Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. júlí 2026 21:44 Tjaldsvæðið á Borgarfirði eystri. Myndin er úr safni. Vísir Lögreglan á Austurlandi segir ágætlega hafa gengið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina en veður hafi sett strik í reikninginn. Einhverjir gestir þurftu að leita skjóls í íþróttahúsi í gærnótt vegna hvassviðris og úrkomu og óttast er að komi til svipaðs ástands í nótt. „
Við erum aðeins farin að hafa áhyggjur af kvöldinu og nóttinni en vongóð og vonum það besta,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Austurlandi. Eitthvað hafi fækkað í gestafjöldanum á taldsvæðinu eftir gærnóttina en enn séu margir á svæðinu, „þannig það er svona áhyggjuefni vegna veðurs, bæði vegna vinds og mögulegrar úrkomu,“ segir Kristján. Einhverjir gestir hafi þurft að leita sér skjóls í gærnótt vegna hvassviðris og úrkomu „Komi til svipaðs ástands í kvöld og nótt eru gestir á tjaldsvæðum sem leita þurfa skjóls beðnir um að gefa sig fram við viðbragðsaðila á svæðinu,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Búst er við hvassviðri og úrkomu í nótt á Austfjörðum.Aðsend/Sigvaldi Kristján gat ekki sagt til um nákvæman gestafjölda, „en bara byggt á reynslu þegar ég hef verið þarna, þá er bærinn nánast undirlagður og það er tjaldað þarna á hverjum bletti.“ Fólk sem þurfti skjól í gær hafi fengið að gista í íþróttahúsinu í bænum, „svo verður Bræðslusalurinn sjálfur mögulega nýttur en það verður bara að koma í ljós hvernig það verður afgreitt. En öllum verður komið í skjól sem þurfa.“ Lögreglan á Austurlandi segir eitthvað að gestum hafi pakkað saman í gærnótt vegna veðurs. Aðsend/Sigvaldi Hann segir talsverðan viðbúnað vera á svæðinu en lögregla, björgunarsveitin Sveinungi á Borgarfirði og Heilbrigðisstofnun Austurlands séu með viðbragðsaðila á svæðinu. „Það er talsvert mikið af, mikið af fólki til aðstoðar ef eitthvað kemur upp á. Við vonum að þetta bara fari vel og veðrið fari vel með okkur.“ Vegna veðurs voru markaður, grillveisla og aðrir viðburðir sem stóð til að halda úti færðir innandyra, segir á Facebook-síðu Bræðslunnar. Aðsend/Sigvaldi „Við stjórnum víst ekki veðri, en það verður heitt og gott inni í Bræðslu í kvöld og tónleikarnir munu verða stórglæsilegir að vanda.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Múlaþing Bræðslan Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira