Fótbolti

Fjórar ís­lenskar stelpur mættust í markaleik í Texas

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Auður Scheving og félagar hennar í LSU héldu upp á sigurinn með því að sprauta vatni yfir hetjuna sem skoraði sigumarkið undir lokin.
Auður Scheving og félagar hennar í LSU héldu upp á sigurinn með því að sprauta vatni yfir hetjuna sem skoraði sigumarkið undir lokin. LSU Soccer

Ísland á marga fulltrúa í bandaríska háskólafótboltanum en það er ekki á hverjum degi sem fjórir íslenskir leikmenn spila í sama leiknum.

Svo var þó raunin um helgina þegar fjórar íslenskar knattspyrnukonur mættust þegar Texas A&M tók á móti LSU í Bryan-College Station í Texas.

Liðin leika bæði í SEC-deildinni, einni sterkustu háskóladeild Bandaríkjanna, þar sem sextán lið berjast um tólf sæti í úrslitakeppni deildarinnar sem fer fram í Pensacola í Flórída 8.–15. nóvember.

Þrír íslenskir leikmenn leika með LSU, Louisiana State University, og liðið vann þarna dramatískan 4-3 endurkomusigur á Texas A&M.

Leikmennirnir eru markvörðurinn Auður Scheving (úr Stjörnunni), bakvörðurinn Rakel Sigurðardóttir (úr Víkingi R.) og framherjinn Berglind Freyja Hlynsdóttir (úr FH). Með Texas A&M spilar Brynja Rán Knudsen, miðjumaður úr Þrótti.

Texas A&M komst í 2-0 og 3-2 í leiknum en LSU tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum undir lok leiksins.

Íslensku stelpurnar komust ekki á blað í leiknum þegar kemur að mörkum eða stoðsendingum en þær spiluðu allar. Auður varði þrjú skot og Brynja Rán átti eitt skot á markið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×