,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Stefán Árni Pálsson skrifar 5. september 2026 20:18 Chris Brazell stýrði Val suður með sjó í dag. vísir/anton brink Chris Brazell, þjálfari Vals, var ánægður eftir mikilvægan 2-1 sigur liðsins gegn Keflavík á HS Orku-vellinum í dag. Honum fannst sigurinn vera verðskulduð umbun fyrir vinnuna og frammistöðuna sem leikmenn Vals hafa sýnt undanfarnar vikur. „
Ég er virkilega ánægður fyrir hönd strákanna. Mér finnst dagurinn í dag vera umbun fyrir síðustu vikur þar sem mér finnst þeir hafa sýnt virkilega góðar frammistöður og lagt gríðarlega mikið á sig,“ sagði Chris eftir leik. Valsmenn höfðu aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum fyrir leikinn í dag og Chris taldi liðið hafa átt meira skilið úr nokkrum þeirra. „Ég ætla ekki að segja að við höfum verið óheppnir í síðustu leikjum en við höfum klárlega sýnt frammistöður sem hefði getað skilað okkur mun fleiri stigum en við fengum.” Valur komst í 2-0 með mörkum Jónatans Inga Jónssonar og Dags Orra Garðarssonar áður en Marin Mudražija minnkaði muninn fyrir Keflavík. Heimamenn sóttu hart að Valsmönnum undir lokin og viðurkenndi Chris að lokakaflinn hefði minnt hann á fyrri leiki liðsins. „Undir lokin var þetta svolítið eins og „déjà vu”. Við vorum 2–1 yfir, héngum á forystunni og þeir fengu eitt eða tvö tækifæri. En mér fannst þetta ekki snúast um að þetta hafi fallið með okkur í dag, heldur var það vegna þess að við lögðum okkur fram frá fyrstu mínútu og alveg til loka.“ Tímabilið hefur verið erfitt hjá Val en Chris hrósaði karakter leikmanna sinna og því hvernig þeir hafa brugðist við mótlætinu. „Mér finnst við sem lið hafa sýnt virkilega góðan karakter. Strákarnir hafa sýnt það síðustu vikurnar. Ég held að fólk hafi ekki endilega gaman af því að heyra að Valur hafi átt slæmt tímabil. Það er eins og fólk finni ekki til með Val en innan liðsins sé ég auðvitað hvaða áhrif það sem hefur gengið á hefur haft á liðið.“ „Það sem ég hef séð frá liðinu er stöðug seigla og hæfileikinn til að standa alltaf aftur upp. Ég sé hversu mikið þeim er annt um þetta. Ég sá það í klefanum eftir síðasta leik og ég sá það aftur úti á vellinum í dag. Það er það sem ég er ánægðastur með.” Valsmenn vissu fyrir leik að þeir þyrftu á sigri að halda til að eiga áfram möguleika á sæti í efri hluta deildarinnar. Chris vildi þó ekki gera of mikið úr pressunni sem fylgdi leiknum. „Það er auðvelt að segja að þetta hafi verið leikur sem við urðum að vinna. Hefðum við tapað eða gert jafntefli hefðum við samt þurft að vakna á morgun og halda áfram. „Strákarnir gefa allt í æfingar og leiki og í dag fannst mér við fá það sem við áttum skilið, bæði miðað við þennan leik og síðustu vikur.“ Valur gerði sitt með sigrinum en þarf að bíða eftir úrslitum annarra liða til að vita hvort liðið endar í efri hlutanum. Aðspurður hvort hann ætlaði að fylgjast með þeim leikjum sagði Chris: „Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður og jafna mig,“ „Staðan í deildinni er í raun ekki það sem ég einbeiti mér að. Ég horfi á frammistöðuna og auðvitað stigin líka. Í dag fengum við hvort tveggja.“
Besta deild karla Valur Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Leik lokið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Sjá meira