„Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Árni Jóhannsson skrifar 10. ágúst 2026 21:50 Galdur Guðmundsson fagnar markinu sem hann pottþétt skoraði gegn Fram. Vísir / Anton Brink Galdur Guðmundsson átti fantagóðan leik fyrir KR í kvöld þegar KR lagði Fram á útivelli í 18. umferð Bestu deildar karla. Hann skoraði fimmta mark leiksins og kom mikið að marki númer 2. Leikurinn endaði 2-5 fyrir KR sem hoppaði yfir Fram í annað sætið.
Galdur var spurður að því hvað KR gerði rétt í þessum flotta sigurleik. „Á ég ekki bara að þetta hafi verið góð liðsheild. Það var orka í okkur, við vitum að við komum okkur í færi, við sköpum alltaf færi og skorum mörk. Mér fannst þeir ekki ógna mikið nema mörkin úr hornum og svo færið sem Dóri [Halldór Snær Georgsson] varði til að halda okkur yfir í 2-3. Þeir komust ekki í nein dauðafæri. Liðsheildin skapaði þennan sigur í dag. Þegar við náum orkunni upp þá eru fá lið sem standa í okkur í deildinni.“ Eins og komið hefur fram þá minnkaði Fram muninn í 2-3 í upphafi seinni hálfleiks en KR stóðst pressuna. „Þegar þeir skoruðu annað markið eftir horn, ég stóð fyrir utan teiginn og hugsaði, er þetta einn af þessum dögum. Mér fannst við bregðast vel við þessu og eftir að Dóri varði dauðafærið þá náðum við að koma okkur ofar á völlinn og skora fjórða markið.“ „Þetta var mesta Ástbjörn Þórðarson mark sem ég hef séð. Klafsar honum einhvern veginn í markið og léttir svolítið á öxlunum á okkur. Maður sá það líka á Fram liðinu að þetta var högg í magann. Svo klára ég þetta í lokin. Þetta var frábært og ekkert eðlilega sáttur. Það er nefnilega ekkert grín að koma hingað og ná í þrjú stig. Drulluánægður með liðið.“ Eiður Gauti Snæbjörnsson skoraði tvö mörk í dag en baðst undan viðtali með þeim að orðum að Galdur hafi skorað fyrra markið hans. Hvernig leit þetta mark út frá Galdri? „Við skoruðum 2 þarna á fyrstu sjö mínútunum en ég reyndi að spyrja Helga Mikael að því hver skoraði en hann gat ekki svarað því. Ég held að Eiður fái þetta skráð á sig en þetta hefði aldrei farið inn nema Eiður hefði skrínað Framarann sem var á línunni að reyna að hreinsa. Ég kann að meta að Eiður reyni að gefa mér þetta en Eiður fær þetta mark. Ég er sáttur. Þegar ég eða Eiður skorum þá skora KR og allir sáttir.“ Galdur hefur fengið fleiri tækifæri undanfarið og tekið það vel. Hvernig líður honum í KR treyjunni? „Mér fannst ég vera klár. Ég er að spila vel með sjálfstraust. Ég er einn að þeim leikmönnum. Mér líður vel í þessu KR liði, er með sjálfstraust og við erum að spila skemmtilegan fótbolta og ég er að komast í endalaust af færum. Eins og í dag, ég hefði getað skorað meira. Ég er með sjálfstraust og líður vel og þá er ég leikmaðurinn sem ég er.“
KR Besta deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira