Innlent

Portúgalsfarinn á bak við lás og slá

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Sautján manns voru handteknir í aðgerðum lögreglu þann 22. september.
Sautján manns voru handteknir í aðgerðum lögreglu þann 22. september. Vísir/Sigurjón

Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöld, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Hann hafi handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í aðgerðunum í september en hann var þá erlendis. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann verið ytra í einhvern tíma en hann er með skráð símanúmer í Portúgal.

Karlmaðurinn eftir að dómari hafði samþykkt kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir honum.Vísir/Sigurjón

Sjá einnig: At­hafna­maður sagður hand­tekinn í Leifs­stöð

Sautján manns voru handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra sátu í gæsluvarðhaldi. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi vegna málsins og síðustu tveir voru látnir lausir á föstudag. 


Málið er um margt forvitnilegt meðal annars vegna fjölda hinna handteknu og tengsla við bílaumboðið BL sem segist vinna með lögreglu við rannsókn málsins. Veistu eitthvað um málið? Sendu okkur fréttaskot á Vísi.


Fréttin er í vinnslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×