Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2026 14:31 KR skoraði fimm mörk gegn Fram í Úlfarsárdalnum í gær og lyfti sér upp í 2. sæti Bestu deildar karla með sigrinum. vísir/anton KR hefur slegið rúmlega þrjátíu ára gamalt met ÍA yfir flest mörk eins liðs í fyrstu átján leikjum á einu tímabili í efstu deild á Íslandi. KR-ingar skoruðu fimm mörk gegn Frömurum í gær og hafa skorað 64 mörk í fyrstu átján leikjum sínum í Bestu deildinni, eða 3,6 mörk að meðaltali í leik.
Hið goðsagnakennda lið ÍA skoraði 62 mörk þegar það varð Íslandsmeistari með miklum yfirburðum 1993. Skagamenn unnu sextán af átján leikjum sínum og fengu 49 af 54 stigum sem í boði voru. Víkingur sló markamet ÍA 2022 en þá hafði leikjum í efstu deild fjölgað um níu frá því Skagamenn settu sitt met. Sé litið til flestra marka í átján leikjum á einu tímabili átti ÍA það met, allt þar til í gær. Fyrir leikinn gegn Fram var KR búið að skora 59 mörk í fyrstu sautján leikjum sínum í Bestu deildinni og ljóst að með því að skora þrjú mörk á Lambhagavellinum myndu KR-ingar jafna 33 ára markamet Skagamanna. KR gerði gott betur, vann 2-5 sigur og hefur nú skorað 64 mörk í fyrstu átján deildarleikjum sínum, tveimur mörkum meira en ÍA gerði 1993. Öll 64 mörk KR í Bestu deildinni í sumar má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Öll mörk KR í sumar KR stendur liði ÍA frá 1993 langt að baki þegar kemur að stigum og mörkum fengnum á sig. Sem fyrr sagði fengu Skagamenn 1993 49 stig en KR hefur fengið 39 stig í fyrstu átján leikjum sínum. KR-ingar hafa fengið á sig 39 mörk í sumar en Skagamenn 1993 fengu einungis á sig sextán. Yfir hundrað mörk í leikjum KR Hægt hefur verið að treysta á mikið fjör í leikjum KR í sumar. Í leikjunum átján hjá liðinu í Bestu deildinni hafa samtals verið skoruð 103 mörk, eða 5,7 að meðaltali í leik. KR hefur skorað fimm mörk í þremur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og alls sex sinnum í sumar. KR hefur einu sinni skorað sex mörk í leik, tvisvar sinnum fjögur mörk, fimm sinnum þrjú mörk, tvisvar sinnum tvö mörk, einu sinni eitt mark og aðeins einu sinni hefur liðinu mistekist að skora, í 2-0 tapi fyrir Víkingi 16. júní síðastliðinn. Aron Sigurðarson hefur skorað sextán mörk fyrir KR í Bestu deildinni og lagt upp sjö.vísir/anton Þrettán leikmenn hafa skorað fyrir KR í sumar. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson er markahæstur með sextán mörk. Eiður Gauti Sæbjörnsson hefur skorað ellefu mörk og Luke Rae og Arnór Ingvi Traustason sitt hvor sjö mörkin. Með sigrinum í gær komst KR upp í 2. sæti Bestu deildarinnar. Liðið er sex stigum á eftir toppliði Víkings. Næsti leikur KR er gegn Breiðabliki á Meistaravöllum á sunnudaginn.
Besta deild karla KR Tengdar fréttir Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram KR komst upp fyrir Fram í 2. sæti Bestu deildar karla eftir 2-5 sigur í leik liðanna á Lambhagavellinum í gær. KR-ingar slógu rúmlega þrjátíu ára gamalt markamet í leiknum. 11. ágúst 2026 08:01 Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Kennie Chopart var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður Fram í tapinu fyrir KR í kvöld. Hann skoraði bæði mörkin fyrir Fram og reyndi að leiða sína menn til baka en náði ekki að klífa fjallið í 2-5 tapi í 18. umferð Bestu deildar karla. 10. ágúst 2026 22:19 „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Galdur Guðmundsson átti fantagóðan leik fyrir KR í kvöld þegar KR lagði Fram á útivelli í 18. umferð Bestu deildar karla. Hann skoraði fimmta mark leiksins og kom mikið að marki númer 2. Leikurinn endaði 2-5 fyrir KR sem hoppaði yfir Fram í annað sætið. 10. ágúst 2026 21:50 Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar unnu 5-2 sigur á Fram í Úlfarsárdalnum í sjö marka lokaleik átjándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld og náðu með því öðru sætinu af Framliðinu. 10. ágúst 2026 21:05 Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram KR komst upp fyrir Fram í 2. sæti Bestu deildar karla eftir 2-5 sigur í leik liðanna á Lambhagavellinum í gær. KR-ingar slógu rúmlega þrjátíu ára gamalt markamet í leiknum. 11. ágúst 2026 08:01
Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Kennie Chopart var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður Fram í tapinu fyrir KR í kvöld. Hann skoraði bæði mörkin fyrir Fram og reyndi að leiða sína menn til baka en náði ekki að klífa fjallið í 2-5 tapi í 18. umferð Bestu deildar karla. 10. ágúst 2026 22:19
„Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Galdur Guðmundsson átti fantagóðan leik fyrir KR í kvöld þegar KR lagði Fram á útivelli í 18. umferð Bestu deildar karla. Hann skoraði fimmta mark leiksins og kom mikið að marki númer 2. Leikurinn endaði 2-5 fyrir KR sem hoppaði yfir Fram í annað sætið. 10. ágúst 2026 21:50
Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar unnu 5-2 sigur á Fram í Úlfarsárdalnum í sjö marka lokaleik átjándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld og náðu með því öðru sætinu af Framliðinu. 10. ágúst 2026 21:05