Viðvaranir á viðvaranir ofan Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. október 2026 22:54 Það verður hávaðarok í fyrramálið. Veðurstofa Íslands Hringveginum verður lokað undir Eyjafjöllum og alveg að Öræfum frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan níu hið minnsta vegna óveðursins fram undan. Spáð er norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi og stöku hviðum upp á 40 metra á sekúndu fyrir sunnan.
Lokun Hringvegarins gildir frá Heimalandi við Markarfljót og að Fagurhólsmýri í Öræfum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að um svokallaða mjúka lokun sé að ræða og að mannaðir lokunarpóstar verði á svæðinu. Lokun er í gildi á þessum kafla Hringvegarins í fyrramálið.Map.is Óvissustig verður í gildi frá og með í fyrramálið á vegum um land allt. Ökumenn eru varaðir við því að vegir gætu lokað með skömmum fyrirvara í öllum landshlutum nema suðvesturhorninu og á Austurlandi. Það er þó ekki að segja að það sé tilefni til að draga sólbekkinn fram þar. Fyrr í kvöld uppfærði Veðurstofan viðvaranir sínar og hafa nú verið gefnar út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð auk Vestfjarða og Stranda og Norðurlands vestra. Spáð er hvassviðri fyrir norðan og vestan og síðar norðanstórhríð. Gul viðvörun er áfram í gildi á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið. Veðurviðvaranir í gildi í fyrramálið og annað kvöld: Viðvaranir í gildi klukkan níu í fyrramálið.Veðurstofa Íslands Veðurviðvaranir í gildi klukkan 21 annað kvöld.Veðurstofa Íslands Óveðursvaktin hefst í fyrramálið Appelsínugul viðvörun tekur fyrst gildi á Suðurlandi klukkan fimm í nótt og gildir til klukkan tíu. Mesta hvassviðrið mjakast norður yfir landið eftir því sem á daginn líður. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Breiðafirði um hádegið og færist svo vestur á firði seinnipartinn. Annað kvöld er svo spáð vonskuveðri á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra með norðan stórhríð, hávaðaroki og þungri snjókomu. Vísir verður með vakt snemma í fyrramálið þar sem verður hægt að fylgjast með öllum vendingum.
Veður Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Sjá meira