Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Birgir Olgeirsson skrifar 8. september 2026 17:09 Ríkisstjórnin boðar tæplega sextán prósenta hækkun kílómetragjalds á næsta ári og vill fjármagna fleiri framkvæmdir með veggjöldum. Stjórnvöld telja heimilt að innheimta bæði gjöldin fyrir sama akstur þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. Anton Brink Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um.
Þessi lagarök voru sett fram í greinargerð frumvarpsins um innviðafélagið fyrr á árinu. Þar segja stjórnvöld að bann vegalaga við samtímis innheimtu veggjalds og notkunargjalds fyrir sama mannvirki nái ekki til kílómetragjaldsins. Það sé skattur á akstur óháð leiðinni, en veggjaldið greiðsla fyrir notkun tiltekins vegar, brúar eða ganga. Hækkunin ekki bundin vegagerð Í fjárlagafrumvarpinu segir að kílómetragjaldið hækki um 15,9 prósent. Innifalin sé 5,2 prósenta hækkun vegna verðlags, en hækkunin umfram hana skili ríkissjóði fjórum milljörðum króna. Tekjur af ökutækjum og eldsneyti eigi þannig að nálgast markmið stjórnvalda um 1,7 prósent af landsframleiðslu, verðmætasköpun landsins á ári. Tekjurnar eru ekki sérstaklega ætlaðar vegagerð. Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Bryndísar Haraldsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um hvort sveitarfélög ættu að fá hluta kílómetragjaldsins vegna vega sem þau annast segir: „Þannig skuli skatttekjur ekki eyrnamerktar verkefnum eða rekstraraðilum […]“ Fyrir fólksbíl sem ekið er fimmtán þúsund kílómetra á ári myndi boðuð hækkun kílómetragjaldsins nema um 16.600 krónum. Veggjöld fyrir notkun einstakra vega, brúa eða ganga kæmu til viðbótar.Vilhelm Ráðherra segir Alþingi eiga „að ákveða í fjárlögum hverju sinni til hvaða aðila og verkefna skatttekjum er ráðstafað.“ Féð getur því farið í vegagerð en er ekki bundið henni. Núverandi gjald fyrir almennan fólksbíl er 6,95 krónur á kílómetra. Við fimmtán þúsund kílómetra ársakstur jafngildir boðuð hækkun um 16.600 krónum á ári, úr 104.250 krónum í tæplega 121 þúsund. Þetta er reiknidæmi út frá prósentuhækkuninni, ekki endanleg gjaldskrá. Veggjöld kæmu til viðbótar. Áform um að auka þessar skatttekjur eru þó eldri en fjárlagafrumvarpið. Bæði fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar fyrir árin 2025–2029 og áætlun núverandi ríkisstjórnar fyrir árin 2026–2030 gerðu ráð fyrir að tekjur af ökutækjum og eldsneyti næðu 1,7 prósentum af landsframleiðslu árið 2027. Í áætlununum segir að þannig eigi að mæta tekjutapi vegna fjölgunar rafbíla og sparneytnari bíla. Viðmiðið sé meðalhlutfall þessara tekna á árunum 2010–2017. Þetta var markmið um heildartekjur af ökutækjum og eldsneyti, ekki fyrirfram ákveðin prósentuhækkun kílómetragjaldsins. Hundruð eða þúsundir króna fyrir ferð Við Hornafjarðarfljót eru þegar innheimt veggjöld á nýjum, tæplega 19 kílómetra kafla Hringvegarins nálægt Höfn í Hornafirði. Framkvæmdin nær til fjögurra brúa og tengivega og styttir Hringveginn um tólf kílómetra. Samkvæmt gjaldskrá Spalar kostar stök ferð fólksbíls undir 3,5 tonnum 1.500 krónur. Afsláttur er veittur eftir ferðafjölda og mánaðarhámarkið er 18.750 krónur. Stök ferð fólksbíls um Vaðlaheiðargöng kostar 2.216 krónur, samkvæmt upplýsingum rekstrarfélagsins. Nýja Ölfusárbrúin norðan Selfoss á að beina gegnumakstri út fyrir bæinn. Ríkisstjórnin vill að innviðafélagið Göng og brú taki við fjármögnun brúarinnar og standi undir kostnaðinum með veggjöldum.Anton Brink Vegagerðin hefur jafnframt lagt til 495 króna gjald yfir nýju Ölfusárbrúna, niður í 250 krónur þegar keyptar eru margar ferðir. Brúin er norðan Selfoss og tengir Hringveginn vestan bæjarins við veginn austan hans, þannig að gegnumakstur fer út fyrir þéttbýlið. Vísir greindi frá gjaldatillögunni í febrúar. Upphæðirnar eru á áætluðu verðlagi í október 2028, þegar stefnt var að opnun brúarinnar. Gjaldskráin er ekki endanleg. Vegagerðin segir gjald á Sundabraut