Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Magnús S. Guðmundsson skrifar 6. október 2026 16:16 Ísland vann 5-1 stórsigur gegn Sviss í síðustu viku. vísir/Guðmundur Íslenska U21 árs landslið karla tryggði sér sæti í umspili um sæti á Evrópumótinu eftir sannfærandi 0-2 sigur á Færeyjum ytra í lokaumferð undankeppninnar í kvöld. Íslenska liðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda og treysta um leið á að Sviss myndi ekki vinna Frakkland. Strákarnir kláruðu sitt verkefni af miklu öryggi og Frakkar réttu risastóra hjálparhönd þegar þeir völtuðu yfir Svisslendinga. Umspilssæti Íslendinga er því staðreynd. Ísland byrjaði leikinn af miklum krafti og Daníel Tristan Guðjohnsen fékk dauðafæri strax á fjórðu mínútu eftir góðan undirbúning Amins Cosic. Hans Arngrímsson í marki Færeyinga varði hins vegar vel. Fyrsta markið lét þó ekki bíða lengi eftir sér. Amin var aftur í aðalhlutverki á 14. mínútu þegar hann gerði frábærlega á vinstri vængnum, kom boltanum inn í teig þar sem Benóný Breki Andrésson var vel staðsettur og skallaði boltann í netið. Aðeins þremur mínútum síðar var staðan orðin 0-2. Daníel Freyr Kristjánsson fékk þá boltann vinstra megin, lék á varnarmann og sendi fyrir markið. Þar tók Daníel Tristan Guðjohnsen við boltanum, lagði hann fyrir sig og skoraði annað mark Íslands. Íslenska liðið hafði öll völd á vellinum og var nær því að bæta við mörkum en Færeyingar að minnka muninn. Davíð Helgi Aronsson skallaði meðal annars í stöng eftir tæplega hálftíma leik og Ísland leiddi verðskuldað með tveimur mörkum í hálfleik. Á sama tíma bárust sífellt betri fréttir frá Frakklandi. Frakkar voru komnir í 3-0 gegn Sviss fyrir leikhlé og þar með var ljóst að íslenska liðið var komið með örlögin í eigin hendur. Ísland hélt áfram að stjórna leiknum eftir hlé. Daníel Tristan, Benóný Breki og Hlynur Freyr Karlsson fengu allir tækifæri til að bæta við mörkum en án árangurs. Eftir því sem leið á síðari hálfleikinn dró nokkuð úr hraðanum. Íslenska liðið hafði þó áfram góða stjórn á leiknum á meðan Færeyingar áttu í miklum vandræðum með að skapa sér hættuleg færi. Heimamenn fengu sitt fyrsta alvöru færi ekki fyrr en í uppbótartíma en þá var sigur Íslands fyrir löngu orðinn öruggur. Lokatölur 0-2 og íslensku strákarnir fögnuðu því umspilssæti fyrir sæti á EM eftir frábæran landsleikjaglugga. Ísland hafði áður gert jafntefli við sterkt lið Frakklands og unnið Sviss 5-1 áður en ferðinni var heitið til Færeyja. Undirbúningurinn fyrir lokaleikinn var þó ekki áfallalaus því upphaflegu flugi liðsins til Færeyja var aflýst vegna veðurs og kom liðið því sólarhring síðar til eyjanna en áætlað hafði verið. Það virtist ekki hafa mikil áhrif á íslensku strákana. Þeir mættu ákveðnir til leiks, kláruðu verkefnið af fagmennsku og geta nú farið að undirbúa sig fyrir umspilið. EM-draumurinn lifir. Atvik leiksins Byrjun Íslendinga var svo sannarlega atvik leiksins. Þrátt fyrir að koma seinna til Færeyja en ætlunin var þá var engin þreyta í okkar mönnum. Fyrstu 25 mínútur leiksins voru eign Íslendinga frá A-Ö. Þeir voru á undan í öllum aðgerðum og á sama tíma voru Færeyingar á hælunum. Alvöru karakter í strákunum okkar sem voru greinilega klárir í að sigla sigrinum heim. Stjörnur og skúrkar Stjörnurnar í dag voru Amin Cosic, Benóný Breki og Daníel Tristan. Stjörnurnar þrjár sýndu mikil gæði. Amin Cosic var fremstur meðal jafningja. Í fyrri hálfleik var hann allt í öllu og fíflaði Færeyinga aftur og aftur. Skúrkar dagsins Færeyskir. Heimamenn mættu ekki til leiks í fyrri hálfleik, virkuðu hægir og stressaðir. Dómararnir Dómaratríóið í dag var maltneskt. Tríóið stóð sig vel og ekki hægt að kvarta yfir þeirra aðgerðum. Þeir létu leikinn rúlla vel og voru ekkert að flauta að óþörfu. Stemmning og umgjörð Færeyjar skörtuðu sínu fegursta í dag en mætingin á vellinum var skammarleg. Örfáar hræður mættu í stúkuna og umgjörðin því litlaus. Landslið karla í fótbolta