Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. ágúst 2026 14:29 Myndin sýnir viðbragðsaðila að störfum á vettvangi. Getty/Kostiantyn Liberov Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar.
Árásin beindist að vopnageymslu sem staðsett var í nágrenni við íbúasvæði. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás Rússa hafa orsakað sprengingar í drónum, jarðsprengjum og fleiru sem þar var geymt. Árásin hafi þannig haft áhrif á nærliggjandi íbúasvæði, sem og dvalarheimili aldraðra. Selenskí segir að ráðist verði í rannsókn á vanrækslunni sem leiddi til þess að búnaðurinn var geymdur í nálægð við íbúasvæði. Forsetinn segir að þeir sem ábyrgir séu eigi jafnvel ákæru yfir höfði sér. Selenskí sagði enn fremur að úkraínskar loftvarnir hefðu skotið niður 233 dróna Rússlandshers í nótt. Dauðsföll urðu þó víðar í Úkraínu í nótt, þar af var eitt fórnarlambið fjórtán ára og annað tveggja ára, að því er BBC greinir frá. Rússnesk yfirvöld greina á sama tíma frá því að tuttugu og fimm hafi slasast í árásum Úkraínuhers yfir landamærin og tveir hafi látist síðasta sólarhringinn. Þá greinir rússneska netverslunin Ozon frá því að drónaárás hafi verið gerð á eitt vöruhúsa sinna í nótt. Ráðist hafði verið á fyrirtækið á fjórum öðrum stöðum í Rússlandi fyrr í þessari viku.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Fleiri fréttir Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Sjá meira