Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. september 2026 09:40 Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir stofnaði hópinn fyrir ári síðan. Vísir/Anton Brink Stjórnandi Facebook hópsins Áfram stelpur hyggst stofna félagasamtök utan um hópinn sem ætlað er að aðstoða þolendur ofbeldis. Hún segir fjölda þeirra sem orðið hafa fyrir allskyns ofbeldi á Íslandi vera sláandi og flestir þolendur séu yfirleitt með fleiri en einn gerenda. Dómskerfið hafi brugðist.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Bítinu á Bylgjunni þar sem rætt var við Aðalheiði Ósk Þorsteinsdóttur. Hún stofnaði Facebook hópinn Áfram stelpur fyrir ári sem vettvang fyrir konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi til þess að segja frá því nafnlaust eða undir nafni. Næst ætlar Aðalheiður að stofna félagasamtök en tíu þúsund konur eru í hópnum. „Ég er að leggja lokahönd á félagasamtök í kringum hópinn. Ég fór svo sem út í eitthvað sem ég vissi ekki hvað ég var að gera. Mig langaði bara að nýta ömurlega reynslu og gera eitthvað geggjað við hana. Ég hef sjálf reynslu af því að fara í gegnum réttarkerfið með engu réttlæti. Ömurlegar málsmeðferðir. Það var annað hvort bara að leggjast niður og gefast upp eða taka þetta og gera eitthvað við þetta. Sem betur fer þá valdi ég seinni kostinn og er hér í dag.“ Hvernig sérðu fyrir þér að þessi félagasamtök þróist? „Eins og þetta er orðið núna þá langar mig svo mikið til að geta komið fólki í réttan farveg. Það er rosa mikið um það að fólk er búið að bera eitthvað með sér í tugi ára. Og þegar þú færð hugrekki til að geta sagt frá, til dæmis eins og mér, manneskju sem þú þekkir ekki neitt þá er rosalega mikilvægt að þú getir leiðbeint í rétta átt og ég geri það og ég fylgi fólki í skýrslutökur, Stígamót, Bjarkarhlíð.“ Aðalheiður segist telja að mun fleiri hafi orðið fyrir ofbeldi en meðlimafjöldinn í hópnum gefi til kynna. Hún hafi ýtt úr vör herferð með vitundarvakningu um ofbeldi. Það sé sláandi hve margar konur hafi tjáð sig um ofbeldi, flestar með fleiri en einn geranda. „Og mjög margar konur að stíga fram í fyrsta sinn, hafa aldrei nokkurn tímann sagt þetta upphátt. Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir traustið sem mér er sýnt. Þú veist, þó að þetta komi fram í nafnlausri færslu, þá sé ég nöfnin á bak við þessar færslur og einmitt sem þolandi ofbeldis sjálf, þú veist, það er meira en að segja það að ætla að fara að treysta einhverri konu úti í bæ sem þú þekkir ekki neitt fyrir þessari hörmulegu reynslu sem þú fórst í gegnum.“ Þarna er verið að birta myndir og nöfn af meintum gerendum, þá jafnvel mönnum eða konum, sem hafa ekki hlotið neina dóma og það er náttúrulega, einhverjir myndu segja að það væri á gráu svæði? „Það er það. En það er líka rosalega mikilvægt að gera þetta rétt. Ef við gerum þetta rangt þá bæði missum við trúverðugleikann, bæði sem þolendur og hópurinn. En það líka skiptir gríðarlegu máli að gera þetta rétt. Eins og mér finnst skipta miklu máli að efla fólk til að segja frá ofbeldinu sem það hefur orðið fyrir þá skiptir mig alveg jafn miklu máli ef ekki meira að gera það rétt.“ Hún segist vanda sig mjög, konurnar megi einungis segja frá sinni eigin reynslu en ekki reynslu annarra. „Okkur langar það kannski, okkur langar að segja frá hörmulegri reynslu sem besta vinkona okkar varð fyrir eða vinur eða eitthvað slíkt. Það er ekki okkar að segja frá því. Af því við verðum líka að taka tillit til þolenda, að þeir eru kannski ekki tilbúnir að segja sína sögu. Þá megum við heldur ekki stíga fram fyrir og taka eitthvað sem væri ekki okkar að segja frá. Ég er líka bara að læra og hef vandað mig mikið, þegar það koma póstar, að leiðbeina. Þannig að það sé ekki hægt að taka póstana og nota þá gegn okkur.“ Þannig þú ert með skýrar reglur um hvað á að gerast inni á þessum hópi? „Já. Og ég hjálpa öllum. Það skiptir ekkert máli af hvaða kyni þú ert. Líka aðstandendur þolenda og aðstandendur gerenda. Það er nýr hópur sem er að leita til mín núna.“ Þú nefndir dómskerfið, þér finnst það ekki vera að fúnkera almennilega? „Það gerir það ekki. Það bara gerir það ekki. Það verður að breyta því. Og það er alveg fólk þarna úti sem vill breyta og bæta. Það bara verður að gera það. Af því bara eins og við kennum börnunum okkar. Það verða að vera afleiðingar af því sem við gerum. Ef þú ert kannski búinn að vera fullorðinn gerandi, hefur komist upp með að beita ofbeldi í mörg ár, tugi ára og þetta er það sem þú vilt gera og þú kemst upp með það, af hverju þá að hætta því?“
Kynferðisofbeldi Bítið Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Fleiri fréttir Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Sjá meira