,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 10. október 2026 17:41 Brynjar var vægast sagt ekki sáttur eftir leik kvöldsins. Víkingur Ólafsvík „Hún var bara hörmuleg. Þetta var mjög andlaust,“ sagði Brynjar Kristmundsson, einn af þjálfurum Stjörnunnar, eftir þriggja marka tap gegn KA í Bestu deild karla í dag. Hann var afar ósáttur við frammistöðu sinna manna og taldi tapið geta hafa orðið stærra. „
Ég man ekki eftir mörgum réttum ákvörðunum. Við vorum mjög slitnir og þetta hefði eiginlega getað orðið talsvert stærra.“ Stjarnan tapaði öðrum leiknum í röð og Brynjar var spurður hvort leikmenn væru mögulega farnir að bíða eftir því að tímabilinu lyki. „Það er erfitt að segja eitthvað annað eftir þessa frammistöðu.“ Undirbúningurinn hefði þó gefið tilefni til að ætla að liðið myndi mæta betur til leiks. „Eins og ég sagði fyrir leik, vikan er búin að vera fín. En um leið og dómarinn flautaði leikinn á fann maður fyrir einhvers konar orkuleysi. Menn voru ekki að spila hver fyrir annan og fyrir félagið og það er áhyggjuefni.“ Brynjar sagði leikmenn þurfa að sýna félaginu meiri virðingu þótt liðið væri ekki lengur í baráttu um efstu sætin eða að verjast falli. „Þetta verða langar tvær vikur ef þetta heldur svona áfram. Ég held að menn þurfi bara að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta.“ „Þó að við séum ekki að keppa að neinu þá erum við samt enn þá að spila fyrir Stjörnuna og fyrir fólkið hérna í Garðabænum. Þetta var bara ekki boðlegt.“ Þjálfarateymið og leikmenn myndu setjast niður á mánudagsmorgun og ræða hvernig ætti að ljúka tímabilinu. „Við þurfum bara að setjast niður allir saman og ræða málin, hvernig við viljum gera þetta síðustu tvær vikurnar. Það er eitt að tapa en annað að tapa á þennan hátt.“ „Við þurfum að ákveða þetta saman sem hópur því fólk á betra skilið en þetta.“ Brynjar taldi mögulegt að sigurinn í fyrsta leik neðri hlutans hefði orðið til þess að leikmenn slökuðu á, enda fallhættan þá orðin lítil. Hann lagði þó áherslu á að liðið þyrfti að klára tímabilið almennilega. „Þetta mót er 27 leikir og við þurfum að klára það almennilega. Það skiptir ekki máli þó við séum ekki að keppa fyrir neitt, það er ekki sjálfsagt að spila fyrir Stjörnuna og þú þarft að sýna það í hverjum einasta leik og á hverri einustu æfingu að þú viljir halda áfram að spila fyrir Stjörnuna.“
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Stjarnan Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira