Innlent

Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Starfsmaður ASÍ með kjörkassa fyrir leynilegu atkvæðagreiðsluna.
Starfsmaður ASÍ með kjörkassa fyrir leynilegu atkvæðagreiðsluna. Vísir/anton brink

Náið var fylgst með þingfundi á öðrum degi 47. þings Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í dag en þar var tekist á um einkar umdeilda tillögu sem varðaði það hvort varaforsetum ASÍ yrði fækkað úr þremur í einn. Tillagan var að endingu felld.

Miðstjórn lagði tillöguna fram á þinginu þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Tillagan var felld í laganefnd með 25 atkvæðum á móti 23 en var í kjölfarið lögð fyrir þingið þar sem um 300 fulltrúar fengu að greiða atkvæði um hana.

Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður Vísis, var viðstaddur fundinn á Hilton Reykjavík og ræddi við verkalýðsforingja.

Í stuttu máli eru átakalínurnar á milli Eflingar og VR. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sagt tillöguna koma úr ranni VR. Hún hefur sagt tillöguna vera tilraun Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til að sölsa undir sig völd innan ASÍ. Halla hefur alfarið hafnað því.

Sólveig Anna sagði í samtali við fréttastofu í gær að til skoðunar væri að Efling hreinlega segði sig úr sambandinu. Niðurstaða um fjölda varaforseta vegi þungt í því mati.

Þær bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta ASÍ en á morgun verða greidd atkvæði um varaforsetaembætti. Einnig verður nýr forseti ASÍ valinn á morgun og mun þá koma í ljós hver tekur við af Finnbirni Hermannssyni, fráfarandi forseta ASÍ. 

Í framboði til forseta eru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu. 

Fréttin var uppfærð eftir að niðurstöður voru kunngjörðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×