aðrar kosningar, sem gæti þurft að gera nái enginn að mynda meirihluta. Ekki aðrar kosningar „Við verðum að gera allt sem við getum, sérstaklega eftir gærdaginn, til að komast hjá annarri kosningalotu,“ sagði Herzog, sem hefur það hlutverk að ákveða hvaða frambjóðandi fái stjórnarmyndunarumboð. Í frétt Guardian kemur fram að eftir kosningarnar sé ljóst að staða Benjamins Netanahjús sé veikari en áður. Hann verði annaðhvort að mynda meirihluta með palestínskum flokkum, sem juku fylgi sitt verulega í kosningunum, eða mynda bandalag með andstæðingi sínum, Gadi Eisenkot. Eisenkot og bandamenn hans standa í raun frammi fyrir sama vali. Sjá einnig: Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Yousef Jabareen, leiðtogi Sameinaða listans, þar sem arabar eru í meirihluta, sagði að ísraelskur almenningur hefði kosið nýja forystu og að hver sá sem vildi bjóða upp á raunverulegan og trúverðugan valkost við „blóði drifna ríkisstjórn Netanahjús“ yrði að ræða við hana. Hann sagði AFP að þótt hann væri reiðubúinn að vinna með ríkisstjórn undir forystu stjórnarandstöðunnar til að koma Netanahjú frá völdum væri hann ekki opinn fyrir því að ganga beinlínis til liðs við slíka samsteypustjórn. Stuðningur palestínskra þingmanna gæti þó gert Eisenkot kleift að halda úti minnihlutastjórn. Eins og fram kom að ofan stendur nú yfir lokatalning atkvæða og er talið að talningunni verði lokið seint í dag.
Ísrael Kosningar í Ísrael Tengdar fréttir Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda. 28. október 2026 09:55 Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Búið er að telja um meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Á vef ísraelska miðilsins Haaretz kemur fram að Netanahjú og hans fylking séu með um 55 sæti af 120 og stjórnarandstaðan með 64 samanlagt. Fylking Eisenkot er samkvæmt Haaretz með 49 sæti og Arabaflokkar með 16. 28. október 2026 06:30 Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti. 27. október 2026 20:21 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira
Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda. 28. október 2026 09:55
Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Búið er að telja um meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Á vef ísraelska miðilsins Haaretz kemur fram að Netanahjú og hans fylking séu með um 55 sæti af 120 og stjórnarandstaðan með 64 samanlagt. Fylking Eisenkot er samkvæmt Haaretz með 49 sæti og Arabaflokkar með 16. 28. október 2026 06:30
Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti. 27. október 2026 20:21