Nóg sé komið af Trump Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. október 2026 07:53 Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, beindi spjótum sínum að Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi til stuðnings frambjóðendum Demókrata í komandi þingkosningum. AP Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi núverandi Bandaríkjaforseta harðlega á kosningafundi í Ohio í gær í aðdraganda þingkosninga. Donald Trump gæti engum kennt nema sjálfum sér um hátt verðlag og nú væri nóg komið. „
Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““ sagði Obama í gær en hann ávarpaði kjósendur Demókrata í Cleveland í Ohio-ríki á laugardaginn. Hann hefði samúð með kjósendum sem höfðu hafnað Demókrataflokknum í forsetakosningum 2024 vegna áhyggna sinna af efnahagi Bandaríkjanna í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Trump gæti þó engum kennt nema sjálfum sér vegna hækkandi verðlags. Þá gagnrýndi Obama Trump fyrir stríðsrekstur sinn í Íran og sagði að átökin hefðu fært Írönum „neitunarvald“ yfir Hormússundi. Trump hefur sætt gagnrýni vegna hækkandi eldsneytisverðs. Hann hefur á undanförnum vikum lagt mikla áherslu á að kenna árásum Úkraínumanna á rússneska orkuvinnsluinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og um heiminn allan. Sérfræðingar í þeim málum eru þó sammála um að stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í háu eldsneytisverði í heiminum en árásir Úkraínumanna. Þingkosningar vestanhafs fara fram þann 3. nóvember næstkomandi og munu þær ráða því hver fer með vald á Bandaríkjaþingi það sem eftir er kjörtímabils Trumps. Kannanir benda til þess að hátt verðlag muni koma sérstaklega mikið niður á Repúblikönum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin og Trump greiddi atkvæði í gær í Flórída ásamt eiginkonu sinni, forsetafrúnni Melaniu Trump.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Innrás Rússa í Úkraínu Bensín og olía Tengdar fréttir Styður Repúblikana með tugum milljarða Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði. 13. október 2026 22:56 Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum. 1. október 2026 16:01 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira
Styður Repúblikana með tugum milljarða Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði. 13. október 2026 22:56
Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum. 1. október 2026 16:01