enn óákveðið; það eigi að taka mið af kostnaði, væntri umferð og því hvað vegfarendur séu tilbúnir að greiða. Lán og veggjöld eigi að flýta framkvæmdum Í frumvarpinu er óskað eftir heimild til að leggja fé eða eignir í Göng og brú, sem byggir á Vaðlaheiðargöngum. Stjórnvöld segja lán, veggjöld og betri undirbúning eiga að flýta framkvæmdum. Gjöldin greiði byggingu, rekstur, viðhald og vexti. Rök stjórnvalda eru að innviðafélag með eigin tekjur og langtímalán geti skipulagt framkvæmdir til fleiri ára og verði síður háð fjárveitingum Alþingis ár hvert. Sérhæft starfsfólk eigi jafnframt að bæta undirbúning og stjórn verkefnanna. Þannig eigi að byggja fyrr og tryggja meiri samfellu í framkvæmdum. Fyrstu verkefnin verði fjármögnun Ölfusárbrúarinnar og Fljótagöng milli Fljóta í Skagafirði og Siglufjarðar. Stefnt sé að framkvæmdum við 5,3 kílómetra göngin síðari hluta ársins 2027. Þau leysi ásamt nýjum vegum af Strákagöng og leiðina um Almenninga. Félagið geti tekið við mannvirkjunum við Hornafjarðarfljót. Veggjöld af fleiri leiðum styðji undirbúning Sundabrautar, tvöföldunar Hvalfjarðarganga og Fljótaganga. Hvað fer í vegaframkvæmdir? Fjárlagarumvarpið gerir ráð fyrir 32,5 milljörðum til vegaframkvæmda, samanborið við 34,3 milljarða í ár. Þriggja milljarða framlag til vegagerðar vegna Hvammsvirkjunar falli þó niður. Án þess hækkar framlagið um 1,1 milljarð, eða 3,6 prósent, áður en verðhækkanir eru reiknaðar með. Á myndinni eru Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ásamt Eyjólfi Ármannssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni og Daða Má Kristóferssyni. Í greinargerð stjórnvalda segir að tilfærsla mannvirkja til innviðafélags geti bætt afkomutölu ríkissjóðs, án þess að framkvæmdirnar verði ódýrari eða peningar skili sér aftur í ríkiskassann.Anton Brink Boðuð 3,5 milljarða viðbót lækki um 850 milljónir vegna niðurskurðar. Einnig færist 600 milljónir í almenningssamgöngur á landsbyggðinni og 100 milljónir vegna Vaktstöðvar siglinga og öryggis sjófarenda. Tæpir tveir milljarðar standi eftir áður en aðrar breytingar séu reiknaðar með. Ríkisstjórnin nefnir einnig 1,6 milljarða aukningu til vegakerfisins. Byggja eigi brýr yfir Skjálfandafljót á Norðausturvegi og Sléttuá við Reyðarfjörð, halda áfram að aðskilja akstursstefnur á Kjalarnesi og Suðurlandsvegi og leggja veg um Gufudalssveit. Ljúka eigi uppbyggingu Norðausturvegar milli Þórshafnar og Vopnafjarðar og hefja framkvæmdir við Bíldudalsveg.
Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kílómetragjald Veggjöld Fjárlagafrumvarp 2027 Alþingi Tengdar fréttir „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag. 8. september 2026 16:35 „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er upplitsdjörf í aðdraganda haustþings en þing var sett nú fyrir skemmstu. Hún segist vona að bókun 35 verði ekki fyrirferðamesta þingmál vetrarins og segist sérstaklega spennt fyrir umræðum um auðlindagjöld. 8. september 2026 15:24 Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sanngirnisbætur, samfélagsmiðlabann, bókun 35 og meðferð sakamála er meðal þess sem tekið verður fyrir á komandi þingi. Formenn stjórnarflokkanna reifuðu þingmál vetrarins í morgun. 8. september 2026 12:00 Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Sjá meira
„Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag. 8. september 2026 16:35
„Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er upplitsdjörf í aðdraganda haustþings en þing var sett nú fyrir skemmstu. Hún segist vona að bókun 35 verði ekki fyrirferðamesta þingmál vetrarins og segist sérstaklega spennt fyrir umræðum um auðlindagjöld. 8. september 2026 15:24
Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sanngirnisbætur, samfélagsmiðlabann, bókun 35 og meðferð sakamála er meðal þess sem tekið verður fyrir á komandi þingi. Formenn stjórnarflokkanna reifuðu þingmál vetrarins í morgun. 8. september 2026 12:00