Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Sindri Sverrisson skrifar 29. ágúst 2026 18:07 Elfar Árni Aðalsteinsson lagði upp ótrúlegt mark fyrir Völsung í dag. Haffi Húsavík Það ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni hvort það verður Völsungur, Grindavík eða ÍR sem fellur með Ægi úr Lengjudeild karla í fótbolta.
Völsungur hélt sér á lífi með frábærum 3-1 sigri gegn ÍR á Húsavík í dag. Staðan var jöfn, 1-1, þegar rúmlega korter var til leiksloka en þá sýndi reynsluboltinn Elfar Árni Aðalsteinsson mikla kænsku. Eftir sókn Völsungs var Vilhelm Þráinn Sigurjónsson, markvörður ÍR, með boltann í höndunum. Hann fattaði ekki að Elfar Árni læddist á bakvið hann og þegar Vilhelm lagði svo boltann niður á grasið var Elfar fljótur til og kom boltanum á Sergio Garcia sem skoraði auðveldlega. Gestur Aron Sörensson innsiglaði svo sigur Völsungs í uppbótartíma og sá til þess að ÍR-ingar eru áfram í fallhættu fyrir lokaumferðina. Völsungur er enn í fallsæti en nú með 23 stig, stigi á eftir Grindavík og tveimur á eftir ÍR. Markatala Völsungs er jafnframt slökust svo liðið verður að vinna Gróttu á útivelli í lokaumferðinni næstu helgi til að geta haldið sér uppi. Grindavík og ÍR enn með örlögin í eigin höndum Grindavík er með örlögin í eigin höndum, eftir frábæran 4-3 sigur gegn HK fyrr í dag, og dugar að vinna fallið botnlið Ægis í lokaumferðinni. ÍR spilar hins vegar grannaslag við Leikni og þarf að minnsta kosti stig þar ef bæði Grindavík og Völsungur vinna sína leiki. HK hélt sér í 4. sæti þrátt fyrir tapið gegn Grindavík þar sem að Njarðvík tapaði á sama tíma 2-0 fyrir Leikni á útivelli. Afturelding tryggði sér sigur í deildinni fyrr í dag, og þar með sæti í Bestu deildinni. Fyrir lokaumferðina er ljóst hvaða fjögur lið fara svo í umspil um seinna lausa sætið í Bestu deildinni. Þróttur og Fylkir eru í 2. og 3. sæti með 40 stig hvort, en HK og Njarðvík í 4. og 5. sæti með 35 stig hvort, sjö stigum á undan næsta liði sem er Leiknir sem nú er jafnframt öruggt að fellur ekki.
Lengjudeild karla Völsungur Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Fleiri fréttir „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira