Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 18:34 Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður og sérfræðingur Sýn Sport, fór yfir pressuna sem er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara fyrir leik kvöldsin. Vísir/Samsett Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands, segir Arnar Gunnlaugsson einfaldlega verða að landa sigri með íslenska landsliðinu í kvöld gegn Lúxemborg. Pressan er farin að gera vart um sig og langt frá síðasta sigurleik. „
Hann er stressaður,“ sagði Kári í upphitun fyrir leik kvöldsins á Sýn Sport aðspurður hvernig Arnari líði núna þegar að úrslitin hafa ekki verið að falla Íslandi í vil undir hans stjórn. „Hann verður að vinna. Svo einfalt er það,“ bætti Kári við og sagði Lúxemborg sterkari andstæðing en Eistland sem við mættum um daginn. „Þeir hugsa að þeir eigi að vinna þetta líka Lúxemborg, en við eigum að vinna þetta.“ Aron Elís Þrándarson tók í svipaðan streng. „Við verðum að fá alvöru frammistöðu í kvöld. Þjóðin er búinn að vera bíða eftir vítamínsprautu, fá góða frammistöðu til að byggja ofan á,“ sagði Aron Elís Þrándarson. Arnar tók við stjórnartaumunum hjá íslenska landsliðinu í janúar árið 2025. Liðið hefur aðeins unnið þrjá leiki undir hans stjórn í sextán leikjum. Aðeins tveir þeirra eru keppnisleikir og síðasti sigurinn kom fyrir rúmum tíu mánuðum síðar. Menn farnir að finna fyrir pressunni. „Já ég efast ekki um það. Ég held það myndu allir, sérstaklega þjálfarateymið, vilja værum að ná betri árangri, að þetta væri að virka. Það sem Arnar er að reka sig á er að leikskipulagið og þessi taktík sem hann er að spila er kannski ekki alveg að skila stigum í hús. Er þetta of flókið? Er of lítill tími til þess að koma þessu inn í landsliðsbolta? Erum við með réttu leikmenn í þetta?“ Leikur Íslands og Lúxemborgar hefst klukkan korter í sjö og er sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Upphitun fyrir leik er hafin.
Fótbolti Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira