Innlent

Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. 

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út að beiðni lögreglu.

Að sögn Írisar Eddu Heimisdóttur, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, voru samtals átta farþegar í bílunum þremur sem lentu í slysinu. 

Fjórir þeirra voru fluttir til aðhlynningar með þyrlu Gæslunnar til Reykjavíkur. Tveir þeirra voru alvarlega slasaðir, segir í Facebook-færslu Lögreglunnar á Suðurlandi. Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar.

Lokað er fyrir umferð í báðar áttir á Suðurlandsvegi austan við Sólheimajökul meðan á vinnu á vettvangi stendur. Íris segir umferðarþunga vera á svæðinu en lögregla á vettvangi reyni að finna hjáleið sem hægt er að beina umferð annað. 

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi vinnur nú að vettvangsvinnu sem gæti dregist fram á kvöld, segir í færslu lögreglu. Hún biðlar til vegfarenda að sýna tillitssemi á meðan vettvangsvinnu stendur.

Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við umferðartöfum á Hringvegi undan Sólheimajökli. Búist sé við því að vegurinn verði opnaður kl 21:30 að nýju.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×