Kosningar í Ísrael

Fréttamynd

Kjörstaðir opnir í Ísrael

Kjörstaðir voru opnaðir í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá árás Hamas-liða 7. október 2023, sem leiddi til blóðugra átaka á Gaza. Flestar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarbandalag Benjamins Netanyahu forsætisráðherra muni missa meirihluta sinn á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Erlent
Fréttamynd

Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segist vona að ísraelskir kjósendur hafni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og öðrum sem eru með honum í ríkisstjórn. Þörf væri á nýrri ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni svokölluðu.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka

Sérstök þingnefnd um kosningar meinaði í vikunni stjórnmálaflokkum landsins sem leiddir eru af Aröbum að bjóða fram í þingkosningum næsta mánaðar. Fastlega er búist við því að hæstiréttur Ísrael muni ógilda ákvörðun nefndarinnar, sem er nánast eingöngu skipuð þingmönnum.

Erlent
Fréttamynd

Boðað til þing­kosninga í Ísrael þann 27. októ­ber

Boðað hefur verið til þingkosninga í Ísrael þann 27. október næstkomandi. Þá fá landsmenn í fyrsta sinn tækifæri til þess að leggja dóm á Benjamin Netanyahu og ríkisstjórn hans frá árásum Hamas á byggðir Ísraelsmanna þann 7. október árið 2023.

Erlent