„Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 15:36 Vala Matt ræddi við vinina Jón Axel Ólafsson og Óskar Finnsson um ást þeirra á saunum í nýjasta þætti Íslands í dag. Sýn Félagarnir og athafnamennirnir Jón Axel Ólafsson og Óskar Finnsson hittast reglulega í sánu sem Jón Axel er með á pallinum hjá sér og þeir slaka þar á og njóta svo góðra veitinga hjá Óskari sem er einn af virtustu matreiðslumönnum landsins. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti þá félaga á palli Jóns Axels.
Félagarnir hittist einu sinni í viku og fari í sánuna og pottinn. „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna. Við erum náttúrulega búnir að þekkjast í fjörutíu ár núna á næsta ári þannig að við erum svona búnir með allt hitt þannig að nú erum við bara að taka hlutina sem skipta máli.“ Þó Jón Axel sé þekktastur sem einn af vinsælustu fjölmiðlamönnum landsins þá er hann einnig mjög handlaginn og listrænn og hefur undanfarin ár verið með fyrirtækið Jax handverk. Þar hefur hann meðal annars hannað og smíðað útihúsgögn sem þola hreinlega öll íslensk veður og hafa þau því verið gríðarlega vinsæl. „Það vildi eiginlega þannig til 2017 þá sagði konan við mig: „Heyrðu, ég er orðin þreytt á þessu drasli sem fýkur hérna allan veturinn, farðu nú og smíðaðu eitthvað handa okkur sem getur verið hérna úti. Og þá varð þetta borð til,“ segir Jón Axel og bendir á borðið sem þeir félagarnir sitja við. „Þetta er borð númer eitt,“ bætir hann við. Einblíni á vörur sem þarf helst ekkert að hugsa um Síðan þá hefur hann smíðað nokkur slík borð fyrir fólk um land allt. „Við erum eingöngu að einbeita okkur að vörum sem fólk þarf helst ekkert að hugsa um. Það getur bara verið úti og það þarf ekkert að hafa áhyggjur af því.“ Ein sánanna hans Jóns var flutt á svalir á sjöundu hæð í blokk. „Það var svolítið skemmtilegt.“ „Sánan er ekki nema 1,1 tonn. Þetta var bara krani, við fengum besta kranabílstjóra í bænum til þess að mæla þetta allt saman út fyrir okkur og tryggja það að það yrði ekkert vesen. Svo þurftum við reyndar að loka þarna götum og búa til svona vesen. Það er ekkert gaman að vera með eitthvað svona einfalt. Þannig hún fór bara beint þarna nánast upp á þak og bara öllum til mikillar prýði og sóma.“ „Ég og grill erum svolítið tengd“ Óskar er verðlaunakokkur en hann gaf út bók á dögunum með viðbættum grillkafla. Bókin kom fyrst út í fyrra og fékk gríðarlega góðar viðtökur. „Hún seldist upp á örfáum mánuðum þannig að hún var prentuð núna og við bættum í þá bók svona grillkafla, þar sem hún kom út að vori til og ég og grill erum svolítið tengd. Þannig að það kom svona brot af því besta þarna inn.“ Óskar segir bókina vera tímalausa. „Hún er jafn góð eftir eitt ár og eftir tvö ár, það er bara búið að pakka mínum fjörutíu árum saman þannig ég er bara ofboðslega ánægður með hvað hefur gengið vel,“ segir Óskar. Veitingastaður Óskars og fjölskyldu, Finnson Bistro, í Kringlunni er einnig gríðarlega vinsæll. „Þar er öll fjölskyldan en fjölskyldan á staðinn, ekki ég. Ég var hins vegar fyrsti starfsmaðurinn en krakkarnir og konan sjá um þetta og reka þetta. Ég fæ að vera með þeim í hádeginu í tvo, þrjá tíma og það er bara æðislegt.“
Ísland í dag Grillréttir Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira