Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 16:31 Vladimir Barbin er sendiherra Rússlands í Danmörku. EPA Sendiherra Rússlands í Danmörku telur að danska herþyrlan hafi sýnt fram á „ögrandi“ hegðun. Vegna þessa hafi rússneskir skipverjar skotið blysum í átt að þyrlunni.
Þetta segir Vladimir Barbin, sendiherra Rússlands í Danmörku, í skriflegu svari við fyrirspurn danska ríkisútvarpsins. Rússar muni rannsaka atvikið. „Tilraun Dana til að útskýra ögrandi aðgerðir þyrlunnar gegn rússnesku freigátunni sem „hefðbundna framkvæmd“ vekur alvarlegar áhyggjur af hugsanlegum afleiðingum slíks kæruleysis,“ segir í svari Barbin. „Því miður hafa Danir engan áhuga - og hafa aldrei haft - á að koma í veg fyrir að ástandið á sjó stigmagnist, eða á að innleiða traustvekjandi aðgerðir.“ Rússar hafi lagt fram endurteknar tillögur um að kanna möguleikann á að gera samning til þess að koma í veg fyrir einhvers konar atvik á sjó, bæði á hafsvæðinu og í lofthelginni. Danir hafi hins vegar staðfastlega hafnað öllum tillögunum. Hafi ekki ögrað á neinn hátt Tveimur blysum var skotið frá skipinu á dönsku herþyrluna í gær. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Dana, kallaði Barbin á sinn fund í kjölfarið en þyrlan var í reglubundnu flugi undan ströndum bæjarins Gedser. Rasmussen þvertekur fyrir að Danir hafi ögrað skipinu á nokkurn hátt. „Auðvitað gerðum við það ekki. Það sem við gerum til að fylgjast með okkar eigin nærumhverfi er fullkomlega löglegt. Það gefur Rússum enga afsökun fyrir því að byrja að skjóta á okkur,“ sagði Rasmussen. Jeppe Bruus, varnarmálaráðherra Dana, neitaði því einnig að flugmenn þyrlunnar hefðu sýnt fram á ögrandi eða ranga hegðun.
Danmörk Rússland Hernaður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira